top of page

Í kennslubók til stúdentsprófs


Lestu ekki hetjuljóð, sonur sæll, lestu stundatöflur:

þær eru áreiðanlegri. Sléttu úr sjókortunum áður en það er um seinan. Vertu á verði, ekki syngja. Sá dagur rennur upp að þeir hamri aftur yfirlýsingar sínar á dyrnar og auðkenni brjóst þeirra sem segja nei með leynilegu tákni. Lærðu að dyljast, lærðu meira en ég:

að skipta um lögheimili, vegabréf, andlit.

að sýna slægð í smáglæpum,

hversdagsins skítugu bjargráðum. Dreifibréf

gera gagn sem uppkveikja,

stefnuskrár: til að búa um smjörið og salt

fyrir þá sem ekki geta varið sig. Bræði er þörf og þolinmæði svo blása megi innum lungu valdsins fínu banvænu rykinu, möluðu

af hinum margfróðu, og áreiðanlegu, fyrir þig.

Hans Magnus Enzensberger



natturulogmalin.jpg

Fáðu tilkynningu þegar
bloggið er uppfært:

bottom of page