top of page

Til heiðurs h og speedway veitingavagninum


Hann er soldið einsog hellir fullur af myndum

& svörtum & hvítum köflóttum fánum

þar getur man auðveldlega óverdósað á koffíni

enginn annar veitingastaður er nær heimili okkar,

í mesta lagi fimm mílur, hann er mjög ódýr

man getur farið þangað þótt man eigi næstum engan pening

þau leyfa mani að nota símann

ég get keypt tartarsteik fyrir $2.25

en ég hef aldrei kallað það það

segi bara hamborgari með eggjarauðu

pikkles & hvítlauksdufti auk

sjávarsaltsins sem ég tek með mér

eigandinn, h (sem h-borgarinn heitir eftir)

er mælskur, furðulegur, með jólasveinabumbu undir axlaböndunum

það eru öskubakkar útumallt & dásamlegt gamaldags kúluspil

hann minnir á east nassau en hann er í west lebanon held ég

man getur alltaf talað um veðrið og veiðar

kúnnarnir eru víðsýnir einsog þjónustustúlkan & þjónninn

sem fer á hnén þegar hann tekur á móti pöntunum

á veiðitímabilinu opnar staðurinn hálffimm að morgni

hann er skráður til sölu en þeim er ekki alvara

eiginkonu h finnst að hann eyði of miklum tíma þarna (sem er satt)

og þess vegna fór hún að kalla hann sama nafni og hundurinn þeirra, peaches

h horfir mikið á northern exposure, ó & ég

gleymdi að nefna uppstúfinn með hakkinu

sem er gerður frá grunni, gráleitur & geggjaður

& borinn fram á brauðbollu. um daginn

keypti h reykofn & í ár ætlum við að mæta í gamlárs-

partíið & éta fylltar rækjur og/eða humar


Bernadette Mayer

natturulogmalin.jpg

Fáðu tilkynningu þegar
bloggið er uppfært:

bottom of page