top of page

Fiskars: Uppgjör og einkunnir


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 1, 2017 at 3:38am PST

Ég man ekki hvað var fyrsta í fiskars. Sennilega er þetta þorskur með sólþurrkuðum tómötum og ólífum. Eitthvað þannig. Lítur girnilega út. Ég skýt á 7/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 2, 2017 at 10:59am PST

//platform.instagram.com/en_US/embeds.js Annan dag fiskarsmánaðar var ég sennilega með rauðsprettu á byggbeði. Eða eitthvað. Skelfilegt að skrifa þetta ekki niður. Segjum 6/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 3, 2017 at 11:29am PST

Þriðji í fiskars var líka pizzaföstudagur. Skýrir sig sjálft. 8/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 4, 2017 at 10:26am PST

Fjórða í fiskars var kedgeree með reyktri ýsu. 7,5/10 (mjög gott en svolítið þungt).


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 5, 2017 at 10:06am PST

Fimmta í fiskars rækjupasta. 8/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 7, 2017 at 10:10am PST

Sjötti. Sennilega var þetta ekki nema 6,5/10 – óeftirminnilegt. En það var áreiðanlega rjómi í þessu og hann klikkar sjaldan. Í öllu falli var enginn afgangur svo einhverjum hefur þótt þetta gott.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 8, 2017 at 5:37am PST

Sjöunda var ég kominn í ferðalag. Ég var ekki nógu ánægður með þennan plokkfisk – þetta var eitthvað smjörfræst. En ætla að gefa Messanum annan séns við tækifæri, það segja allir að þetta sé svo gott. 6/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 8, 2017 at 10:13pm PST

Leifsstöð. Spicy Tuna á Joe & The Juice. 6/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 10, 2017 at 6:51am PST

Hádegismatur í Hamar á Rolf Jacobsendagene. 5/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 11, 2017 at 9:59am PST

Ég át líka talsvert af kjöti í fiskars, en þá með eða á öðrum tíma (í hádeginu þá mest). En alltaf einhvern fisk. 8/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 13, 2017 at 6:36am PDT

Þetta var mjög gott. Svolítið hipsteraleg þessi smjörfroða og það hefði auðvitað átt að vera maltedik með en fiskurinn var alveg solid. 9/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 14, 2017 at 11:24am PDT

Heimkominn fór ég í víetnamska nostalgíu. 8/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 15, 2017 at 10:54am PDT

Ég gerði svo mikið af brjálæðislega góðri hnetusósu með vorrúllunum – notaði hluta af afganginum til að smyrja þennan vestfirska silung. 8/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 16, 2017 at 12:18pm PDT

Þetta er sennilega eftirlætisréttur Nödju. Þessi sósa – sem er bara smjör, sérrí, kóríander, (thai) basilika, steinselja og skalottlaukur – er svakaleg. 8/10 (Nadja færi sennilega í 9,5/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 17, 2017 at 11:48am PDT

Aftur kominn pizzaföstudagur. Það er plokkfiskur með bernaise innan í hálfmánanum. Plokkarinn fær 8,5/10. Hin 8/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 18, 2017 at 11:01am PDT

Sænskasti rétturinn. 7,5/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 19, 2017 at 1:04pm PDT

Verst að fá bara frosinn lax. En sennilega stendur það til bóta með öllu þessu eldi. 7/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 20, 2017 at 5:10am PDT

Þykkar franskbrauðssneiðar ristaðar á pönnu, hálf dós af lifur, hálft avókadó, lambhagasalat og „sterk sinnepssósa“ – hefði hugsanlega notað majones, en átti þetta til. Kúfuð skeið af svörtum hrognum. Salt og pipar. 9/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 20, 2017 at 11:09am PDT

Nadja fór til Frakklands og þá var ástæða til að bæta kjöti í matinn. 7,5/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 21, 2017 at 2:06pm PDT

Þetta var síðasti dagurinn með eldhús. Svo kom smiðurinn og tók af mér eldhúsið og ég færði allt mitt hafurtask inn í stofu. Þar sem ég kláraði fiskars á hrísgrjónapotti, örbylgjuofni, vöfflujárni og George Foreman Lean Mean Fat-Reducing Grilling Machine. 9/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 22, 2017 at 11:20am PDT

Ég man ekki alveg hvað þessi réttur frá Kára var. Sennilega langa í sinnepssósu. Ég hafði pantað hrísgrjónapottinn frá Reykjavík og hélt að hann kæmi ekki fyrren degi síðar – en svo kom hann og ég vildi prófa. Ég notaði örbylgjuofninn til að elda lönguna og svo notaði ég hann ekkert meir. 6,5/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 23, 2017 at 11:12am PDT

Karlakórinn var að selja reyktan lax. Ég fékk hann heimsendan í vinnuna. 8/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 25, 2017 at 2:46am PDT

„Tími til að njóta“. (Ég er reyndar alger sökker fyrir svona núðlum). 7/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 25, 2017 at 11:19am PDT

Hrísgrjónapotturinn fékk að vinna fyrir laununum. Það er hægt að nota hann alls konar – t.d. steikja lauk í botninum. Ég segi ekki að risotto sem maður sinnir viðstöðulaust í góðum potti sé ekki betra – en þetta er ótrúlega próblemfrítt. Og hörpudiskurinn grillaður í Formanninum. 7,5/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 26, 2017 at 11:25am PDT

Ég keypti svona vatnakarfa í tælenska frystinum í pólsku búðinni (þegar tælensku búðinni var lokað breytist hún í horn í pólsku búðinni). Þegar ég kom heim fór ég að gúgla tegundinni – tinfoil barb hét þetta á umbúðunum – og fann bókstaflega enga uppskrift en mikið um að þeir væru hafðir fyrir gæludýr. Og eitthvað um að vatnakarfi almennt væri grillaður víða í asíu, bara svona beint upp úr vatninu. Ég gerði það en mæli ekki með því. Frekar leiðinlegur á bragðið og alveg skelfilega mikið af beinum. 3/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 27, 2017 at 4:42am PDT

Körfuboltastelpurnar voru að selja rækjur. Ég hef bara held ég aldrei gert rækjusalat áður en geri oft túnfisksalat með svipuðum prinsippum. Heimalagað majo gerir gæfumuninn (og er fáránlega auðvelt – majomafíunni hefur einhvern veginn tekist að sannfæra heiminn um að það þurfi að kaupa dollurnar þeirra því þetta sé eitthvað moj, en það er alger misskilningur). 7/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 28, 2017 at 4:08am PDT

Aftur fékk hrísgrjónapotturinn að trylla lýðinn. Ég er enginn ægilegur sushikall – en hvað gerir maður ekki þegar maður á ekkert eldhús? Þetta var líka ágætt. 7/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 29, 2017 at 5:11am PDT

//platform.instagram.com/en_US/embeds.js Þennan dag eldaði ég ekki neitt. Við fórum í mat til M&P um kvöldið og ég fékk mér þetta í hádeginu til að fiskarsa mig upp. 6,5/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 29, 2017 at 12:44pm PDT

Þetta var ótrúlega gott. 9/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 30, 2017 at 12:17pm PDT

Þetta var líka alveg brjálæðislega gott. 9/10.


A post shared by Eiríkur Örn (@eirikurorn) on Mar 31, 2017 at 12:17pm PDT

Í staðinn fyrir pizzur gerði ég quesadillas í Formanninum. Börnin fengu sín venjulegu pizzaálegg en ég gerði eina með surimi, avocado, mozzarella og sterku salsa og aðra með reyktum laxi, pestó, lauki og mozzarella. Sú fyrri fær 7/10 en seinni 8,5/10.

natturulogmalin.jpg

Fáðu tilkynningu þegar
bloggið er uppfært:

bottom of page