Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Staðir og skáldskapur · Íslenska

Vetur í Víetnam

Eiríkur og barn á báti í Víetnam

1

Eiríkur: Ég er hræddur við að búa í sveit. 

Nadja: Ég á ekki við að við búum í sveit. En ég vil ekki búa í borg. Þú veist ekki hvernig þetta getur verið. Ég vil geta farið í göngutúr og ekki heyrt í umferðinni. 

Eiríkur: Ég veit ekkert hvað leynist í náttúrunni. Snákar, ber – það er ekki einsog hérna. Náttúran er hættuleg og við þekkjum hana ekki. 

Nadja: En það er millistig. Hvorki stórborg né sveit. Kannski getum við verið nálægt hafinu. 

Eiríkur: Þægindin kosta. Það er ódýrast að leigja við umferðaræðar. Ódýrast að leigja fjarri hafinu.

2

Það fyrsta sem ég lærði í Víetnam var að óttast ekki dauðann. Við höfðum varla sofið í sólarhring eftir flugið frá Stokkhólmi og skakklöppuðumst rangeyg út af hótelinu í matarleit, ég leiddi Aram Nóa og Nadja var með Aino Magneu ólaða á bakið, við þrömmuðum í gegnum stjórnlaust öldurót mótorhjóla, reiðhjóla, götusala, leigubíla, ruslabíla og rúta. Gengum í vegkantinum eða bara úti í vespugerinu því í Víetnam eru gangstéttirnar fyrir ávaxtasala, farartæki og veitingastaði, bara í Hanoi deyja um 30 manns í umferðinni á dag. En maður þarf að borða. Börnin manns þurfa að borða. Og þetta gerir fólk – þetta er eðlilegt og flestir koma lifandi heim til sín. Maður tekur skref eftir skref, heldur stöðugu tempói, breytir ekki um stefnu nema með góðum fyrirvara, bakkar ekki, hraðar ekki snögglega á sér og treystir því að enginn keyri bókstaflega á mann þótt þeir komi skuggalega nálægt. Það er ekkert jafn víst með að drepa mann í þessari umferð og það að óttast dauðann. Sá sem hikar tapar. Sá sem hikar deyr. Sem betur fer erum við of þreytt til að vera hrædd.

3

Við búum hvorki í sveit eða borg; erum í útjaðri Hoi An, sem er smábær á víetnamska vísu (90.000 manns), í miðju löngu landi, skotspöl á reiðhjóli frá miðbænum sem er krökkur af túristum, alveg ofan í hrísgrjónaekrunum við götu þar sem flestir eru líka bændur – halda kýr og hænsn, rækta mandarínur og kryddjurtir – og annan eins skotspöl frá ströndinni, 10 mínútna göngutúr frá rútustöðinni og þaðan tekur hálftíma að komast til Da Nang (megnið af þeim tíma fer í að krefjast þess að borga ekki nema eitt og hálft fargjald, frekar en til dæmis fimmfalt, einsog við gerðum í fyrstu ferðinni). Miðbærinn í Hoi An er að stórum hluta frá 15. og 16. öld – á heimsminjaskrá UNESCO – og einu sinni í mánuði, á hálfu tungli, er slökkt á öllum rafljósum og bærinn upplýstur með gamaldags pappírsluktum. Verðið á veitingastöðunum fer stighækkandi eftir því sem nær dregur ánni sem rennur í gegnum miðbæinn. Í næstu götu við okkar er hægt að fá fjögurra manna máltíð fyrir 50 þúsund dong (320 krónur). Niðri í bæ getur aðalrétturinn farið upp í 500 þúsund dong (3200 krónur). Það eru rottur á loftinu sem halda vöku fyrir okkur sumar nætur með áflogum; upp veggina skríða gaggandi eðlur. Maður kemst ekkert án þess að heyra í umferðinni – án þess að heyra í nágrönnunum, götusölumönnum með hátalarakerfi á vespunum, skepnum og suði. 

4

Regntímanum var ekki lokið þegar við komum. Fyrstu dagana erum við föst í húsi; ég fer í þykkan regnponsjó og hjóla í bæinn eftir mat í myrkrinu. Á leiðinni til baka fylgi ég leiðbeiningum af Google Maps í símanum, sem leiðbeinir mér í heddfónunum, og ég villist inn í skóg. Ég held áfram í trausti þess að það séu engar stærri skepnur í myrkrinu, í trausti þess að stígurinn sem mér sýnist verða sífellt mjórri hverfi hvergi og það séu ekki á honum neinar rætur, ekkert drasl í veginum sem getur fellt mig. Ég held ég sé áreiðanlega að fara í rétta átt. Google myndi ekki ljúga að mér. Ég get ekki staðnæmst til að skoða kortið því þá slokknar á hjólaluktinni og ég vil ekki standa þarna einn í algeru myrkri. Eftir stutta stund, sem mér virðist vera eilífð, tek ég eftir ljóstíru handan við trén, birtunni af ljósastaur, og á endanum kem ég út á Le Hong Phong, götunni okkar, bara skotspöl frá húsinu.

5

Mér er sagt að Víetnam sé Tæland fátæka mannsins. Hingað koma þeir sem þola ekki túrismann í Tælandi. Þeir sem síðan þola ekki túrismann í Víetnam fara til Laos, sem er Víetnam fátæka mannsins. Vestrænir túristar sem flækjast hér á milli landanna með bakpoka segja okkur að stóri munurinn á Laos og Víetnam sé sá að í Víetnam virki hlutirnir oftar en ekki – hér er yfirleitt rafmagn, yfirleitt vatn, lestirnar ganga yfirleitt á réttum tíma – en í Laos (eða Kambódíu) sé engu treystandi. Við förum hvorki til Laos né Tælands; við erum hérna til að vera hérna. 

6

Áreitið er viðstöðulaust. Og það er ekki bara hægt að kenna hávaðanum um, ekki bara rigningunni og umferðinni og hitanum, ekki bara karókívélunum og heilgrilluðu hundunum sem hanga á teini hjá götusölunum, ekki bara túristunum og ágengum sölumönnunum, ekki bara viðstöðulausri nærveru stríðsins – fórnarlömb jarðsprengja og Agent Orange má enn finna víða – ekki bara bufflarnir og hundarnir sem gera aðsúg að mér á hlaupum, ekki bara rotturnar á þakinu eða eðlurnar á veggjunum, ekki bara óvanaleg hegðun fólksins (það sem þeir hlæja að óförum annarra; það sem þeir hía á fólk), heldur verður maður líka að líta sér nær. Þetta er einsog að mæta við rætur Hvannadalshnjúks húfu- og vettlingalaus; án félagslegrar skeljar í Hanoi eða Ho Chi Minh, alinn upp í fámenninu – maður hefur engar forsendur til þess að mæta þessu samfélagi fyrren maður hefur veðrast svolítið. Stundum finnst mér einsog ég þyrfti helst að vera hér í nokkrar lífstíðir áður en ég geti leyft mér að segja neitt af neinu öryggi.

7

Nadja: Opnar klukkan átta? Ekki er fólk að panta sér föt klukkan átta á morgnana?

Skraddarinn: Nei. Ég hangsa mestmegnis bara fyrripartinn – sit og les og sinni þeim sem koma. 

Nadja: Hvað ertu að lesa?

Skraddarinn: Blöð og tímarit. 

Nadja: En bækur?

Skraddarinn: Ha ha!

Nadja: Hvað?

Skraddarinn: Víetnamar lesa ekki bækur. 

Nadja: Hvað meinarðu?

Skraddarinn: Hefur þú séð einhverjar bókabúðir hérna?

Nadja: Nei. 

Skraddarinn: Eða bókasöfn?

Nadja: Tja …  

Skraddarinn: Mér finnst heldur ekki skemmtilegt að lesa bækur. Víetnömum finnst það ekkert skemmtilegt. 

8

Það er mynd af Ho Chi Minh á peningunum; mynd af Ho Chi Minh á öllu öðru. Þegar ég sting kortinu mínu í hraðbankann verður skjárinn fyrst eldrauður, svo birtist hamar og sigð, og loks lógó bankans og síðan fæ ég að taka út pening. Í skjóli flokksins. Það tekur því ekki að fara í hraðbankann fyrir minna en þrjár milljónir, sem eru fleiri einingar en ég fæ skilið. Í Víetnam er minnsti seðilinn sem ég sé 500 dong – rétt rúmar þrjár krónur. Ég heyri sögur af 200 donga seðli en ég sé hann aldrei. Það er ekki til nein mynt. En allt er til sölu og það eru engin föst verð, ekki heldur þar sem stendur að það séu föst verð, ekki heldur þar sem eru verðmiðar. Allir eru kapítalistar. Skólagjöld í grunnskóla eru mjög lág en skóladagurinn er líka stuttur, allir fara í dýra einkakennslu fram á kvöld – leikskólakennarar lifa á mútum frá foreldrum, sem þeir fá gegn því að sýna börnum þeirra auka athygli. 

9

Það er ekki alveg satt að það séu engar bókabúðir í Hoi An – en bækurnar sem eru til sölu eru annaðhvort á erlendum málum fyrir túrista eða kennslubækur. Í stærstu bókabúðinni, sem kæmist fyrir inni á Mokka Kaffi í Reykjavík, finn ég tvær bækur á íslensku: Napóleonsskjölin eftir Arnald Indriðason og Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur. Eina bók eftir kónginn og eina eftir drottninguna. Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness er til en bara á ensku. Hér er einvörðungu sýslað með notaðar bækur, mest á ensku en líka á þýsku, frönsku og norðurlandamálunum. Í einni eða tveimur túristabúðum niðri í bæ má finna nýjar bækur, ólesnar, ósnertar – þessa einu víetnömsku skáldsögu sem þeir hafa áhuga á að selja manni, The Sorrow of War eftir Bao Ninh, sem er þeirra Platoon, merkilega svipuð; tilgangs- og viðstöðulaus slátrun á fólki í nafni málstaðar sem maður skilur ekki í bland við eiturlyfjanotkun og rugl sem fylgir barnungum hermönnum – smásagnasafnið The General Retires eftir Nguyen Huy Thiep, klassískar 19. aldar bókmenntir frá Evrópu og Ameríku, 3-4 samtímahöfunda sem eru vinsælir meðal enskumælandi andfætlinga, Elskhugann eftir Marguerite Duras (sem var eins konar Víetnami), matreiðslubækur og ljósmyndabækur. Já og frekar óspennandi ljóðabók eftir einhvern túrista, með teikningum af gamla bænum. Frægasti höfundur þeirra, Duong Thu Huong, var eitt sinn sjálfboðaliði í „stríðinu gegn Bandaríkjamönnum“, hafðist við í göngum og frumskógum í sjö ár og varð síðar einn af vinsælustu höfundum landsins en hún hefur lítið fengist útgefin innanlands síðustu tvo áratugina eftir að hafa tekið að gagnrýna yfirvöld í bókum sínum – í kjölfar þess að flokkurinn hvatti höfunda til þess, í perestroikískum anda seint á níunda áratugnum, en dró svo til baka þegar járntjaldið í Evrópu hrundi. Hún var fyrst rekin úr flokknum, svo ofsótt af stjórnvöldum, fangelsuð um skamma hríð fyrir kjaftæði og vitleysu, frelsuð af Amnesty og var árið 1996 svipt vegabréfinu sínu – en flúði til Parísar árið 2006. 

10

Þegar ég fer einn í bæinn hía þau á mig hvað ég sé stór. Big man, big man. Híhíhí. Og benda. Kalla á vini sína. Þegar ég fer með börnin, sérstaklega Aino sem er yngri og ljóshærðari, fá þau alla athyglina – granninn á vespunni á rauðu ljósi byrjar að strjúka henni um hárið og gera gjugg í borg á meðan við bíðum eftir græna ljósinu. 

You children? Spyrja þau (hvort sem ég er með eitt eða tvö). 

How old baby? spyrja þau. 

Tenty month, svara ég (því í samskiptum mínum við heimamenn tölum við öll jafn lélega ensku). 

You wife? spyrja þau og skilja ekkert þegar ég reyni að segja að hún sé heima, en ekki sem sagt á hótelherbergi eða í spa eða einhverju þvíumlíku. Hvernig vita þau að ég er giftur?

In house, segi ég. We hire house. Le Hong Phong (gatan okkar heitir það).  

Og svo reyna þau að féfletta mig. Mér skilst að hvítu fólki sé fyrst boðið sexfalt verð, kínverjum fjórfalt verð og suðausturasíubúum tvöfalt verð. Ég kaupi nokkra drekaávexti, mangó, hnetusósu, wokpönnu, jakkaföt, hálfan túnfisk, öndunarpípu og eina Macbook Air. Það er loksins hætt að rigna.

11

Einn daginn gengum við framhjá einfættum manni á handdrifnu reiðhjóli og Aram spurði mig hvort ég hefði séð hann. Fyrren varir var ég farinn að útskýra fyrir honum eitt og annað um jarðsprengjur og hernað – við höfum að vísu nokkrum sinnum talað stuttlega um Víetnamstríðið (sem Aram kallaði fyrst þorskastríðið; ég skildi ekkert hvað hann var að spyrja út í – nú kemur þorskastríðið alltaf líka til tals þegar við ræðum Víetnamstríðið, þorskastríð eru góð, víetnamstríð eru vond). Sjálfsagt er aldrei gaman að segja neinum frá jarðsprengjum sem hefur ekki nógu grimmilegt ímyndunarafl til að láta sér detta slíkt í hug, en það er áreiðanlega líka svolítið annað að útskýra fyrir barni jarðsprengjur í landi þar sem enn er mikið um fólk sem er einfætt fyrir þeirra sakir – þótt stríðinu hafi lokið löngu áður en ég fæddist. 

Nokkrum dögum eftir þetta hjólum við framhjá hópi grunnskólastelpna og ein þeirra er með sigið andlit, einsog það sé að bráðna utan af hauskúpunni og muni hvað á hverju byrja að drjúpa niður á gangstétt. Þær hlæja og fíflast, einsog grunnskólastelpur gera, og ég kann ekki við að stoppa þótt hörmungarklámfengin forvitnin sé alveg að bera mig ofurliði. Þegar ég geng í gegnum stríðsminjasafnið í Saigon einhverjum vikum síðar sé ég margar myndir af fólki með álíka einkenni, og ég tygg ofan í sjálfan mig það sem ég veit, það sem ég hef lesið svo oft. Þetta gerði Agent Orange. Þetta er hann enn að gera. 

12

Í sósíalismanum eru það ekki bara sjóræningjasíðurnar sem ógna allsherjarreglu heldur líka samfélagsmiðlarnir (í kapítalismanum höfum við meiri áhyggjur af upplausn fjármagns en upplausn félagsvitundar, í markaðssósíalismanum þarf að hafa kontról á hvorutveggja). Facebook er auðvitað bannað, en það er jafnvel einfaldara að fara framhjá því banni en afritunarvörnum íslenskra rafbóka – ég hef varla séð neinn opna fartölvu eða taka upp síma í þessu landi án þess að þar sé Facebook opið. Twitter og Google Plus eru líka bönnuð á sama hátt. Raunar viðurkennir ríkisstjórnin alls ekki að hún hafi bannað félagsmiðla ekki frekar en Pressan og miðlar hennar gangast við að hanga í sama ættartré og Framsóknarflokkurinn. Ríkisstjórnin kennir einhverjum öðrum um, ég man ekki alveg hverjum, útlendingum, árásum á netstrengi, ekki einu sinni heitustu kommúnistar leggja á það neinn trúnað og nákvæmlega hverjar lygarnar eru skiptir ekki máli nema maður vilji hafa þær eftir. Eitt og annað fleira er svo bannað – alls konar spjallforrit, heimasíður mannréttindasamtaka og auðvitað heimsvaldasinnarnir á BBC. Mér skilst að ástandið sé svo verst þegar kemur að miðlum á víetnömsku – miðlar á ensku geta gagnrýnt yfirvöld upp að vissu marki án þess að lenda í veseni en miðlar á víetnömsku mega að sögn ekki halla á hana máli að nokkru leyti án þess að vera lokað tafarlaust. Það ku síðan ekki meðmæli með innlendum rithöfundum að þeir fáist útgefnir í landinu. 

13

Í febrúar birtist frétt þess efnis í enskumælandi dagblaði, Vietnam News, að þrír einstaklingar hafi verið dæmdir af Alþýðuréttinum í  fyrir „sedition“  – að „kynda undir óánægju eða æsa til uppreisnar gegn ríkinu“, einsog það er þýtt á snöru.is. Í fréttinni kemur fram að viðkomandi einstaklingar hafi birt lygar og misvísandi upplýsingar um land, þjóð og flokk á Facebook og á heimasíðum Hoi Yeu Nuoc (Félags föðurlandsvina) og Hoi Anh Em Dan Chu (Lýðræðisbræðralagsins),  þar sem þeir hafi í ofanálag birt myndband frá mótmælum í Amata og handtöku mótmælenda. Það kemur ekki fram hvað þeir hafi sagt eða hverju hafi verið mótmælt, en brotin áttu sér stað á tveggja ára tímabili. Í fréttinni stendur að þeir hafi verið sakaðir um að misnota lýðræðisréttindi sín, málfrelsi, fundafrelsi, áfrýjunarfrelsi og réttinn til að nota internetið. 

Ég les fréttina alltaf annað veifið, kannski einu sinni í viku, til að reyna að átta mig betur á henni. Vietnam News er í eigu Vietnam New Agency sem er í eigu ríkisins sem er í eigu flokksins og ég átta mig ekki á því hvers vegna víetnamski kommúnistaflokkurinn sleppir þessum fréttum í loftið. Á einhverjum tímapunkti slær það mig að hugsanlega vilji ríkið alltaf senda út boð þegar það kúgar þegna sína, enda þjóni það þeim tilgangi að fá hina til að halda sig innan siðsamlegra marka – en Vietnam News er ekki fyrir innfædda, það er fyrir túrista og Viet Kieu (börn brottfluttra Víetnama, sem hafa snúið aftur, ekki síst frá Bandaríkjunum). Það er enginn praktískur tilgangur með því að ég viti að fólk sé handtekið fyrir að opna á sér munninn – nema kannski að flokkurinn vilji virðast koma til dyranna einsog hann er klæddur. Að þegar eitthvað verra kemur upp úr dúrnum geti hann svarað: Nei, einsog þú veist höfum við ekkert að fela, við skömmumst okkar ekki fyrir harðlínustefnuna heldur fögnum henni – þú sást það sjálfur í blaðinu.

14

Einn daginn er ég úti að hlaupa, pungsveittur í bolnum og það blæðir úr geirvörtunum á mér því mér finnst asnalegt að hlaupa ber að ofan og efnið nýr þær til blóðs – stundum ber ég á þær olíu eða held uppi bolnum á hlaupunum ef þetta er orðið mjög sárt. Það er alltof heitt hérna. Steikjandi djöfuls hiti. Ég hleyp á steyptum stíg sem hlykkjast eftir hrísgrjónaekrunum og er löngu orðin vanur því að hlaupa fram á rottur, buffla og kýr, fram á geltandi varðhunda sem standa lausir utan við hús eigenda sinna, flækingshunda sem virða mig ekki viðlits, vanur því að hlaupa í gegnum flugnager þótt mér bregði stundum þegar vespurnar koma þjótandi að baki mér án þess að flauta – ég er vitlaus og vestrænn og hleyp líka með tónlist í eyrunum þótt það sé stórhættulegt. Ég reyni að halda mig í kantinum. Fyrir framan mig á þröngum stígnum eru fjórir risavaxnir vatnabufflar – með þessi dýrðlegu horn sem eru á lengd við handleggina á mér, tveggja metra háum manninum – og á baki eins þeirra er bufflabóndinn á heimleið. Sólin er að setjast og ég vil komast út af ekrunum áður en það gerist, áður en bananaflugnagerið stígur upp úr gróðrinum og þekur hvern fermetra af hlaupastígnum mínum, fyllir öll mín vit, fer upp í augu og nef og munn og niður í háls, á meðan ég berst í gegnum svartamyrkrið. Ég hef enn sirka korter. En þegar ég kem aftan að aftasta bufflinum og bý mig undir að skjótast framhjá fælist hann og tekur á rás, ýtir aðeins við mér, ég snarstoppa en hinir þrír stökkva líka af stað – bóndinn fer í loftköstum niður á jörðina, lendir á fótunum, æpir á bufflana, grípur í taumana – einsog þessi 50 kílóa karlmaður gæti haldið aftur af fjórum fimm hundruð kílóa skepnum – snýr sér að mér og fer að hlæja þegar hann sér hvað ég er skelkaður. Bufflarnir hægja á sér eftir tuttugu metra spretthlaup og ég læðist framhjá. 

Annan dag er ég að læsa hliðinu. Aram situr á bögglaberanum hjá mér og Aino er í sæti á stýrinu hjá mömmu sinni. Við erum áreiðanlega á leiðinni á ströndina eða í sund á einhverju hóteli, erum áreiðanlega á leiðinni út að borða eða á markaðinn eða í „vestrænu búðina“ (þar sem er hægt að kaupa smjör, ost og kornfleks), og ég verð var við einhver læti neðar í götunni. Við hliðina á okkur, austanmegin, býr áburðarsali og garðyrkjubóndi og lætin koma úr garðinum við næsta hús þar fyrir neðan. Skyndilega sprettur fram stærðarinnar grís og tekur á rás niður götuna, hrín einsog hann eigi lífið að leysa – sem hann á – og svigar á milli áróðurspjaldanna á gangstéttinni („vertu góður kommúnisti og stattu með kjarnafjölskyldunni og hernum“) og áróðurspjaldanna á umferðareyjunni („ekki fá eyðni og hættu að reykja“) sem skiptir götunni í tvennt. Á eftir honum koma hlaupandi fjórir ungir karlmenn sem eru sjálfsagt samanlagt álíka þungir og grísinn, sem þeir ná samt að snúa niður og draga á bakinu upp á gangstétt, þar sem þeir leggja hann á bekk og skera á háls. Eða – ég held þeir hafi skorið hann á háls. Höfuðið er inni í garðinum en skrokkurinn úti á gangstétt; í öllu falli hættir hann að hrína, hættir að öskra, og hættir að hreyfa sig og bara liggur þarna. 

15

Þann 3. febrúar heldur kommúnistaflokkurinn upp á afmælið sitt. Í Vietnam News stendur reyndar að það verði haldið upp á afmælið þann 2. mars – 03.02 eða 02.03 það kemur út á eitt fyrir mörgum. Það er skipt um áróðurspjöld í bænum, þeim fjölgar mikið, fánar spretta upp úti um allt, borðar eru strengdir yfir götur og í blöðunum er fjallað um sigra flokksins, um það hvernig þjóðin væri á vonarvöl ef Ho Chi Minh hefði aldrei lesið Marx og Lenín, um einurð og samstöðu þjóðarinnar, fórnir hennar og baráttu. Í félagsheimili flokksins, sem er rétt hinumegin við götuna frá heimili okkar, eru alls kyns hátíðarhöld – kommúnistarnir sitja í kringum mikil langborð dúkuð með hvítu, drekka bjór og hlusta á ræður. Í miðjum salnum er gullstytta af Ho frænda. 

Í dag er 28. mars – flest öll áróðurspjöldin eru ennþá uppi og byrjað að hengja upp ný, fjölga þeim enn frekar, því eftir mánuð verður „friðinum“ fagnað. Þá verða liðin 40 ár frá því Norður-Víetnam innlimaði Suður-Víetnam – sem Bandaríkjamenn höfðu yfirgefið tveimur árum áður – í alþýðulýðveldið. Þá víkja aftur fréttir um það hvernig stjórnmálaleiðtogar nota Facebook (ég sver það, þetta er gagnslausasta bann í veröldinni) til að eiga í samskiptum við stórfjölskylduna og kjósendur sína fyrir fréttum um fórnir þjóðarinnar, speki Ho Chi Minh og dásemdir hinnar viðvarandi byltingar.

16

Ég vil ekki gefa ranga mynd af fjölmiðlum hérna. Þeir eru ekki bara jákvæðir. Í einhverjum skilningi eru þeir meira að segja oft mjög gagnrýnir. Í einu tölublaði Vietnam News (sem hefur nýverið hækkað í verði, úr 30 þúsund dong í 40 þúsund; og ég gruna blaðasalann augnablik um græsku, en það hefur verið settlað núna) er löng fréttaskýring um hversu illa stjórnvöldum gengur að ráða bug á fátækt í landinu. Og það hvarflar að mér að ef þessi frétt hefði birst á Íslandi og fjallað um Ísland – til dæmis einhverjum miðlum Framsóknarflokksins – hefði verið stutt í að menn bentu á nágrannalöndin og færu að berja sér á brjóst. Allt er nefnilega relatíft. Fátækt í Víetnam er ekki sambærileg við fátækt í Laos og Kambódíu. Barnadauðinn þar, menntakerfið þar, heilbrigðiskerfið þar, vegakerfi, internet, smitsjúkdómar, neysluvarningur – eiginlega er efnahagurinn í Víetnam þá hreinasta kraftaverk og gott ef ekki dónaskapur að kvarta undan smávægis auraleysi hjá einstaka framtakslausum aumingja. En svo myndi það kannski ekki gagnast Pressunni jafn vel að benda á nágrannalönd Íslands og það gæti gagnast Víetnömum – en það er önnur saga.  

Reyndar slær það mig á einhverjum tímapunkti hversu margar fréttir hérna snúast um framtíðina, hversu mikið er fjallað um þær ögranir sem fram undan eru, frekar en hvað hafi farið úrskeiðis í fortíðinni. Haft er eftir ráðherrum að næstu ár verði erfið. Haft er eftir embættismönnum að mikið verk sé óunnið. Útlitið sé ekki gott. Nú verði allir að herða sultarólina, taka á honum stóra sínum, framundan séu átök. Og ég velti því fyrir mér hvort það sé þetta sem skilgreini þróunarland – að eiga framtíðina fyrir sér en búa ekki handan endaloka sögunnar, einsog við þarna í Star Trek raunveruleikanum úti í rassgati, þar sem búið er að vinna alla hugsanlega sigra (sú er að minnsta kosti frásögnin sem við erum stödd í; það er búið að loka bókinni á okkur).

17

Margir hér hafa ekki hugmynd um hvenær þeir eru fæddir og spyrjirðu hve gamlir þeir séu er hugsanlegt að þú fáir fleiri en eitt svar. Á pappírunum – þessum sem gefnir eru út af alþýðulýðveldinu og segja t.d. til um hvenær þú mátt taka bílpróf – gildir vestrænt tímatal, svo sá sem er fæddur 18. janúar 1978 er 37 ára. En handan pappírana er líka asískt tímatal – og þegar tunglnýárið gengur í garð, sem í ár gerðist þann 19. febrúar, eldast allir saman um eitt ár. Þá er aldur að jafnaði talinn frá getnaði en ekki fæðingu – og heilu ári bætt við aldurinn (frekar en litlum níu mánuðum). Vinur okkar, þessi sem fæddist 18. janúar 1978, fæddist áður en tunglnýárið gekk í garð það árið – sem færir hann upp um eitt ár, plús svo annað upp á mismuninn á getnaðardegi og fæðingardegi, og er þá 39 ára gamall. Í fullkominni mótsögn við þetta er aldur barna talinn í mánuðum frá fæðingu – þar til þau eru 4-5 ára.

18

Það eru ríflega þrír mánuðir frá því ég týndist í skóginum í regninu, frá því Google Maps dró mig á villigötur. Nokkrum dögum síðar var búið að ryðja skóginn og í gær sá ég að malbikunarvélarnar voru mættar. Nú liggur þarna beinn og breiður vegur og daginn áður en við yfirgefum landið er kveikt á ljósastaurunum. Þegar veruleikinn er ekki í samræmi við upplýsingarnar verður veruleikinn að breytast.

19

Það stara allir á mig. Ég er hættur að taka eftir þessu en ég sé það á ljósmyndunum sem Nadja tekur af mér – á markaðnum, úti á götu. Fólk snýr sér við og starir á mig. Ekki bara einn eða tveir, allir. 

Eftir nokkrar vikur dregur úr þessu í Hoi An, fólkið hefur séð mig áður, en þá förum við í ferðalag – til Hue, Da Lat, Da Nang, Nha Trang, Mekong og Saigon – og þá er aftur nýjabrum að manni. Stundum brosa heimamenn til mín og hlæja, lyfta upp hendinni til að sýna hvað ég sé stór, hvað þeir séu litlir. Stundum brosi ég til baka en stundum er ég þreyttur á að vera stór og reyni að taka ekki eftir þessu. Unglingar í íþróttavöruverslun í Hue biðja um að fá að stilla sér upp með mér og taka mynd. Þetta endurtekur sig í matvöruverslun í Da Nang, nema þá er það fullorðin kona, kannski tæplega fimmtug, sem hleypur hálfa verslunina á enda með vinkonu sína í eftirdragi. Ég brosi bara og leyfi þeim að taka mynd. Stundum læðist fólk upp að mér og reynir að taka myndir í laumi, eða bara benda vinum sínum á viðundrið. 

Þetta er helsta ástæðan fyrir því að ég gæti aldrei sest að í Víetnam – gæti aldrei komið mér fyrir án þess að eiga undankomuleið, flugmiða heim. Ekki stórmál – ekki einsog að vera plantað á FIT, fengin ölmusa og bannað að vinna og svo ræddur í fjölmiðlum viðstöðulaust einsog maður sé faraldur en ekki manneskja, á meðan maður bíður þess að vera dæmdur aftur út á gaddinn – en nóg til að geta seint tilheyrt.

20

Á bolnum mínum er andlitsmynd af Ho Chi Minh mynduð úr orðunum í stjórnarskrá Víetnama – sem er aftur að hluta mynduð úr stjórnarskrá Bandaríkjanna. Á bollanum mínum er líka mynd af Ho Chi Minh – þar situr hann við bambusborð úti í náttúrunni, hvítklæddur með sígarettu í annarri hendi og penna í hinni, nóterar hjá sér eitthvað um byltinguna. Hann sá sig ekki sem hugmyndafræðing en var engu að síður sískrifandi; birtist manni frekar sem spekingur eða spámaður. Einhverju sinni á hann að hafa sagt sposkur að Maó formaður skrifaði næga hugmyndafræði fyrir þá báða samanlagt. Á bollanum er líka önnur mynd, af herforingjanum Võ Nguyen Giáp, sem stýrði mörgum af glæstustu bardögum Víetnama á 20. öld. Hann kemur manni allt öðruvísi fyrir sjónir en Ho frændi – jafn uppskrúfaður og Ho er alþýðlegur, jafn harður að sjá og Ho er ljúfur að sjá. 

Dag einn sit ég í Ho Chi Minh bolnum mínum og drekk ískaffi úr Ho Chi Minh bollanum mínum og kunningi minn (sem er drukkinn) horfir á mig stífum augum og segir: „Þessi maður drap pabba pabba míns.“ Ég hvái og held fyrst að hann eigi við Ho – en þá kemur í ljós að hann á við Võ. „Ekki hann beinlínis, heldur hans menn“, segir kunninginn. „Afi minn var frönskukennari í Hai Phong árið 1956 og þá vann maður annaðhvort fyrir Frakkana og lét kommúnistana drepa sig eða maður vann fyrir kommúnistana og lét Frakkana drepa sig.“

Ég brosi samanbitnum vörum og bíð þess að kunninginn fari. Mér finnst þetta óþægilegt. 

21

Það fyrsta sem ég tek eftir þegar við komum aftur til Svíþjóðar er þögnin. Það er dauðaþögn. Ég fer út að hlaupa og mig verkjar í nefholið af súrefninu, af þurru loftinu, kuldanum. Ég skrúfa frá krananum og drekk vatnið. Elda pæ því í Víetnam á enginn ofn nema hann sé atvinnubakari. Drekk espresso, klakalaust og sykurlaust. Er enginn heima? spyr Aram þegar hann horfir út um gluggann á blokkina hinumegin við auða grasflötina, handan við yfirgefinn leikvöllinn. Maður sér ekkert fólk, heyrir ekki í neinum; en fólkið er samt heima, segi ég. Ef einhver myndi kveikja á karókívélinni sinni hérna yrði hringt á lögregluna. Ef einhver myndi brenna rusl í húsagarðinum yrði hringt á lögregluna. Ef einhver myndi sleppa hundinum sínum lausum yrði hringt á lögregluna; ég veit ekki hvað myndi gerast ef þeir slepptu vatnabufflinum sínum lausum. Ég rölti í búðina eftir breiðum og yfirgefnum göngu- og hjólastígnum. Skömmu áður en ég kem að Råby centrum mæti ég ungum manni sem gengur beint í flasið á mér og spyr síðan heldur hranalega hvort ég geri mér ekki grein fyrir því að maður eigi að halda sig vinstra megin á stígnum? Ég biðst forláts og færi mig úr veginum. 

← Allt safniðTilgangurinn →