Tilveran er hyldjúpt gínandi tóm af spennandi áhugamálum, rjúkandi gígur eftir tilraun mannsins til þess að gera líf sitt merkingarbært, eða í það minnsta áhugavert. Maðurinn súrsar grænmeti og hann lærir á hljóðfæri, hleypur maraþon og litar mandölur, ferðast um heiminn og les heimspeki. Í augnablik, kannski heilt misseri, líður honum betur, en svo lýist hann, áhugamálið hverfur inn í hversdaginn, verður hversdagurinn, og hann sér eftir öllu erfiðinu og finnur til vanmáttar síns, spyr sig: þarf ég? Þarf ég aftur í dag? Ég vil ekki lita fleiri mandölur. Ég verð aldrei góður á þetta hljóðfæri. Getur ekki einhver annar skilið alla þessa heimspeki?
En tilveran tekur ekki tillit til þess að maðurinn þreytist, að manninum leiðist áhugamál sín, að það sé átak að fylla upp í tómarúmið. Og því súrsar maðurinn grænmeti og sér eftir því, hann súrsar ekki grænmeti og sér eftir því, hann súrsar eða súrsar ekki grænmeti og hann sér eftir því.
Maðurinn æfir sig á hljóðfæri til þess að réttlæta hljóðfærakaupin, les bækur til þess að réttlæta bókakaupin, elskar til þess að réttlæta gjafakaupin. Þetta á ekki að vera svona, það er eitthvað að, maðurinn veit það, hann finnur fyrir því í hverjum þræði og hann leitar nýrra leiða til þess að gæða líf sitt merkingu, spyr nýrra spurninga. Er það kannski vinnan hans sem veldur tóminu? Þarf maðurinn að fá sér nýja vinnu? Eitthvað sem veitir meiri fyllingu?
Þarf hann kannski að vinna minna, svo hann hafi meiri tíma fyrir áhugamálin? Meiri frítíma til þess að sinna sjálfri lífsfyllingunni? Leitinni að tilganginum? Eða er því öfugt farið? Þarf hann að vinna meira, leyfa árangri vinnunnar að fylla sig tilgangi? Þéna meira til þess að hafa efni á dýrari tilgangi?
Síðan rennur upp fyrir honum ljós – hvað ef þetta snýst þetta alls ekki um vinnuna eða áhugamálin heldur hvíldina? Hvað ef maðurinn þarf bara að stunda meiri sjálfsrækt – fara oftar í heitt bað og lesa fleiri reyfara, brenna fleiri ilmkerti, drekka meira rauðvín, fleiri kraftbjóra, taka upp vínlausan lífsstíl, snjallsímalausan lífsstíl og innrita sig á heilsuhæli. Þá fer maðurinn og hvílir sig og hvílir sig og hvílir sig þar til hann er úrvinda, stendur á blístri af hvíldarþrunginni merkingu, og svo byrja efasemdirnar aftur.
Er það fjölskyldan? Þarf maðurinn kannski aðra fjölskyldu? Þarf hann að búa í öðru landi? Öðrum bæ? Öðru hverfi? Ætti hann kannski að búa í húsi nágrannans? Með maka nágrannans? Og kannski sínum maka líka? Væri lífið betra ef maðurinn ætti fleiri maka? Eða ef maki hans ætti fleiri maka? Ef við dreifðum álaginu af allri þessari lífsfyllingu og allir ættu bara alla makana? Þá værum við kannski ekki alltaf svona þreytt?
Svo eignast hann alla makana og með þeim alla árekstrana og honum fallast hendur, hann kastar sér í gólfið uppgefinn – eignast alla makana og sér eftir því, eignast engan af mökunum og sér eftir því, eignast eða eignast ekki alla makana og sér eftir því.
Getur hugsast, hugsar maðurinn, að maður þurfi bara að hugsa lífið alveg upp á nýtt? Allt heila klabbið? Því hvað er vinna? Hvað er ást? Hvað er hugsjón? Hvað er eiginlega lífsfylling? Kannski, hugsar maðurinn, að maður ætti að stofna hlaðvarp til þess að ræða þessa hluti – kryfja þá til mergjar. Þannig hlaðvarp gæti meira að segja einn daginn orðið að atvinnu. Því gæti jafnvel fylgt ákveðin frægð, ákveðinn ljómi, ákveðin lífsfylling. Það væru áreiðanlega margir til í að sponsa þannig hlaðvarp. Hugsar maðurinn.
Hlaðvarpið slær í gegn eða slær ekki í gegn, maðurinn sér eftir því eða sér ekki eftir því, en alltaf er hann jafn tilgangslaus, hann finnur að allt sem hann segir er tómt fals og leikaraskapur og þá leitar hugurinn enn og aftur á nýjar slóðir og maðurinn spyr sig, hvernig eru eiginlega samböndin í lífi mínu, eru vinir mínir nógu góðir vinir? Eru vinir mínir kannski toxic? Eru þeir kannski ferkantaðir smáborgarar sem halda aftur af andlegum þroska mínum? Eru vinir mínir kannski óreiðuorka sem kosta mig hugarróna – eru þeir ástæðan fyrir því að mér tekst aldrei að einbeita mér? Og hvernig fer ég þá að því að auka mér einbeitingu og andlegt þrek? Ætti ég að spyrja gervigreindina? Er gervigreindin ofurkraftur eða er gervigreindin vél sem skefur innan úr manni sálina svo hana megi auðveldar prósessa – svo vélarnar skilji betur hvernig mann hungrar, hvað maður þráir og hvernig megi viðhalda þrá og hungri, hámarka þrá og hungur, á sama tíma og manni er fengið allt sem maður þráir, allt sem mann hungrar í – byltingin og gagnbyltingin, orgían og abstinensinn, tilgangur og tóm – svo að maðurinn dofnar upp af allri snertingunni, öllum núningnum við tilveruna, og hættir loks að finna til, nánast, nema ef hann hamast af lífs og sálarkröftum á sigginu, að þá er eitthvað þarna, bergmál af fjarlægri snertingu, örlitlu, máttlausu kitli. Hvað er þetta? spyr maðurinn, korter í kulnun, er þetta hamingjan? Er þetta nýtt áhugamál?
Maðurinn spyr sig. Hann spyr sig og sér eftir því, spyr sig ekki og sér eftir því, maðurinn spyr sig og spyr sig ekki og hann sér eftir því.
Svo þreytist maðurinn á að spyrja sig og skyndilega langar hann ekkert og finnur til sektar yfir að langa ekkert, finnur til samviskubits; ég er að missa af góða veðrinu, hugsar maðurinn, missa af lífinu, merkingunni, fyllingunni. Ég gæti verið að lesa. Ég gæti verið að lita mandölur og leysa krossgátur. Ég gæti verið að stunda kynlíf, horfa á klám, ég gæti jafnvel verið að framleiða klám. Ég gæti verið að læra forritun. Verða ríkur. Ég gæti verið að fara yfir fjármálin. Greiða niður húsnæðislánið. Ég gæti verið að safna mér fyrir ferð til Karíbahafsins. Ég gæti verið í framboði. Og hér sit ég bara, engum til gagns. Ef ég væri úti að hlaupa núna gæti ég hlaupið hraðar á morgun. Og lengra. Ef ég væri að æfa mig í gervigreind núna gæti ég haft ofurkrafta á morgun. Ef ég væri á Duolingo núna væri ég ekki með samviskubit yfir því að hafa borgað fyrir áskriftina. Ef ég væri að hugleiða núna væri ég kannski ekki alltaf svona stressaður. Þá hefði ég lífsfyllingu. Þá hefði líf mitt merkingu. Þá væri ég ekki tilgangslaus.
Svo dag einn ákveður maðurinn að gera uppreisn. Hann ákveður að nenna ekki lengur að læra siglingar og frönsku, megnar ekki að gera allar þessar armbeygjur og upphífingar, vill ekki fara í bað með góða bók, göngutúr í brakandi froststillum, vill ekki vera sitt besta sjálf, ekki yrkja ljóð og mála myndir, ekki fara í frí á framandi slóðir, ekki elda mat eða einu sinni éta mat, ekki fylgjast með fréttum, byrja að reykja, gefa út plötu, leysa krossgátur, taka þátt í bakgarðshlaupinu, hann nennir ekki einu sinni að fara út með ruslið nema því verði lofað – og staðið verði við það – að það að fara út með ruslið hafi engin áhrif á lífsfyllingu hans, að það muni ekki gera lífið merkingarbærara – að það verði þá gert í engum öðrum tilgangi en þeim að fara út með ruslið.
Svo fer maðurinn út með ruslið og sér eftir því, maðurinn fer ekki út með ruslið og sér eftir því, fer og fer ekki út með ruslið og maðurinn sér eftir því.