Ég var sautján ára þegar ég eignaðist Macintosh Performa 5200 borðtölvu með 14.4 kbs innhringimótaldi og fór í fyrsta sinn á internetið. Þetta var árið 1995, sama ár og ég eignaðist fyrstu kærustuna, nokkrum mánuðum eftir að ég fékk bílpróf, tveimur árum eftir að ég las biblíuna í fyrsta skipti, ári áður en ég byrjaði að reykja en mörgum árum eftir að ég byrjaði að drekka. Það tók órastund að hlaða niður einföldum myndum – vídjó og tónlist á netinu voru nánast óhugsandi – og fyrir utan spjall – svonefndar irc-rásir – sótti maður mest í upplýsingar. Það var ekki óeðlilegt – í öllu falli fannst mér það ekki skrítið – að prenta út það sem manni þótti vert að vita – sem í mínu tilviki snerist mest um sósíalisma og bókmenntir – alla texta sem voru lengri en tvær-þrjár síður, og auk þess lagði ég enn talsvert á mig við að leggja nöfn á minnið: geta skilið á milli Bakúnins og Kropotkíns, munað sovétleiðtogana í réttri röð og þess háttar. Af því að á meðan fróðleik hafði ekki verið útvistað til snjallsímanna var það enn ákveðin skiptimynt að muna hluti – sá sem mundi eitthvað hafði ákveðið vald í samræðu sem aðra skorti. En færi maður með fleipur gat það líka verið vandræðalegt og þýtt að ekki yrði tekið mark á manni næst.
Ég varð undireins fullkomlega hugfanginn af þessu. Mamma og pabbi tóku tólið af símanum á nóttunni – kannski til þess að vakna ekki við símhringingar, kannski til þess að hafa hemil á netnotkun minni – en ég læddist iðulega niður í stofu þegar allir voru sofnaðir, í húsi sem mátti ekki anda á án þess að það færi að braka í öllu, setti tólið aftur á og hringdi mig inn á netið fyrir nóttina. Svo sat ég á ircinu og talaði um tilfinningar og ljóðlist við ókunnuga krakka á mínu eigin reki, á meðan kærastan mín lá á dýnu á gólfinu fyrir aftan mig og spurði reglulega hvort ég ætlaði ekki að fara að slökkva á þessari tölvu og sofa. Og jújú, sagði ég, bara alveg rétt bráðum, ég er alveg að koma, strax og ég hef komist til botns í því hvor hafi fengið nóbelsverðlaun á undan, John Steinbeck eða Ernest Hemingway, hversu margir þeir voru byltingarsinnarnir sem stigu á land á Kúbu 1956, og sjáðu þetta ljóð sem HugsBunny80 var að senda mér! Það er meistaraverk!
Ef ég á að segja ykkur alveg einsog er þá hefur það ekki mikið breyst síðan, nema það finnst engum merkilegt lengur að maður muni að Che hét fullu nafni Ernesto Guevara Lynch de la Serna, enda allar upplýsingar ínáanlegar á sekúndubroti, og þess vegna man maður ekki neitt og hefur ekkert til að slá um sig með.
Þetta fordæmalausa aðgengi að upplýsingum hefur nefnilega haft þau mótsagnakenndu áhrif að gera þekkingu einskis verða – og svo virðist sem þegar að þekking verður einskis virði, fái kjaftæði vængi, ef mér leyfist að benda á hið augljóst. Við getum slegið öllu upp, fundið áreiðanlegar heimildir, en á sama tíma er einsog aldrei hafi verið logið meira, blákalt og meðvitað, og jafnvel þannig að komist upp um lygina sé látið einsog það skipti hreinlega engu máli, ef lygin hljómar nógu skemmtilega. Áðan sá ég mann halda því fram að New York væri að tæmast út af hamslausum sósíalisma borgarstjórans Mamdanis – það býr enginn þar lengur, ekki einu sinni Áslaug Arna – og þetta er ekki einu sinni óvenjulegt, sams konar kjaftæði flæðir yfir allt, það eru míkróflögur í bóluefninu, útlendingar éta hunda og ketti, og nú – í krafti gervigreindarinnar – er meira að segja hægt að fá af því myndband.
Á sama tíma höfum við fordæmalaust aðgengi að góðum upplýsingum – og þessu er auðvitað öllu hægt að fletta upp. En svo virðist vera sem það skipti minna og minna máli að fara rétt með – og það sé nánast skylda að halla máli, sé það í boði. Allt annað er talið til marks um að maður trúi ekki á eigin málstað.
Í frægri bók sinni, Imagined Communities frá 1983, hélt stjórnmálafræðingurinn og sagnfræðingurinn Benedict Anderson því fram að þjóðir hefðu orðið til við tilkomu prentmiðla– fyrst og fremst dagblaða og skáldsagna – þar sem fólki á stórum svæðum var í fyrsta sinn gert mögulegt að sjá fyrir sér sameiginlegan heim með öðru fólki á sama svæði á sama tíma. Þannig varð líf samtímafólks við Laugaveg að kunnuglegri staðreynd í fjarlægum fjörðum, þó enginn hefði komið á staðinn, í krafti fréttablaðsins Þjóðólfs; á meðan ástarmál austfirskra ungmenna komust á hvers manns varir fyrir sakir skáldsögunnar Piltur og stúlka eftir Jón Thoroddsen. Í einföldu máli: því betur sem við sáum hvert til annars, því nánari urðum við, og því betra áttum við með að ímynda okkur að við tilheyrðum sömu heild, sömu fjölskyldu, sömu þjóð. Hér er rétt að halda því til haga líka, fyrir þá sem eru ringlaðir á orðanotkuninni, að með ímyndun er ekki átt við lygi eða ósannleik – heldur sköpunarverk þess sem ímyndar sér heiminn fyrir sakir tengsla sinna við hann.
Á 20. öld jókst svo sýnileikinn stöðugt – í upphafi hennar bárust stórfréttir hringinn í kringum veröldina á fáeinum dögum, en við lok hennar bárust öll helstu tíðindi yfir innhringimótöld hvert á land sem er á fáeinum augnablikum, þótt myndirnar væru sannarlega stundum svolítið lengi að hlaðast, einsog áður var nefnt. Við sem sátum á ircinu gátum ímyndað okkur sem hluta af þjóð – sú þjóð var kannski ekki lengur einfaldlega Ísland, við vorum orðin fjölþjóðleg í margbreytilegum skilningi þess orðs – í einhverjum tilvikum var þjóðin sem við ímynduðum okkur bara „táningar sem hafa áhuga á bókmenntum og sósíalískri byltingu“, eða einhver annar súbkúltúr sem finna mátti á rásum ircsins – en þessi ímyndun gerði það að verkum að okkur fannst við tilheyra einhverju sem var stærra en við sjálf, einhverju sem teygði sig jafnvel hringinn í kringum heiminn.
Fjórðung inn í 21. öldina er aðgengi okkar að upplýsingum hvert um annað bæði algert og allt að því óvalkvætt – poppstjörnur fá sér ekki naflahring án þess að myndirnar birtist samstundis í hinu algóritmíska flæði, dauðlegir eiga sér engin leyndarmál – eða einu sinni einkamál – sem ekki hefur verið sagt frá á samfélagsmiðlum, við vitum hvað allir borðuðu í matinn í gær, á hvaða tónleika þeir fóru og við fylgjumst með ókunnugum börnum ókunnugs fólks ýmist vaxa úr grasi á leikvöllum eða farast á átakasvæðum, svo til í beinni útsendingu, á meðan systkinum þeirra er brottvísað aftur til sömu átakasvæða, jafnvel í sömu útsendingu – og þessa útsendingu tökum við með okkur út um allt, við sitjum með hana á klósettinu, störum á hana í biðröðinni í Bónus, höfum hana opna í sérstökum glugga á meðan við vinnum, látum hana mala í eyrun á okkur þegar við erum úti að hlaupa, linnulaust allar vökustundir.
En í stað þess að finna til stærri heildar – að við séum öll að verða þjóð, öll að verða fjölskylda – er engu líkara en að nándin sé tekin að sundra okkur og upplýsingarnar teknar að gera okkur fáfróðari. Í stað þess að við finnum hin dýrin í þjóðinni okkar, ættbálknum, súbkúltúrnum, erum við öll smám saman að verða sami instagram-páfuglinn, án þess að það auki okkur samkennd. Við höfum ekki bara sæst á að fólk fari vísvitandi rangt með staðreyndir heldur höfum við gert lygina jafngilda sannleikanum – það að ljúga er bara til marks um að maður trúi á málstaðinn, hver sem hann er; harmurinn í heiminum hefur reynst svo keimlíkur við stöðugt áhorf að hann missir bragðið dag frá degi, okkur stendur á sama því við getum ekki innbyrt harmleiki 7 milljarða manna; þetta er allt sami naflahringurinn, sami naflinn, og ekkert til nema ein einasta manneskja í kringum hann – sjálfið algera – sem lækar sínar eigin myndir, kafar í sinn eigin nafla og sofnar svo með angistarstöru hvert kvöld, af því tengingin við heiminn er horfin: við það að sjá stöðugt hvert til annars í rauntíma, hefur ímyndunin glatast, sköpunarkrafturinn dofnað, hið ímyndaða samfélag að engu orðið, og í kjölfar þess tekið við raunveruleiki sem enginn getur horfst í augu við án þess að missa vitið.