Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Jimmy dreymir

RÚV

Kæru hlustendur. Við ætlum að tala um draumráðningar.

I: Dúfur

Í ljóði sínu Alfabet yrkir danska skáldið Inger Christensen meðal annars um að við getum ekki varla skilið dúfur sem dúfur – þær verði alltaf tákn um frið – en fyrir utan dúfur og kannski hjartað er varla nokkuð tákn jafn merkingarþrungið og spegill, og varla nokkuð tákn jafn mótsagnakennt. Spegill er aldrei bara spegill. Það er í speglinum sem við skoðum okkur sjálf, og á sama tíma er spegilmyndin blekking: veran í speglinum er ekki ég, heldur spegilmynd sem hermir eftir mér á röngunni í heimi sem er einhver annar en heimurinn sem ég lifi í. Speglar eru líka tákn um sjálfhverfu og mælitæki, vondar drottningar spyrja spegla sína hver í landinu sé fríðastur; og þeir eru dómharðir, brotinn spegill er til merkis um brotna sjálfsmynd og sá sem brýtur hann hlýtur sjö ára ógæfu að launum.

II: Spegill

Í byrjun vikunnar, mánudaginn 26. janúar, 2026, vaknaði sænski stjórnmálamaðurinn Jimmie Åkesson, formaður Svíþjóðardemókrata, upp við vondan draum, svonefnda martröð. Í martröð sinni var Jimmie á flótta undan skuggaveru, ókennilegum manni sem vildi honum eitthvað illt. Martröðin var afar raunveruleg, sagði Jimmie, sem sá engan mun á henni og vökuheiminum – og til þess að komast undan þessum hættulega manni kastaði Jimmie sér inn í næsta runna. Og vaknaði.

Runninn var ekki runni, heldur spegill sem hann hafði kastað sér á. Jimmie neyddist til að láta sauma sex spor í augabrúnina og mátti litlu muna að hann hefði þess vegna misst af gyðingahatursráðstefnunni sem hann var á leiðinni á. Ráðstefnu gegn gyðingahatri, sem sagt, ef einhver skyldi hafa verið að velta því fyrir sér – Jimmie Åkesson fór nefnilega til Ísrael, til þess að vera þar á alþjóðlegum minnisdegi helfararinnar í fyrradag, þar sem hann hugðist mótmæla gyðingahatri í heimalandi sínu og minnast bandaríska öfgahægrimannsins Charlie heitins Kirk, sem þar var heiðraður fyrir óþreytandi starf sitt gegn gyðingahatri. En þangað komst Jimmie sem sagt ekki fyrren eftir að hann hafði í ofboði – lamaður af hræðslu – kastað sér af öllu afli á spegil.

III: Runnar

Runnar eru aldrei runnar, frekar en dúfur eru dúfur eða speglar speglar. Oftast eru runnar einhvers konar tæki til að leynast – í skáldsögunni Ulysses eftir James Joyce birtist alltaf af og til par á leiðinni inn eða út úr runna, fólk sem er í leynilegum ástarleiðangri í bældri dyflinnarborg kaþólskunnar, þau eru rjóð að girða sig, hún með grein í hárinu. Runninn er náttúrulegur, hann vex upp úr jörðinni, og ber með sér ákveðnar biblískar tengingar: í annarri mósebók gengur sjálfur Móses fram á runna sem virðist í ljósum logum, einsog frægt er, en er það við nánari skoðun ekki, í runnanum birtist andlit sem vill færa Móses skilaboð. Þetta er ekki Jimmie Åkesson á flótta undan fortíð sinni heldur sjálfur Guð almáttugur sem segir við Móses: „Komdu ekki nær, drag skó þína af fótum þér því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð.“ Og sendir þvínæst Móses til Ísrael – einsog Jimmie.

En runninn er einsog spegillinn og dúfurnar tákn með margar merkingar. Hann er jaðargróður og girðing, hann er meiðandi þyrnirunni – jafnvel brenninetlurunni – og hann leiðir hugann að feðgunum Bush yngri og eldri, og þaðan er stutt í brúskinn sem felur kynfæri manna og kvenna – eða afhjúpar þau með áberandi fjarveru, á berangri holdsins.

IV: Rætur

Það vita auðvitað allir allt um alla skapaða hluti en við skulum samt rifja þetta aðeins upp. Charlie Kirk var bandarískur áhrifavaldur sem boðaði yfirburði hvítra, kristinna, sískynja, gagnkynhneigðra bandaríkjamanna. Hann var myrtur á sviði í september síðastliðnum og hefur síðan orðið að píslarvotti MAGA-hreyfingarinnar, tákni fyrir þær ofsóknir sem öfgahægrimenn í Bandaríkjunum telja sig mega þola, af hendi þrýstihópa translesbískra kommúnista.

Svíþjóðardemókratarnir, flokkur Jimmies Åkesson, var stofnaður árið 1988 upp úr samtökunum Bevara Sverige Svenskt – nasistasamtökum með gamla laginu, sem áttu sjálf rætur í eldri hreyfingum sem voru beinlínis tengdar þýsku nasistunum – einu nasistunum sem óhætt er að kalla nasista án þess að neinn fari að þræta um heitið. Flokkurinn var lengi vel ekki talinn húsum hæfur, en hefur smám saman sótt í sig veðrið, rutt sér rúms, og árið 2022, uppskar hann ríflega 20% atkvæða í kosningum og ver nú minnihlutastjórn hægrimanna vantrausti. Meðal nýlegra hugmynda ungra Svíþjóðardemókrata er stofnun sænskra ICE-sveita, að amerískri fyrirmynd, sem ráfað geti um sveitir í leit að pappírslausum útlendingum og skotið mótmælendur, svo kannski mætti segja að flokkurinn sé aftur farinn að sækja í rætur sínar.

V: Skuggaveran

Í draumi er sá sem eltir mann alla jafna ekki aðskiljanlegur frá manni sjálfum; sá sem eltir mann er eitthvað í manni sjálfum, fortíð manns eða framtíð, leyndarmálin, skömmin, óumflýjanlegt uppgjör og maður hleypur af því að maður veit að innst inni vill maður ekki hitta sjálfan sig fyrir í þessum ham.

Sá sem sleppur í draumi hefur hlotið sjaldgæfa náð – kannski er hann jafnvel frjáls – og sá sem næst í draumi má þola uppgjörið, sem kannski er bölvun og kannski langþráð lausn, en verst á sá sem vaknar í miðju kafi og fær hvorki náð né lausn og vaknar kannski til þess eins að fá að hlaupa meira, þjást lengur. Og þá er gott að muna að það sem Jimmie hélt að væri runni, þar sem hann gæti leynst, reyndist vera spegill, sem er tæki til að sjást.

VI: Þjóðarmorð

Nú gæti maður spurt sig: Hvernig í ósköpunum stendur á því að mönnum einsog Charlie Kirk – sem meðal annars hélt því fram opinberlega að „gyðingarnir“ réðu yfir háskólunum og Hollywood og fjármögnuðu frjálslyndar stofnanir á vesturlöndum, og bæru þannig ábyrgð á hnignun vestræns samfélags – og Jimmie Åkesson, hvers flokksbræður hafa haldið fram svipuðum samsæriskenningum, og hvers hreyfing á beinlínis rætur að rekja til þeirrar sömu evrópsku nasistahreyfingar og stóð fyrir helförinni, er fagnað á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb þessarar helfarar? Og það í sjálfri Ísrael? Hvers vegna gjalda Ísraelsmenn ekki meiri varhug við öfgahægrimönnum – Flavio Bolsonaro er líka þarna, Geert Wilders er líka þarna, og svo mætti lengi telja.

Svarið segir sig sjálft. Ísraelsmenn eiga orðið fáa bandamenn og öfgahægrimenn Evrópu og Ameríku eiga það sameiginlegt að hafa varið þjóðarmorðið á Gaza, álitið það óaðskiljanlegan hluta af baráttu Ísraelsmanna fyrir tilvist sinni, sem verði ekki tryggð nema Palestínumönnum verði útrýmt og Gaza breytt í Tenerife fyrir auðjöfra. Þessa þjóðrembu skilja þeir enda er mikilvægi þess að halda heimalandinu etnískt og menningarlega hreinu ekki bara eitthvað sem rímar við þeirra eigin hugmyndaheim, heldur sjálfur hornsteinninn.

VII: Blóð og jörð

Og hvaða þýðingu hefur það þá þegar allt kemur til alls að dreyma að maður sé á harðahlaupum – undan sjálfum sér – og ætli að hverfa inn í runna en vakni alblóðugur ofan á mölbrotnum spegli? Hversu margítrekuð og augljós þarf myndlíking að vera áður en við sjáum að þótt spegill sé oftar en ekki tákn fyrir uppgjör sjálfsins, runni tákn fyrir felustað leyndarmálanna, og myrkraverurnar sem hlaupa á eftir okkur í draumi oftast bara við sjálf, þá eru nasistar yfirleitt bara nasistar – þótt þeir vilji ekki alltaf kannast við það sjálfir – og ég trúi því varla sjálfur að ég þurfi að segja það upphátt – en hérna erum við nú samt – nasistar eru ekki góðir eða trúverðugir samherjar í baráttunni gegn gyðingahatri, og þar sem þeim er smalað saman undir slíkum fána, er ástæða til þess að gruna að eitthvað annað liggi að baki, að þótt nasistarnir séu nasistar þá sé gyðingahatursráðstefnan sem fagnar nasistum kannski í raun eitthvað annað en hún gefur sig út fyrir að vera.  

Í næsta þætti ætlum við að ræða merkingu þess hvers vegna drottinn almáttugur laust 89 fylgjendur brasilíska fasistans Jairs Bolsonaro með eldingu síðastliðinn sunnudag. Góðar stundir.

← Allt safniðAfleiðingar andófs →