Þegar ég var í Nam. Altso, veturinn 2014-2015, þegar við fjölskyldan höfðumst við í Hoi An, var ég dyggur lesandi enskumælandi dagblaðsins Viet Nam News, sem er ríkisfjölmiðill í þessu annars ágæta einræðisríki. Það var alls konar í þessu blaði. Alþjóðafréttir og innlendar, enski boltinn og greinar um menningarmál – t.d. heilsíða um Kraftwerk – og svo auðvitað sjónvarpsdagskráin. Innanum var svo áróður, og megnið af því efni var auðvitað fegrun þótt blaðið væri kannski ekki mjög óforskammað – að minnsta kosti ekkert óforskammaðra en Íslandsstofa.
Ég man hins vegar eftir að hafa staldrað við frétt þar sem sagt var frá því að nokkrir einstaklingar hefðu verið dæmdir fyrir að pósta gagnrýni á yfirvöld á samfélagsmiðla. Þetta voru stuttir dómar, kannski jafnvel skilorðsbundnir, og það var sagt frá þeim í sama hversdagslega tóni og ef mennirnir hefðu verið handteknir fyrir þjófnað. Og ég skildi þetta ekki alveg í fyrstu. Af hverju var víetnamski kommúnistaflokkurinn að játa á sig – fyrir útlendingum – að hafa fangelsað fólk fyrir að gagnrýna yfirvöld? Ekki var það mjög fegrandi?
Eftir smá umhugsun blasti svarið svo auðvitað við: Vegna þess að víetnamski kommúnistaflokkurinn vildi að fólk vissi hverjar væru afleiðingarnar af andófi.
Viet Nam News er ekki bara blað fyrir túrista. Það er líka ætlað þeim sem eru kallaðir „viet kieu“, ameríkönum og frökkum af víetnömskum ættum sem hafa flutt aftur „heim“ en kunna oft málið og siðina illa. Það fólk þarf, einsog aðrir innflytjendur, að vita að maður má ekki bara pósta hverju sem er á samfélagsmiðla. Ég áttaði mig síðan líka smám saman á því að það voru ekkert allir handteknir fyrir andóf – bara rétt nógu margir til þess að fólk væri meðvitað um að það gæti gerst.
(2. þáttur)
Nema hvað. Í upphafi þessa árs skutu SS-sveitir Donalds Trump – bandaríski brottvísunarherinn sem kallar sig ICE – konu að nafni Renée Nicole Good. Renée sat í smájeppanum sínum skammt frá heimili sínu og hafði lagt bílnum þvert yfir götuna í þeim tilgangi að gera svartstökkunum erfiðara um vik að brottvísa nágrönnum hennar. Þetta er það sem hefur verið kallað „borgaraleg óhlýðni“, hegðun sem kemur því miður sjaldan í veg fyrir illvirki hins opinbera en tefur framkvæmd þeirra, hægir á ferlinu, skapar sýnilega andstöðu, vekur athygli á óréttlætinu og minnir kjörna fulltrúa á að þeir sem búa í viðkomandi þjóðfélagi láta ekki endilega hvað sem er yfir sig ganga. Borgaraleg óhlýðni hefur jafnan verið talinn friðsamlegur valkostur við það að mæta óréttlæti með vopnaðri baráttu, að byrja að taka gísla og sprengja drasl í loft upp.
Það sem gerðist hefur verið greint niður í öreindir og míkósekúndur, en er í raun harla einfalt: Þar sem Renée sat í sínum smájeppa og sýndi borgaralega óhlýðni komu upp að henni menn á vegum alríkisins, með alvæpni, og fóru að gera sig breiða. Renée Good fór í panikk og reyndi að komast undan og var á flóttanum skotin þrívegis í andlitið af einum þeirra, manni sem taldi sér ógnað og sem síðan kallaði hana fokkins tík.
Hér er rétt að halda fáeinu til haga. Meira en helmingur starfsmanna ICE – 12 þúsund af 22 þúsund samtals – var ráðinn á síðustu 12 mánuðum og til þess að ná þessum ráðningarmarkmiðum hratt og örugglega var ákveðið að skera þjálfun þeirra einfaldlega við nögl og bjóða rífleg peningaverðlaun og niðurfellingu lána, auk þess sem farið var í mikla kynningarherferð til þess að fjölga umsækjendum – kynningarherferð sem vel að merkja lét starf hjá ICE minna mest á fyrstu-persónu skotleik, þar sem hreðjaþungar hetjur vernda ættjörðina fyrir illmennum – „the worst of the worst“ einsog það var kallað í auglýsingunum.
Þegar búið var að ráða þá, var þessum illa þjálfuðu nýgræðingum í löggæslu síðan gert að framkvæma einhverjar umfangsmestu og umdeildustu lögregluaðgerðir í seinni tíð – að brottvísa allt að milljón manns á ári hverju – og fúskið hefur verið fyrirsjáanlegt. Fyrir utan þá sem hafa verið skotnir í áhlaupum hafa fjölmargir látist í haldi stofnunarinnar á undanförnum mánuðum – fjórir bara á fyrstu dögum þessa árs – og hátt í 200 bandarískir ríkisborgarar verið handteknir í misgripum fyrir ólöglega innflytjendur. Ekkert af þessu er sem sagt hending, þetta er ekki spurning um fáein rotin epli, óstöðugar sálir, heldur er óreiðan kerfislæg, með ásetningi og boðuð að ofan.
(3. þáttur)
Háttsettir bandarískir stjórnmálamenn tóku undireins að halda því fram að Renée Good væri hryðjuverkamaður, atvinnumótmælandi, óeirðarseggur og geðsjúklingur, að hún hefði keyrt yfir einn SS-manninn, eða allavega gert heiðarlega tilraun til þess, á sama tíma og þeir lofsungu morðingjann sem ættjarðarvin og hetju. Það var ekkert sérstakt samræmi í því sem þeir sögðu – en það var allt í þessum anda.
Síðan þá hefur fólk þráttað sleitulaust um það á internetinu hvort Renée hafi raunverulega ætlað að keyra á manninn, hvort hann hafi verið í hættu, hvort einhverjum öðrum hafi staðið hætta af henni, jafnvel allsherjarreglu og hvort bandarískir stjórnmálamenn í MAGA hreyfingunni ætlist til þess að almenningur gleypi við hverju sem er – hvort bandaríkjamenn, og við hugsanlega með þeim, séu komnir á eitthvert skeið „eftirsannleika“ í mannkynssögunni þar sem einungis það sem MAGA segir getur verið satt. Ef að MAGA segi t.d. að konan hafi verið froðufellandi hryðjuverkamaður sem nauðsynlega þurfti að stoppa – með öllum tiltækum ráðum – þá sé það bara nýi sannleikurinn og hananú.
Ég tel hins vegar að misræmið milli þess sem gerðist og þess sem yfirvöld halda fram skipti lykilmáli og okkur sé alls ekki ætlað að „trúa“ öðru en því sem við sáum heldur að upplifa að það skiptir engu máli hverju við trúum, sannleikurinn er ekki annar en við höldum að hann sé, við þurfum ekki að trúa því að 2+2=5, heldur eigum við að trúa því að 2+2=4 en segja samt að 2+2=5, til þess að skilja að það erum ekki við sem ráðum og að það skiptir engu máli hvað okkur „finnst“ jafnvel um fullkomlega hlutlægar og mælanlegar staðreyndir.
Að sama skapi skiptir máli að Renée Good var ekki vopnuð, ekki að hóta neinum og ekki úr neinum þeim þjóðfélagshópi sem almennt verða fyrir þeim fordómum að teljast agressífir, hættulegir, sem lögreglan er skilyrt til að óttast. Hún var ekki blökkumaður, ekki karlmaður, ekki hávaxin og sterkbyggð, ekki tattúveruð með hanakamb, ekki ógnandi. Renée Good var 37 ára gömul þriggja barna heimavinnandi húsmóðir og verðlaunaljóðskáld sem lagði bílnum sínum í veg fyrir ICE. Hún var svokölluð soccer mom, svokölluð Karen í SUV, týpan sem er líklegri til þess að biðja um að fá að tala við yfirmanninn en skalla mann, týpan sem skrifar harðorða umsögn á TripAdvisor. Og hvers vegna ættu bandarísk yfirvöld að vilja skjóta þannig konu? Eftir smá umhugsun blasir svarið við: Það eina sem hefði sýnt vald MAGA skýrar en að skjóta þessa konu – þrívegis í andlitið – hefði verið ef þeir hefðu skotið barn fyrir sömu sakir. Skilaboðin gætu ekki verið skýrari: Þetta eru afleiðingarnar af andófi og þótt ekki verði allir skotnir í andlítið getur enginn heldur fyrirfram reiknað með því að sleppa við það.
