Ástarsagan – það sem á ensku er kallað „romance novel“ – er smám saman að leggja undir sig heiminn. Lucinda Riley, Jojo Moyes, Jenny Colgan og Colleen Hoover raða sér hver ofan á aðra á metsölulistunum. Guðrún frá Lundi er í endurreisn. Helstu verk Jane Austen hafa loksins, loksins verið þýdd á íslensku. Wuthering Heights er vinsælasta kvikmyndin á vesturhveli jarðar. Rómantískar fantasíur Margitar Sandemo hafa gengið í endurnýjun lífdaga í hljóðbókaformi, þökk sé m.a. agressífu markaðsmódeli Storytel. Og þannig mætti lengi telja. Í fyrra seldust 44 milljón eintök af ástarsögum í bandarískum bókabúðum – það er þriðjungur alls bókamarkaðarins – og þá erum við bara að tala um fýsísk eintök. Á hljóð- og rafbókamarkaðnum er hlutdeildin miklu hærri.
Kæru hlustendur. Ástin er formlega orðin faraldur. Eða í öllu falli ástarsagan. Og þá er kannski rétt að spyrja sig: Hvers eiga glæpasögur að gjalda? Vísindaskáldsögur? Fagurbókmenntir? Hvers vegna les ekki fólkið bara ljóð ef það langar í svona mikið í funheitar tilfinningar? Og hvað er eiginlega ástarsaga? Hvað skilur hana frá öðrum sögum?
Einfaldasta skilgreiningin – „saga þar sem ástin er í forgrunni“ – er að sama skapi skilgreining sem mætti heimfæra á nánast hvaða skáldsögu sem er. Er ekki Glæpur og refsing bara um ást Soniu og Raskolnikovs? Eru ekki Umskipti Kafka, þegar nánar er að gáð, bara ástarsaga með öðru lagi, saga manns sem fyrst og fremst vaknar óelskanlegur? Og ætlar einhver hér að segja að Don Kíkóti – sem fremur allar sínar hetjudáðir fyrir Dúlsíneu – sé ekki ástarsaga?
Því hefur stundum verið haldið fram að ástarsögur hafi lengst af ekki notið sannmælis – þær séu fyrst nú á uppleið, þökk sé Colleen Hoover og félögum – en til þess að taka undir þessa bókmenntalegu söguskýringu verðum við einmitt að skilgreina ástarsöguna mjög þröngt – við verðum að skilgreina hana sem bókmenntagrein Barböru Cartland eða Rauðu ástarseríunnar og undanskilja þann stóra hluta heimsbókmenntanna sem er í grunninn ástarsögur, ekki bara verk einsog ég nefndi hér að ofan – verk sem þarf að túlka sérstaklega sem ástarsögur – heldur líka verk þar sem ástin er óneitanlega hreyfiaflið, verk insog The Great Gatsby, Sölku Völku, Rómeó og Júlíu, Hroka og hleypidóma, Önnu Kareninu, Elskhuga Lafði Chatterley og svo framvegis og svo framvegis – sannkallaðar ástarsögur sem hafa svo sannarlega verið teknar alvarlega.
Kannski er hins vegar nauðsynlegt að skilja einhvers staðar á milli og tala annars vegar um ástarsöguna sem bókmenntagrein – genre sem eigi sér samfellda sögu frá Barböru Cartland til Colleen Hoover – og hins vegar um ástarsöguna einsog hún birtist innan annarra bókmenntagreina, því auðvitað er ástin oft líka í forgrunni í vísindaskáldskap, krimmum, fantasíum, barna- og unglingabókum og ekki síst því sem kallað er – höfundum annarra bókmenntagreina til mikillar skapraunar – „fagurbókmenntir“.
Eitt af því sem skýrast greinir ástarsöguna frá þessum „fagurbókmenntum“ er að ástarsagan sem bókmenntagrein hefur gjarnan skýra og einfalda móralska sýn á heiminn – rétt er rétt, rangt er rangt, karlar eru í buxum og konur í kjól – og fylgir í grófum dráttum samfélagslegum normum hvers tíma. Veröldin er stöðug og rétt í þeirri mynd sem hún blasir við en heimurinn sem er að hverfa var rangur, og það sem ógnar sögupersónunum er yfirleitt einhver sem virðir ekki siðferði sögunnar og sögutímans. Það getur verið persóna með rangt gildismat – einhver sem hefur ekki þroskast, einhver sem hefur forneskjulegar skoðanir eða ranga forgangsröðun – og það getur verið samfélagsstrúktúrinn sjálfur, einhverjar hefðir eða reglur sem gera það að verkum að elskendurnir fá ekki að eigast, og þetta er aflið sem ætlast er til að verði sigrað fyrir bókarlok.
En hér verður líka að hafa í huga að þótt formúlan sé grunnurinn að ástarsögunni þá gildir hið sama hér og í öðrum formúlubókmenntum: það sem skilur ástarsögurnar í sundur er það hvar og hvernig þær víkja frá þessari formúlu. Þessi frávik eru hins vegar að jafnaði smávægileg og raska ekki svo heitið geti öruggum móral söguheimsins.
Eitt af því forvitnilega við menninguna í kringum ástarsögur er síðan lítt dulin fyrirlitning lesenda á bókunum sem þeir lesa – svo minnir á það hvernig fólk horfir á vissar tegundir raunveruleikasjónvarps. Einsog það sé að reyna að árétta eitthvað fyrir sjálfu sér um vitsmunalega og tilfinningalega yfirburði sína. Á internetinu úir nefnir allt og grúir af fólki sem virðist lesa ástarsögur til þess eins að kvarta undan því að þær séu illa skrifaðar og grunnhyggnar heterónormatífar formúlubækur með fátt sér til ágætis annað en skammvinnt og jafnvel sakbitið stundargaman, á meðan persónurnar séu lélegar staðalmyndir – karlarnir alltaf hávaxnir, myndarlegir, ríkir og bældir, konurnar alltaf litríkar, tilfinninganæmar og helst nógu smágerðar til þess að hverfa ofan í ofvaxinn faðm karlanna, sem þær gæða lífi með gleði sinni og sorg. Þá er því gjarnan haldið fram – af aðdáendum bókmenntagreinarinnar – að bækurnar normalíseri í senn toxíska hegðun karlmanna í samböndum – af því karlarnir í ástarsögunum séu svo miklir ruddar – á sama tíma og þær skapi óraunhæfar væntingar um fullkomna karlmenn sem geri alltaf allt rétt, sannkallaða herramenn, næma, nána og í tengslum við tilfinningar sínar.
Ef horft er til fagurbókmennta um ástina er það hins vegar oftar en ekki tvíræðnin sem blífur – höfundar storka jafnvel norminu með sögupersónum sem eru jafnvel fjandsamlegar góðu og skynsamlegu siðferði, og þegar þær taka rangar ákvarðanir er alltaf hætt við að þær stefni sjálfum sér í glötun – á meðan sögupersónur ástarsagna leita alltaf aftur í jafnvægi, finna sátt og læra af mistökum sínum. Þá er hinn móralski heimur sögusviðsins sjálfur óstabíll – það er einfaldlega ekki alltaf ljóst hvað er rétt og hvað er rangt – og persónurnar allar mótsagnakenndari og óútreiknanlegri bæði í gjörðum sínum, eðli og aðstæðum.
Stærsti munurinn í sjálfri frásagnarlistinni er hins vegar fólgin í því einfaldlega að í stað þess að byggja á formúlu þá forðast þær hana – stærsta synd fagurbókmennta er að renna saman í eitt, að reynast óeftirminnilegar – og svo leggja fagurbókmenntahöfundar ívið meira upp úr því einfaldlega að skrifa góðan texta – að það syngi í setningunum. Auðvitað er árangurinn mismikill – það er sannarlega nóg til af klisjukenndum og illa skrifuðum fagurbókmenntum – enda er hér fyrst og fremst rætt um ætlun höfunda og væntingar lesenda.
Ég veit ekki hvort þessar bækur – fagurbókmenntir með ástarsögum í forgrunni – njóta aukinna vinsælda á öld ástarsögunnar – eða einu sinni hvernig slíkar vinsældir ætti að mæla. En þegar horft er til stóru póstanna í fagurbókmenntum síðasta áratugar eða svo blasa allavega við nokkur dæmi, segjum Sally Rooney og Rachel Cusk, segjum Miranda July og Katie Kitamura – segjum jafnvel Jonathan Franzen.
Ástarsagan veitir lesendum sínum hughreystingu – hamingjan er þarna úti, segir hún, hafðu ekki áhyggjur, veröldin getur verið stöðug þótt stundum blási – á meðan ástin í fagurbókmenntum er oft fyrst og fremst hreyfiafl fyrir harmleiki – ástin er kannski þarna úti, segir hún, en gættu þín, hún er allt eins líkleg til að setja þig af sporinu fyrir lífstíð. Í báðum tilvikum geta sögurnar hins vegar verið verkfæri til þess að ræða þessar tilfinningar okkar og forsendur, og allt sem í þeim felst – vald, valdeflingu og valdamisræmi, vonir og væntingar, frelsi og helsi, samfarir, framfarir og hamfarir – svo við, aumingjans fólkið sem við erum, megum betur skilja hvað í ósköpunum þetta iðandi líffæri í brjóstinu á okkur er að vilja þegar það bankar.