Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Sjálfsástin

RÚV

Mér hefur lengi þótt forvitnilegt hvað gríska goðsögnin um Narkissos er einstaklega illa til þess fallin að lýsa þeim narsissísku tilhneigingum sem kenndar eru við manninn. Hlustendum til upprifjunar, þá var Narkissos fagur veiðimaður frá Þespíu sem margir heilluðust af en sem hafnaði öllum sem við hann reyndu. Aðspurður um örlög Narkissosar sagði sjáandinn Tíresías hinn blindi að Narkissos myndi lifa lengi að því einu tilskyldu að hann myndi aldrei „kynnast sjálfum sér“. En dag einn, eftir að hafa hafnað ótal manns af öllum kynjum, kom Narkissos að stöðuvatni, laut niður til að fá sér vatnssopa, sá spegilmynd sína – kynntist sér, án þess að gera sér grein fyrir því að maðurinn sem hann svo kynntist væri hann sjálfur – og varð svo sjúklega ástfanginn af sér að hann gat ekki hugsað sér að yfirgefa sig. Narkissos sat við stöðuvatnið, leit fegurð sína, veslaðist upp og breytist að endingu í blóm, nánar tiltekið páskalilju.

En narsissistar elska sig ekki. Narsissistum finnst þeir ekki fagrir. Narsissistum dugir ekki að sitja og spegla sig allan daginn meðan þeir veslast upp, þeir sækjast ekki eftir því að vera einir með sjálfum sér, og það eru engir gullhamrar sem þeir geta komið á framfæri við sjálfa sig sem uppfylla sömu þarfir og gullhamrar annarra. Það er eiginlega engu líkara en að narsissistar taki ekkert mark á sjálfum sér og upplifi sig sem ómerkinga. En að sama skapi þá er það ekki eiginleg ást sem narsissistar sækja frá öðrum, eða í öllu falli ekki ást sem þeir fá.

Narsissistar fyrirlíta oftar en ekki sjálfa sig og verandi jafn ófærir um að elska aðra geta þeir ekki heldur kallað fram önnur viðbrögð en ástlíki, like á like ofan, lófaklapp og smjaður, og við hvert slíkt viðbragð eykst þorsti þeirra eftir viðurkenningu. Elskaðu mig, vegna þess að ég elska mig ekki, segir narsissistinn. Elskaðu mig, vegna þess að mér er vorkunn. Elskaðu mig, vegna þess að annars dey ég. En hann segir líka, einsog barnið sem kallar á föður sinn eða móður: Elskaðu mig, vegna þess að ég fór í kollhnís, elskaðu mig vegna þess að ég er með sýnilega magavöðva, vegna þess að ég skrifaði stórkostlega bók, elskaðu mig vegna þess að ég fór á Ólympíuleika og tæmdi uppþvottavélina, elskaðu mig vegna þess að ég er með svo mikla tilfinningagreind, vegna þess að ég kann svo marga aukastafi í pí, er svo góður að elda og að elskast og hef svo góðan tónlistarsmekk. Elskaðu mig, sama hvað þú gerir, elskaðu mig, meðan þú vakir og sefur, elskaðu mig meira og aldrei hætta og þá skal ég aldrei hætta að fara í kollhnís, gera magaæfingar, tæma uppþvottavélina og læra aukastafi í pí. Án þess að hér verði lítið gert úr upptöldum afrekum sem slíkum – þau eru góðra gjalda verð – þá verður ást sem kalla á fram með stöðugum afrekum aldrei til annars en að valda öllum hlutaðeigandi kvíða og angist. Narsissistar telja sig vera að fylla upp í holuna í lífi sínu, þeir sem dást að þeim telja sig vera að leggja hönd á plóg, en í raun eru allir bara að hjálpast að við að grafa. Eina leiðin til þess að fylla í holuna er að gefa af sér – að elska, ekki bara mikið og marga, heldur fyrst og fremst vel.

Að sumu leyti er hið narsissíska ástand þó manninum náttúrulegt. Að vera til er að vera einn og aðskilinn frá öðrum – við erum föst í þessum líkömum, föst í þessum hugsunum, þessum tilfinningum og upplifunum – en það að elska er tilraun til þess að brúa þennan aðskilnað, öðlast hlutdeild í tilvist annarra og gefa af tilvist okkar sjálfra. Að vera narsissisti er að geta ekki, kunna ekki, vilja ekki að tengjast öðrum. Narsissisminn er uppgjöf en ástin uppreisn – sá sem elskar verður að synda gegn straumnum í samfélagi sem hefur ekki áhuga á ást nema sem neyslu, skilur ekki hamingjuna öðruvísi en sem taumlausa ofgnótt – þar sem hinn fullkomni maki er bara hver önnur gæði, vara sem krefst markaðsrannsókna, bestunar, endalauss úrvals og sífelldrar endurnýjunar; maka þessum sporðrennir narsissistinn áður en hann snýr sér að þeim næsta, í eilífri hringrás vonar og vonbrigða.

Í frægri bók sinni, Listin að elska, frá 1956, segir þýski sálgreinandinn Erich Fromm að vilji maður vera fær um að elska aðra manneskju þurfi maður fyrst að læra að elska sjálfan sig og síðan að elska meðbræður sína og -systur. Markmið ástarinnar er, að mati Fromm, ekki að fá ást í skiptum heldur einfaldlega að elska án endurgjalds – og að ást sem veitt sé í öðrum tilgangi – sem skiptimynt – sé ekki raunveruleg ást heldur einmitt neysla. Slík neyslu-ást, segir Fromm, er algengari en hin á öld sem hann lýsir sem bæði narsissískri og kapitalískri, þótt hann hafi skrifað umrædda bók fyrir sjötíu árum síðan og ekki séð fyrir Tinder, þorstagildrur, Djúpu laugina, Colleen Hoover, performatífar ástaryfirlýsingar á instagram, lyklapartí, pólíamoríu, míkródaður, viðstöðulaust aðgengi að klámi og rómantískum fantasíum eða aðra kvíðadrifna markaðslógík hins póstmóderníska ástarsamfélags.

Ástæðan fyrir því að maður getur ekki elskað aðra nema maður elski sjálfan sig er sú að ástina gefur maður af lífsþrótti sínum og sá sem ekki elskar sjálfan sig er í einhverjum skilningi batteríislaus – hann á engan þrótt til að deila því hann framleiðir hann ekki, gefur ekkert af sér og nærir sig þar með ekki, heldur reynir að næra sig á þrótti annarra og tekst þannig að brenna hann allan upp. Sá sem gefur af lífsþrótti sínum gerir það ekki af fórnarþörf – að elska er ekki að glata neinu heldur að gefa, það er ekki lýjandi fyrir þann sem elskar heldur nærandi.

Sá sem hefur einhvern tíma brosað framan í aðra manneskju – eða grett sig framan í barn, hjálpað einhverjum að flytja, snert sorgmæddan ástvin, tekið upp puttaferðalang – ætti að þekkja þetta, það blómstrar allt sem er vökvað. „Upplifunin af auknum lífsþrótti og fjöri“, skrifar Fromm, „fyllir mig gleði. Ég upplifi sjálfan mig sem sneisafullan, gjafmildan, lifandi, og af því sprettur gleði mín. Það er gleðilegra að gefa en að þiggja [...] vegna þess að það að gefa er tjáning á tilvist minni sem lifandi mannveru.“

Að elska sjálfan sig snýst fyrst og fremst, segir Fromm, um að sjá skýrt – og skýrt sjái maður ekki nema maður elski bæði sjálfan sig og mannfólk sem slíkt. Mannhatarar – þeir sem til dæmis elska ástvini sína sem undantekningu í annars grautfúlu mannhafi, eða sem andstæðu síns eigin ömurlega sjálfs – lifa ekki í ást heldur í bjargarlausri örvæntingu, sem þeir, í stað þess að elska, hengja á sitt dýrkaða viðfang. Úttöluð sjálfsfyrirlitning þeirra er ekkert annað en alternatífur narsissismi – botnlaus sjálfhverfa en snefils af ást.

Sá sem vill elska sinn ástvin verður að sjá sjálfan sig skýrt og sjá aðra skýrt, að hefja sig ekki yfir aðra heldur sjá sig í þeim og þá í sér. Hann má ekki gera aðrar kröfur til sín en hinna, ekki álíta sig sem rétthærri, eða afsaka sig með neinu sem hann myndi ekki nota til að afsaka aðra. Og að sama skapi má hann ekki dæma sig með öðrum mælikvörðum en þeim sem hann myndi dæma aðra. Sá sem sér skýrt sér að við erum ekki eins en við erum jafn rétthá og að í okkur öllum býr slík mergð möguleika, slík tækifæri til að blómstra, að stappar nærri göldrum.

Hefði veiðimaðurinn Narkissos hinn fagri verið narsissisti hefði hann ekki hafnað þeim sem lögðu á hann ást heldur þegið ástina og drukkið ástvini sína til þurrðar, og dýpkað með því eigin þorsta, og það sem hefði gert út af við hann hefði ekki verið – einsog Tíresías spáði – að hann kynntist sjálfum sér heldur einmitt hitt, að hann kynntist sér aldrei.

← Allt safniðHitnar →