Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Finnskt verðlaunaþunglyndi

Finnskt verðlaunaþunglyndi

I

Eitt dægilegasta sport menningariðnaðarins eru verðlaunaveitingar. Ekki er nóg með að ekki sé nokkurn skapaðan hlut að marka jafnvel virtustu verðlaun – sem missa ítrekað af því sem „mestu skiptir“ menningarheiminn (þegar fram í sækir) og verðlauna fyrst og fremst alls konar dægurflugur – heldur veita þau okkur smásmugulegum sparðatínendum allt að því lífsfyllingu. Það er fátt skemmtilegra en að rífast um það hver átti verðlaun skilið – og hver ekki. Fátt fer jafn skelfilega fyrir brjóstið á þeim, sem halda að bókmenntir séu keppnisíþrótt og taka verðlaunin alvarlega, en að gefið sé í skyn að dómnefndir hafi hugsanlega komist að „rangri niðurstöðu“.

En verðlaunaveitingar þjóna fjölbreyttari tilgangi. Fyrir utan auðvitað að veita ákveðnu skartgripaslekti og menningarvitum ástæðu til þess að hópa sig saman í kokteil (sem er andheiti við partí, nota bene, jafn fullkomlega siðmenntað og ömurlegt og partíið er siðlaust og lifandi – en þetta finnst fólki skemmtilegt og þau um það) – altso, fyrir utan kokteilinn eru verðlaunaveitingar hluti af hinni stofnanavæddu ímyndarsköpun menningarinnar.

Í fyrsta lagi er með verðlaunaveitingunni fullyrt að það sé eitthvað til þess að fagna. Yfirleitt verður allt brjálað ef dómnefndin ákveður að verðlauna engan – og í bókmenntabransanum er það aldrei gert nema handrit séu innsend. Enn hefur enginn þorað að fussa yfir jólabókaflóðinu í heild sinni  – í fortíð eða nútíð (hvað þá framtíð) – segja enga bók í flóðinu verðlauna virði (hvað þá allar).

Í öðru lagi er verðlaunaveitingin hluti af hírarkíublæti menningariðnaðarins – þar sem byrjað er að raða í virðingarpíramídann strax eftir útgáfu, ákveða hvar vissar bækur (og vissir höfundar) eiga heima á skalanum 1-10 (sem er bara önnur útfærsla á hugmyndinni um bókmenntir sem keppnisíþrótt). Verðlaunaveitingin er þannig nokkurs konar stjörnugjöf fyrir lengra komna kokteilalka.  

Í þriðja lagi er verðlaunaveitingin hluti af þjóðernisprójektinu – ekki bara til að skilgreina framvörð menningarinnar, bæði innávið, gagnvart þjóðinni sjálfri, og útávið, gagnvart öðrum þjóðum, heldur líka gildi þjóðarinnar. Þannig speglar valið alltaf bæði menningarlegar og þjóðernislegar hugmyndir dómnefndarinnar (sem reynir ómeðvitað að spegla þessi gildi, einsog þau birtast meðal þjóðarinnar). Það eru tvær gerólíkar sjálfsmyndir sem birtast þegar verðlaunin eru veitt kvæðasafni um tærar íslenskar fjallasprænur eða þegar þau fær rökmiðjulaus skáldsaga um kyngervisusla. Og þar á milli eru líka þúsundir annarra sjálfsmynda, tilhneiginga til skilgreininga á gildum og meiningum þjóðar. Oft er meira um vert að gaumgæfa einmitt þessar tilhneigingar – þær segja manni mun meira en hvort kall A eða kall B skrifaði nautnalegri texta.

II

Á dögunum voru sex rithöfundar tilnefndir til hinna virtu Finlandia-verðlauna – þar af einn Finnlandssvíi, en fyrir því mun vera hefð. Finlandia-verðlaunin eru mesti heiður sem finnskum rithöfundi getur veist innanlands – verðlaunaféð er tæpar 5 milljónir króna og er veitt fyrir „framúrskarandi bókmenntaverk“ sem skrifað var af finnskum ríkisborgara á öðru hvoru ríkismálinu, sænsku eða finnsku. Í sjálfu sér segir það sitt um þjóðernispólitíska slagsíðu verðlaunanna að á þeim 25 árum sem verðlaunin hafa verið veitt hafa þau fimm sinnum fallið í skaut sænskumælandi höfundi – í 20% skiptanna – þótt Finnlandssvíar séu ekki nema 5% af þjóðinni. Þá má ekki gleyma nafninu – þjóðernið er beinlínis bundið í heiti verðlaunanna: Finlandia er ekki bara vodki.

Nema hvað, eftir að verðlaunatilnefningarnar voru tilkynntar á dögunum fór Helsingin Sanomat – stærsta dagblaðið í Finnlandi – á stúfana og uppljóstraði að eitt skáldanna, Alexandra Salmela, höfundur bókarinnar 27 eða dauðinn skapar listamann, er alls ekki finnskur ríkisborgari heldur slóvakískur. Alexandra Salmela er fædd árið 1980 í Bratislava, með masterspróf í finnsku, gift finnskum manni og búsett í Tampere. En það er stranglega bannað að veita útlendingum Finlandia-verðlaunin. Eða tilnefna þá. Þau eru bara fyrir Finna.

Maður getur ekki gert að því að hlæja. Af tærum kvikindisskap (að ónefndum hroka og biturð, en án þeirra væri engin menningarumfjöllun möguleg, skilst manni á hælbítum. Manni er ósjálfrátt, svona illa innrættur einsog maður er.) Að vísu voru dómnefndarmeðlimir sér áreiðanlega meðvitaðir um að Salmela væri innflytjandi – bókin hefur verið markaðssett sem fyrsta stóra innflytjendaskáldsagan í Finnlandi, fjallar um tékkneskan listnema sem flytur inn í sánaklefann hjá ekológískum bændum í Norður Finnlandi, í leit að innblæstri (sem hún vonast til að fá áður en hún deyr 27 ára, einsog átrúnaðargoðin hennar, Hendrix, Joplin, Cobain og Morrison).

Dómnefndin ákvað (sem betur fer) að leyfa Salmela að taka þátt – dómnefndin skrifaði mistökin á sig og sagði að þetta yrði bara að vera einsog það er. Á Íslandi hefði henni vafalaust verið veittur neyðarríkisborgararéttur (enda ómögulegt að vera að svindla á jafn alvarlegum hlutum og bókmenntaverðlaunum).

III

Í sjálfu sér er merkilegt að Salmela skuli hafa talist gjaldgeng þar til í ljós kom að hún var ekki með rétta pappíra. Hún var altso nógu finnsk til að gabba dómnefndina – fyrir þeim var hún finnskur innflytjandi frá Slóvakíu – en stimpildýrin vissu betur, pappírarnir sýndu svart á hvítu að hún var slóvakískur innflytjandi í Finnlandi. Það best ég veit hefur reyndar enginn spurt hana, hvað henni finnst hún vera – enda er einstaklingum ekki leyft að skilgreina eigið þjóðerni. Það er stofnana að ákveða hvers lenskur maður er.

Bók Salmela heldur þannig áfram sigurför sinni um Finnland með því að sperra mótor menningarvélarinnar, þjóðernisvélarinnar, upp á gátt og þvinga fram ídentítetsspurningar á borð við þær sem hljóta iðulega að vera í forgrunni flestra (ef ekki allra) innflytjendasagna – efasemda sem undirstrika þjóðerni um leið og þær leysa það upp. Þar stendur þjóðernið nakið og æpandi, í allri sinni kaotísku dýrð (frekar en þeirri heimóttarlegu einkynjun sem við eigum að venjast).

Vélin gat ekki annað en gefist upp. Fyrsta finnska innflytjendasagan reyndist stærri biti en hún réð við – og afhjúpaði hræsni pappírsins, sem ætti með réttu að vera merkingarlaus en við höfum gætt slíkum töframætti að óstimpluðum eru okkur engir vegir færir.

En það er líka ágætt að minnast þess að dómnefndin talar um mistök þegar tilnefningu Salmela ber á góma. Sem aftur felur í sér að ef ríkisborgararéttur hennar hefði verið ljós þegar ákvörðunin var tekin hefði henni einfaldlega verið hafnað, þegjandi og hljóðalaust, og enginn hefði frétt af því. Með því að leyfa henni að vera með – blessuðum útlendingnum, sem talar svona ofsa, ofsa fína finnsku – er því miður bara verið að forðast skandal, ekki að viðurkenna fljótandi og margbrotið eðli þjóðernis á 21. öldinni.

← Allt safniðMannasiðir Sofi Oksanen →