I
Ég hef tvisvar sinnum „hitt“ Sofi Oksanen. Í fyrra skiptið fór ég ásamt finnskum kunningja mínum, rithöfundinum Tuomas Kyrö, á knæpu í Helsinki þar sem fyrir var kraðak af skáldum við hringborð. Ég vissi ekki hver hún var en þótti hún heldur óþokkaleg, því hún sneri samræðunni alltaf yfir á finnsku – og þegar fólk talar finnsku skil ég jafnan afskaplega lítið, og sérstaklega þá, fyrir líklega tveimur árum. Ég veit að ég hef engan rétt til þess að krefjast þess að Finnar tali ensku eða sænsku við mig – en þegar maður situr til borðs með fólki og kona ein skilur mann (að því virðist) skipulega út undan úr samræðunum sárnar manni.
Í seinna skiptið var það úti á götu í Tallinn – þetta var sama dag og Jóhanna keppti í Eurovision. Fyrr um daginn hafði ég „hitað upp“ fyrir Oksanen á bókmenntahátíðinni í Tallinn og nú gekk ég fram á hana þar sem hún hafði annan kunningja minn, Turkuskáldið Joni Pyysalo, upp á arminn. Joni er afskaplega hlýr og skemmtilegur maður – ég þekki hann sama og ekki neitt en finnst samt einsog ég myndi mæta honum með faðmlagi ef ég rækist á hann. Joni stoppaði og sneri sér að mér, baðaði út höndunum brosandi og sagði eitthvað gleðilegt – eitthvað hlýtt og yndislegt, hlæjandi og hífað. Sofi hins vegar staðnæmdist bara stíf og starði beint fram fyrir sig án þess að segja orð – í réttstöðu, einsog þolinmóður (en tímabundinn) hermaður, og beið þess að Joni hefði lokið sér af við að heilsa kunningja sínum.
Ég hef sem sagt hitt hana tvisvar án þess að á milli okkar færi svo mikið sem eitt einasta orð.
Ég segi þessa sögu til þess að koma því að, að félagslega hef ég fullkomna samúð með Lindu Blöndal, sem „lenti í“ Sofi Oksanen á dögunum. Sofi Oksanen er ekki „hlý“ við ókunnuga, þótt ég hafi ekki getað séð betur, þarna við borðið á knæpunni, en að hún væri afar vingjarnleg við vini sína – en hún gæti auðvitað, fyrir alla mína finnskukunnáttu, hafa verið að segja þeim, brosandi út að eyrum, að hoppa upp í rassgatið á sér með allt sitt hafurtask og heimskulegu hugsanir. Sofi Oksanen er skeptísk, krítísk og andskotanum harðari í horn að taka. Það fer líka orð af henni hér í Finnlandi fyrir að vera ekki mikið að miðla málum eða gera sér upp ánægju – en hvorutveggja er auðvitað þjóðaríþrótt í íslenskri menningu, sem hefur bara einn gír: sjálfumgleði.
II
Linda Blöndal lagði upp með spurningu sem gekk út á kaldastríðsklám sem mig grunar að Sofi Oksanen hljóti að vera orðin ansi þreytt á – enda hafa síðustu misserin farið í að troða henni í þröngan og óþægilegan Solsjenitsín-kassa, að smætta bækur hennar niður í síðkapitalísk áróðurstól gegn sadó-masó fortíðarblætisdýrkun Sovétríkjanna. Auk þess talaði Linda, fullkomlega formálalaust, um „landið þitt“ – og átti við Eistland – við konu sem er auðvitað fyrst og síðast finnsk (þótt þjóðerni hennar, einsog svo margra í seinni tíð, sé flókin spurning um sjálfsmynd). Þá spurði hún spurninga sem eru allt að því óhugsandi (ég þori varla að segja „heimskulegar“; það tóku því allir svo illa þegar Sofi notaði þetta bannorð – Íslendingar eru svo snöggir að pakka í vörn). Fólk sem spyr spurninga á borð við „Er bókin persónuleg?“ og „Er þetta skáldskapur?“ fær einfaldlega ekki vinnu við menningarumfjöllun á stærri miðlum á meginlandi Evrópu; og fólk sem sýnir viðmælendum sínum minnimáttarkenndarhroka á borð við að spyrja hvort maður þurfi „bókmenntafræðipróf“ til að fá að tala við það, fær ekki vinnu í fjölmiðlum – punktur basta. Ætli maður að rífast við viðmælanda sinn þá byggir maður ekki gagnrýni sína á því að manni sárni umburðarleysi viðmælandans. Þegar fjölmiðlamaðurinn er farinn að bíta þannig frá sér hefur hann gert sjálfan sig að viðfangsefni – og þótt Linda Blöndal sé áreiðanlega mjög áhugaverð manneskja, og indæl viðtals, þá var hún ekki til umfjöllunar í þessu tiltekna tilfelli.
Það er kannski undarlegt að orða það þannig, en mig langar samt að auglýsa eftir dálitlu bókmenntasnobbi. Dálitlum metnaði – fagmennsku jafnvel – nördaskap, hreinlega. Að sá sem taki bókmenntir til umfjöllunar hafi á þeim áhuga – þekki til. Á Íslandi er enginn kúltúr fyrir sérþekkingu eða kunnáttu – við höfum lengst af verið svo fá að við hlaupum bara í þau störf sem þarf að vinna, hvort sem að við kunnum þau eða ekki, og vonum að það fari ekki of illa. Við sjáum þetta í stjórnmálastéttinni, fjölmiðlastéttinni, forleggjarastéttinni, viðskiptastéttinni, fræðimannastéttinni, menningarstéttinni – úti um allt: fúsk, fúsk, fúsk og aftur fúsk. Við gerum ráð fyrir að þeir sem tilheyra stærri þjóðum sýni þessu skilning – að við séum fáliðuð og við umberum þess vegna alls kyns fúsk, sem aðrir gera ekki. Fyrir skemmstu vorum við nógu fá til að standa ekkert annað til boða. En okkur fjölgar og eftir því sem okkur fjölgar verðum við að fara að gera meiri kröfur til menningarumfjöllunar á íslensku en að hún sé „til staðar“. Til þess eigum við orðið of mikið af færu fólki. Sumt af því vinnur á Rás 1. Annað skrifar á netið eða í tímarit, eða ritar bækur. Enn annað bíður bara eftir að fá eitthvað að gera.
Punkturinn er þessi: Það var einfaldlega engin ástæða til þess að senda manneskju á staðinn sem var ekki starfinu vaxin. Það er bókstaflega allt krökkt af blómstrandi vel gefnu, skemmtilegu og kunnugu bókmennta- og listafólki á Íslandi. Meira að segja Agli Helgasyni hefur tekist að fjölga úr tveimur gagnrýnendum í heila fjóra – á milli þess sem hann bloggar heilu og hálfu doðröntunum á viku, heldur úti tveimur sjónvarpsþáttum og ferðast um heiminn þveran og endilangan (ég á ekki við að Egill sé óhæfur, frekar en Linda, en vilji maður þekkja takmörk sín er líklega best að byrja á því að viðurkenna að maður hafi einhver takmörk).
III
Auðvitað hrekkur maður við þegar í hina litlu íslensku menningartjörn mætir manneskja sem er ekki vön því að vera spurð asnalegra spurninga – fiskur sem þekkir ekki hið tæra íslenska vatn, sem ævinlega skal vera lygnt, samkvæmt lögum – manneskju sem býst við metnaði frá starfsmönnum ríkisfjölmiðla og bregst því ókvæða við þegar fréttakona sem fer fram á viðtal við hana hefur ekki lesið bókina, spyr bara út í hött og hlustar ekki á svörin. Því við hin, við sem erum alin upp í þessu gruggi – vön því að eiga að vera þakklátt að nokkur nenni að tala við okkur – við erum alltof gjörn á að vera bara kurteis, að taka ekki slaginn heldur nöldra í laumi eftirá eða undir rós. Því þótt ég skilji Lindu Blöndal ósköp vel, að sárna „dónaskapurinn“, þá var fyrir löngu kominn tími til þess að einhver væri svolítið dónalegur við okkur.
Lindu Blöndal, líkt og Agli Helgasyni, Páli Baldvini og ótal öðrum altmuligmönnum Íslands, er áreiðanlega ansi margt í lófa lagið, en það er kannski kominn tími til að við sýnum þann þroska að viðurkenna að þetta kunni hún ekki í stað þess að hrökkva í vörn og segja Sofi Oksanen til syndanna fyrir að kunna ekki mannasiði. Því dónaskapur Sofi Oksanen var auðvitað bara sá að taka ekki tillit til þess að Íslendingar spila (fyrir leti sakir) í þriðju deild í menningarmálum – menning á Íslandi er bara innanholur skemmtanaiðnaður sem gengur út á að brosa og þykjast segja eitthvað. Hreyfa varirnar og kinka kolli. Og eini dónaskapurinn sem Sofi Oksanen sýndi Íslendingum var að haga sér einsog maður – dónaskapur hennar voru mannasiðir í fullkomnasta skilningi þess orðs.
