Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Náriðlakróníka

Náriðlakróníka
Ljósmynd: Einar Einarsson Kvaran · CC BY-SA 3.0

Einar Ben hefði orðið heimsfrægur, ef hann hefði skrifað á ensku, sagði Matti Jo víst í útvarpsviðtali á dögunum.

Kiljan hefur göngu sína aftur í næstu viku – jólabókaflóðið hefur verið kvatt og við taka fastir liðir einsog venjulega. Byrjað verður á hinum klassíska kirkjugarðsrúnti með hinu jafn klassíska kirkjugarðsrúnki.

Í þar síðasta Tímariti Máls og menningar voru sex heilar greinar eftir gamla karla um dauða karla – ein kona kom að þeirri sjöundu.

Bróðurparturinn af virtustu (og virkustu) rithöfundum Íslands undir 35 ára aldri hafa enn enga ástæðu séð til þess að ganga í Rithöfundasambands Íslands – Gillzenegger er undantekningin sem sannar regluna og með langyngstu meðlimum, verandi ekki nema rétt rúmlega þrítugur.

Sami hópur mætir afgangi þegar ritlaunum er úthlutað.

Flestir þeir sem hafa nokkuð um íslenskt menningarlíf að segja eru ríflega (og oft vel ríflega) miðaldra. Í þeim hópi er útsýnið gott yfir grafarbakkann og dálítil náriðlastemning, dálítill svona kirkjugarðsfílingur, og gríðarleg (liggur mér við að segja) fortíðarþrá.

Einni lofuðustu bók síðasta árs (sem er nú horfið einsog bókin) var ítrekað lýst þannig að hún bæri með sér anda horfinna tíma og væri klassísk í hugsun.

Annarri var stöðugt talið það til tekna að bera ekki með sér neinn óþarfa samtíma (líkt og fyrri bækur höfundar).

Báðar voru unaðslegar (skilst mér, ég forðast unaðslegar bókmenntir einsog ég forðast að graðga í mig marsipani frá morgni til kvölds – kannski er þetta ótti við áunna sykursýki).

Íslensk bókmenntastofnun vildi helst vera löngu horfinn bókmenntaheimur. Þetta hefur verið skráð í annála. Staðfest á fundum og í beinni útsendingu. Um þetta efast vart nokkur lengur: Íslensk bókmenntastofnun vildi helst hverfa aftur til þess tíma er Steinn Steinarr haltraði bölvandi um göturnar og Ólafur Kárason Ljósvíkingur svaf á leiði Sigurðar Breiðfjörð og Jónas Svafár svaf ár. Til þess tíma er Dagur Sigurðarson efndi til samskota fyrir kaffi & kardó og Halldór Kiljan reykti í beinni útsendingu (ekki þar fyrir að myndi Jón Kalman fíra upp í vindli í Kiljunni yrði honum án efa umsvifalaust vísað á dyr).

Áhugasvið stofnunarinnar nær reyndar sjaldnast alla leið í bækurnar, sem jaðrast og aðrast, en nemur staðar við skemmtilegar gróusögur um hver svaf hjá hverjum og hver átti hvaða fyndnu tilsvör – hver sniðugustu mannfyrirlitninguna. Bækurnar eru ekki skemmtilegar, en þær eru þó skömminni skárri en bækurnar sem eru skrifaðar nútildags. Sic transit gloria og það allt saman. Mundi. Þá vildi ég heldur lesa Guðrúnu frá Lundi.

Yngsta skáldið á Íslandi er Guðbergur Bergsson, sagði einhver og átti líklega við afstæði aldurs, átti líklega við að Guðbergur væri svo unglegur í hugsun (les. skemmtilega hortugur).

Yngsta skáldið á Íslandi er Megas, sagði einhver annar og átti við eitthvað svipað.

Báðum rataðist líklega satt á munn. Satt á lyklaborð. Ekki vegna þess að æskan eigi einkarétt á hortugheitum og meinfýsinni fyndni, heldur vegna þess að íslensk bókmenning er fullkomið kitsch. Sem kitsch er hún ófær um að takast á við neitt sem er hversdagslegra en lifandi goðsagnir.

Fólkið bíður síðan með öndina í hálsinum eftir að goðsagnirnar lifandi drepist svo hægt verði að heimsækja þær í kirkjugarðinn og segja um þær missæmilegar kellingasögur. Flissandi.

Þegar líða tekur á nóvember verður sjálfsagt aftur látið með íslenskar bókmenntir einsog þær skipti einhverju máli, einsog þær tilheyri lifandi heimi sem vex og dafnar, heimi sem er fær um að líta sjálfan sig krítískum augum jafnt sem að njóta sín – einsog þær skipti máli, séu innlegg í veruleikann, ást.

En næstu tíu mánuðirnir verða lagðir undir langdregið kirkjugarðsrölt.

← Allt safniðKodduhjal: Drög að svari við hugsanlegri stríðsyfirlýsingu →