I
Við byrjum á að bera í bakkafullan lækinn: Sjálfsagt hefur nú þegar verið alltof margt sagt um myndlistarsýninguna Koddu, bókverkið Fallegasta bók í heimi og myndabókina Flora Islandica – að minnsta kosti ef nokkuð er að marka þá sem kvarta undan óóóóóóheeeeeeemmmjjuuuuu leiðindanna.
(Þetta er kannski ekki jafn yfirþyrmandi hjá öllum en Facebook okkar sjálfskipuðu menningarpostulanna beinlínis logar – útgefandi Flórunnar segist enda bæði mala gull af umtalinu og ætla að senda tautendum reikning fyrir tíma sínum, því hann á ekki að þurfa svara fyrir það þótt öðrum þyki kröfur hans þrengja að tjáningarfrelsinu – það er auðvitað ömurlegt að fólki skuli vera gert að standa fyrir þeirri kröfu að tjáningarfrelsið sé skert, það er hreint út sagt leiðinlegt).
Við höldum áfram að bera í bakkafullan lækinn: Margt hefur verið sagt af viti um sýninguna og bókverkið (ég nefni hér grein Hauks Más) og margt annað hefur verið sagt af litlum samræðuvilja, litlum skilningi fyrir ólíkum sjónarmiðum: þeim sem hafa eitthvað út á þessa notkun sæmdarréttarins að setja, eða þeir sem setja nokkurt spurningamerki við minnstu klásúlur höfundaréttarlaga, hafa sem dæmi mátt þola háðsglósur um að þeir (og þær) vilji nú áreiðanlega bara ekkert að listamenn fái greitt fyrir verk sín eða verkin njóti nokkurrar verndar. Þessu heldur jafnvel fram fullorðið fólk; fólk sem hefur lifibrauð sitt af tjáningarfrelsinu, af samfélagskrítík; fólk sem hefur sérhæft sig í siðferðislöggæslu og listdýrkun.
Og verður sjálfu sér beinlínis til skammar.
II
Ég segi þetta bara einu sinni:
Höfundaréttur á aldrei að takmarka tjáningarfrelsið nema verulega ríkulegar ástæður komi til. Verulega ríkulegar (er ég þá búinn að segja það tvisvar?). Höfundaréttur er praktískt atriði sem á að vega salt við tjáningarfrelsið – hann er ekki heilagur eignarréttur (í öllu falli á hann ekki að vera það). Höfundarétti var upphaflega ætlað að sjá höfundum fyrir tekjum, tryggja fjárfestingu útgefenda (fyrstu copyright-leyfin voru veitt prentsmiðjum, ekki höfundum) og vernda listaverkin gegn skemmdum.
Höfundarétti var ekki (endilega) ætlað að koma í veg fyrir að verkin yrðu notuð til nýrrar sköpunar. Það er túlkun sem hefur verið tekist á um frá því fyrstu höfundalögin voru sett – hvar og hvernig höfundaréttur mætir tjáningarfrelsinu – og sú barátta (sem er allt í senn siðferðisleg, heimspekileg, lögfræðileg og félagsleg) hefur sjálfsagt aldrei verið harðari en akkúrat á síðustu árum. Það verður enda sífellt auðveldara að bæði afrita og dreifa list – fyrir tilstuðlan tækniþróunar (takk!) – og því fylgir ákveðin korporat-hystería með sífellt þrengri lagaramma, sífellt meiri neyslustýringu innbyggðri í tækin og sífellt ríkari áherslu á samninga (ef þú smellir á „lesa þennan pistil“ samþykkirðu 40 blaðsíðna skilmálana á bakvið þennan hlekk – sem enginn smellir á eða hefur tíma til að lesa – og þrengir þar með rétt þinn langt umfram það sem lögin segja til um).
III
Sá sem heldur því fram að listaverk Eggerts Péturssonar, Flora Islandica, hafi beðið meiri skaða af því að ein bók af fimm hundruð prentuðum skuli hafa verið fyllt mat og kölluð nýju nafni, en að bókin hefði til dæmis verið sögð „fullkomlega ömurleg birtingarmynd flottræfilsháttar og blætisgerðrar náttúru og myndlistar“ í dagblaði (sem má (ennþá), guðsélof) hefur villst eitthvað í rangölum eigin réttlætiskenndar (nema hann vilji hreinlega banna fólki að sýna dónaskap/subbuskap).
Ein bók var skemmd og presenteruð sem nýtt listaverk, byggt á eldra verki. Sjálft höfundarverk Eggerts Péturssonar er óhreyft á eftir; líkt og Mona Lisa er ekki önnur mynd þar sem hún hangir á Louvre, þótt Duchamp hafi málað yfirvaraskegg á eina eftirmynd.
Manni getur þótt óþægilegt – og jafnvel hreinlega sviðið það inn í hjartarætur – að snúið sé út úr fyrir manni. En það þýðir ekki að maður eigi skilyrðislausan rétt til þess að allir útúrsnúningar á hugsunum manns, orðum eða sköpunarverkum séu gerðir ólöglegir. Ekki einu sinni þótt maður sé „listamaður“.
IV
Því hefur verið haldið fram að myndlistarverkið Fallegasta bók í heimi sé „skólabókardæmi“ um brot á sæmdarrétti. Hvort sem um brot er að ræða eður ei (og ég hallast (því miður) að því að um brot sé að ræða, samkvæmt núgildandi lögum; þótt ég sé augljóslega allur af vilja gerður til að túlka þetta á hinn veginn (en ég er nota bene ekki lögmenntaður)) þá er alveg ljóst að hér er einmitt ekki um „skólabókardæmi“ að ræða. Fletti maður upp í bókum eða ritgerðum (t.d. „Framsal á sæmdarrétti“ eftir Teit Skúlason; Copyright's Paradox eftir Neil Weinstock Netanel, The Future of Ideas eftir Lawrence Lessig eða „Litterära fortsättningsverk; en studie i upphovsrätt“ eftir Önnu Åkesson) rekst maður hins vegar á skólabókardæmi.
Hér eru til dæmis þrjú:
Bandarísk sjónvarpsstöð tók níutíu mínútna sjónvarpsþætti Monty Python til sýninga, en stytti þá niður í 66 mínútur til þess að þeir pössuðu betur að dagskránni. Bandarískur réttur komst að þeirri niðurstöðu að sjónvarpsstöðinni væri óheimilt að kynna þættina sem þessa tilteknu Monty Python þætti; enda væru þeir styttir og breyttir.
Ted Turner keypti réttinn að svarthvítri bíómynd Johns Huston The Asphalt Jungle og litaði hana. Þetta mátti hann í Bandaríkjunum en var hins vegar sakfelldur fyrir frönskum rétti þegar myndin var tekin þar til sýninga.
Fyrirtækið Plötur ehf. seldi tónlist eftir hljómsveitina múm í Sony-auglýsingu að þeim forspurðum. Sala lagsins þótti brot á sæmdarrétti en plötufyrirtækið var sýknað á þeirri forsendu að „röngum vanefndaúrræðum hefði verið beitt“ (sem ég held að þýði: „auðvaldið hefur alltaf rétt fyrir sér, líka þegar það hefur rangt fyrir sér“).
Í svo gott sem öllum „skólabókardæmum“ sem ég hef fundið er um að ræða framsetningu á höfundarverki (á ósæmilegan máta) sem áfram er kynnt sem höfundarverk upprunalegs höfundar, en einmitt ekki sem nýtt verk. Þetta hlýtur að hafa eitthvað að gera með þann vilja sem að baki lögunum stendur; þá hugsun sem í þau var lögð, þegar skrifað var: „Óheimilt er að breyta verki höfundar eða birta það með þeim hætti eða í því samhengi, að skert geti höfundarheiður hans eða höfundarsérkenni.“
Það er vonandi túlkunaratriði hvort þessum lögum (sem eru meira og minna eins á öllum norðurlöndunum) er ætlað að standa gegn konseptlistaverkum sem yfirtaka eða innlima önnur verk.
V
Ekki er hins vegar þar með sagt að það „megi“ gera nýtt verk úr gömlu verki, samkvæmt bókstafsskilningi – að ég megi rímixa Stein Steinarr að vild, Jón Örn Loðmfjörð og Arngrímur Vídalín megi rímixa Sjón að vild, eða sýningarstjóraþríeykið í Koddu megi rímixa Eggert Pétursson að vild – það má einmitt (líklega) ekki.
En listamenn, sem vita að hugmyndir spretta ekki úr tóminu (til dæmis listamenn sem gera eftirmyndir af blómum), að þær fæðast ekki í hugum undirlögðum snilligáfu heldur eru sóttar í heiminn („góðir listamenn fá lánað, stórkostlegir listamenn stela“ sagði Picasso, sem stal meðal annars öllu steini léttara úr afrískri alþýðulist; „Óþroskuð skáld herma eftir, þroskuð skáld stela“ sagði TS Eliot sem hirti úr vestrænum bókmenntum einsog róttæklingur úr ruslafötu; „Góð tónskáld herma ekki eftir, þau stela“ sagði Igor Stravinskí, sem fór um píanókonserta Tjaikovskís einsog þjófur að nóttu), altso listamenn sem vita að allar hugmyndir eru (í besta falli nýjar) útgáfur af öðrum hugmyndum kæra yfirleitt ekki kollega sína, jafnvel þótt að þeir móðgist eða þeim misbjóði, heldur láta jafnan lögfræðingum dánarbúa eftir slíka ósvinnu (en lögfræðingar hafa að öðru óbreyttu talsvert minni skilning á plúralískri tilkomu allra sköpunarverka; og eru oftast ólíkt hörundsárari fyrir hönd listamannnanna en listamennirnir sjálfir). Listin þrífst nefnilega og blómstrar í skjóli hömlu- og leyfislauss þjófnaðar; og það hefur hún gert frá því löngu áður en við fundum upp á hugmyndinni um „höfund“ – hvað þá „höfundarétt“.
VI
En tjáningarfrelsi hvers? spurði frægur rithöfundur á dögunum. Tjáningarfrelsi vandalans?
Já, svara ég (núna, ekki þá; þá var ég of þreyttur til að rífast í fólki sem virtist hvort eð er ekki hlusta). Það er nefnilega ágætt að fara sér hægt í að takmarka tjáningarfrelsi vandalans – ekki bara vegna þess að skemmdarverk hans eru oft að miklu leyti í auga sjáandans, heldur vegna þess að stundum er vandalinn enginn annar en Messías í musterinu (eða Saving Iceland liðinn sem er búinn að hlekkja sig við stórvinnuvél í heiðarlegri tilraun til þess að koma í veg fyrir a) óafturkræf náttúruspjöll og b) kapitalíska offjárfestingu sem getur ekki leitt til annars en efnahagshruns) og þá er ágætt að honum sé leyft að tala (og við gætum þá jafnvel íhugað að leggja við eyra, jafnvel þótt okkur ofbjóði orðbragðið í blessuðum öreigunum).
Ég segi þetta líka bara einu sinni:
Tjáningarfrelsið er ekki bara fyrir þá sem við erum sammála. Það er ekki heldur bara fyrir þá sem okkur þykja smekklegir og sanngjarnir, hina nærgætnu og kurteisu. Ef svo væri, væri óþarfi að binda það í lög. Við myndum vita að um löglega tjáningu væri að ræða ef enginn móðgaðist. Það skiptir ekki heldur neinu máli hversu ómerkilegur eða lítilsgildur manni finnst dónaskapurinn – hann á ekki að njóta minni verndar tjáningarfrelsisins fyrir þær sakir.
VII
Sæmdarréttur á vel að merkja ekki bara við um listaverk – heldur jafnvel um blaðagreinar, nytjalist og svo gott sem alla hugsanlega (birta/framleidda) sköpun. Ef að það fæst staðfest af dómara að Fallegasta bók í heimi sé sannanlega brot á sæmdarrétti, hefur svigrúmið verið fært niður á núllið og það jafngildir einhvers konar stríðsyfirlýsingu við stóran hluta þeirrar tjáningar sem fólk hefur hingað til talið sig eiga rétt á að fremja:
Á Flickmylife birtist hönnun, ljósmyndir og birtur texti, útkrotuð og utan „rétts“ samhengis – án leyfis.
Á bloggum birtast útúrsnúnar vísur og ljóð („Í banka sérhvers manns er fall hans falið“) – án leyfis.
Í skáldsögum birtast stolnar mannlýsingar, stolnar veðurlýsingar, stolnar blómalýsingar, stolin ævibrot, stolnar minningar, stolnar tilfinningar, oft orðrétt (halló, Magnús Ljósvíkingur Hjaltason Magnússon á Þröm og öll þín sæmd!) – án leyfis.
Í (nýjum og gömlum) ljóðabókum birtast útúrsnúningar og afbakanir á öðrum ljóðum, fréttatextum, greinum og ræðum – án leyfis.
Á myndlistarsýningum birtast afskræmdar auglýsingamyndir; Mikki Mús, Andrés Önd og Barbídúkkur í vafasömum stellingum – án leyfis.
Á YouTube birtast brot úr bíómyndum með nýjum texta („Hitler tryllist vegna sæmdarréttarbrota“); ný klipp úr gömlum bíómyndum; lítil börn að misþyrma popplögum í höfundarétti; leikstýrð brot úr tölvuleikjum – (þið sjáið ekki eftir því að gúggla „machinima“) – án leyfis.
Á árshátíðum tekur fólk popplög og breytir textanum – Stál og hnífur verður Prjál og pífur – allt án þess að spyrja kóng eða prest (og já Stál og hnífur nýtur höfundarréttar og já árshátíð er opinber birting).
(Svona væri hægt að halda áfram í allan dag – sá sem hefur aldrei brotið á sæmdarrétti neins hefur einfaldlega ekki lifað; árið 1968 var situationismi róttækur boðskapur, í dag er hann hversdagslegur lífstíll).
VIII
Sæmdarréttur fer til dánarbús að höfundi látnum, einsog annar höfundarréttur, og endist þar í 70 ár eftir andlát höfundar (að því gefnu að höfundaréttartímabilið verði ekki lengt meira – en hingað til hefur reglan verið sirkabát sú að í hvert sinn sem Mikki Mús er við það að falla úr höfundarétti, er alþjóðalögum breytt til að vernda Disney).
Þegar minnt hefur verið á þær (dásamlegu og kanóníseruðu) afskræmingar sem finna má í listasögunni – til dæmis ameríska þjóðsönginn hans Hendrix, skeggið sem Duchamp málaði á Monu Lisu, Gerplu Kiljans eða álíka – hefur jafnan verið nefnt að þetta séu verk sem fallin séu úr höfundarétti. Og það er rétt (þótt það eigi alls ekki við um allar (dásamlegar og kanóníseraðar) afskræmingar listasögunnar – Warhol er ágætis dæmi, enda var hann ítrekað sakfelldur fyrir ýmis konar brot; Jeff Koons er annað, Banksy þriðja).
En ef maður leyfir sér að gera einsog margir sem verja þessa tilteknu notkun sæmdarréttarins (að ekki megi undir neinum kringumstæðum gera nýtt verk úr eldra verki án leyfis upprunalega höfundarins) og líta á þetta sem siðferðisbrot frekar en (bara) lögbrot kviknar spurningin: So what? Er þá sæmd Da Vinci ómerkilegri vegna þess að hann er búinn að vera dauður í meira en 70 ár? Ef gengið er út frá því sem vísu að misviðkvæm sæmd manna geti kostað annað fólk tjáningarfrelsið á meðan téðir menn eru á lífi, hversu lengi þurfa þeir að vera dauðir áður en þeim hættir að sárna?
IX
En höfundaréttur er ekki píp. Sæmdarréttur er ekki heldur neitt píp. Ég hef lagt mikið á mig til að sárna ekki um of að vera (tiltölulega statt og stöðugt) gert upp sú skoðun að ég telji listamenn eigi ekki að hafa neitt um meðferð verka sinna að segja; eða að þeir eigi hreinlega ekki að fá neitt borgað fyrir vinnu sína og verk. En einsog áður segir er það hluti af fórnarkostnaðinum við að eiga í opinskáum samskiptum við annað fólk – það er alltaf hætt við að fólk snúi út úr fyrir manni eða hreinlega misskilji mann í einlægni. Og þess vegna segi ég það aftur: Höfundaréttur er ekki píp og sæmdarréttur er ekki heldur neitt píp. Mér þykir sjálfsagt að höfundar fái greitt fyrir SÍN verk og þeir fái um meðferð SINNA verka vélað. En mér finnst ekki að þessi réttur megi kosta hvað sem er og mér finnst ekki að menn eigi að hafa sjálfdæmi um hvort brotið hafi verið á þeim.
Sögulega eru höfundaréttarlög viljandi höfð óljós um margt, enda eru mörkin milli eins listaverks og þess næsta oft óljós (og mörkin milli eins stillubeins og þess næsta oft mun óljósari en mörkin á milli Flora Islandica og Fallegasta bók í heimi, sem ég hefði haldið að væru frekar skýr (önnur þeirra er full af mat!)).
Í hvert einasta sinn sem upp kemur álitamál í höfundarétti – sérstaklega í sæmdarrétti (ef hægt er að vera meira sérstaklega en „í hvert einasta sinn“) – á að kalla til dómara til þess að skera alla úr snörunni. Með því verður til safn af fordæmum sem síðan er hægt að vísa til í hvert sinn.
Þetta segi ég ekki vegna þess að mér finnist að útkljá eigi öll mál fyrir rétti – ég er raunar almennt andsnúinn því að öll mál séu útkljáð fyrir rétti, en hér er ég ósammála sjálfum mér. Það er nefnilega óþolandi ástand fyrir þá listamenn sem eiga að búa við þessi lög til frambúðar að nokkur vafi ríki um hvað þau þýða og „málsaðilar“ í hvert sinn séu að semja um eitt eða annað. Að baki niðurstöðu einsog þeirri að taka niður verkið Fallegasta bók í heimi geta nefnilega búið ótal ástæður sem hafa ekkert með réttlæti að gera – enda hefur það sýnt sig að stjórn Nýló, sem fjarlægði verkið, gerði það ekki vegna þess að þeim þætti það endilega sanngjarnt heldur vegna þess að þeim var hótað með lögfræðingum (þótt þau hafi raunar brotnað hressilega saman einsog góðum kommúnistum sæmir og tekið viljug undir með viðlaginu um eigin sök). Fólk sem er ekki vant að díla við lögfræðinga sýpur hveljur þegar þeim berast stórkarlalegar hótanir. Og svo lúffar það. En það þýðir ekki að það sé endilega réttlátt að lúffa, að málið eigi ekki einmitt heima fyrir dómstólum.
Þetta snýst líka um þetta: Þegar búið er að staðfesta þessa túlkun sæmdarréttarins er hægt að berjast gegn henni. Á meðan þetta mál er á gráu svæði – á meðan sumir fá að rímixa án leyfis óáreittir en þetta kostar aðra tjáningarfrelsið – er hægt að hafa þetta hipsumhaps, hingað og þangað, og láta það snúast um hentisemi annars vegar og valdsmun hins vegar. Og það er óþolandi starfsumhverfi fyrir þá listamenn sem vinna með verk annarra, einsog til dæmis mig. Það er óþolandi starfsumhverfi fyrir mig.
(Og miklu, miklu, miklu, miklu fleiri).
X
Alvarlegustu afleiðingarnar af þessari beitingu höfundaréttar eru samt ekki endilega þær að ágætis verk skuli hverfa inn í geymslu fyrir vikið (þótt það sé með sönnu leiðinlegt), heldur hitt: þau verk sem aldrei verða gerð eða aldrei verða sýnd, af ótta við ímyndað eða raunverulegt lögfræðingastóð sem bíður þess eins að senda fólki reikninga upp á hundruð þúsunda, gott ef ekki milljónir að ónefndri skömminni (og er hún ekki verst, skömmin?). Alvarlegustu afleiðingarnar felast meðal annars í samfélagi sem byggir á eilífu hispri og hiki – þar sem allar hugmyndir koðna niður í andvarpi hins óttaslegna: „En má þetta? Þarf ekki leyfi? En ef ég verð kærður?“
Og það er ekki bara ömurleg tilhugsun, heldur felur hún í sér fræið að dauðri menningu.
