Mig langar að kynna ykkur fyrir manni sem kallar sig Perus Jussa. Perus Jussi er frambjóðandi fyrir rasistaflokkinn Perussuomalaiset í heimabæ mínum, Oulu í Finnlandi. Flokkur þessi er á íslensku jafnan kallaður „Hinir sönnu Finnar“ eða „Alvöru-Finnar“ og einsog áður hefur komið fram er þetta söfnuður illvígra fábjána sem höfðar til lægstu hvata mannsins – og hafa með slíkum neðanbeltistrixum náð að safna hátt í 20 prósentum í skoðanakönnunum. Eftir 11 daga eru kosningar og þá kemur í ljós hvernig fer.
Perus Jussi – „Sanni Jussi“ – heitir fullu nafni Jussi Pellikka og er sjálfstætt starfandi fjármálaráðgjafi. Væri ég ekki réttindalaus útlendingur gæti ég kosið Perus Jussa. Ég væri í öllu falli í einhverjum skilningi líkamlega fær um það. Þetta er stöndugur karl, stórkarlalegur alvöru karl, sannkarlaður karlakarl sem talar enga tæpitungu og er ekki með neitt kjaftæði. Hann veit hvað er að og það er aðallega útlendingar.
Líkt og sjá má af stórfenglegri ljósmyndinni sem fylgir þessum pistli er Perus Jussi afskaplega táknglaður maður. Í boðungnum gengur hann með barmmerki þar sem standa í kross finnski fáninn og sá ísraelski. Til þess að undirstrika síðan að hann er enginn Gyðingur (því hvernig gæti sannur Finni nokkurn tíma verið Gyðingur?) skreytir hann sig líka með Jesús-fiskinum við hvert tækifæri sem gefst.
En það sem blasir við manni fyrst er kannski öxin – sem er ekki bara tákn um karlmennsku, raunverulegan verkalýðsanda, heldur líka um óttaleysi frammi fyrir niðurskurði og erfiðum ákvörðunum: Perus Jussi mun höggva á hnúta þegar þess gerist þörf. Þá er öxin að sjálfsögðu tákn fyrir finnska atvinnuvegi – trjárækt og skógarhögg hafa löngum verið meðal mikilvægustu starfsgreina í Finnlandi. Stígvélin þjóna svipuðum tilgangi – Perus Jussi veður óhræddur áfram á góðum gúmmístígvélum, en samtímis kalla þau fram hugrenningartengsl við helsta stórfyrirtæki landsins: Nokia – sem eitt sinn voru bara finnsk smábæjarstígvél, en hafa síðan lagt gervalla tækniveröldina að stígvéluðum fótum sér. Öxin og stígvélin eru raunverulegt eðli hins sanna Jussa, og gægjast út um einkennisbúning stjórnmálamannsins, fráhneppt, ódýr og illa sniðin jakkafötin sem Jussi neyðist til að klæðast ofan í viðstöðulausa elítufyrirlitninguna, en honum er frámunað að bera eðlilega.
Að því er fram kemur á heimasíðu Perus Jussa þykir honum ekkert mikilvægara (í þessari röð) en „konan, börnin, trúin, heiðarleikinn, smælingjahjálpin, ættjarðarástin, líkamsræktin og að passa upp á að Finnland verði áfram finnskt“. „Ég hef alltaf hugsað einsog sannur Finni – Finni sem setur fólk í forgang“, segir Jussi. En á blogginu hans má auk þess sjá að honum er afar umhugað um að vernda Finna fyrir aröbum og hefur miklar áhyggjur af nýlegum róstum í arabaheiminum; sem munu að sögn valda ægilegum fólksflótta og stjórnlausu arabaflóði til Finnlands sem ekkert mun fá stöðvað nema ríkisstjórn undir forystu Hinna Sönnu Finna (nema hvað!). Perus Jussi fullyrðir að slakari innflytjendalöggjöf muni einungis gagnast (í þessari röð) „hryðjuverkamönnum, melludólgum, vændiskonum, eiturlyfjasölum, sprúttsölum, demantaþjófum, gullþjófum, bátaþjófum, bílaþjófum, vasaþjófum og ógnandi betlurum, svo fáir einir séu nefndir“. Ef maður kærir sig um að fletta upp á gamla blogginu hans, er síðan hægt að lesa alls kyns talnafræðilega speki um 11. september sem fæðingardag Krists og vers í Kóraninum og Guð veit ekki einu sinni hvað – en þar fer töluvert meira fyrir trúarofsanum í Perus Jussa.
Undir þeim lið opinberu heimasíðunnar sem merktur er „trúmál“ segist Perus Jussi vera frelsaður og vísar í þrjár ritningagreinar (með versnúmerum, ekki texta) og lætur það duga um andann en snýr sér svo strax að efninu: líkamsrækt og íshokkí. Það er einsog hann geri sér grein fyrir því hversu fráhrindandi það væri ef hann héldi áfram í andanum, og tæki að útlista númerólógískum samsæriskenningum um Araba, nasista og Stalín á framboðsvænni vettvangi.
Ritningagreinarnar sem Perus Jussi vitnar í eru eftirfarandi:
Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. (Jóhannes 3;16)
Drottinn sagði við Abram: „Far þú burt úr landi þínu og frá ættfólki þínu og úr húsi föður þíns, til landsins, sem ég mun vísa þér á. Ég mun gjöra þig að mikilli þjóð og blessa þig og gjöra nafn þitt mikið, og blessun skalt þú vera.“ (Fyrsta Mósebók, 12; 1-3)
Takið yður konur og getið sonu og dætur, og takið sonum yðar konur og giftið dætur yðar, til þess að þær megi fæða sonu og dætur og yður fjölgi þar, en fækki ekki. Látið yður umhugað um heill borgarinnar, sem ég herleiddi yður til, og biðjið til Drottins fyrir henni, því að heill hennar er heill sjálfra yðar. (Jeremía, 29; 6-7)
Sú fyrsta er auðvitað heldur beisikk – gamall nýjatestamentisslagari, útjaskaður og kannski frekar auðtúlkanlegur: Jussi vill ekki brenna í helvíti. Seinni tvær eru hins vegar strax áhugaverðari – enda varpa þær ekki bara ljósi á trúarhugmyndir Perus Jussa, heldur líka þjóðernishugmyndir hans. Perus Jussi kallar sig “kristinn Hebrea“ en leggur augljóslega samtímis alla áherslu á að hann sé „sannur Finni“ – svo þjóðarstoltið í þessum tveimur tilvitnunum hlýtur að skoðast í senn sem hebreskt og finnskt. Þetta blandast svo evrópska popúlismanum í hugmyndinni um hreina, sterka menningu og þjóð sem er óspillt af utanaðkomandi öflum; þar sem þjóðinni á að fjölga en ekki fækka, þar sem framtíð þjóðarinnar nær brennipunkti í karlmanninum sem sæðir konur sínar og getur þeim börn. Helsta ógnin við þetta vald er svo, einsog öllum ætti að vera orðið ljóst, útlendingurinn – og þá sérílagi útlendi villutrúarmaðurinn – sem kemur og ætlar að fylla landið með sínu sæði og sinni barnafjöld.
(Raunar má líka „misskilja“ miðju tilvitnunina fyrir Perus Jussa og segja sem svo, að þar sé mælt fyrir frjálsu flæði fólks – en ég er ekki viss um að Perus Jussi tæki því sérlega vel (sjá meðal annars fyrri ummæli um melludólga og hryðjuverkamenn)).
Sem betur fer eru ekki allir stjórnmálamenn hér í nágrenninu einsog Perus Jussi. Sumir þeir eru hreinlega bara mjög viðkunnanlegir, jafnvel viðkunnanlegri en maður á að venjast. En líkt og gefur að skilja, er manni eiginlega hætt að standa á sama um þetta fólk. Þetta er svo fullkomlega geðsjúkt.
