Maður skrifar það sem maður hugsar. Hugsa ég. Að minnsta kosti sumt af því sem maður hugsar (það er óþarfi að skrifa það allt). Er hægt að skrifa eitthvað sem maður hefur ekki hugsað? Og hugsar maður eitthvað sem ekki er hægt að skrifa? Að hversu miklu leyti markast hugsun okkar af þeim orðum sem við eigum til að lýsa henni?
Gefum okkur að til sé fjall sem enginn getur nefnt. Það heitir ekkert, hefur aldrei heitið neitt og allar tilraunir til þess að gefa því nafn hafa mistekist. Gefum okkur að við hliðina á fjallinu sé annað fjall sem sama gildir um. Gefum okkur að öll fjöll séu þess eðlis að heiti einfaldlega festist ekki við þau. Við bendum og segjum Ernir og Kubbi – eða bara fjall – en þeir sem heyra orð okkar og sjá bendandi fingurinn fara aldrei að leita að fjöllum. Þeir leita að arnapari eða LEGO kubbum.
Hvernig skiljum við eitt fjall frá öðru?
Við segjum: Nei, ég meina þarna ...
Eigum við orð fyrir fjall? Hvað ef við eigum ekki orð fyrir fjall. Gefum okkur.
Ég meina þarna þetta háa. Þú veist. Sem er einsog risastórt hús en samt ekki hús. Sem er einsog önnur pláneta, nema fast við jörðina. Þetta þarna. Sérðu það ekki.
Við náum í blað og penna og teiknum fjallið. Þetta, segjum við. Svona. Sérðu ekki? Skilurðu ekki neitt?
En það reynist ekkert gagnlegra að benda á teiknað fjallið á blaðinu en alvöru fjallið handan við pollinn. Við getum ekki bent á það sem við eigum ekkert heiti yfir. Getum ekki afmarkað fjallið frá jörðinni sem það stendur upp af eða himninum sem það heldur uppi. Getum ekki skilið fjallið frá hvilftinni, gilinu, hjallanum, mölinni – vitum ekki hvar einu lýkur og annað hefst nema við eigum nafn. Eigum girðingu utan um hugtak.
Bókmenntir hefjast þar sem orðunum lýkur, einmitt á þeim stað þar sem fjöllin eru ekki lengur fjöll og þar sem holtin heita ekki neitt. Þar sem viðtekin sannindi reynast gljúp kviksyndi, réttlætið er ranglæti og ranglætið réttlæti og allt byggt á sama misskilningnum.
Þar sem tungumálið vegur salt við hugsunina og annað er ekki til án hins. Ekki beinlínis. Ekki einsog við þekkjum það. Kannski er hægt að benda á fjallið, kannski er hægt að klífa það og koma við það – þykja vænt um það – án þess að vita hvað það heitir eða eiga um það nafn. Kannski er hægt að elska fjall án þess að hafa heyrt á ástina minnst. Og kannski ekki. En hvað sem því líður – hver sem sannleikurinn er, hver sem við erum sem smíðum sannleikann í eigin mynd – byrjum við undantekningalaust alltaf á að hafa á því orð. Byrjum á að ræskja okkur og segja eitthvað upphátt. Og sá fyrsti til að svara er alltaf fjallið, alltaf endurómurinn af okkur sjálfum að heilsa, kynna sig. Segja til nafns. Bergmál: ég elska fjall.
Eiríkur Örn Norðdahl
Nýjasta bók höfundar, Illska, er væntanleg frá Máli og menningu.
