Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Staðir · Íslenska

Enginn er eyland

Enginn er eyland
Mynd: Áslaug Jónsdóttir

I

Ísland er eyja. Stærstur hluti eyjunnar er gróðurlaus auðn – hún er óbyggileg nema rétt við hafið. Og já einmitt, hafið. Á Íslandi kastar fólk sér til sunds í hafið, líkt og annars staðar á Norðurlöndunum, en á Íslandi gerir fólk það í klúbbum sem hafa á sér ofurhugablæ. Sá sem kastar sér í hafið er hetja á sama hátt og sá sem kastar sér út úr flugvél. Það þekkja líka ábyggilega flestir einhvern sem fór til sjós og kom aldrei aftur.

Eyja. Auðn. Óbyggilega miðja og byggð við strandlengju sem hafið ógnar öðru megin og fjallið hinumegin. Snjóflóð og aurskriður. Auðvitað eru aðstæður ólíkar eftir landshlutum og legu bæja en það er í einhverjum skilningi svona sem við sjáum okkur. Uppá náð og miskunn náttúruaflanna komin. Það eru bókmenntirnar og kvikmyndirnar sem sýna þennan veruleika sem höfða sterkast til Íslendinga – og sterkast til þeirra útlendinga sem hafa áhuga á Íslandi.

II

Ég sagði alltaf einu sinni að ég væri ekki Íslendingur, ég væri Ísfirðingur. En svo tók ég eftir því einn daginn að eina fólkið sem kunni öll örnefnin í firðinum mínum, allt fólkið sem vissi hverjir voru skyldir hverjum og hvernig, allt fólkið sem var meðvitað um fortíð bæjarins og fjarðarins, var utanbæjarmenn. Ég sem var fæddur þarna og uppalinn – þekking mín á bænum var annars eðlis.

Ég gleymi því aldrei þegar ég var rétt skriðinn yfir tvítugt og gekk upp aðalgötuna á Ísafirði – bærinn telur um 3 þúsund íbúa – og sá bíl nálgast í gegnum snjókófið. Ég las bílnúmerið löngu áður en ég sá inn um framrúðuna. Ég þekkti þetta bílnúmer. Ég vissi hvaða bíll þetta var og hver var inni í honum. En ég var ekki einu sinni málkunnugur viðkomandi. Ég vissi ekki hvað hann hét. Ég þekkti bara bílnúmerið hans.

Og þá vissi ég að það væri kominn tími til að fara út í heim og sjá eitthvað annað. Læra ný bílnúmer, þramma í gegnum nýja hríðarbyli.

III

Það hver maður er skýrist af því hvaðan er horft á mann. Norðmenn hafa sínar hugmyndir um Ísland og Kúbanir sínar. Norður-Norðmenn hafa sínar hugmyndir um Ísland og suður-Norðmenn hafa sínar hugmyndir um Ísland. Ísland er ekki sama landið fyrir Íslendingi og Færeyingi, ekki sama landið fyrir Reykvíkingi eða Akureyringi. Og allt er þetta samt sama landið og allar hugmyndir um það gjaldgengar, allar hugmyndir um það hluti af sannleikanum, þótt þær rekist á, þótt þær séu mótsagnakenndar.

IV

Þessi orð eru skrifuð á Þorláksmessu, 23. desember. Þennan dag borða margir Íslendingar bragðsterkan fiskrétt sem kallast kæst skata. Heilu bæirnir lykta einsog ammoníak 23. desember. Í dag takast Íslendingar á á Facebook og rífast um hvort að skata sé góður og merkur herramannsmatur sem alltof sjaldan sést á borðum eða hvort þetta sé tóm þjóðremba og stælar, að vera að troða í sig ónýtum mat einsog það sé eitthvað sælkerafæði og borga fyrir það pening í ofanálag.

Ég borðaði aldrei jafn hressilega af skötunni og þegar ég var barn. Þá át ég einfaldlega þangað til að allt var búið. Þegar ég varð unglingur og fór að átta mig á því að eðlilegast var að fólki – og þá sérstaklega börnum og unglingum – þætti kæst skata vond og vildu heldur fá pizzu, þá hætti ég að borða skötu. Ég man ekki betur en mér hafi beinlínis farið að þykja hún vond. Ég kannast ekki við að þetta hafi verið óheiðarleg afstaða eða lygi – nema að svo miklu leyti sem það var sjálfslygi.

Ég var orðinn fullorðinn þegar ég byrjaði aftur. Nú sit ég í Svíþjóð á Þorláksmessu og fæ enga skötu og er hundfúll með það hlutskipti.

V

Ég held að Ísland sé eitt af fáum löndum í heiminum þar sem það er í alvöru raunhæft að maður geti ávarpað alla þjóðina í einu. Að maður stigi upp á stól, segi hug sinn og nógu margir heyri mál manns til þess að allir innan mengisins hafi að minnsta kosti af því einhvern pata. Það er kannski ekki sama hvað maður segir – það verður að vera grípandi og það verður að segjast skýrt og greinilega, því auðvitað er hver rödd bara ein af þrjú hundruð þúsund (og Íslendingar eru sígjammandi hver upp í annan). Orðin þurfa að vera fleyg. En það sama gildir í raun hvar sem nokkur orðaskipti eiga sér stað. Stundum heyri ég ekki það sem er sagt við mig yfir morgunverðarborðið og stundum hlustar enginn á það sem ég hef að segja. Sá sem hefur einu sinni náð í gegn á hins vegar greiðan aðgang að því að ná aftur í gegn. Orð hans verða fréttir, fluttar í ótal miðlum. X finnst A um Z. Og Z mótmælir hástöfum. Stundum verða orðin ekki einu sinni fréttir. Stundum smitast þau bara á milli á félagsmiðlunum – nærri því níu af hverjum tíu Íslendingum eru á Facebook. Þau verða tíðindi, einsog þau sem ferðalangar sögðu þegar þeir komu á bæi hér áður fyrr – hluti af sameiginlegri þekkingu lítillar þjóðar, hvernig grasið sprettur, hvernig viðrar og hver sé að stinga á sig úr opinberum sjóðum eða svíkja maka sinn í tryggðum, hver sé rotta og hver sé hetja. Að vera Íslendingur er að heyra til allra hinna.

VI

Þá er spurt stórt. Hvort er maður:

1) Sá sem maður heldur að maður sé?

2) Sá sem aðrir halda að maður sé?

3) Sá sem maður ímyndar sér að aðrir haldi að maður sé?

4) Sá sem aðrir telja að maður ímyndi sér að maður haldi að maður sé?

5) Sá sem maður grunar að aðrir telji að maður ímyndi sér að maður haldi að maður sé?

6 - ad infitum) Og svo framvegis.

VII

Til þess að segja eftirfarandi þurfum við að gefa okkur ýmislegt. Hér hefur ekkert verið sannað með óyggjandi hætti og allt byggir á tilfinningu.

Íslendingar halda að þeir séu þjóð skapandi hipstera sem skari fram úr í tónlist, hönnun, handbolta og bókmenntum (allan fyrsta áratug þessarar aldar voru viðskipti með í þessari upptalningu en þau hafa verið fjarlægð og við látum bara einsog útrásin hafi aldrei skeð). Þeir halda að þeir séu menningarþjóð sem þrátt fyrir smæð sína sé að mestu sambærileg við aðrar evrópuþjóðir – og svíður jafnvel smáþjóðasamanburður. Ísland ber sig kannski ekki saman við Þýskaland – en alls ekki Svartfjallaland (sem þó er fjölmennara) og alls ekkert minna en Danmörk. Við eigum nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum og fleiri en einn sigurvegara í bæði Heimsins sterkasta manni og Ungfrú heimi. Við urðum heimsmeistarar í brids árið 1991!

Skandínavar sjá Ísland sem eyju sem er ekki nógu framandi til þess að maður tími að greiða flugfargjaldið, en samt alveg dálítið spennandi, kannski fyrst og fremst vegna þess að þangað fara svo fáir þrátt fyrir nálægðina. Þeir færu ábyggilega flestir frekar til Reykjavíkur en ... til dæmis Luleå. Ef það væri ekki svona dýrt. Því hvar annars staðar getur maður hitt raunverulegan Íslending af holdi og blóði? Hvar annars staðar getur maður heyrt íslensku – sem er víst næstum alveg einsog fornnorræna (það er ekki satt)?

Íslendingar í sínískari kantinum ímynda sér að útlendingum finnist þeir vera krúttlegir kjánar sem trúi á álfa, búi til tónlist með skeiðum, tali alltaf einsog einfeldningar – að þeir séu saklaus náttúrubörn án hlutdeildar í samtímanum. Þannig fólk er með stanslausan aulahroll, og lái þeim hver sem að vill.

VIII

Stundum fær maður á tilfinninguna að svona um það bil þriðja hver frétt sem flutt er í íslenskum fjölmiðlum fjalli um hvað sé sagt um Ísland í útlenskum fjölmiðlum. Hversu margir mættu á tónleika með Björk í New York, hversu góða dóma nýjasta skáldsaga einhvers hafi fengið í Dagens Nyheter, hvað einhverjum útlendingi hafi þótt um Geysi, hvort að Hollendingar séu búin að fyrirgefa okkur fyrir Icesave hneykslið (eða Finnar fyrir að kaupa Sampo!), hvað það komi margir erlendir blaðamenn á einhverja tónlistarhátíð vestur í rassgati. Það getur verið gott og gagnlegt að velta því fyrir sér hvernig maður komi öðrum fyrir sjónir en það er á sama tíma mikilvægt að átta sig á því að maður hefur tilhneigingu til þess að verða sá sem maður heldur að aðrir haldi að maður sé. Sá sem heldur að aðrir telji sig óheiðarlegan, til dæmis, hefur minni hvata til þess að breyta heiðarlega en sá sem hefur mannorði að glata. Og sá sem heldur að aðrir telji sig vera hipp og sérvitran (einsog margir Íslendingar af yngri kynslóðinni gera) hefur tilhneigingu til þess að gangast upp í hlutverkinu svo heimurinn verði ekki fyrir vonbrigðum. Á sama hátt hefur eldri kynslóðin tilhneigingu til þess að ýkja þekkingu sína á Halldóri Laxness og Íslendingasögum. Annars gætu útlendingar haldið að þar færu bara einhverjir Danir. Og hver vill vera Dani?

        Það sem ég vildi sagt hafa: Spurðu ekki hvað sé sagt um þig nema þú sért tilbúinn til þess að verða það sem þú heyrir.

IX

Fyrir fáeinum vikum horfði ég á fjöllin umleikis Ísafjörð með þriggja ára syni mínum. Benti honum á þau og sagði hvað þau hétu. Af einhverjum orsökum er mér miklu meira í mun að hann kunni þetta heldur en ég. Sem rithöfundur á ég í frekar flóknu ástar- og haturssambandi við tungumálið – en ég get ekki ímyndað mér að sonur minn læri það ekki. Að við ræðumst við á öðru máli. Þegar við bjuggum í Finnlandi talaði hann mest sænsku og finnsku og það lá við að ég gréti mig í svefn yfir því.

        Áður en hann fæddist þá dreymdi mig að hann talaði bara finnsku en skildi íslensku. En í draumnum skildi hann ekki að þetta voru tvö ólík tungumál. Ég hristi hann og sagði honum að pabbi vissi ekki hvað hann væri að segja, pabbi talaði ekki finnsku. Og hann svaraði mér á finnsku, skildi ekki hvers vegna ég skildi ekki, fyrst hann skildi mig.

Ég veit ekki hvers lenskur sonur minn er. Mamma hans er af finnskum ættum en fædd og alin upp í Svíþjóð. Pabbi hans er að hluta ættaður frá Þýskalandi og annars frá Ísafirði. En að vera frá Ísafirði er ekki þjóðerni. Í dag talar sonur minn bæði íslensku og sænsku eins reiprennandi og nokkuð þriggja ára barn og ég er smám saman að kenna honum hvað fjöllin heita.

Það slær mig að ég hef aldrei reynt að kenna honum hvað göturnar heita. Samt eiga þær ábyggilega eftir að eiga miklu meiri hlutdeild í lífi hans en fjöll.

X

Sjálfsmynd þjóðar er spurning um perspektíf, útgangspunkt. Hún er aldrei sönn en aldrei beinlínis login heldur. Líkt og alþjóðafræðingurinn Benedict Anderson hefur bent á er þjóðernið ímyndun miklu frekar en lygi, þjóðernið er sköpunarverk einsog skáldsaga og lýtur ekki lögmálum um satt og logið. Við búum það til, en það þýðir ekki að það sé ekki þarna. Það sama gildir um sjálfsmyndina – allar sjálfsmyndir, okkar eigin meðtaldar. Við sköpum okkur sjálf, hægt og bítandi, og verðum fyrir bæði innblástri og þrýstingi um að verkið verði á vissan hátt. Við erum ekki jafn sjálfstæð um tilvist okkar og við höldum, ekki jafn sjálfstæð og við reynum að vera. Við tengjumst öll flóknum böndum og vitundir okkar mynda hugmyndir okkar um samfélagið – öll saman. Ekkert okkar er eyja, ekki einu sinni Ísland.

← Allt safniðIllska: Augu sjáandans →