Það gefa ekki allir Íslendingar út ljóðabók um ævina og þótt margir eigi kannski handrit í skúffunni hefur maður það á tilfinningunni að slíkum handritum fækki hratt – eins ómælanleg og slík þróun nú er – og að draumurinn um að verða stórkostlegt ljóðskáld, málsvari sinnar þjóðar, síns tungumáls, síns sannleika, hafi vikið fyrir einhverju jafnvel enn óáþreifanlegra – einsog að verða áhrifavaldur eða sjónvarpskokkur.
Hins vegar verður því ekki neitað að útgefnum handritum – prentuðum ljóðabókum –hefur fjölgað2 úr um 40 á ári frá 2010-2018 í rúmlega 50 á árunum 2019-2025. En þá er líka ágætt að halda því til haga að á sama tíma hefur upplag ljóðabóka skroppið saman auk þess sem gagnrýni hefur nánast gufað upp, a.m.k. í hinu opinbera rými, s.s. dagblöðum og útvarpi.
Á þessum 15 árum hafa ljóðabækur kvenna líka farið úr því að vera um þriðjungur útgefinna ljóðabóka yfir í að vera um helmingur og hlutfall þeirra í tilnefningum og verðlaunum farið úr 40% í 75%.3 Stærsta breytingin sem orðið hefur á íslenskri ljóðlist síðustu árin er hins vegar óneitanlega tilkoma höfunda með erlendan bakgrunn.
YFIR HAFIÐ OG HEIM
Innflytjendum á Íslandi hefur fjölgað hratt á síðustu áratugum og innflytjendabókmennta verið vænst lengi.4 Ég held að flestir hafi hins vegar reiknað með því að það yrði „önnur kynslóð“ sem myndi fyrst setja mark sitt á íslenskar bókmenntir – fólk sem væri alið upp með íslensku sem fyrsta eða annað mál – og að þeirra myndi fyrst sjá stað í frásagnarbókmenntum. Frumkvöðlarnir reyndust, þegar á hólminn var komið, fólk sem lærði málið á fullorðinsaldri og hóf að yrkja á íslensku.5
Fyrsta heila ljóðabókin frumort á íslensku eftir höfund sem lærði málið á fullorðinsaldri er líklega Fimmta árstíðin (Nykur, 2007) eftir eftir japanska prestinn Toshiki Toma.6 Þremur árum síðar birtist svo Sjóarinn með morgunhestana undir kjólnum sínum (stella, 2010), gefin út af óþekktu forlagi og óþekktum höfundi, Elías Knörr. Í litla skáldasamfélaginu okkar voru strax uppi alls konar getgátur um það hver þessi höfundur væri, þar til að úr skugganum steig ungur Galisíumaður – sem hafði þegar gefið út á sínu móðurmáli undir nafninu Elias Portela, auk þess að þýða bækur úr íslensku. Síðan þá hefur Elías gefið tvær ljóðabækur til viðbótar. Ljóð Elíasar – sem lýsir sér sjálfur sem „póst-íslensku gjörningaskáldi og litskrúðugu frumdýri, fánabera ginnungastefnunnar“ og verðlaunahöfundi „sem býr undir rúminu þínu“ – eru af framúrstefnutagi, þrungin usla og fegurð, mýkt og hörku, og takast meðal annars á við kyngervi og sjálfsmynd á nýrri öld.
Næstur fram á þennan ritvöll var finninn Tapio Koivukari, sem var þegar þekktur á Íslandi fyrir skáldsögur sínar skrifaðar á finnsku og þýddar. Innfirðir (Sæmundur, 2020) er hins vegar ort á íslensku. Tapio bjó á Íslandi um árabil, á níunda og tíunda áratugnum, fyrst sem farandverkamaður og síðar sem kennari, og bókin er mest ort um þá reynslu.
Það er erfitt að sleppa ljóða- og prósabókinni Ísland pólerað (JPV, 2022) eftir hina pólsku Ewu Marcinek, því þótt hún sé ekki ort á íslensku heldur þýdd (úr ensku, af Helgu Soffíu Einarsdóttur) þá er hún frumútgefin á íslensku og mikilvægt innlegg í þær bókmenntir sem hafa tekið sviðið á síðustu árum. Ísland pólerað er ljóðsaga þar sem skiptast á ljóð og prósar; hún segir sögu ljóðmælanda sem flýr til Íslands eftir að hafa verið nauðgað í Póllandi – hverfur inn í nafnlausan massa pólskra innflytjenda, með allan sinn sársauka, inn í nýja árekstra við nýtt fólk og nýtt samfélag:
Kona.
Íslenska „kona“ er að „deyja“ á pólsku.
Kobieta kona.
Kona er að deyja.
Kona kona.
Kobieta er að deyja.
Kona kona.
Kona er að deyja.
Pólsk kona kobieta
er að deyja á Íslandi kona
eða eitthvað er
að deyja innra með henni.
(úr Ísland Pólerað eftir Ewu Marcinek, þýð: Helga Soffía Einarsdóttir).
Árið 2021 brustu svo ákveðnar flóðgáttir með útgáfu safnritsins Pólifónía af erlendum uppruna (ritstj. Natasha Stolyarova) þar sem mættu til leiks fimmtán ljóðskáld af ólíkum þjóðernum sem ýmist ortu á íslensku eða á sínu máli á Íslandi. Safnið hlaut talsverða athygli og umræðu og tveimur árum seinna kom svo ritgerðasafnið Skáldreki (ritstj. Natasha Stolyarova og Ewa Marcinek) þar sem þessi skáld og önnur sögðu af reynslu sinni af ritstörfum á Íslandi, sem vakti ekki minni athygli. Báðar bækurnar voru gefnar út af Unu útgáfuhúsi.
Sá þessara höfunda sem hefur mátt fagna mestri velgengni á bókmenntasviðinu er áðurnefnd Natasha Stolyarova, sem gefið hefur út tvær ljóðabækur, Máltaka á stríðstímum (Una útgáfuhús, 2022) og Mara kemur í heimsókn (Benedikt, 2025) undir nafninu Natasha S. Fyrir þá fyrrnefndu hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og var tilnefnd til Maístjörnunnar en sú seinni var valin ljóðabók ársins af Morgunblaðinu. Í þessum ljóðum, sem eru hálfgerð bréfaskrif til og frá Rússlandi, birtist lesendum bergmálið af stríðinu í Úkraínu, stemningin í Moskvu og Reykjavík, og allir þeir hnútar og sár sem því fylgja.
ég slekk á sjónvarpinu
banna foreldrum mínum
að horfa á fréttir
fyrst mótmæla þau
en ég stend föst á mínu
er mætt heim til þeirra
og innleiði mínar eigin reglur
hendi öllu með mynd af forsetanum
hann er hátt skrifaður á þessu heimili
mamma mín bjargar bolla
felur í djúpum skáp
við rífumst
(úr „Allt fyrir ástina“ í Mara kemur í heimsókn)
Það er erfitt að ætla að geta allra í þessum fagra hópi enda er hann fjarska stór og fjölbreyttur. Sum þeirra skrifa íslensku einsog Nabokov eða Conrad skrifa ensku, af meiri íþrótt en nokkur sem á málið að móðurmáli, kjamsa á orðunum og lita óhrædd út fyrir rammann. Jakub Stachowiak dró í þremur bókum fram hið undurfurðulega í íslenskunni, líkt og Helen Cova sem speglaði Venezúela og Ísland, um leið og hún berskjaldaði í senn sjálfa sig, tungumálið og stöðu innflytjandans í bókinni Ljóð fyrir klofið hjarta (Karíba útgáfa, 2023) með því að birta hlið við hlið annars vegar handrituð frumrit af ljóðum á blöndu af grófri íslensku og spænsku, og hins vegar ritstýrðar útgáfur sömu texta á sparifataíslensku; á meðan Maó Alheimsdóttir endurskapaði „ættjarðarljóðið“ með kraftmiklum og safaríkum ljóðum í bókinni Hvalbak (Mál og menning, 2025), Og svo mætti lengi telja.
þú verpir orðum í mig
ég verpi orðum í þig
einsog eggjum
enginn gætir merkingar þeirra
nema rjúpur og gæsir
(úr bókinni Hvalbak eftir Maó Alheimsdóttur)
samkynsorð innilokuð í ekkitilskúrum
samkomusetningar frosnar
á vörum jafnt manna sem drauga
aðeins fortíðarsaumuð nútíð er til
til í að langdorma og endurvakna
í blómilmandi draumum vorkominna býflugna
(úr „Og aftur ríkir grafarþögn“ eftir Jakub Stachowiak úr Næturborgir)
HEILDRÆN NÁLGUN
Hin listræna „krafa“ er núorðið sú að bókin sé hugsuð frá byrjun til enda, að í henni sé þróun frá fyrsta ljóði til hins síðasta – og konseptið, frá kápu til leturgerðar og uppsetningar, sé listræn ákvörðun skáldsins frekar en eitthvað sem forlagið bara sér um – og þá hefur „ljóðsögum“ líka fjölgað mjög, jafnvel svo að sumar ljóðabækur eru á barmi þess að vera „ljóðrænar“ nóvellur. Textinn er líka heilt yfir einfaldari og skýrari þótt á því séu veigamiklar undantekningar og innihaldið oft einhver útfærsla á sjálfsmynd, uppruna og eðli – og átök við aðra og önnur öfl.
Það er erfitt að rekja uppruna þeirrar tilhneigingar, sem þó er áberandi, að ljóðabækur eigi nú helst að vera eitt „heildstætt verk“ frekar en safn ljóða, ýmist bundin saman af þema eða ekki. En kannski er nærtækast að nefna Kjötbæinn (Mál og menning, 2004) eftir Kristínu Eiríksdóttur, sem hafði gríðarlega mikil áhrif, sem og ljóðabækur Gerðar Kristnýjar, Blóðhófnir (Mál og menning, 2010) og Drápa (Mál og menning, 2014). Kristín er þess utan menntaður myndlistarmaður og hefur bæði gert kápur á bækur sínar og myndlýst þær.
Á sama tíma mætti halda því fram að ákveðinni tegund af þematískum verkum hafi fækkað – verkum einsog Bónusljóðum Andra Snæs (Bónus, 1996), vinsælustu ljóðabókar íslenskra bókmennta, sennilega nokkur sinni; sem er ferðalag í gegnum matvöruverslunina Bónus, með áherslu á hvernig deildaskipting verslunarinnar á sér samsvörun í Guðdómlegum gleðileik Dantes (paradiso, grænmeti; inferno, kjöt; purgatorio, hreinlætisvörur) – bókum sem fjalla um ákveðinn hlutveruleika – eitthvað handfast eða sögulegt – og gera það meðal annars með léttúðugu háði og hugmyndaauðgi og því að stafla upp stökum, tengdum ljóðum, frekar en að „segja sögu“.
Í staðinn höfum við fengið bækur einsog Allt sem rennur eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur (Benedikt, 2022) eða Draugamandarínur (Drápa, 2025) eftir Birgittu Björg Guðmarsdóttur sem innihalda samfellda frásagnarfléttu frá byrjun til enda og fást við eitthvað sem virkar við fyrstu sýn hversdagslegt – Draugamandarínur fjallar „í raun“ bara um að borða mandarínur – en það liggur eitthvað afl að baki (ofbeldishvöt, kynhvöt, ótti, þrá) sem stækkar og stækkar með hverju erindi.
græðgi mömmu hans er bólgin
hún er með vinsælt matarblogg: Bólgin, bjúguð
uppskriftir að sexí biscotti
eðlu fyrir einstæðinga
borgar konu fyrir að skúra og gefa sér brjóst
sýgur hana inn að merg
(úr Allt sem rennur eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur)
Vilji maður greina fagurfræðilegar átakalínur – í landslagi þar sem mjög lítið er um átök, eða fagurfræðilegar yfirlýsingar yfir höfuð – mætti skipta bókum síðustu ára upp í verk sem annars vegar forðast áberandi glímu við tungumálið, bækur einsog plómur (Mál og menning, 2022) eftir Sunnu Dís Másdóttur, Þagnarbindindi (Benedikt, 2020) eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur, sem hlaut Maístjörnuna, eða hina stórgóðu Fyrir vísindin (Benedikt, 2025) eftir Önnu Rós Árnadóttur – bækur sem eru stundum línuskiptar en oft ekki, en þar sem setningarnar eru „prósaískar“ í þeirri merkingu að hlutverk þeirra er ekki síst að „flytja skilaboð“ og þar með að vera skýrar – vs. bækur einsog áðurnefndar Draugamandarínur, Hvalbak og Eilífðarnón, en líka Næturborgir (Sæmundur, 2021) eftir Jakub Stachowiak eða Hún sem stráir augum eftir Björk Þorgrímsdóttur (Mál og menning, 2021) þar sem list tungumálsins er sjálf í forgrunni, það leysist jafnvel upp.
(í myrkrinu)
(auga) (augað spyr)
(viltu meira?)
ljóskastarinn færist til
þú finnur hita
blómstra á húðinni
infraljós vermir
rúskinnið, þú stingur
nögl (tönn) á kaf og reynir
þitt allra besta en allt
kemur fyrir ekki, hýðið
er hart, ávöxturinn
rennur þér úr greipum
(hungur) (breytir hnefa í lófa)
(hungur) (breytir lófa í hnefa)
(úr Draugamandarínur eftir Birgittu Björg Guðmarsdóttur)
Ein áhrifamesta ljóðabók síðari ára er síðan Menn sem elska menn (Mál og menning, 2021) eftir Hauk Ingvarsson – sem fjallar um kærleika manna á millum á mörkum gagnkynhneigðar, samkynhneigðar, narsissisma og einhvers „platónskara“, um karlmennsku í bæði persónulegu og sögulegu ljósi og brúar eitthvað mjög mikilvægt og fallegt í tilfinningalífi (karla) samtímans.
og var þá ekki betra
að kveðja
í leiftri
skilja við
þunga kroppsins
svífa burt í andanum
fljúga til stjarnanna
með þínum vini
ég spyr
og ég skrifa
þér
iðjusamur við pennann
eins og aðrir menn
sem elska
menn
nærast á annarra blóði
UGGUR YFIR STÖÐU LJÓÐSINS
Þegar einhver veltir upp „stöðu ljóðsins“ á Íslandi er hefð fyrir því að tagga framúrstefnuljóðskáldið Jón Örn Loðmfjörð – sem lagði lengi í vana sinn að spyrja fólk út um allt internet hvort það væri „uggandi yfir stöðu ljóðsins“ – og að Jón svari einhverju sæmilega kryptísku.
Þetta er kannski lýsandi fyrir stöðu ljóðsins, sem hefur minna með mælanlega hluti einsog sölutölur að gera en stemningu – og sú stemning getur verið í kringum sterka persónuleika, tilteknar útgáfur, kollektíf, lestrarseríur, safnrit, performansa, gallerí, verðlaun, tímarit, vefrit og svo framvegis og hún er oft mjög huglæg, jafnvel kryptísk.
Síðustu árin hafa sprottið upp ótal nýir vettvangar – fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu – þar sem ljóðið hefur hreiðrað um sig. Þar má nefna Pølse og Poesi í Norræna húsinu, Ljóð og vinir og RVK Poetics í Mengi. Auk þess mætti nefna ljóðakollektíf einsog Múkk og Svikaskáld. Þá eru hópar í kringum ólíka árganga í ritlistarnámi Háskóla Íslands áberandi – standa oft að uppákomum og gefa venjulega út eina bók í tengslum við áfangann Á þrykk. Á landsbyggðinni mætti þó nefna bókaútgáfuna Skriðu á Patreksfirði, sem gefur út bæði þýdd ljóð og innlend auk þess að standa fyrir viðburðum, Bókmenntahátíð Flateyrar þar sem ljóðum hefur verið gert hátt undir höfði og Pastel Ritröð á Akureyri.
Á árunum 2002-2010 gat ný ljóðabók eftir til þess að gera óþekkt skáld vænst þess að fá á bilinu þrjár til tíu umfjallanir um bækur sínar, allt frá misstuttum umsögnum í dagblöðum yfir í lengri og ítarlegri dóma í tímaritum eða á vefsíðum einsog Kistan.is. Í dag má þakka fyrir að fá nokkra krítíska umfjöllun.7 Þetta er ekki bara breyting í umfangi heldur eðli allrar umfjöllunar. Þegar ekki er von á nema í besta falli einni umfjöllun verður hún stóridómur – túlkun gagnrýnandans einráð, sem söguleg viðbrögð. Þetta getur verið sérstaklega viðkvæmt ef um er að ræða bók eftir óþekktan tengslalausan höfund, fyrstu bók einhvers eða verk sem kallar á einhvers konar umræðu – er boð upp í dans um fagurfræði og innihald. Í stað þess að vera innlegg í slíka umræðu, einsog dómurinn hefði getað verið árið 2002, getur neikvæður dómur orðið að hreinni hliðvörslu.
HIRÐ OG AÐALL
Íslensk ljóðlist hefur lengst af verið sterkust þar sem hún er nýjust. Þetta helgast ekki bara af því að flest þeirra ljóðskálda sem halda áfram að sinna skáldskapnum flytja oft stóran hluta athyglinnar yfir í prósaskáldskap – hætta stundum með öllu að yrkja – heldur liggur mér líka við að fullyrða að það sé eitthvað í menningu íslenskrar ljóðlistar sem fagnar hinu nýja meira en gengur og gerist – og það jafnt þótt tilkall hennar til heimsljóðlistarinnar sé hátt í þúsund ára gamalt. Ásjóna íslenskrar ljóðlistar er og verður ásjóna nýjustu kynslóðanna, að jafnaði fólks undir fertugu.
En þótt það séu fyrst og fremst nýrri eða yngri höfundar8 sem skilgreina stöðu ljóðsins verður ekki horft framhjá því að eldri og ráðsettari höfundar einsog Gyrðir, Gerður Kristný, Hannes Pétursson, Óskar Árni Óskarsson eða Steinunn Sigurðardóttir njóta bæði mikillar virðingar og áhuga lesenda, líkt og Sjón og Jón Kalman Stefánsson sem hafa báðir átt stórleik á ljóðasviðinu síðustu ár, Jón Kalman með Þyngsta frumefnið (Benedikt, 2025) og Sjón með Næturverk (JPV, 2023).
stjörnumerki gærdagsins hafa skipt um stað
fjall í fjarska hefur færst nær
vegirnir orðið að vatni
ekkert kort vísar okkur leiðina heim
yfir síkvik landsvæðin
(úr „söngur breytinganna“ eftir Sjón úr Næturverk).
Langvinsælustu ljóðabækur síðustu ára – ef ekki áratuga – eru hins vegar tvískipt ljóðasafn Gyrðis Elíassonar, Dulstirni/Meðan glerið sefur (Dimma, 2023). Það er alltaf heildstæður „svipur“ á því sem Gyrðir skrifar en hér nær frásagnartækni hvers ljóðs sjaldnast yfir í næsta ljóð. Þetta eru í þeim skilningi ljóðasöfn „með gamla laginu“ þar sem hvert ljóð ber með sér einhvers konar tilvistarspekilega visku í bland við léttúðuga kímni (sem sumir kalla aulahúmor, ástúðlega eða ekki).
„Í framtíðinni,“ sagði hann
„verða tímaferðalög sennilega
jafn vinsæl og ferðalög um öll
heimsins höf í núvitund.“ Ég leit á
skóna hans af tilviljun, þeir voru
alveg greinilega frá því kringum
1930.
(„Skófatnaður“ úr Meðan glerið sefur eftir Gyrði Elíasson)
***
Einsog kemur sjálfsagt engum á óvart sem er kominn þetta langt trúi ég á neimdroppið sem menningarlega iðju – ég hef þegar nefnt á þriðja tug skálda í þessari grein. Á ég þó sjálfur mörg persónuleg eftirlæti sem mér hefur ekki tekist að koma að (Kristín Ómarsdóttir! Fríða Ísberg! Bragi Ólafsson! Brynja Hjálmsdóttir! Tómas Ævar Guðmundsson! Brynjólfur Þorsteinsson!) Umfjöllun um þau bíður vonandi betri tíma, ég er kominn langt yfir uppgefin lengdarmörk.
Ríflega helmingur þeirra skálda sem hér hafa verið nefnd hefur komið út í þýðingu en vonandi eru mörg hinna væntanleg annað hvort á norðurlandamálunum eða einu af stóru evrópsku málunum. Ég bið ykkur hér að síðustu að stinga nöfnum þeirra sem enn ekki finnast bakvið eyrað, í von um að þau dúkki upp seinna, en mæli með að þið leitið hin uppi og lesið eins fljótt og auðið verður.
1 Titillinn er stolinn af ljóðabók Sindra Freyssonar sem Svarta forlag gaf út 2009.
2 Þegar talað er um fjölda útgefinna ljóðabóka í þessari grein verður einfaldleikans vegna stuðst við Bókatíðindi, gefin út af FÍBÚT. Þau innihalda langflestar en ekki allar útgefnar ljóðabækur, enda þarf að greiða fyrir birtingu í Bókatíðindum. Það má hins vegar færa ágætis rök fyrir því að innritun í Bókatíðindi feli í sér ákveðna „alvöru“ – einsog það má færa rök fyrir því að það sé ekki sérstaklega mikið „pönk“ að vera þar með.
3 Frá aldamótum hafa verið stofnsett þrenn áberandi verðlaun fyrir ljóð – Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir óútgefið handrit að ljóðabók, Maístjarnan fyrir útgefna ljóðabók og Ljóðstafur Jóns úr Vör fyrir stakt, óútgefið ljóð (en einungis tvær ljóðabækur hafa hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin á þessari öld – alls fimm á þeim 36 árum sem liðin eru frá stofnun þeirra).
4 Árið 1980 var hlutfall erlendra ríkisborga á Íslandi 1,4%, árið 2000 var hlutfall þeirra sem fæddir eru erlendis ríflega 5% en í dag er það um 22%.
5 Auk þeirra eru auðvitað starfandi rithöfundar á landinu sem skrifa á móðurmálum sínum en gefa fyrst og fremst út erlendis, þótt þeir taki þátt í íslenskum bókmenntum að mörgu öðru leyti – hér má nefna Anne Carson, sem er íslenskur ríkisborgari, einsog Angela Rawlings og Mazen Maarouf. Þá mætti halda til haga því sem þau hafa verið dugleg að benda á sjálf, að þetta eru upp til hópa menntað millistéttarfólk, sem kemur ekki endilega úr röðum þess verkafólks sem hingað hefur sótt til að skúra gólf og byggja hús. Eftir þeim röddum bíðum við enn.
6 Það er stundum erfitt að skilgreina bæði „fyrst“ og „bók“ og „frumort“ og jafnvel „ljóð“, að ekki sé talað um „á fullorðinsaldri“ og „íslenskt“.
7 Tímaritið Són hefur að vísu sett sér það metnaðarfulla markmið að birta dóma um allar útgefnar ljóðabækur á landinu og hefur gert síðustu 2-3 ár.
8 Og Jón Örn Loðmfjörð.
