Eitt sinn var mér sögð saga af konu á ellilífeyrisaldri sem hafði frétt af skilnaði sér yngra fólks og tekið þær fréttir nokkuð nærri sér. „Hvers vegna ætla þau að skilja?“ spurði konan, greinilega miður sín. „Hvað kom eiginlega fyrir?“ „Nú, ætli þau hafi ekki bara hætt að elska hvort annað,“ svaraði sú sem hafði flutt henni fréttirnar. „Hvað áttu við?“ sagði sú gamla þá hissa. „Er þetta ekki fullorðið fólk?“
Sagan var sögð til þess að sýna fram á hversu mikið viðhorf okkar til ástarinnar, og skuldbindinganna sem við leggjum á okkur hennar vegna, hafa breyst í gegnum tíðina. Og það er einmitt það sem hún gerir. Viðbrögð þeirrar gömlu virka einsog eitthvað úr forneskju. Ekki átti fólkið að halda áfram að vera gift í vansælu ástleysisins? Frá því ég heyrði söguna fyrst hef ég hins vegar oftar og oftar staðið mig að því að velta fyrir mér hvort verið geti að sú gamla hafi líka haft eitthvað til síns máls þegar hún gaf í skyn að það væri vanþroski í því fólginn að skilja bara af því maður er ekki lengur með stjörnur í augunum, eða af því að maður hafi fengið glýju yfir mögulegu útsýni annars staðar, eða einfaldlega viljað lifa ástlaus í friðsælli einsemd – því einsog allir vita sem hafa reynt það er miklu betra að vera einmana þegar maður er einn en að vera einmana í félagsskap annarra.
Áður en fleira er sagt vil ég halda því til haga að ætlun mín hér er ekki að „skilnaðarsmána“ neinn – ég veit að slíkar ákvarðanir tekur enginn af léttúð og jafnvel vinalegustu skilnaðir geta sett yfirvegaðasta fólk á hliðina, að ég tali nú ekki um hvernig þeir fara með okkur hin. Þá hef ég auk þess fulla samúð með því sjónarmiði að hjónabandið, og jafnvel ástarsambandið sem slíkt, sé svolítið sérstök stofnun – að útlit þess og annmarkar séu hugsanlega heimatilbúin vandi, sem okkur sé í lófa lagið að leysa einfaldlega upp, ef áhugi er fyrir hendi.
Mig langar hins vegar að velta hér vöngum yfir því hvað fólk eigi við þegar það segist elska einhvern. Þegar ég var barn fannst mér sögnin gersamlega óyfirstíganleg – ég elskaði foreldra mína og systkini en það hefði þurft eitthvað meiriháttar tilefni til þess að ég færi að lýsa því yfir í óspurðum fréttum. Þannig tilfinningasemi virkaði ekki röng heldur ódýr. Einsog maður væri að reyna að vinna sér inn stig frekar en að tjá hug sinn, sem var sjálfsagður. Ég var líka skotinn í einhverjum stelpum – jafnvel árum saman, af taumlausri ástríðu – án þess að mér hefði nokkurn tíma dottið í hug að nota sögnina „elska“ yfir þær tilfinningar, sem ég tengdi þó rétt nógu mikið við bandarískar bíómyndir til þess að sögnin „love“ þótti mér talsvert meira við hæfi. I love you var tilfinning sem ég gat tengt við, en mér fannst einsog ef ég segði „ég elska þig“ væri ég að skrifa tékka fyrir upphæð sem ég ætti enga innistæðu fyrir, barnungur maðurinn. Á endanum sagði ég vel að merkja hvorugt – kannski krotaði ég einhver hjörtu og nöfn á blað og lét gott heita – og ég man ekkert hvenær þetta elskutal fór að verða eðlileg orðanotkun.
En þetta hefur sem sagt breyst, það blasir við, og kynslóð barnanna minna notar sögnina að elska yfir alla skapaða hluti. Þau elska spagettí og St. Vincent og dansnámskeið og sólarstrendur og dúnsængur. Og við förum heldur ekki sparlega með ástarorðin okkar á milli. Ég veit ekki hvort það þýðir að maður elski meira í dag eða hvort orðið hafi glatað einhverju af þunga sínum, og hugsanlega getur hvorutveggja verið satt, og kannski var þunginn aldrei neitt nema taugaveiklun og bæling til að byrja.
En ef við undanskiljum í bili spagettí og dúnsængur og það sem heitir að vera nýástfanginn, þetta ástand sem sumir ánetjast, þegar maður er gersamlega bilaður af þrá, má túlka það að elska einhvern á tvo ólíka en þó samræmanlega vegu.
Fyrri túlkunin gengur út á að eitthvað bærist innra með manni. Ég elska þig þýðir þá að ég finni til tiltekinnar tilfinningar – ég elska þig einsog ég reiðist, einsog mér er hlýtt, einsog mér finnast fjöllin falleg, ég elska þig einsog vatnið umlykur mig, einsog púlsinn slær í æðum mér, jafnvel einsog eldurinn brennir mig.
Síðari túlkunin útilokar ekki þá fyrri en leggur áherslu á að það að elska sé tiltekinn verknaður, eitthvað sem maður gerir. Ég elska þig þýðir þá til dæmis að ég strjúki þér um vangann, eldi fyrir þig máltíð, gangi yfir fjall fyrir þig, það þýðir að ég standi á höndum fyrir þig, breiði út á mér fjaðrirnar, prjóni fyrir þig húfu, bjóði þér með mér af öllu sem ég nýt – gefi þér jafnvel síðasta Rolo molann.
Sambandið hér á milli getur auðvitað verið einsog milli hænu og eggs, að ég snerti þig vegna þess að ég finni til löngunar til þín, og að ég finni til löngunar vegna þess að ég snerti þig – og að þannig fæðist ástin alltaf af sjálfri sér, hring eftir óbrotinn hring. En sambandið getur líka verið rofið, að ég snerti þig þrátt fyrir að í mér brenni engir logar, að ég elski þig án tilfinningalegs hvata, vegna þess að mér finnist það rétt; eða að ég brenni af þrá en snerti þig ekki, elski þig innra með mér en geri ekki úr því neina athöfn, sjái kannski ekki einu sinni á því neina þörf, enda sé það tilfinningin ein sem skipti máli.
Það sem sú gamla meinti var líklega eitt af tvennu. Annað hvort átti hún við að fullorðið fólk – fólk sem hefði yfir höfuð þroska til þess að skuldbinda sig fyrir lífstíð – gæti valið að sýna hvort öðru ást, að elska hvert annað verklega með því að ganga yfir fjöll og snertast og prjóna húfur, frekar en að láta stjórnast af tilfinningalegum duttlungum, sem ég vænti að hún hafi tengt æskunni. Eða að hún átti við að það skipti engu máli hvort fólkið elskaði hvort annað, verklega, andlega, tilfinningalega eða vitsmunalega – skuldbindingunni lyki einfaldlega ekki þar, heldur væri það einmitt þar sem á hana reyndi – for better or worse, segja þeir í bíóbrúðkaupunum, í blíðu og stríðu – og fólkinu væri hollast að taka ástleysið bara á kassann, einsog heitir, einsog hverju öðru hundsbiti, the show must go on.
Þegar hún spurði hvað hefði komið fyrir bjóst hún væntanlega við að heyra af hjúskaparbrotum og barsmíðum. Fyrir henni var skilnaðurinn einsog hann var settur fram, að fólkið elskaði bara ekki hvort annað, jafn óskiljanlegur og ef hjón hefðu gefið frá sér barn á sömu forsendum – „ætli þau hafi ekki bara hætt að elska greyið?“ – á meðan öðrum finnst þetta kannski áþekkara því að einhverjum þyki ekki lengur spagettí gott og ætli framvegis að hafa eitthvað annað í matinn.
Á einum pólnum birtist ástin sem hvert annað neyslumynstur en á hinum sem forneskjulegur fangelsisdómur hamingjuleysis – og sennilega er ekkert skýrt meðalvegsprinsipp að finna þarna á milli, sennilega þarf bara hver og einn að finna sína grensu og sinn galdur. Því það er sem sagt mismunandi þetta sem fólk kallar að elska, jafnvel innan sama sambandsins, og þar með mismunandi hvað fólk á við þegar það segist hætt að elska. Kannski finnur það ekki lengur til þess sem það telur sig þurfa að finna til og kannski hefur það einfaldlega gefist upp á að strjúka hvort öðru og prjóna húfur, gefist upp á að breiða út fjaðrirnar. Það er samt ekki laust við að mér finnist mikilvægt að maður hugsi a.m.k. stundum til boðskaps þessarar gömlu konu og reyni að muna, að hvað sem öðru líður, þá á maður að heita fullorðinn.