Untitled
Það keyrði maður inn í hóp fólks í Stokkhólmi rétt í þessu
Kunnuglegur ókunnugur maður; ég er alltaf að sjá hann en ég veit ekkert hvað hann heitir það veit enginn og sennilega heitir hann ekki neitt ekki í alvörunni
Þeir segja líka að einhver hafi hleypt af byssu eða byssum en þeir segja ekki hver eða hvern hann skaut
Eða hún skaut hán skaut hé, þau, þeir þið, þær og við auðvitað erum ekki undanskilin
Ég meina, þið vitið hvað ég á við
Stefan Löfven segir að það hafi verið ráðist á Svíþjóð Ágúst Borgþór segir að þetta séu múslimarnir og skipar Agli Helgasyni að vakna; Guðmundur Andri segir þetta árás á fjölmenninguna og ég er bara einhvern veginn algerlega lamaður bara alveg lamaður ég lýg því ekki einhvern veginn að liðast í sundur á tilfinningunum einsog ég eigi eitthvað með það eitthvað tilkall einsog harmur sé sambærilegur ofbeldi ekki alls konar hlutir fullkomlega óskyldir innbyrðis ekki sorgmæddur beinlínis bara dálítið lamaður og miður mín
Lögreglan öskrar á fólk í strætisvögnum að hér hafi verið framið hryðjuverk og það þurfi að fara frá borði; ég er löngu hættur að skilja fréttirnar og vona að það slokkni bráðum á þeim bara
Og fleira er kunnuglegt, ég hef fyrir vana að drepa tímann á þessum götum svefnlausri nótt á McDonalds þar sem er bannað að sofa og kaffið er vont þótt maturinn sé sannast sagna alltílagi en ég var strandaglópur og komst ekki neitt
Þarna í nágrenninu keypti ég Guns N’ Roses kaffifantinn minn með brotna handfanginu ég er alltaf þarna, finnst mér og fremur dýr heyrnartól sem skemmdust fljótlega og ég hef líka komið inn í Åhlens
Vinir mínir og ættingjar eru alltaf að merkja sig seif eða merkja vini sína seif á Facebook í vinnunni ofar við götuna, neðar við götuna við þessi torg næstu torg og tengdapabbi minn er í Kína og þess utan nýfluttur til Västerås (ég var í alvöru búinn að gleyma því, en bara í augnablik) og ég vissi ekki að þið væruð svona mörg á lífi eða einu sinni dauð og hvað þá örugg
En það var sem sagt einhver maður að keyra inn í þvögu hóp fólks í Stokkhólmi bara rétt í þessu og einhverjir eru alveg 100% steindauðir og það er alveg að fara með mig