Search
Náttúrulögmálin tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
Náttúrulögmálin hlaut á dögunum tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna við hátíðlega athöfn í Eddu, húsi íslenskunnar. Í umsögn dómnefndar sagði meðal annars:
Söguleg skáldsaga, full af húmor og skrifuð af mikilli orðgnótt. Söguna einkennir rífandi frásagnargleði, listfengi í stíl og frumlegur söguþráður. Þrátt fyrir fjörið og léttleikann er hér tekist á við stórar heimspekilegar spurningar svo úr verður innhaldsríkt og eftirtektarvert skáldverk.
Auk Náttúrulögmálanna hlutu tilnefningu í flokki fagurbókmennta fyrir fullorðna bækurnar DJ Bambi eftir Auði Övu, Land næturinnar eftir Vilborgu Davíðsdóttur, Ból eftir Steinunni Sigurðardóttur og Dúnstúlkan eftir Bjarna Bjarnason.
Dómnefnd skipuðu: Guðrún Birna Eiríksdóttir, Hlynur Páll Pálsson og Steingerður Steinarsdóttir sem jafnframt var formaður dómnefndar.
Tilkynnt verður um sigurvegara á Bessastöðum þann 31. janúar næstkomandi.
תגובות