Search
Náttúrulögmálin til Svíþjóðar
Útgáfuréttur Náttúrulögmálanna hefur verið seldur til Svíþjóðar. Líkt og venjulega er það hið frábæra forlag Rámus sem gefur út – með sinn ótrúlega katalóg höfunda á borð við Goran Vojnovic, Fiston Mwanza Mujila, Louise Gluck, Ilya Kaminsky, Jacques Roubaud, Sjón, Tereziu Mora og svo framvegis og svo framvegis. Bókin, sem verður þýdd af snillingnum John Swedenmark, er væntanleg seinni hluta árs 2025.
Comments