top of page

„Gerðu heiminum greiða og lestu þessa bók“



Ritdómur birtist í dag á síðu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Þar segir meðal annars:

Það er stóra spurningin hvort rétt sé að kalla Einlægan Önd hugrakka, og/eða metnaðarfulla bók ef um leið er sagt að hún sé bæði bráðnauðsynleg og líka í þeirri merkingu að hún gæti einhvernveginn ekki verið öðruvísi en hún er.

Og enn fremur.

Í bókinni er verið að afbyggja höfundinn um leið og ritverkið, reynt að rýna í gagnvirknina (jafnvel meðvirknina) á bakvið skáldskaparferlið – hvernig efniviðurinn verður til í meðförum hinna mörgu höfunda verksins – og sérstaklega hvernig höfundur horfir á höfundinn horfa á höfundinn stuðla að framvindunni sem knýr fram verkið.

Og ekki síst:

Gerðu heiminum greiða og lestu þessa bók.
natturulogmalin.jpg

Fáðu tilkynningu þegar
bloggið er uppfært:

bottom of page