Endurútgáfa bókarinnar Tíu litlir negrastrákar
Bókin Negrastrákarnir kom fyrst út á íslensku árið 1922, þar sem textinn var þýddur og staðfærður af Gunnari Egilson, sem fékk myndlistarmanninn Mugg, Guðmund Thorsteinsson, til þess að myndskreyta verkið. Negrastrákarnir eru gömul flökkuvísa, sem samkvæmt formála Guðrúnar Egilson, á upptök sín „vestur í Ameríku.“ Algengasta útgáfa vísunnar þar í landi nefnist Ten little Niggers – og hvekkjast nú viðkvæmir, ekki síst ég sjálfur. Líklega er óþarfi að tíunda efni bókarinnar, enda var hún vel þekkt fyrir endurútgáfu sína í fyrrahaust, og alræmd á eftir.
Skiptar skoðanir
Við endurútgáfu Negrastrákana árið 2007 kom í ljós að ekki einvörðungu er fegurðin í auga sjáandans, heldur er sannleikurinn svipuðum lögmálum undirorpin. Skröltormagryfja hins íslenska bloggheims iðaði eins og sjálfur heimsendir væri í nánd (en þannig er það raunar alltaf á netinu, þó einungis valin málefni komist að), og sitt sýndist svo sannarlega hverjum. Þeir sem voru jákvæðir í garð endurútgáfunnar sögðu hana sakleysislegt grín um klaufalega stráka, og það væri algert aukaatriði að þeir væru teiknaðir bikasvartir með gríðarstórar varir í fullu samræmi við þær birtingarmyndir 19. aldar kynþáttahyggju sem einhverjir töldu að upplýsingin hin seinni hefði lagt að baki sér. Það var hrópað hástöfum um ritskoðun og bókabönn – þó undirritaður kannist raunar ekki við að nokkuð af því taginu hafi verið á dagskrá annars staðar en í órum þeirra sem vildu verja hina „fallegu og skemmtilegu barnabók“ – í raun vantaði bara að einhver segði hana „fræðandi“.
En á meðan hálf þjóðin galaði til verndar bókinni, galaði hinn helmingurinn eitthvað á þá leið að hún væri gegndarlaus árás á blökkufólk víðs vegar og hluti myrkrar fortíðar kynþáttahyggjunnar, þar sem svart fólk væri jafnan útmálað sem fávitar sem kynnu ekki annað en að fjölga sér. Gauti B. Eggertsson skrifaði grein á bloggsíðu sína, sem síðar var endurbirt í Fréttablaðinu, og sagði dauðdaga piltanna tíu – í systurverkinu Ten little Niggers – ríma vel við viðhorf til blökkumanna í Bandaríkjunum á þeim tíma sem bókin kom út: „litlu negrastrákarnir deyja úr leti, heimsku, hræðslu, græðgi, ofdrykkju, vitfirringu, ofbeldi, o.s.frv.“
Viðbrögð
Það sem kveikti debattinn var ekki nema að litlu leyti sjálf endurútgáfa bókarinnar, heldur viðbrögð nokkurra foreldra þeldökkra barna á höfuðborgarsvæðinu, sem rituðu leikskólum og hvöttu til þess að bókin yrði ekki lesin þar, því efni og myndir bókarinnar væru særandi og til þess ætlað að kynda undir fordómum í garð svartra. Fleiri aðilar sigldu svo í kjölfarið, meðal annarra Lýðræðis- og jafnréttisnefnd Hafnarfjarðar, sem sagðist telja að boðskapur bókarinnar byggði á „fáfræði, úreltri hugmyndafræði og rasisma sem [hefði] ekkert uppeldisgildi“ og ætti hún því ekki erindi á borð íslenskra barna í dag.
Aðspurð af fréttastofu RÚV sagði Guðrún Egilson, sonardóttir Gunnars Egilson, og höfundur formála útgáfunnar frá 1975 (sem er endurbirtur í nýju útgáfunni), að henni hefði fundist ástæða til að gefa bókina út aftur, þar sem hún hefði verið ófáanleg um langt árabil, og að hjá einni bókaútgáfu hafi hún fengið þau svör að þar á bæ þyrðu menn ekki að gefa bókina út af ótta við heiftarleg viðbrögð almennings. Að lokum fékkst bókin þó útgefin hjá Skruddu.
Martraðarvaldandi listaverk
Nú má auðvitað spyrja sig hverju þetta sæti. Hvers vegna skyldi bókaútgáfa óttast „heiftarleg viðbrögð almennings“? Er það vegna hreinræktaðs heigulsháttar, eða eru einhverjar líkur til þess að forleggjaranum hafi sjálfum þótt bókin óviðurkvæmileg, en varpað ábyrgð á „fólk út í bæ“ til þess að forðast rifrildi? Guðrún sagði auk þess að þar sem bókin væri meðal fyrstu barnabókanna sem út komu á Íslandi væri hún menningarlegt fyrirbæri, mikið listaverk „og að það væri mikil synd ef fólki gæfist ekki kostur á að eignast hana“, líkt og segir í áður ívitnaðri frétt.
Nú er ekki loku fyrir það skotið að bók geti verið menningarlegt fyrirbæri og/eða mikið listaverk sem þarf að vera aðgengilegt, og í senn sprúðlandi rasískur laukur frá blómatímabili kynþáttahyggjunnar. Þannig er ein merkasta bók Þýskalands frá 20. öldinni áróðursrit manns sem jafnan er talin eitthvert viðbjóðslegasta stjórnmálaskrímsli síðustu árhundruða – en maður les hana kannski ekki upphátt fyrir börnin þegar þau eru að sofna. Né heldur er Saga augans eftir Georges Bataille neitt barnaefni, og ýmis barnakvæði frá miðöldum eru einfaldlega slíkur viðbjóður að þau myndu auðveldlega valda börnum andvökum og martröðum – þó þau séu bæði menningarleg fyrirbæri og mikil listaverk. Þá segir sig sjálft að bók getur verið aðgengileg án þess að hún sé markaðssett fyrir börn eða skilyrðislaust lesin upp á leikskólum.
Umburðarlyndi og virðing
Það sem ég vil benda á er einfaldlega þetta: Það er ekki hægt að neita því að Negrastrákarnir geti verið vondur pappír, eins og virðist hafa verið reynt í mörgum tilfellum þar sem bókin er varin. Sem er ekki það sama og að segja að hún sé vondur pappír. Það er að nokkru leyti umræðuefni sem foreldrar verða að eiga við sjálfa sig og sín á milli, og það má ræða margt vitlausara við börn. Það er hins vegar ekkert víst að menn verði sammála um sakleysi eða siðleysi Negrastrákanna á næstunni, hreinlega vegna þess að siðferði er ekki beinlínis rökrænt fyrirbæri, og það sem misbýður einum misbýður ekki endilega öðrum. En ef við ætlum að lifa í sæmilega siðuðu samfélagi, þá hlýtur umburðarlyndið og virðingin að koma til sögunnar einmitt þar sem við erum siðferðislega ósammála. Og mér þætti það ansi öfugsnúin vitleysa að láta þann sem móðgar ráða því hvað er móðgandi, frekar en þann sem móðgast.
Misbjóði bókin foreldrum þeldökkra barna, líkt og fram hefur komið, þá er sjálfsagt að henni sé ekki haldið að þeim eða þeirra börnum. Við búum einfaldlega saman á þessu landi, og okkur ber að virða hvert annað – eins og öðrum sambýlingum – svo fremi að það brjóti ekki í bága við samvisku okkar og betri vitund. Og ég á bágt með að trúa því að íhaldskurfarnir sem hafa gaman af því að hlæja með börnum sínum að heimsku blökkudrengjanna, séu svo eitilharðir í afstöðu sinni að þeir geti ekki séð hvað er rangt við að þvinga bókinni upp á börn á leikskólum, hverra foreldrar vilja ekki að slíkt sé gert. Séu menn hins vegar svo harðsvíraðir er víst ekki annað hægt en að vona að bulluskapurinn hafi ekki slík áhrif á börn þeirra að þau vaxi úr grasi búin sams konar ónærgætni og yfirgangssemi.
Það hefur verið vinsælt hobbí á mörgum heimilum síðustu árin að gera lítið úr umburðarlyndi og virðingu gagnvart þeim sem eru öðruvísi en hið ímyndaða normalmenni – pólitísk réttsýni er að verða slíkt tabú að heiðvirðir menn eru farnir að skreyta sig með heimskulegum fordómum og digurbarkalegri þvælu til þess að verða ekki ásakaðir um neitt jafn voðalegt og réttlæti eða umburðarlyndi. Jafnan fylgja þessum hamagangi spáhelgar yfirlýsingar um eyðileggingarmátt fjölmenningarsamfélagsins og það sem þeir nefna svo hæversklega „ritskoðun“ – en það hugtak hefur mátt þola svo mikla gengisfellingu á síðustu árum að það er vart merkingarbærara í almennri umræðu en t.d. „frelsi“.
Viðkvæmt spaug
Þannig varaði hinn bosmamikli fjölmiðlamaður Egill Helgason blogglesendur sína við „fulltrúum góðmennskunnar“ og kvaðst finna fyrir sterkri kröfu um að Negrastrákarnir yrðu bannaðir. Hvaðan sú krafa kom gat aldrei neinn bent á – en Egill komst næst því með því að vísa í heimasíðu femínistans Katrínar Önnu Guðmundsdóttur, þar sem hún sagðist „til í bókabrennu“, eftir lestur áðurnefndrar greinar Gauta B. Eggertssonar – og tók síðan fram í athugasemdakerfi sínu að henni væri ekki alvara. En það er engu minna viðkvæmt að spauga með bókabrennur en kynþáttahyggju.
Það er raunar merkilega stutt síðan bókabrennur og kvikindislegar kynþáttasteríótýpur voru settar fram í fullri alvöru – og það er vafalítið mikið þroskaskref að útgefendur bóka á borð við Negrastrákana gangist ekki við boðskap þeirra, heldur kalli þær saklausar í stað þess að verja hendur sínar með tilvísunum í vísindi kynþáttahyggjunnar – og þeir sem hóta bókabrennum skuli ekki gera það af fullri alvöru. Afneitun er ein tegund skammar og það er ágætt að fólk, sem vart er húsum hæft, kunni í það minnsta að skammast sín.
Höfundur er rithöfundur
