Fimm ljóð nefnist nýjasta verk skáldsins Eiríks Örns Norðdahl og er hans fyrsta ljóðabók í rúm átta ár, ef ekki lengur. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Eirík um afturhvarfið til ljóðsins, framúrstefnuárin og ræturnar sem toga hann heim til Ísafjarðar.
Illskan ein á borðinu
Til að byrja með: hvers vegna þetta langa hlé á milli ljóðabóka? Hvað varð til þess að þú ákvaðst að setjast niður núna og skrifa ljóð? „Veistu, ég áttaði mig varla sjálfur á því að það væri liðinn svona langur tími bókin var nokkurn veginn tilbúin. Þetta er svolítið eins og að horfa á börnin sín alast upp, allt í einu eru þau orðnir unglingar og manni bregður því það er eins og enginn tími hafi liðið.
Síðasta ljóðabókin sem ég sendi frá mér, Óratorrek, kom út árið 2017 og er skrifuð í hálfgerðum ræðustíl þannig að hún lítur að mörgu leyti út eins og prósi. Ég þurfti meira að segja að færa sterk rök fyrir því á sínum tíma að hún væri ljóðabók. Og ljóðabókina þar á undan [Hnefi eða vitstola orð] skrifaði ég í Hruninu árið 2008 þó að hún hafi ekki komið út fyrr en árið 2013. Þannig að í rauninni má líta á það sem svo að það sé frekar farið að nálgast 20 ár heldur en 8 síðan ég tókst almennilega á við ljóðið síðast. Sem er rosalega skrýtið því ég hef alltaf litið á ljóðið sem stóran hluta af minni sjálfsmynd. Það er eitt af því sem gerir mig að mér.
Það sem gerðist þarna í kringum 2008 er að ég fór að skrifa skáldsöguna Illsku sem var bæði löng og þung að eiga við. Þangað til hafði ég alltaf unnið að þýðingum, prósa og ljóðum samhliða og var satt að segja að verða hálfgeðveikur á því. Ég ákvað þess vegna að ýta öllu til hliðar nema skáldsögunni og hreinsaði alveg til á borðinu svo það væri ekkert á því nema Illska. Sennilega hef ég aldrei almennilega stigið aftur inn í veröldina eins og hún var fyrir það.“
Þetta er ekki framúrstefna
Hvernig var þá að takast á við ljóðið aftur núna? Fannst þér erfitt að koma þér í réttar stellingar? „Já, ég held að það sé ein af ástæðunum fyrir því hvað þetta tók mig langan tíma – ég gat ekki sett mig í réttu stellingarnar. Það fór langur tími í að bíða eftir því að það kæmi eitthvað. Af því að mér fannst ekki og hefur í sjálfu sér aldrei fundist að ég geti bara ljóðunum út úr mér. Ég átti samt auðveldara með það áður, að hluta til held ég vegna þess að ég vann mikið með systematísk ljóð og átti heila kistu af óunnum kraumandi hugmyndum. Ég hef ekki getað gengið í þá kistu aftur, líklega vegna þess að ég hef að mestu sagt skilið við framúrstefnuljóðlistina. Hún hefur bara ekki komið til mín aftur, ekki þá nema mögulega með Óratorrek sem er þó svolítið öðruvísi verk.
Þessari bók þurfti ég þess vegna að leyfa að koma til mín smám saman. Elsta ljóðið, „Þríhjól í Svíþjóð“, er alveg 12 ára gamalt. Hin ljóðin í bókinni voru líka öll lengi í mótun og sum voru til dæmis innan í öðrum til að byrja með. Það er að segja, það voru alls kyns erindi og senur sem flökkuðu á milli, til að mynda voru erindin í „Stöðum“ [fyrsta ljóðinu í bókinni] öll á víð og dreif inni í ljóðinu „Borgum“. Það tók mig smá tíma að átta mig á því að þau ættu ekki heima þar.“
Sumir vilja samt kalla ljóðin í þessari bók framúrstefnuleg. Þú ert þá ósammála þeirri skilgreiningu? „Sko, mér finnst í sjálfu sér að ég hafi ekkert með það að gera að skilgreina það sjálfur. En þegar ég skrifaði framúrstefnuljóðin hér áður fyrr þá var ég alltaf með ákveðið módel fyrir fram sem leiddi mig áfram, það var hálfpartinn eins og að fylla út krossgátu eða lita inn í númeramynd þar sem maður veit ekki fyrr en undir lokin hvernig myndin á eftir að líta út. Aðferðin kom sem sagt alltaf fyrst og fyrir vikið var auðvitað óhemju margt sem fór í ruslið.
Fyrir þessa bók, og það er ekki ósvipað og var með Óratorrek, var ég frekar að eltast við ákveðinn tón. Ég var með ákveðnar setningar í huga og allt annað þurfti að harmonísera við þær.“ Hvaða setningar voru það? „Það eru nokkrar af upphafslínunum í „Borgum“: Í þessu landi eru tvær borgir [...] Borgirnar eru eins og í þeim býr sama fólkið.“
Allsnægtarborgir og veipandi unglingar
Einmitt. Þú skrifar á einum stað að borgin sé hugarástand. Getur þú sagt mér meira frá því? Hvaða borg er þetta? Og hvaðan á hún uppruna sinn? „Já það er nú það. Sumir hafa ályktað að þetta séu Reykjavík og Ísafjörður. En fyrir mér er þetta líka Hamraborgin. Ég hef verið lengi með hana á heilanum og þá á ég ekki bara við Hamraborgina í Kópavoginum, heldur líka þá sem er á Ísafirði. Við Ísfirðingar eigum nefnilega líka okkar Hamraborg sem er sjoppan í bænum. Allt hverfist um hana, hún er staðsett í kjarna bæjarins og það er oft grínast með að í henni sé alltaf allt til. Ef þig vantar til dæmis stillas og Húsasmiðjan er lokuð, þá ferðu bara í Hamraborg og þar er ábyggilega til stillas fyrir þig. Og svo framvegis. Hamraborgina í Kópavogi hef ég líka þekkt alla ævi því amma bjó þar og mamma er alin upp á þessum slóðum.
Þessar tvær hamraborgir hafa ávallt verið lifandi í hausnum á mér. Og mér hefur alltaf fundist þær mjög ólíkar: önnur er kaós og hin er heimasælan. Svo sló það mig allt í einu hvað þær eiga líka margt sameiginlegt. Báðir staðir eru kjarnar þar sem er stöðugt mannlíf, strætisvagnar keyra í sífellu hjá og unglingar hanga eilíflega reykjandi eða veipandi, súpandi á sykruðum drykkjum. Borgirnar tvær eru sama borgin en líka ekki. Það fylgir þeim visst tíma- og staðleysi sem var mikilvægt fyrir mig að skilaði sér í ljóðunum. Að þær fengju að vera á floti.
Hvar liggja ræturnar?
Í seinni tíð hef ég líka fundið á undarlega sterkan hátt fyrir rótum mínum hér á Ísafirði. Mér hefur samt aldrei tekist að skilja það almennilega, vegna þess að ég flúði héðan á sínum tíma, ætlaði bara að komast upp í næsta kagga, fara burt og snúa aldrei aftur eins og í amerískri kvikmynd. En auðvitað kom ég aftur og það er eins og það sé meiri ró í mér hér en annars staðar. Kannski eru ljóðin reyndar einhver tilraun til þess að reyna að leysa þessa tilfinningu upp, vegna þess að hún eru á vissan hátt líka óþægileg.“
Talið berst þá aftur að ljóðinu „Þríhjól í Svíþjóð“. „Það fjallar um það hvar maður tilheyrir og hvar maður er. Ég myndi kannski ekki segja að það sé persónulegra en hin ljóðin en það er bundnara mér sem persónu. Það er ort til dóttur minnar þegar hún fæddist, á tímabili þegar ég og mamma hennar vorum ekki saman. Mæðgurnar áttu heima í Svíþjóð en ég bjó á sófanum hjá þeim og þegar ég hugsa til þessa tíma þá kemur fram þessi gamalkunna tilfinning fyrir því að eiga heima einhvers staðar en samt ekki. Sem er reyndar líka til staðar í hinum ljóðunum í bókinni. Að hafa eignast eitthvað og næstum því misst það um leið.“ Hér gerir Eiríkur hlé á máli sínu um stund og hlær síðan, eilítið afsakandi. „Ég lendi alltaf í vandræðum og deili of miklu þegar ég tala um þetta ljóð. Þetta var erfiður tímiað einhverju leyti var ég með þessu ljóði að reyna að yrkja dóttur mína fasta við mig.“
Er auðveldara að takast á við slíkar tilfinningar í ljóðum en í prósa? „Það er allavega öðruvísi. Í prósanum er ég lengra frá sjálfum mér vegna þess að ég get skýlt mér á bak við aðra persónu. Hún getur verið að takast á við hluti sem ég hef tekist á við eða eru mér kunnuglegir, en hún er um leið ákveðinn skjöldur á milli mín og lesandans. Í ljóðunum er ég í beinni tengslum við það sem ég er að lýsa og tala meira út frá sjálfum mér. Mér finnst ég geta leyft mér það því ég get verið abstrakt og myndirnar þurfa ekki að vera áþreifanlegar. Þá upplifi ég heldur ekki jafn auðveldlega að ég sé að ljúga eða búa til einhvern veruleika sem er ekki sannur, eins og mér finnst oft verða þegar hugmyndirnar eru of konkret. Því þá er ég að þykjast vera með svar við því hvernig hlutirnir eru. En það er ekki þannig sem ég sé heiminn. Ég upplifi hann frekar, og held reyndar að flestir geri það, sem eins konar upplausn. Ef ég er of stórorður á ég það til að efast eftir á og finnast ég vera að ljúga að sjálfum mér og heiminum. Ljóðið er, fyrir mér, einhver lausn undan þessu.“
Aldrei sami steinninn
Að mínu mati er ljóðmælandinn dálítið afundinn, hann talar í mótsögnum og er svolítið að snúa út úr. Er hann að fela eitthvað fyrir lesandanum? „Nei, það er frekar þannig að hann trúir raunverulega á mótsagnirnar. Á alla þessa ólíku veruleika sem geta verið sannir samtímis. Þú gengur í kringum einn og sama steininn og hann er margir steinar eftir því hvar þú stendur. Mótsagnirnar koma upp af sjálfu sér og ég leyfi þeim að . Það er líka eitt af því sem þessi bók á sameiginlegt með Óratorek, sem er skrifuð í sama anda.“
Þetta snýst þá kannski um að taka mótsagnirnar í sátt. „Já, og það er viðvarandi verkefni. Ég er alveg sáttur við að lífið sé fullt af mótsögnum, en þarf samt að minna sjálfan mig á það á fimm mínútna fresti. Að mótsagnirnar séu í lagi og þýði ekki að allt sé að fara til andskotans. Mér er ekki að missýnast, sumir hlutir ganga bara ekki svo auðveldlega upp og þannig er það.“ Nú þegar þú ert búinn að opna fyrir ljóðastrauminn á ný, megum við þá eiga von á annarri ljóðabók bráðlega? „Þú segir nokkuð. Ég held að það sé ekki stutt í næstu ljóðabók. Hún kemur auðvitað á endanum, en það er ábyggilega svolítið í það. Fyrst þarf ég að finna rétta tóninn og gefa mér tíma til að eltast við hann.“
Viðtalið birtist upphaflega í Morgunblaðinu 26. júlí 2025. Lesa viðtalið á Mbl.is.
