Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Viðtöl · Íslenska

„Það að skrifa bækur er alltaf að einhverju marki siðlaus gjörningur“

Tímarit Máls og menningar, 4. hefti 2018.
Tímarit Máls og menningar, 4. hefti 2018.

Hans Blævi var lýst sem óalandi og óferjandi transkynja nettrölli, sem þrífst á því að fara yfir öll mörk og ganga fram af fólki, þegar samnefnt leikrit um persónuna var frumsýnt í vor. Verkið var harðlega gagnrýnt af einstaklingum úr hinsegin samfélaginu, þótt umræðan hafi kannski fremur snúið að umfjölluninni um verkið, þar sem hörðustu gagnrýnendurnir höfðu ekki séð það á sviði.

Hans Blær var sagt vera slæm birtingarmynd kynsegin fólks og sem slík myndi hán auka fordóma fyrir trans fólki.

Samhliða leikritaskrifunum vann Eiríkur Örn Norðdahl skáldsögu um Hans Blævi. Halla Þórlaug ræðir hér við Eirík Örn um völd, skáldskapinn, ídentítetspólítík og hvað felst í því að vera í forsvari fyrir ákveðna hópa.

Til hamingju með bókina, Eiríkur. Það má vera að hún verði gagnrýnd, kannski harðlega, af þeim sem finnst vegið að trans samfélaginu, en ég er hins vegar ekki sammála því að hér sé verið að sverta mynd trans eða intersex. Hér hefurðu búið til einstakling en ekki stereótýpu. Ég held að það sé einmitt svo ótrúlega mikilvægt þegar kemur að því að skrifa um aðra reynslu en manns eigin. Það hefði verið svo auðvelt að búa annaðhvort til fórnarlamb eða algóða manneskju sem tekur aldrei eigingjarnar ákvarðanir og berst hetjulega fyrir málstaðnum. Hans Blær er ekki í forsvari fyrir trans eða intersex. Hán* er skáldsagnapersóna og sannarlega marglaga sem slík.

Takk fyrir það. Ég vona að þeir sem reiðist yfir hugmyndinni um bókina gefi sér tíma til að lesa hana. Harðasta gagnrýnin í vor kom frá fólki sem hafði ekki séð leiksýninguna – og raunar áður en hún var einu sinni frumsýnd. Sem er auðvitað í anda verksins, en samt. Ég skil að hugmyndin stuði en vona að fólk treysti mér, ég var allavega að reyna að gera heiðarlegt listaverk – ég er ekki bara að trolla! Ég óttast samt stundum að tónninn sé sleginn – krafturinn í ákveðnum ásakandi fingrum er mikill og fólki oft furðu mikilvægt að niðursjóða listaverk í einhver einföld sándbæt, með eða á móti.

Það er samt ekki hægt að neita því að spurningin vaknar, hún gerði það í það minnsta hjá mér, um hver hefur réttinn til að tala. Ég gerði eiginlega strax ráð fyrir að það væri hluti af pælingunni. Þú talar um þetta á nokkrum stöðum í bókinni, til dæmis þegar Hans Blær, sem þá hét Ilmur, kemur út sem intersex í útvarpinu og gerir þá alla kjaftstopp. Hán hefur allt í einu öðlast nýjan rétt til þess að tala. Hver er þín afstaða til þessa með tilliti til þessarar bókar?

Einn af síðri fylgifiskum þess sem er kallað ídentítetspólitík er ákveðin tilhneiging til þess að líta fyrst til þess hver segir eitthvað og láta það síðan vega furðu þungt þegar lagt er mat á það sem viðkomandi segir. Við stillum tortryggninemana og viðkvæmni þeirra eftir þessu. Þetta er slæm pólitík af ótal ástæðum. Meðal annars vegna þess að það gefur kapítalinu færi á að hvítþvo sjálft sig með líberalískum ráðningarferlum og gerir hinum ríku og frægu kleift að vera í kastljósinu líka þegar það kemur að því að vera kúgaður og undirokaður. En líka vegna þess að þetta getur hæglega snúist í höndunum á þeim sem stunda slíka pólitík einsog verður ljóst í kringum fólk einsog Milo Yiannopoulus, sem er samkynhneigður fasisti, giftur svörtum manni, Blaire White, sem er trumpísk transkona, Kent Ekeroth sem er Svíþjóðardemókrati af gyðingaættum og svo framvegis og svo framvegis.

Ég á ekki við að það skipti ekki máli hver segir hlutina og frá hvaða sjónarhóli – það litar bókina Uppvöxt Litla-Trés að Forrest Carter, höfundur hennar, hafi verið talsmaður Ku Klux Klan – en það er hætt við að maður missi af mörgu, næstum öllu, ef maður lætur slíkan lestur ramma inn heilu listaverkin.

Reynsla annarrar manneskju í öðrum aðstæðum getur aldrei orðið manni fullkomlega skiljanleg og á sama tíma er það miðlun slíkrar reynslu sem er hornsteinn allra frásagnabókmennta. Empatían, samlíðanin. Rithöfundar reyna að búa til sögupersónur sem eru einstakar og ef vel tekst til öðlast þær einhvers konar sjálfstætt líf. Það líf litar svo oft mann sjálfan og manns eigið líf – mér finnst einsog ég hafi í senn fyrir löngu misst stjórn á Hans Blævi og orðið hán, eða hluti hánar, hán hluti af mér.

Rithöfundar hafa hins vegar ekki „rétt“ til þess að segja eitt eða neitt eða mæla fyrir hönd eins eða neins – hvorki í krafti listar sinnar, frekju sinnar né djúpstæðra móralskra yfirburða. Ég hef engan „rétt“ til þess að segja „sögu transfólks“ frekar en ég hef rétt til þess að skrifa sögu helfararinnar, um barnadauða eða heim flóttamanna. Ég geri það bara. Það að skrifa bækur er alltaf að einhverju marki siðlaus gjörningur. Og sennilega líka það fallegasta sem maður getur gert heiminum.

Eru þessir líberalísku ráðningarferlar sem þú nefnir ekki ákveðin taktík? Að fá óvænta forsvarsmenn, til að gera andstæðingana kjaftstopp?

Þegar ég var að vinna heimildavinnuna fyrir Illsku þá rak ég mig á hversu algengur þessi tendens var orðinn, að stilla upp einhverjum svona pósterbörnum fyrir hreyfinguna – að þrátt fyrir að konur væru í minnihluta kjósenda öfgahægriflokka væru þær áberandi í mörgum þeirra og í einhverjum tilvikum, svo sem í Frakklandi, Danmörku, Noregi og víðar, væru þær hreinlega óskoraðir leiðtogar þessara flokka. Svo virtist líka sem það væri plús fyrir karlana í þessum hreyfingum að vera samkynhneigðir eða gyðingar. Þeir gátu, einsog konurnar, borið fyrir sig að þeim stæði ógn af „múslimunum“ – og vinstrimönnum, sérstaklega, þótti erfiðara að kalla þetta fólk fasista. Ídentítet í pólitík er auðvitað margslungið og þessir leikir leiknir alls staðar – mér er sagt að fari miðaldra karlmaður í opnuviðtal í Svíþjóð til að segja frá fábrotnum uppvexti og ævilangri aðdáun sinni á Bruce Springsteen séu aldrei meira en tvær vikur í að hann bjóði sig fram til formanns Sósíaldemókrataflokksins.

Veltir þú því einhvern tímann fyrir þér að gefa bókina út undir dulnefni?

Mér datt það alveg í hug. Það hefði í sjálfu sér bæði einfaldað og flækt viðtökurnar. Ég hefði ekki þurft að standa sömu reikningsskil á bókinni – en ég hefði heldur ekki fengið það! Ég reikna líka með að það hefði komist upp á endanum. Eða hreinlega bara sést. Og dulnefnin enda oft á að soga að sér alla athygli – gott dæmi er Eva Magnúsdóttir, höfundur Lausnarinnar, það fór heilt jólabókaflóð í að reyna að svara því hver hún væri, það var öllum sama um bókina. Svo eru dæmi eins og JT Leroy, sem sagðist á sínum tíma vera trans vændiskona í undirheimum New York en reyndist svo bara vera einhver úthverfahúsmóðir. Frábærar skáldsögur Lauru Albert – undir þessu dulnefni – hurfu í havaríinu og það er fáránlega leiðinlegt. Vinur minn, samíska skáldið Sigbjörn Skåden, gaf líka út bók fyrir nokkrum árum undir þeim formerkjum að hann væri 17 ára lesbísk samastelpa. Þegar að upp kemst, sem er eiginlega gefið, fer ofsalega mikið af áherslunni að snúast um einhver meta-atriði – hvað má, hvað má ekki – og bókmenntirnar sjálfar verða hálfgert aukaatriði.

Hvernig varð Hans Blær til?

Ég hef alltaf verið heillaður af mótsagnakenndum persónuleikum, kannski af því að ég þekki svo mikið af þannig fólki – það er ekkert raunverulegra en manneskja sem meikar ekki sens við fyrstu sýn. Hans Blær varð fyrst til sem persóna í lélegum reyfara sem ég skrifaði og er vonandi búinn að eyða öllum eintökum af. Það var í september 2013, í residensíu í Jonsered, rétt utan við Gautaborg. Bókin fór í ruslið en persónan sat eftir og tók alls konar breytingum. Ég rifjaði svo upp kynnin við hána þegar ég hafði lokið við Heimsku, vorið 2015. Eitt af því fyrsta sem ég gerði var að búa til lista yfir fyrirmyndir – sem ég á einhvers staðar hérna, hann varð á endanum rosalega langur. Á honum er reitt fólk og sárt fólk og narsissistar úr öllum stéttum og alls staðar að úr heiminum. Út frá þessum lista sankaði ég svo að mér lesefni – í hillunni er allt frá ævisögu Axl Rose og Dangerous eftir áðurnefndan Milo Yiannopoulus yfir í Myru Breckinridge, ljóðasöfn transfólks og fræðibækur um troll, kynlíf, nauðganir, trans og ídentítet. Ég sanka yfirleitt að mér bara öllu sem ég finn sem tengist eitthvað því sem ég er að skrifa – og lifi síðan við frekar strangt mataræði í bókmenntum, að minnsta kosti á intensífustu köflunum, og les þá ekkert sem kemur málinu ekki við. Þetta þættu sennilega ekki góð vinnubrögð fyrir fræðimann, svona manískt grúsk hingað og þangað, en þau henta skáldi ágætlega.

Við upplifum Hans Blævi ekki sem fórnarlamb, þrátt fyrir að vera á skjön við normið. Þannig getur lesandinn reiðst hánum, fundist hán illa innrætt og vont. Og á sama hátt, með því að taka valdið til sín og leika aldrei fórnarlambið, er hán orðið að skotmarki. Hans Blær er ekki öruggt, þótt hán sé kjaftfort, og hán er jafnvel svolítið hrætt þegar sagan hefst.

Mér finnst hán ekki vera illt, þrátt fyrir allt. Hán er sannarlega leitandi og kannski má segja að hán sé djarft og óhrætt – en aftur á móti hlýtur hegðun hánar að byggjast á því að finnast hán þurfa að vera sterkt, eldfimt og ósigrandi. Skothelt. Og ef þér finnst þú þurfa að vera ósigrandi, þá hlýtur einhver ótti að bærast innra með þér. Eða hvað?

Hvernig hugsar þú um þetta með að taka valdið og vera skotmark? Erum við alltaf að troða einhverjum um tær með því að taka pláss?

Hans Blær er ekki illt en hán gerir illa hluti. Uppásnúningurinn um heimskuna í Forrest Gump – „stupid is as stupid does“ – á upprunalega við um illskuna. Illskan er að gera illa hluti og maður skilgreinir sjálfan sig með gjörðum sínum. Hins vegar er ekkert okkar neitt eitt og við eigum ekki skilið að vera smættuð niður í verstu augnablik lífs okkar, það versta sem við höfum gert, frekar en við eigum skilið að láta einsog bestu hliðar okkar séu þær einu sem máli skipta. Hans Blær er illt þegar hán gerir illt og gott þegar hán gerir gott – og stundum meinar hán vel en gerir illt og öfugt. Við lifum á þannig tímum – í alls kyns uppgjörum – að fólki finnst þægilegast að hafa skýrar markalínur. Þeirra getur verið þörf í ákveðnum tilgangi en þá er samt gott að halda því til haga að þær útskýra ekki nema eitt örlítið horn heimsins – og skilgreini maður einhvern sem illan er hætt við að sá einstaklingur fari sjálfur að álíta sig illmenni. Og hvað gera illmenni – þau fremja illvirki.

Hans Blær fæðist á skjön – minna en hán heldur, en samt á skjön – við væntingar heimsins og er þar með fengið tiltekið hlutverk í heiminum sem já, óttast hið frábrugðna. Hán er sérstakt en má það ekki – hán á að þegja um „ástand“ sitt. Hánum stendur bara til boða að lifa eftir borgaralegum reglum eða lúta reglum jaðarhóps sem hán veit ekki einu sinni hvernig lítur út. Í öllu þessu hefur enginn tekið tillit til hánar eða þess hver hán vill vera og hánum finnst þar af leiðandi ekki að hán þurfi að taka tillit til neins annars. Það er lykilatriði í persónuleika hánar að hán vill alls ekki tilheyra – hvorki rýmunum í miðjunni né þeim á jöðrunum – einmitt vegna þess að allir krefjast þess að hán geri það. Mamma hánar vill að hán þegi og sé normal og trans samfélagið vill að hán sé í versta falli frjálslyndur jafnaðarmaður – sem hán finnst bara vera önnur tegund af normal. Vandamálið við að tilheyra liggur beinlínis í orðinu – maður tilheyrir, verður eign einhvers kúltúrs sem svo ætlast til þess að maður hagi sér á tiltekinn máta, klæði sig á tiltekinn máta, hlusti á tiltekna tónlist, borði tiltekinn mat o.s.frv. Ef maður hagar sér innan rammans – brýtur ekki nema rétt svo passlega margar reglur til að maður þó hafi snert af persónuleika – þá fær maður ást og virðingu. Annars fær maður bara að naga þröskuldinn.

Og jú, hán er óttaslegið og hán veður eldinn – sennilega óttast hán ekkert jafn mikið og að gera eitthvað, viljandi eða óviljandi, af hugleysi. Að hugleysið verði að drifkrafti í lífi hánar. Og þess vegna þarf hán stöðugt að viðhalda skelfingunni – eða hinum skelfilegu aðstæðum – því án skelfingarinnar getur maður ekki verið viss um að maður sé ennþá hugrakkur. Maður er kannski orðinn deigur, orðinn huglaus, orðinn smáborgari. Og ef Hans Blær er ekki hugrakkt lengur þá verður hán einfaldlega fláð lifandi af óvildarmönnum sínum.

Samfélagsumræður okkar tíma eiga sér að miklu leyti stað á Internetinu, þar sem fólk er oftar en ekki yfirlýsingagjarnt. Leikar æsast á methraða, setningar eru teknar úr samhengi og nær ómögulegt að skipta um skoðun eða taka orð sín til baka. Virðing er látin lönd og leið og einfaldast virðist að sleppa því að taka þátt.

Í bókinni segir Hans Blær að hatrið sé ekki það versta, heldur skeytingarleysið. Þeir sem hvorki læka né kommenta. Hafa enga skoðun. Hvað segir þú um það?

Ég veit ekki hvort ég taki sjálfur undir að skeytingarleysið sé verra en hatrið. Það er svona klassísk gremjuyfirlýsing. En ég held að það sé hættulegt að búa í samfélagi sem forðast átök. Maður þarf að mæta hatrinu – og meðvirkninni og kröfunni um að allir séu hressir eða sammála eða að eitthvað sé einfaldlega ekki til umræðu. Það er erfitt að mæta mótlæti og þreytandi að lenda í rifrildum og á hátækniöld er hætt við að byrji maður að þrátta sitji maður fastur í þeim þrætum – með símann pípandi í vasanum allan liðlangan daginn, kannski vikuna eða árið. En hinn valmöguleikinn – samfélag sem lifir í ímynduðum konsensus – leiðir held ég bara beinustu leið til helvítis, svo ég orði það pent. Þá ráða bara þeir sem eru frekastir hverju sinni – án þess að maður verði endilega einu sinni var við að þeir séu frekir.

Ég er ekki viss um að við þurfum alltaf að bera virðingu hvert fyrir öðru í samræðu – við þurfum kannski bara að verða betri í að rífast og jafna okkur á eftir. Ég held að það skipti aldrei neinn um skoðun í miðju rifrildi. Fyrir langalöngu átti ég í vetrarlöngu rifrildi við góðan vin minn um Sigur Rós – sem ég hafði bitið í mig að væri Wagnerískt nasistapopp, stór og yfirdrifin dýrkun á íslenskri náttúru, manns og foldar. Vinur minn gerði í því að stríða mér á þessari róttæku og óvinsælu afstöðu minni og var farinn að æpa á mig þjóðsönginn á fylleríum bara til þess að ögra mér. Síðan liðu nokkur misseri og ég mildaðist allur. Þeir komu að spila í Helsinki, þar sem ég átti heima, og ég skipti við þá á bókum og miðum á tónleikana – þar sem þeir sýndu líka bíómyndina Heima – þeir buðu mér í eftirpartí og ég varð allur meyr og fór að sjá eftir hörkunni. Frábærir strákar, meina vel, og ekki fer ég að neita því að tónlistin hreyfi við manni? Að þeir kunni þetta og geri það vel? Mánuði síðar hitti ég vininn og spurði hann hvort hann hefði séð Heima og hann fór allur í hnút, viðurkenndi að þetta hefði nú farið yfir strikið, þjóðrembingurinn væri orðinn alltof mikill, og við enduðum í sama rifrildinu og áður nema búnir að skiptast á skotgröfum, ég í hans og hann í mínum. Og höfðum báðir sitthvað til okkar máls. Ég held að fólk skipti miklu oftar um skoðun en maður ímyndar sér – og maður sjálfur – það gerist bara ekki í augnablikinu. Og það gerist ekki heldur átakalaust.

Samfélagssamræðan er ekki og má ekki vera fasti og við verðum að geta leyft okkur að rífa svolítið kjaft, brýna svolítið raustina og jafnvel æpa þjóðsönginn hvert á annað, blindfull og bláedrú. Það er kannski ekki málefnalegt en það er mannlegt og gleðilegt og við megum alveg við því. Góð átök eiga að geta verið einsog að dansa við einhvern – dansinum geta fylgt ýtingar, tramp á tám, taktleysi, gredda, andfýla, ást, bjórstokkin gólf, reykfyllt rými og allt þar á milli. Og stundum strunsar maður út af dansgólfinu, alveg kominn með nóg af þessu rugli. En ef maður gleymir því að manni finnst gaman að dansa – að það er hreinlega lífinu mikilvægt – hefur maður misst ansi mikið.

Hverju viltu ná fram með þessu verki? Eða hvað vill Hans Blær?

Maður á ábyggilega ekki að viðurkenna það en ég hef ekki hugmynd um hverju ég vil ná fram með þessu verki – frekar en Hans Blær veit hvað hán ætlast fyrir með hegðun sinni. Þetta er allt einhvers konar ferðalag eða rannsókn. Ef ég vissi hverju ég vildi ná fram með einhverri vissu væri ég sennilega aktífisti eða sjálfshjálparbókarhöfundur eða eitthvað álíka – eftir atvikum. Skáldskapur er aðferð til þess að hugsa sem krefst þess ekki að maður komist að neinni niðurstöðu – troll er svo aðferð til þess að hugsa sem minnst og komast ekki að neinni niðurstöðu.

Ég geri raunar þá einu kröfu á skáldskap, sem lesandi, að hann mati mig ekki á niðurstöðu eða einhlítum svörum. Ég vil að sýn mín á heiminn sé stærri og flóknari þegar ég legg frá mér bók en áður en ég tók hana upp. Margbrotnari. Og kannski vil ég líka finna fyrir þeirri tilfinningu að það sé alltílagi. Að það sé alltílagi að heimurinn sé flókinn og stór og það séu engin einhlít svör heldur verði maður bara að halda áfram að pota sig áfram í myrkrinu, misstíga sig, meiða sig og aðra og lifa í limbói.

Mér finnst bókin að miklu leyti fjalla um vald. Valdið, sem oft er talað um innan trans hreyfingarinnar, til að skilgreina sig (eða ekki) sjálf, felur ekki í sér ofbeldi, en á sama tíma virðist samfélagið upplifa það sem einhvers konar ógn.

Í bókinni má finna margs konar vald, bæði þetta vald yfir sjálfinu og svo valdið sem felst í norminu. Hverjar eru þínar hugmyndir um vald? Er valdið alltaf í höndum þess sem tilheyrir norminu eða fer það eftir samhengi og kannski stétt?

Vald hangir alltaf saman við aðstæður. Ég man eftir að hafa séð í íranskri heimildarmynd fyrir mörgum árum hjón þar sem þetta varð svo skýrt – á heimili þeirra réð hann einfaldlega í stofunni en hún í eldhúsinu. Í stofunni var hún lúpuleg og hann stórkarlalegur en í eldhúsinu hafði hún hann að grimmilegu háði og hann hrökklaðist bara út. Þetta er auðvitað öfgakennt dæmi og breytir engu um veruleikann sem mætti þeim hjónum fyrir utan veggi heimilisins. En það skiptir hins vegar máli hvaða samfélagi og samfélögum maður tilheyrir, og í hvaða félagslega rými maður er staddur hverju sinni. Sjálfsvirðing hangir til dæmis saman við æru og æru fær maður af tilteknu samfélagi. Það skiptir mig engu máli hvað einhverjum heimdellingum finnst um mig vegna þess að ég á svo fáa snertifleti við þann heim – en lopapeysulýðurinn er bara ég, mín sjálfsmynd, minn heimur, og þegar hann sussar á mig tek ég andköf. Það er þá sem ég verð átakafælinn. Samt er miklu líklegra að heimdellingarnir endi í valdastöðum í þjóðfélaginu. Það eru bara ekki valdastöðurnar sem skipta mig mestu – þeir verða ekki forleggjarar, ritstjórar, stjórnendur listahátíða eða í stjórn listamannalauna.

Það má segja að valdið sé í höndum þess sem tilheyrir norminu – ríkjandi meirihluta – en það séu ólík norm ríkjandi eftir samfélögum. Og þá þarf maður ekki að leita alla leiðina til Íran. Það gilda ekki sömu norm á Kaffibarnum og á Landsbókasafninu, í Öskjuhlíðinni og Vesturbæjarlauginni, á Ísafirði og Egilsstöðum, á Hlemmi Mathöll og Granda Mathöll. Það spilar ekki endilega með þér að vera stórriddari í Frímúrarareglunni á fundi hjá Hernaðarandstæðingum. Allt okkar vald er bundið einhverju tengslaneti og tengslanetið hangir á ærunni. Ef þú segir eða gerir eitthvað vitlaust geturðu skyndilega staðið uppi einn og valdalaus í heiminum.

Hans Blær hefur sparkað í alla sem nálægt hánum standa og talið sig sjálfstætt – en þegar til kastanna kemur hefur hán samt reitt sig á stóra samfélagið, gleðina sem einhver andlitslaus múgur hefur af grimmum ólíkindalátunum í hánum, skandalaþörf múgsins, og það er ekki fyrren hán loks gengur fram af þeim múg að hán glatar valdinu og þarf að leggja á flótta.

Já, vald fer að miklu leyti eftir samhengi hverju sinni. Til dæmis er þægilegra að tilheyra minnihlutahópi þegar maður mætir á fund innan samtaka þess hóps – ekki vera í minnihluta. En annars er yfirleitt þægilegra að vera „bara venjulegur“, og þú skilur hvað ég á við með þessu orði – þótt skekkjumörkin séu einhver – og þar liggur normið. Og í norminu felst valdið, almennt séð.

Síðan eru norm og valdastöður innan hvers hóps. En efst í valdapíramída okkar vestræna heims trónir karlmaðurinn, hvítur og gagnkynhneigður, ekki satt?

Við fáum völd af ýmsu – félagslegt samhengi, persónuleg saga og sjálfsmynd (kyn, kynþáttur, kynhneigð o.s.frv.) skipta þar yfirleitt gríðarmiklu máli. Ef allt annað er jafnt trónir hvíti, gagnkynhneigði karlmaðurinn efstur. En allt annað er bara sjaldnast jafnt. Karlmaðurinn getur til dæmis verið ærulaus af einni eða annarri ástæðu. Og í þessari hírarkíu valdaþátta er allt þetta samt undirskipað fjárhag viðkomandi. Það er enginn einn þáttur sem ræður nærri jafn miklu um völd okkar og það hversu mikla peninga við eigum eða höfum aðgang að. Og ekkert sem kemst nærri því. Þú kaupir þig ekki alla leiðina út úr því að tilheyra ofsóttum jaðarhópi – hvort sem þú ert gyðingur eða transkona – en þú ferð samt andskoti langt ef þú átt nóg af peningum og getur endað í allt öðru sólkerfi en einhver hvítur gagnkynhneigður verkakarl. Auk þess er ótrúlega stór hluti af ídentítetsmismunun samfélagsins einfaldlega byggður inn í kapítalið – launamunur stéttanna er ekki fáein heldur fleiri hundruð prósent og þar eru kvenna- og útlendingastörfin á botninum.

Eitt af vandamálum ídentítetspólitíkurinnar er líka að þegar hún notar orðin hvítur og gagnkynhneigður og karlmaður og sís sem hnjóðsyrði þá rýfur hún þá samstöðu sem hinum undirskipuðu samfélagsins er nauðsynleg, ætli þau að fella samfélag ójafnaðarins. Við erum ótrúlega mörg sem höfum því sem næst ekkert um líf okkar að segja – erum valdalaus.

Ekkert af þessu breytir svo því að flestar ríkar konur eiga ekki peningana sína sjálfar – Melania á auðæfi sín í Donald og er honum undirskipuð – og að verkakonur sitja oft uppi með kvöldmatinn, uppvaskið og þvottavélina þegar vinnudeginum lýkur. Og það breytir heldur engu um þá fordóma sem transfólk eða samkynhneigðir eða útlendingar eða hörundsdökkir mæta í sínu daglega lífi. Og það þarf tungumál og orðræðu sem tekst á við þetta – en ekki á kostnað þess að við gerum lítið úr hinu (eða hinum), einsog oft er raunin.

Talandi um uppvask og heimilisstörf. Mig langaði aðeins að tala um fjölskylduna við þig. Í bókinni eru nokkrar senur þar sem Hans Blær kemur hræðilega fram við mömmu sína. Eins og það skipti engu máli að þetta sé mamma hánar, sem elskar hána skilyrðislaust, hún sleppur ekki við andlega tilraunastarfsemi. Þegar ég las þær senur komst ég næst því að hugsa að Hans Blær væri illt.

Hans Blær situr náttúrulega uppi með móður sem lét hána alltaf þykjast – ekki vegna þess að hún væri vond heldur vegna þess að annað var einfaldlega varla í boði. Hún skildi ekki hvað barnið hennar var og það er ekkert í heiminum mannlegra en að loka augunum fyrir því sem við skiljum ekki og láta einsog það sé bara ekki til. Af því það kostar átök, kostar hugrekki og við erum ekki alltaf hugrökk – við erum breysk. Sennilega er það höfuðástæðan fyrir þessari þráhyggjufullu fyrirlitningu Hans Blævar á hugleysinu. Mamma hánar, Lotta, þorði ekki þegar það hefði skipt mestu.

Hans Blær fyrirlítur samt ekki móður sína – hán reynir ítrekað að elska hana og sennilega er hán ekki mannlegri í afstöðu sinni til neins annars – en hán fyrirlítur hugleysi hennar og það að hún hafi brugðist sér. Þegar hán leikur sér að móður sinni er það líka oftar en ekki til þess að fá hana til að sýna af sér hugrekki, etja henni út í átök – hán vill að hún sýni sér að hún geti tekið slaginn fyrir sig. Þessi hvöt brýst út í hálfgerðum sadisma, en hvötin sem slík er ekki röng.

En þessi skilyrðislausa ást, er hún til?

Fjölskylda er fyrir mér fyrst og fremst bakland. Það er fólkið sem stendur með þér jafnvel þótt allir aðrir gefi skít í þig. Ég segi ekki sama hvað – en næstum sama hvað. Þar ríkir ekki alltaf skilyrðislaus ást en þar ríkir samstaða þegar ástin þverr. Maður getur hætt að elska og skilið við maka sinn, misst samband við börnin sín, rifist við systkini sín og reiðst foreldrum sínum en maður á samt að standa með þeim þegar þau þurfa á því að halda. Þess vegna ristir það líka svo djúpt þegar það bregst – engin svik eru verri.

Og hvað sem öllu öðru líður leitar Hans Blær líka til móður sinnar þegar allt fer til andskotans. Og hán gerir sitt besta til að eiga í eðlilegum samskiptum við hana – það lánast nú bara svona og svona, kringumstæðurnar eru erfiðar, en hán reynir samt.

Þrátt fyrir að Hans Blær sé væntanlega ekki málpípa höfundar þá skín samt í gegn ákveðin þjóðfélagsádeila. Til dæmis þar sem talað er um aðkomuleysi ríkisins í stofnunum sem sinna utangarðsfólki og þeim sem minna mega sín:

Ríkið tímdi ekki að reka góðgerðarstofnanir sjálft – ekki meðferðarheimilin, fátækrahjálpina, kvennaathvörfin, utangarðsmannaskýlin eða annað sambærilegt – og fékk þjónustuna ódýrar hjá sjálfboðaliðum og hugsjónafólki, sem þurftu ekki að gera til sín sömu kröfur og hið opinbera. Þegar eitthvað fór úrskeiðis gátu stjórnmálamennirnir líka varpað ábyrgðinni frá sér. (bls. 171)

Hvar liggja mörk skáldskapar og þjóðfélagsádeilu?

Ef markmið höfundar er að koma skoðunum sínum á framfæri er hann allavega kominn yfir mörkin. Sem þýðir ekki að skoðanir höfundar og sögupersóna fari aldrei saman – við Hans Blær erum sammála um ýmislegt og ósammála um annað. Hán er hluti af mér en hán er ekki ég, hán er hán og skoðanir hánar ráðast af skapgerð hánar. Og hán er ekki búið til svo ég geti sannað eitthvað sem mér fannst fyrir – heldur til þess að skoða einhverja virkni í heiminum.

Sá sem skrifar skáldsögu fær aðgang að tilfinningalífi lesenda sinna – honum er beinlínis ætlað að koma róti á það – og það er ábyrgðarstaða, ekki síst pólitískt. Við getum mætt kjallaragreinum með allar varnir uppi en í skáldskap erum við nakin að bíða þess að verða hrærð. Þess vegna er innræting í skáldskap svona óþægileg. Það er ekki bara farið yfir einhver þeoretísk mörk milli skáldskapar og ádeilu – það er beinlínis farið yfir persónuleg mörk lesandans. Og mér finnst það sjálfum ekki endilega skárra þegar ég er sammála höfundinum. Ég hef reyndar lengi verið áhugasamur um það hvernig mörgum virðist finnast vondar bækur góðar ef þeir eru sammála predikunum höfundar – svona einsog alls kyns málsmetandi fólk vill meina að Atlas Shrugged eftir Ayn Rand sé góðar bókmenntir. Við eigum okkur ábyggilega öll þannig bók, einhverja bók sem okkur finnst voguð og rosaleg, en reynist svo bara vera, þegar maður gaumgæfir það, illa skrifað rant sem leikur sér að réttlætiskennd manns.

Ég staldraði við eftirfarandi texta í bókinni. Mér fannst hann kallast sterkt á við það sem við vorum að tala um varðandi að skrifa um reynsluheim annarra, en einnig þetta með að fá að lesa um ólíka reynslu.

Bækur eru í besta falli færar um að aðstoða mann við að setja upplifanir sínar í samhengi. En ef upplifunina skortir – ef maður hefur engin sönnunargögn um hana aðra en bókina, ef maður ber ekkert mar eftir harminn og hefur aldrei fengið sogmerki undan hamingjunni – þá verður allt samhengi sem hún lendir í falskt og það falska samhengi ber maður áfram á vængjum ójarðtengdrar menntunar, og í hennar nafni glepur maður nýja sakleysingja með nýjum bókum sem glepja aðra sakleysingja með öðrum bókum og fyrren varir býr maður í réttnefndum fílabeinsturni, frjáls undan efnisheiminum, í fullkomlega intelektúal paradís; sér og skilgreinir allt heimsins óréttlæti fyrir annarra hönd en skilur aldrei eigin stöðu í þessum hlægilega kosmós.

Er maður samt ekki alltaf að skilgreina sjálfan sig, setja sig í einhverja stöðu gagnvart textanum – og heiminum, eitthvert samhengi. Skilur maður einhvern tímann sjálfur sína stöðu?

Þarna er Hans Blær að færa rök fyrir eins konar verklegri menntun – þetta er næstum því marxískt. Því mætti auðvitað halda fram að lestur sé ekki ómerkilegri reynsla en að moka skurð og tvíhyggjan milli fræðilegs og verklegs náms óþörf. Við hérna á vesturlöndum lifum auðvitað meira og meira í hausunum á okkur eða í gegnum skjáinn.

Hugmyndin er sú að maður þurfi fjölþætta reynslu til þess að skilja sig – að svo miklu leyti sem maður getur skilið sig, það er aldrei fullkominn skilningur og leitinni lýkur aldrei. En maður þarf að hnita svolítið í kringum sig. Það fólk sem Hans Blær er að tala um, sem lifir í intelektúal paradís, er síðan svolítið einsog Don Kíkóti. Það hefur lesið svo mikið um dreka og kastala að þegar það lítur loks upp úr bókinni er heimurinn fullur af drekum og kastölum.

Nú þegar þú hefur dvalið langdvölum með Hans Blævi og þið standið á þeim tímamótum að hvort ykkar fer sína leið er kannski vert að spyrja hvað hán hefur kennt þér? Hvað skildi hán eftir – eða heldurðu að þú losnir einhvern tímann við hána?

Ég er enn að melta Hans Blævi. Hán hefur gefið mér tækifæri til að hugsa um ýmislegt og samveran hefur verið jafn fræðandi og ánægjuleg og hún hefur verið óþolandi, enda er hán óþolandi. Ég hef lært ýmislegt í bókstaflegum skilningi í heimildavinnunni. Ég get samt ekki sett fingurinn á það nákvæmlega hvað bókin eða sögupersónan hafa kennt mér, beinlínis. Kannski eitt og annað um mína eigin bresti, mína eigin frekju og athyglissýki og narsissisma og löngun til þess að vera í senn einstakur og anonym hluti af heildinni? Að sættast við mótsagnir mínar? Eitthvað svoleiðis.

← Allt safnið