Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Það voru möguleikar þarna

Á Kaffi Laugalæk, þar sem sýning Gunnars Jónssonar, Það eru möguleikar hér, var haldin.
Á Kaffi Laugalæk, þar sem sýning Gunnars Jónssonar, Það eru möguleikar hér, var haldin.

ÞAÐ VORU MÖGULEIKAR ÞARNA / COULD'VE BEEN A CONTENDER / ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA

Þegar ítalski málarinn Leonardo Da Vinci, úr samnefndri skáldsögu Dans Brown, settist – eða stóð, sennilega stóð hann – við strigann sem síðar varð Mona Lisa hafði hann ekki nema óljósa hugmynd um í hvað stefndi. Hann strekkti auðan strigann – ég held að maður strekki striga, en ég er auðvitað ekki myndlistarmenntaður, rétt svo stúdent – á trönurnar og hóf að mála þessa blessuðu konu, hver sem hún nú annars var, það veit held ég enginn fyrir víst. Og það eina sem blasti við honum voru möguleikarnir. Nei, afsakið, Mona Lisa er ekki máluð á striga – hún er máluð á fjöl, á ösp, á svokallaða asparfjöl. Svona hafa tímarnir nú breyst. En hvað um það. Þegar Da Vinci hafði strekkt asparfjölina á strigann (hljómar þetta ekki ósennilega samt, að strekkja asparfjöl? jæja, látum það standa) blasti ekkert við honum nema óendanlegir möguleikar. Kannski blöstu þeir strax við manninum sem felldi öspina. Hugsanlega við þeim sem sáði fyrir henni, þeim sem hlúði að henni – ekki að mér finnist líklegt að þess konar trjárækt hafi verið vinsæl á þessum tíma en maður veit aldrei. Kannski sáði Da Vinci fyrir henni sjálfur – möguleikinn er fyrir hendi – og starði svo ofan í holuna í óþolinmóðri bið eftir meistaraverkinu sem hann vissi að væri nú komið í ferli, komið í nefnd á vegum móður náttúru sem myndi svo skila af sér heimsóttasta málverki mannkynssögunnar. Með hans hjálp, auðvitað, hún gerir þetta ekki sjálf. Er á mála hjá þeim sem mála sjálfir, eða þannig. Og kannski hugsaði hann, þegar hann sleppti fræinu, að þetta væri allt til einskis hvort eð er, þessi helvítis málverk væru gersamlega tilgangslaus iðja enda fegurðin alltaf aðeins undan seilingar og jafnvel þegar maður handleiki hana í augnablik þá reynist hún eintómur bévítans hégómi sem gleður engan nema úrkynjaða borgarastéttina. Og kannski hugsaði hann að þetta gæti orðið hvað sem er – það þyrfti ekki að verða þetta málverk af þessari manneskju, hvað sem hún nú hét sú ágætis kona. Einsog það skipti einhverju máli hvað hún hét. Og auðvitað – það segir sig sjálft – byrjaði hann á því að mála VITLAUST MÁLVERK! Hugsið ykkur. Þið eruð hæfileikaríkasti myndlistarmaður í heimi – þið vaðið í seðlum og aðdáun samferðamanna ykkar – og þið setjist niður (eða standið) til þess að mála meistaraverkið. Og svo bara. Bleh. Það fer allt í handaskolum. Þið byrjið á því að mála einfalt landslag. (Vandræðalegt!) Svo málið þið kolvitlausa konu ofaná landslagið. Eða konu sem kannski minnir aðeins á konuna sem þið ætluðuð að mála. Nema hún kannski snýr á hlið og brosir ekki eða er öll eitthvað aðeins öðruvísi. Fingurnir á vitlausum stað. En alltaf eru þessir möguleikar þarna. Alltaf eitthvað spennandi að gerast. Einhver ótrúleg dýnamík. En ef þetta mistekst þá hefur það afdrifaríkar afleiðingar á feril ykkar sem listamenn. Þetta verk á annað hvort eftir að enda innan í einhverju húsgagni á sveitabæ skammt fyrir utan Arras í Pas-de-Calais, þar sem enginn sér það, eða einmitt í Louvre, merkilegasta listasafni jarðar, þar sem túristarnir troðast hver um annan þveran til að koma auga á það í svo mikið sem eina sekúndu áður en næsta hersing ýtir þeim á undan sér. Það er enginn millivegur. Bara dauði og frægð.

Dömur mínar og herrar, Gunnar Jónsson.

← Allt safnið