Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Textar sem dansa aðra orðum

An Anna Blume eftir Kurt Schwitters, 1919. <a href="https://commons.wikimedia.org/wiki/File:An_Anna_Blume.jpg">Wikimedia Commons</a>; höfundaréttur útrunninn.
An Anna Blume eftir Kurt Schwitters, 1919. Wikimedia Commons; höfundaréttur útrunninn.

Skáld mála ljóðmyndir af sjálfum sér í hálfgerðu óhófi – bera sig og afhjúpa, rýna í sálir sínar öskrandi og hjalandi á víxl og leggja blæðandi hjörtu sín á borðið svo aðrir megi sjá hve þau þjást. Og þau mála ljóðmyndir af náttúrunni allt um kring – spegla sig og heiminn gervallan í lækjarsprænum, hvirfilbyljum, fjallagörðum, hafinu, húsum og skipum og skepnum. En þau mála líka myndir af öðrum – bestu ástarljóðin eru líklega þau sem mála hinn elskaða en þau verstu hin sem ná aldrei út fyrir tilfinningasemi skáldsins. Það flýr enginn sjálfan sig, en öllum er hollt að gefa öðrum hlutdeild í sér – það er auðvelt að verða ástfanginn af eigin tilfinningum en erfitt að elska aðra. Auk þess má mín vegna halda því fram að enginn sé fær um að elska einn – óendurgoldin ást sé einfaldlega ekki til. En ég er áreiðanlega til í að gefa mig með það ef á mig er gengið. En það breytir því ekki að hið expressjóníska ástarljóð er eins konar rúnk á almannafæri.

* * *

Ef ég segði honum kynni hann við það. Kynni hann við það ef ég segði honum.
Kynni hann við það kynni Napóleón kynni Napóleón kynni kynni hann við það.
Ef Napóleón ef ég segði honum ef ég segði honum ef Napóleón. Kynni hann við það ef ég segði honum ef ég segði honum ef Napóleón. Kynni hann við það ef Napóleón ef Napóleón ef ég segði honum. Ef ég segði honum ef Napóleón ef Napóleón ef ég segði honum. Ef ég segði honum kynni hann við það kynni hann við það ef ég segði honum.
Núna.
Ekki núna.
Og núna.

Ef ég segði honum eftir Gertrude Stein frá árinu 1923 er ljóð um og fyrir listmálarann Pablo Picasso. Hann er ekki nefndur á nafn í ljóðinu, hann er ekki ávarpaður og kemur ekki beint við sögu á nokkurn hátt. Það mætti jafnvel spyrja: Hvað í ósköpunum hefur þetta með Pablo Picasso að gera?
Ljóðið er eitt af mörgum portrettum sem Gertrude Stein málaði af misfrægum samferðamönnum sínum – en líkt og alkunna er var hún hjartað í lista- og bókmenntakreðsum Parísarborgar á þriðja og fjórða áratugnum. Picasso var sjálfsagt þeirra frægastur og alveg áreiðanlega sá sem stóð henni næst.

* * *

Ó þú, sem elskuð ert af mínum tuttuguogsjö skilningarvitum, ég
elska þér! – Þú þína þig þér, ég þér, þú mér.
– Við?
Þetta á annars (í framhjáhlaupi) ekki að vera hér.
Hver ert þú, ótalda kvenpersóna? Þú ert
- - ert þú? – Fólkið sagði að þú værir – leyfum
– því segja, það veit ekkert hvað kirkjuklukkan slær.
Þú berð hattinn á fótum þér og gengur
á höndum, á höndunum gengur þú.

Anna Blóm eftir Kurt Schwitters frá árinu 1919 er portrett af óþekktri konu sem var líklega aldrei til. Höfundurinn (ég meina „ljóðmælandinn“!) er ekki einu sinni viss um tilvist þessarar ástkonu sinnar, sem hann málar engu að síður svona sterkum litum, svona sterkum tilfinningum. Ljóðið sló umsvifalaust í gegn og ku hafa gert Schwitters að frægum manni á einni nóttu. En það bakaði honum líka vandræði meðal sinna eigin – vinir Schwitters og kunningjar í Dada Berlin fordæmdu ljóðið á sínum tíma fyrir „óhóflega tilfinningasemi“ og fyrir að vera ópólitískt (sem er auðvitað misskilningur), en þegar hér var komið sögu voru krakkarnir í Dada Berlin smám saman að breyta félagsskapnum í bolsevískan byltingarklúbb. Gamla Dada starfaði í tóminu og ruddi sér til sífellt meira rúms; nýja Dada starfaði í samstöðunni og í samstöðunni var ekkert rúm fyrir gleðina; Dada Merz (sem var uppfinning Kurt Schwitters) starfaði í gleðinni.

Einn.
Ég lendi.
Tveir.
Ég lendi.
Þrír.
Landið.
Þrír
Landið.
Þrír.
Landið.
Tveir
Ég lendi.
Tveir
ég lendi.
Einn
ég lendi.
Tveir
ég lendi.

Gleðin í ljóðum Gertrude Stein er sérvitur og smámunasöm, byggir á þrástefjum með litlum, nákvæmum og mikilvægum tilbrigðum, einsog alþýðudansar; hún er óstýrilát einsog gamalmenni sem veit orðið hvernig það vill hafa hlutina og lætur sig engu skipta fagurfræði annarra.
Anna Blóm er ástarljóð í allra gröðustu merkingu þess orðs. Nafn hennar er endurtekið aftur og aftur (og fram og aftur) og merking ljóðsins undirstrikuð margsinnis: Kurt Schwitters í öllum föllum elskar Önnu Blóm í öllum föllum.

Anna Blóm! Anna, a-n-n-a, ég slefa nafni
þínu. Nafn þitt drýpur eins og mýksta nautgripatólg.
Veistu það, Anna, veistu það nú þegar?
Maður getur einnig lesið þig aftanfrá, og þú,
yndislegust allra, þú ert eins að framan og að
aftan: «a-n-n-a-».
Tólgin rennur gælandi yfir bak mér.
Anna Blóm, slefdýrið þitt, ég elska þér!

Bæði ljóðin eru eins konar hlutgervingar (einsog portrett hljóta í einhverjum skilningi alltaf að vera). Anna Blóm er smættuð niður í nafn sitt og líkama (en var kannski aldrei meira en tilbúið nafn og ímyndaður líkami) og Stein smættar Picasso niður í „orðin í sjálfum sér“. Óþekkta og/eða ímyndaða ástkonan og heimsfrægi vinurinn eru konkretíseruð og lokuð inni í litlu glerbúri svo heimurinn geti dáðst að dvergvöxnum eftirmyndum þeirra. Anna Blóm einsog erótískur dansari en Picasso næstum því einsog rannsóknarstofurotta – bæði verða óbjekt, Anna Blóm til aðgangsharðrar upphafningar en Picasso til aðgangsharðrar athugunar.

Lokur lokast og opnast líkt og drottningar. Lokast lokur og lokur og svo lokast lokur og lokur og svo og svo og lokur og svo lokast lokur og svo lokast lokur og lokur og svo. Og svo lokast lokur og svo og líka. Og líka og svo og svo og líka.
Nákvæm líkindi við nákvæm líkindi nákvæmra líkinda jafn nákvæm og líkindi, nákvæmlega jafnt og líkjast, líkjast nákvæmlega, nákvæmlega í líkindum nákvæm líkindi, nákvæmlega og líkindi. Því það er svo. Af því að.
Endurtakið nú að öllu rösklega, endurtakið nú að öllu rösklega, endurtakið nú að öllu rösklega.
Hafið haldið og heyrið, endurtakið að öllu rösklega.

Ljóðin ofbjóða venjulegri setningafræði á máta sem mér þykir hentugast að líkja við eins konar gleðidans eða regndans sem særir fram hamingjuna eða strípidans sem berháttar viðfangið (frekar en dansarann sjálfan), afklæðir með orðunum, afklæðir síðan orðin sjálf svo eftir stendur tilfinning fyrir heiminum, expressjónísk í tilfelli Schwitters en kúbísk í tilfelli Stein.
Schwitters parar saman fornöfnin á þol- þágu- og eignarhlekkjum þar til þau renna í eitt og enginn ræður lengur yfir öðrum, engin á eða er í þágu annars, valdaátökum elskendanna lýkur með samruna í fyrstu persónu fleirtölu: Við. Og það er ekki einu sinni fullyrðingar-við heldur spurnar-við, fullt hógværðar og varkárni.

Halló, þín rauðu klæði, söguð í hvítar fellingar.
Rauða elska ég Önnu Blóm, rauða elska ég þér! – Þú
þína þig þér, ég þér, þú mér. – Við?
Þetta á annars (í framhjáhlaupi) að vera í kaldri glóðinni.
Rauða Blóm, rauða Anna Blóm, hvað segir fólkið?
Verðspurning: 1.) Anna Blóm á fugl.
2.) Anna Blóm er rauð.
3.) Hvernig er fuglinn á litinn?
Blár er litur þíns gula hárs.
Rautt er kurrið í þínum græna fugli.
Þú látlausa stúlka í hversdagsklæðum, þú elskulega
græna dýr, ég elska þér! – Þú þína þig þér, ég
þér, þú mér, - Við?

Stein leikur sér með stóra stafi og punkta og kommur – en aldrei spurningarmerki („The question mark is alright when it is all alone when it is used as a brand on cattle or when it could be used in decoration but connected with writing it is completely entirely completely uninteresting […] I always found it positively revolting“1) – og einhvern veginn vekur fjarvera Picassos í textanum með manni tilfinningu fyrir einurð, fyrir handbragði, fyrir stórum og ólýsanlegum (en ekki óorðanlegum) hugsunum. Og myndin af Napóleon jaðrar ekki bara við að vera móðgandi, hún er svívirðing við aumingjans Picasso – aumingjans vin Gertrude Stein, listamanninn vinalega, sem líkt er við einhvern mesta dólg franskrar stjórnmálasögu. Það er ekki nokkur furða að hún skuli spyrja hvort hann kynni við það ef hún segði honum.

Þeir kunna ekki
Fljóta.
Þeir kunna ekki.
Þeir njóta.
Þeir kunna ekki.
Þeir sem móta.
Kraftaverk leika.
Leika þokkalega.
Leika þokkalega í lyndi.
Í lindum.
Aukindum.
Eins og eða eins og sem stendur.
Leyfið mér þylja hvað sagan kennir. Sagan kennir.

Ljóðin má finna í íslenskri þýðingu á slóðinni:
http://www.norddahl.org/ljoðaþyðingar/
Upprunalegu textana má finna á
http://www.writing.upenn.edu/~afilreis/88v/ifitoldnew.html
(„If I told him“ eftir Stein)
og http://members.peak.org/~dadaist/English/Graphics/annablume.html
(„An Anna Blume“ eftir Schwitters).

← Allt safnið