Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Sóttkvíareintalið

Horfa á YouTube ↗

[Kviknar á skjá VU.]
VU: Sumt fólk rís alltaf upp úr rústunum einsog Fönixinn úr öskunni. Það dustar einfaldlega af sér rykið og hefur sig síðan tígulega til flugs á glóandi fjöðrum og augnabliki síðar er einsog ekkert hafi dunið á í lífum þeirra.
[Kviknar á skjá HN]:
HN: Einhvern tíma lærði ég að það væru um 180 lönd í heiminum. Nú þegar ég slæ því upp kemur í ljós að kórónavírusinn hefur greinst í 210 af þessum 180 löndum, sem ég lærði um í æsku.
VU: Sagan segir okkur að þetta sé fólk sem býr yfir einstöku viðhorfi sigurvegarans – fólk sem lætur ekki bugast, rýnir ekki í hið neikvæða, lætur ekki draga sig niður í svaðið, fólkið sem við lesum um í sjálfshjálparbókunum.
[Kviknar á skjá HU – lasinn í rúmi].
HU VEIFAR. VU OG HN „veifa“ til baka.
VU: En sagan lýgur. Fyrst og fremst er þetta heppið fólk og fjáð – glóandi vængir þess eru ekki vængir heldur silfurskeiðar og sterkur viljinn til marks um áfallaleysi í lífinu frekar en einfaldan styrk. Haltri fólk ekki er það vegna þess að það hefur aldrei orðið fyrir neinu sem valdið getur helti.
HN: Víðast hvar hefur verið komið á samkomu- og útgöngubönnum – og jafnvel þar sem tilmæli eru látin duga fer fólk helst ekki mikið úr húsi. Við höfum byrgt okkur inni – ekki beinlínis upp á vatn og brauð og svo sannarlega ekki í mikilli félagslegri einangrun miðað við hvað sömu bönn hefðu þýtt fyrir þrjátíu árum eða svo – en inni erum við samt og sum okkar áreiðanlega dálítið vönkuð, dálítið ringluð, dálítið pirruð, með galsa og andvaka um nætur af stefnuleysi og óvissu. Foreldrar mínir eiga heima í næstu götu og það er einfaldlega súrrealískt að mega ekki kíkja í kaffi.
VU: Ég segi þetta ekki til að gera lítið úr þeim sem ekki hafa þjáðst. Það er ekki dygð að þjást og ekki til eftirbreytni – og það jafnt þótt þjáningin kenni okkur ýmislegt – og það er sannarlega ekki löstur að alast upp við allsnægtir og öryggi. Þvert á móti eru allsnægtir og öryggi það sem við stefnum öll að og það sem við óskum að verði hlutskipti barnanna okkar, og skiptir þá engu hvort við erum grjótharðir frjálshyggjumenn eða harðlínukommúnistar. Ég segi þetta til að minna okkur á alla hina – þá sem eiga erfiðara með að breiða út vænghafið, þá sem eru haltir.
HN: Börnin mín mega ekki leika við vini sína. Það er enginn skóli hér fyrir vestan og verður ekki í bráð. Mér er sagt að það sé Bolvíkingum að kenna, þeir séu alltaf úti að grilla og smita, skokka og smita. Á dögunum komu þeir saman í stórum hóp til að syngja fyrir veika fólkið á elliheimilinu. Sennilega kenna þeir okkur um, Ísfirðingum, og ég skal svo sem viðurkenna að ég hef frétt af fólki sem vildi halda upp á páska með fjölskyldunni og vildi halda upp á sumardaginn fyrsta með vinum og fannst ekki nóg að hittast á zoom. [Lítur upp og til vinstri]. Við höfum ekkert að gera nema fara út að ganga og erum öll meira og minna að troðast á sama göngustígnum dag eftir dag.
VU: Þegar þjóðfélög verða fyrir stórum áföllum má undantekningalítið treysta því að þungi þessara áfalla dreifist ekki jafnt. Þess utan má líka treysta á að það séu ekki allir jafn undir það búnir að bera aukinn þunga.
[Kviknar á skjá VN. Þar situr enginn. VN sest].
[HEILSA NIÐUR]
VN: Afsakið að ég er seinn. Krakkarnir voru niðri í fjöru að leika sér og komu blautir heim og búnir að vera að rífast, og með einhverjum öðrum krökkum auðvitað – Nadja er á fjarfundi í svefnherberginu og það er eitthvað vesen á KrakkaRÚVinu ...
VU: Fólk sem lifir á illbifanlegum lágmarkslaunum á ekki digra sjóði til að fleyta sér í gegnum efnahagslægðir; og það eiga ekki allir slíkt skjól á heimilum sínum að sér sé hollt að vera þar læstir inni svo vikum skiptir. Það fylgir því mikið álag að vera í stöðugum samvistum við sama fólkið dag eftir dag, linnulaust, og krefst mikillar þolinmæði og diplómatískra hæfileika jafnvel á ljúfustu heimilum. En við vitum líka að það eru ekki öll heimili ljúf, ekki allir heimilismenn ljúfir – til eru þeir sem hafa skjól af veggjum heimilisins með öfugum formerkjum, þeir sem fá hvergi frið og ró nema utan þeirra, upplifa hvergi öryggi nema úti á götu eða í skóla og vinnu, þar sem til þeirra sést.
[VN fær barn í fangið]
VN: Nágrannar mínir virða ekki samkomubannið. Mér er sagt að maður eigi ekki að hitta neinn. Maður eigi að haga sér einsog maður sé smitandi. En svo bjóða þeir hver öðrum yfir í garð, bjóða hver öðrum bjór og kaffi, standa við girðingarnar sínar og frussa yfir gamalmenni á gangi. Börnin þeirra leika saman. Börnin í hverfinu fara um í hópum, skríkjandi af kátínu, á meðan mín börn liggja á glugganum volandi og vilja vita hvers vegna aðrir megi leika meðan þau mega ekki fara út nema undir eftirliti.
5.15
HN: Nú hafa dáið sem nemur hálfu Íslandi úr kórónaveirunni – Covid-19. Ríflega 170 þúsund manns. Eða ... þetta eru staðfest dauðsföll – leiða má líkum að því dánir séu helmingi fleiri, að í raun hafi allt Ísland dáið úr kórónaveirunni. Allir. Amma þín, afi þinn, frænkur og frændur – við erum ekki bara læst inni heldur beinlínis dauð. Það er ekki bara að við fáum ekki að borða á veitingastöðum og faðma vini okkar og fara á djammið eða stunda eðlilegt nám og eðlilega vinnu; það er ekki bara að við megum ekki halda upp á afmælin okkar – við eigum engin afmæli lengur. Þetta [lítur upp og til vinstri] eru bara eftirskjálftarnir.
VU: Á erfiðum tímum þurfum við að sýna samstöðu. Stórir með smáum. Við þurfum að huga að þeim sem þola ekki einveruna – þá sem tryllast. Lækningin má ekki drepa sjúklinginn þegar hún upprætir sjúkdóminn. Við viljum ekki læsa fólk inni með ofbeldismönnum og við viljum ekki ota snörunni að þunglyndissjúklingum.
VN: Það þurfa allir að fara út og fá sér frískt loft. Frískt loft heldur lífi í fólki.
HN: Það þurfa allir faðmlag. Faðmlög halda lífi í fólki. Við lifum ekki án mannlegs samneytis. 6.38
VN: Eru ekki allir á Facebook? Eru ekki allir með tölvupóst? Það er ekki 19. öldin. Þú getur átt mannlegt samneyti inni í svefnherbergi, án þess einu sinni að fara á fætur eða draga frá gluggatjöldin.
HN: Kannski getur maður bara faðmað sjálfan sig. [Faðmar sjálfan sig]. 6.57 er faðmlag búið
6:55: VN: Ég skil bara ekki hvers vegna reglurnar eru ekki skýrari.
6:58: HN: Reglur eru hvergi skýrar nema í lögregluríkjum. Í lýðræðisríkjum höfum við reglurnar loðnar og nóg af undantekningum. Þú gætir þín betur ef þú veist ekki hvar línan er – ef þú veist aldrei hvort þú ert alveg að fara yfir hana eða ekki. Þá er hið opinbera líka með fjarvistarsönnun – þér hefur aldrei verið bannað neitt, þú hefur bara fengið vinsamleg tilmæli.
VN: Og þér finnst þú aldrei gera nógu vel vegna þess að þú veist aldrei hvað er nógu gott.
HN: Þetta er póstmódern fasisminn. Þú átt ekki bara að hlýða
VN: Víði ...
HN: Þú átt líka að vera með samviskubit yfir því að hlýða ...
VN: Víði ...
HN: ... ekki nóg.
7.31: VU: En eymdin er ekkert til að hlæja að. Allsleysið er ekkert til að hlæja að. Atvinnuleysi er ekkert til að hlæja að.
HN: Og það er ekki bara að fólk sé að deyja. Hvað með lungnaskaðann, taugaskaðann – og andlega skaðann. Ef þjóðin væri ekki dauð væri hún með áfallastreituröskun.
VN: Hvað með þá sem missa vinnuna?
HN: Efnahagurinn getur ekki þurft að vera í forgangi. Alltaf hreint.
VN: Hvernig eiga þeir að borga leiguna?
HN: Nú þarf kapítalisminn bara að hvíla sig.
VN: Það þarf að endurreisa atvinnuvegina. Ferðamennskan ...
HN: Ferðamennskan var aldrei að fara að endast. Þetta var bóla – einsog tölvubólan og bankabólan. Það hefur verið ljóst í áratugi að við þurfum að draga saman seglin. Bara kolefnisfótsporið – fyrir umhverfið er þetta gríðarlega heppilegt allt saman. Við gátum aldrei valsað svona um veröldina án þess að það hefði afleiðingar.
HU: Enda er manneskjan vírus. Og vírus á vírus ... þið vitið. Óvinur óvinar míns.
VN: Fólk þarf að eiga fyrir mat. Og fleiru. Allur samdráttur verður á kostnað þeirra sem sitja í lægstu lögum samfélagsins. Þau verða látin borga kreppuna.
VU: Þau höltu. Þau sem ekki geta breitt út tígulega vængina. Ef okkur lánast ekki að fljúga saman í gegnum auga stormsins munum við brotlenda niðurlægð einsog Íkarus í blóðugu votlendi hjartans með ...

VN: Ókei. Vá.
VU: Staðan er grafalvarleg.
HN: Hver sem svo refsing okkar er núna eigum við hana skilið – það sem náttúran gerir okkur úr þessu er alltaf minna en það sem við höfum gert náttúrunni. Að hún hafni okkur einsog hverju öðru kýli ætti bara ekki að koma nokkrum manni á óvart.
VN: Þetta hljómar allt svo trúarlega. Þú talar um náttúruna einsog hún hafi vilja.
HN: Við höfum lagt víðernin undir okkur, grafið upp alla málma, beislað alla orku, ryksugað fiskinn úr hafinu, gert dýrategundirnar að þrælum okkar og fæðu, fyllt himininn af stálfákum, andrúmsloftið af bensíngufum og úthöfin af plasti. Og eftir framlaginu er okkur launað. Við getum látið af rányrkjunni eða dáið – annað er ekki í boði.
VN: Og hver heldur þú að borgi fyrir það ef „rányrkjunni“ verði hætt? Hver heldur þú að fái að finna til svengdar ef það kemur ekki fiskur úr sjónum – hver heldur þú að verði látinn sitja heima meðan hinir ferðast?
VU: Við, sem þjóð, sem þjóðir – við hérna á þessari plánetu – þurfum að venjast því að hugsa um talfæri okkar einsog vopn. Allt sem fer út um þessar varir getur drepið. Við frussum hreinum dauða.
VN: Það eru alltaf smælingjarnir sem eru látnir borga.
VU: Það þarf ekki faðmlag til og tveir metrar er ekki nóg – tveir er bara tala dregin úr hatti rétt einsog fimm í fimm manna samkomubanni og fimmtíu í fimmtíu manna samkomubanni og fimm hundruð í fimm hundruð manna samkomubanni. Það eru engar tölur lengur sem skipta máli aðrar en einn. Annað hvort dey ég eða ég lifi af.
HU: Og þá dó einn.
VN: Það deyja sjö þúsund manns á dag. Ekki einn.
VU: En það deyja allir einir.
VN: Frá því þú [Lítur til vinstri] skrifaðir að 170 þúsund manns hefðu dáið ...
HN: Sagði. Ekki skrifaði.
VN: Frá því þú SKRIFAÐIR að 170 þúsund manns hefðu dáið hafa dáið tíu þúsund manns í viðbót. Þegar þetta fer í loftið verða þeir sennilega fleiri en 200 þúsund.
HN: Það er ekki nóg. Með þessu áframhaldi þurrkumst við aldrei út.
VN: Nei.
HU: Nei, nei.
VU: Við þurrkumst ekki út. Látum ekki þurrka okkur út. Við höfum lifað af stórubólu og spænsku veikina og við lifum þetta af.
VN: Við höfum lifað af svo margt.
HU: Allt hingað til.
VN: Eða svo gott sem.
[stara í myndavélina]

← Allt safnið