17. september
Viðvörun: Hér verður vaðið úr einu í annað.
Það er stórt og mikið viðtal við Anders Tegnell í DN í dag (maður þarf
að vera áskrifandi til að lesa það). Helsti fréttapunkturinn þar er að
há dánartíðni í Svíþjóð komi að hluta til af því að fáir hafi veikst af
inflúensunni 2019 – margir þeirra sem hafi setið við grafarbakkann þá
hafi ekki farið yfir fyrren Covid-19 bankaði upp á. Ég rakst reyndar á
þá tölfræði í vikunni að ekki nema 50-60% andláta hefðu átt sér stað á
hjúkrunarheimilum í Svíþjóð (og fylgdi sögunni að það væri sama hlutfall
og í Noregi). Ég hélt það væri hærra enda hefur málflutningurinn mikið
til gengið út á að hann útskýrði stóra muninn milli þjóðanna – en hann
er ekki tvöfaldur heldur tífaldur. Ef enginn hefði dáið á
hjúkrunarheimili í Svíþjóð hefðu samt dáið 290 af milljón (tæplega 3000
manns) vs. 48 af milljón í Noregi.
En það var í sjálfu sér ekki það sem ég stoppaði við í þessu viðtali
heldur hitt að blaðamaður og Tegnell ræða hvert norðurlandanna hafi
komið best út úr kófinu hingað til og eru sammála um að það sé Finnland.
Nú mætti sosum fara að rífast við þetta út frá tölunum og segja að í
Finnlandi hafi þrátt fyrir allt dáið helmingi fleiri en á Íslandi miðað
við höfðatölu og þótt fleiri Íslendingar hafi verið bókfærðir með covid
þá sé þar um að kenna miklu víðtækari testum. En ég held þetta snúist
ekki um það heldur hitt – sem ég hafði á orði hér einhvers staðar á
dögunum og ég er farinn að taka meira og meira eftir í sænskum
fjölmiðlum (frekar en finnskum, norskum, dönskum eða færeyskum – ég les
aldrei grænlenska eða sapmíska) að þegar rætt er um „norðurlöndin“ er
Ísland alls ekki með. Frekar en maður bara færi að ræða sérstaklega
covid-stöðuna á Skálasnagavita – hversu mörg prósent vitavarðarins hafa
dáið úr covid? Hvað skoraði hann hátt í PISA? Hvað tekur hann á móti
mörgum flóttamönnum og hversu margir hans eru innflytjendur? Ísland er
of lítið eða ómerkilegt til þess að sitja við fullorðinsborðið.
Aðspurðir hvort Ísland sé með myndu svíar alltaf svara já – af því annað
væri ekki PC – en þeir færu seint að ræða um landið þannig að fyrra
bragði.
Þetta er stóra bróðurs mentalítetið (sama mentalítet og gerir það að
verkum að svíar geta ekki viðurkennt að þeir hafi gert nein alvarlegri
mistök í covid-ferlinu) og það hrjáir að mér sýnist síður norðmenn, dani
og finna. Kannski af því að þeir eiga stóran bróður í Svíþjóð og þurfa
því að eiga lítinn bróður til þess að finnast þeir sjálfir stórir –
annars eru þeir allir minnstir. Á Íslandi þekkir maður þetta meðal
annars sem höfuðborgarsyndróm – það hvernig viðmið allra frétta er
suðvesturhornið, hvort sem sagt er frá væntanlegu sumarbongói eða
flutningi ríkisstofnana (þær eru aldrei fluttar neitt nema út á land –
það er alger minniháttar frétt ef ríkið opnar skrifstofu í Reykjavík).
Aftur mætti svo heimfæra sams konar sýn – eða blindu, réttara sagt – á
afstöðu Ísfirðinga til gangstéttanna í öðrum bæjarkjörnum
Ísafjarðarbæjar, Þingeyri, Flateyri eða Suðureyri. Það mætti sannarlega
líka ræða um það hvernig kynþættir og kyn eða aðrir þjóðfélagshópar
hverfa í vissu samhengi – allar nafnlausu konurnar á blaðamyndunum, til
dæmis – eða spjallþættina þar sem sama fólkið með sömu lífssýnina mætir
viku eftir viku (*hóst* gísli marteinn *hóst*) og fleira og fleira.
25. september
Fréttir frá Svíþjóð. Að venju verður vaðið svolítið úr einu í
annað.
Okkar maður hjá Folkhälsomyndigheten, stórstjarnan Anders Tegnell, var á
dögunum gerður afturreka með þá kenningu sína að kórónaveiran hefði
verið Svíum hörð vegna þess að inflúensufaraldurinn árið áður hafi verið
svo mildur (og þar með hefðu þeir sem lifðu hann af bara hrokkið strax
upp af þegar covid bankaði uppá). Svenska Dagbladet fór á stúfana og
komst að því að inflúensufaraldurinn hafði víða verið mildur og þetta
gæti ekki verið afgerandi þáttur. Í viðtalinu við Tegnell vísar hann
meðal annars í YouTube-myndband frá írskum vísindamanni sem heitir Ivor
Cummins. Í myndbandi þessu fer Cummins yfir sextán mögulegar orsakir
fyrir háum dánartölum Svía. Cummins er menntaður verkfræðingur sem
hingað til hefur sérhæft sig í megrunarkúrum. Hann kallar sig „Fat
Emperor“ á internetinu og tilbiður við altari ketósunar, skrifar bækur
og fer mikinn á samfélagsmiðlum, þar sem hann býður gjarnan uppá óvæntar
útskýringar og er með samsæriskenningar á reiðum höndum. Síðustu
misserin hefur hann einsog svo margir aðrir beint athygli sinni að
kórónaveirunni. Tegnell bakkar samt ekki – ég hef ekki séð hann
kommentera neitt greinina í Svenska Dagbladet en um Cummins segist hann
vita hver hann sé og hann hafi ekki verið að vísa í hann sem slíkan,
heldur greinina sem hann væri að vísa í (sem eftir því sem ég kemst næst
er samt meðal annars byggð á upplýsingum frá Cummins sjálfum – og mjög
langt frá því að vera ritrýnd vísindagrein). Mér sýndist hún ritrýnd,
segir Tegnell, en DN hefur afhjúpað að á fyrstu síðu greinarinnar
stendur skýrum stöfum að hún sé það ekki.
Einu sinni starfaði vinur minn sem aðstoðarmaður kennara við háskóla.
Svona með námi – vinurinn var sjálfur nýbyrjaður í háskóla. Þegar kom að
prófatímanum las kennarinn stundum upp ritgerðasvör fyrir nemandann og
spurði hvað honum þætti. „Er þetta sjöa? Átta kannski? Ekki nía ...?“
Vinur minn var miður sín yfir þessari innsýn í þá léttúð sem hægt var að
sýna í einkunnagjöf – að kennarinn væri ekki bara að giska út í loftið
heldur hreinlega spyrja um álit einhvers ómenntaðs strákpungs, sem hafði
annars það hlutverk að flokka skjöl og ljósrita. Svona líður mér þegar
ég uppgötva að Tegnell sitji bara og YouTube-i faraldursútskýringum
einsog hann sé að reyna að skipta um varahlut í sláttuvél. Og ég verð að
viðurkenna að þegar þríeykið fór í gær að tala um að þið ættuð öll að
lækka róminn á börum, til þess að fruss-smita síður – þótt ég trúi alveg
að það sé satt og sannanlegt í kontróleruðum rannsóknum, frekar en
kannski á eiginlegum börum þar sem fólk lætur ekki sussa á sig – þá
fannst mér það hljóma líka svolítið einsog hollráð af YouTube.
5. október
Fréttir frá Svíþjóð: Forstjóri folkhälsomyndigheten segir að Svíar séu
að slaka á verðinum og verði að þola „hömlurnar“ í a.m.k. ár til
viðbótar (sem þýðir þá væntanlega að ekkert verði af Iron Maiden
tónleikunum okkar Arams í Gautaborg næsta sumar). Á Íslandi virðast
margir halda að sænskar hömlur séu engar hömlur en það er ekki alveg
satt. Hér er t.d. 50 manna samkomubann – sé þar framfært nokkurt
skemmtiatriði (51 og fleiri mega koma saman á veitingastað, en ef það
fer trúbador upp á svið verður a.m.k. einn að fara út) og búist er við
að það verði rýmkað upp í 500 manns þann 15. október, enda verði rúmt um
pláss og ítrustu varkárni gætt. Bókamessan í Gautaborg var flutt á netið
– ég fór til Malmö til að taka upp minn hluta – og eins hefur farið um
alla stærri viðburði (sem ekki var hreinlega aflýst). Þá var gestabann á
elliheimilum en því hefur verið aflétt þrátt fyrir teikn um að veiran sé
að færast í aukana hér líkt og annars staðar (minna þó en á Íslandi).
Talað hefur verið um að það sé ómanneskjulegt að banna fólki að hittast,
og jafnvel mannréttindabrot, sérstaklega þegar um er að ræða fólk sem
mun þá kannski aldrei hitta neinn aftur meðan það lifir.
Annars eru það tilmæli um að halda fjarlægð (gjarnan talað um einn og
hálfan metra), þvo sér um hendur, ekki vera á þvælingi með mildustu
einkenni o.s.frv. Atvinnurekendum virðist í sjálfsvald sett hversu
miklar aðgerðir þeir fara í á hverjum stað – þannig er annað hvort borð
„frátekið“ á einu kaffihúsi en þéttsetið rass við rass á því næsta. Í
ræktinni minni hér í Västerås er annað hvert hlaupabretti „lokað“ en í
ræktinni sem ég heimsótti í Malmö – sem tilheyrir sömu keðju – var því
ekki að heilsa. Á hvorugum staðnum eru starfsmenn nema fáeinar
klukkustundir á dag og í Malmö var pappírinn sem maður notar til þess að
þurrka af sprittuðum tækjum búinn.
Spritt er víða til staðar en fer oft lítið fyrir því – stendur ekki á
standi við inngang verslana, heldur frekar bara í litlum apótekarabrúsa
við afgreiðsluborðið. Talsvert er um plastskermi við þessi
afgreiðsluborð – en það er líka talsvert um að fólk heyri ekki hvert í
öðru fyrir þeim og halli sér framhjá þeim til þess að tala saman. Ég
geng ekki svo langt að segja að hér sé „tveggja metra reglan ekki til“ –
eða einsoghálfsmetersreglan – en það er allavega mjög langt í þá
varkárni sem mér fannst fólk sýna á Ísafirði í vor. Varkárnin er kannski
svipuð hérna núna og hún var þegar best lét á Íslandi í sumar.
Hugmyndafræðin á bakvið vægar hömlur er ekki síst sú að þannig haldi
fólk þetta út. Það æri óstöðugan að vera sífellt að hringla með
reglurnar og of strangar hömlur valdi vanlíðan – sem að a) geri það að
verkum að fólk springi á limminu og b) setji efnahaginn á hvolf og c)
valdi annars konar skaða og dauða. Ljóst er hins vegar að vægari hömlur,
sem ganga út á að fólk „beiti hyggjuvitinu“ bitna meira á tekjulægra
fólki, sem má síður við að missa úr vinnu, getur síður keypt sér hjálp
og er líklegra til þess að búa þéttar. Það fólk er líklegra til þess að
smitast og líklegra til þess að veikjast alvarlega og deyja. Það vill
til að mikið af þessu fólki er brúnt og segregerað – meðal-Svíinn verður
lítið var við ástandið þar (og ég er for all intents and purposes bara
meðal-Svíi í þessu landi).
Stemningin er annars svipuð og á Íslandi. Hvar sem maður kemur saman fer
fólk fljótlega eitthvað að tala um kórónaveiruna – en hún er líka orðin
einsog veðrið, hún er það sem maður talar um þegar maður hefur ekkert
annað að segja. Flestir verða pínu brogaðir af samtölunum – á netinu
rífst fólk hástöfum en í eigin persónu gætir fólk sín að fara ekki að
þrátta um of, segja ekkert mjög agressíft. Sumir einangra sig alveg –
aðrir hitta bara fólk utandyra – en flestir taka sína daglegu snúninga
með litlum tilbrigðum. Það er ekki að sjá að fyrirtækin græði mikið á
slakari hömlum – það er mikið um lokanir og útrýmingarsölur og stórum
hluta aðalverslunarmiðstöðvarinnar í bænum hefur verið lokað. Það er
einna helst að mér sýnist veitingastaðir og kaffihús, a.m.k. í miðbænum,
ætla að pluma sig. Apótekin eru sennilega að gera það gott –
mótefnaprófin eru fidget spinnerar ársins 2020. En það hefur ekkert að
segja að „opna landamærin“ þegar öll landamærin í kringum mann eru
lokuð. Hér er allt galopið en á hvínandi kúpunni því það sem fólk þarf
að kaupa kaupir það á netinu (og það er alltaf biðröð á pósthúsinu –
þótt póstþjónustan sé sú lélegasta sem ég hef komist í kynni við).
Eitt af því sem ég verð talsvert var við – sem eins konar möntru,
nánast, þegar talið berst að ólíkum viðbrögðum Evrópulanda – er í anda
þess sem Johan Carlson segir hér um „reiðina og heiftina í Evrópu“. Að
Svíar séu í gúddífíling en aðrir við það að bugast af vanlíðan. Þegar
talið berst að hinum norðurlöndunum er kannski frekar talað um þunglyndi
eða jafnvel hysteríu og ofsóknarbrjálæði, frekar en reiði. Það er einsog
Svíar vilji tala í sig kjark – að Evrópulöndin séu tilfinningalega
gjaldþrota, en þeir reiðubúnir í hinn langa vetur framundan.
Ég veit það ekki. Ég upplifi ekki brjálæðislegt tráma, hvorki hér né á
því Íslandi sem ég sé, þótt vissulega séu þreytandi besservissísku
rifrildin um hvort maður sé líklegri til þess að smitast í sundi, á
tónleikum, í leikhúsum eða í ræktinni – og allt hitt – og það má til
sanns vegar færa að Svíar eyði meiri tíma í að þrátta um „venjulegri
hluti“. Auðvitað er tráma á báðum stöðum – ég á ekki við það – en ég sé
ekki sjálfur stóran mun og bendi gjarna Svíunum á að við höfum þrátt
fyrir allt fengið að lofta svolítið hressilega út í sumar. En þar liggur
kannski líka einhver kúltúrmunur – Íslendingar eru túrafólk; Svíar gera
langtímaplön. En Svíar eru líka gjarnir á að ofhugsa sig út í ákveðið
afstöðuleysi, á meðan Íslendingar eiga það til að taka afdrifaríkar
ákvarðanir í ofsaköstum. Ef mér leyfist að alhæfa svona um þjóðir, með
öllum fyrirvörum sem alhæfingar kalla á.
En þegar kemur að tráma hlýtur maður að hugsa líka út í mannfallið. Hér
í Västmanland búa eitthvað rétt rúmlega 300 þúsund manns og um 190 hafa
látist hingað til. Það eru 19 sinnum fleiri en á Íslandi sem er aðeins
stærra. Moskvulínan er að þetta hafi mestmegnis verið fólk sem hafi
verið við dauðans dyr og nú muni miklu færri deyja, vegna þess að hin
viðkvæmu hafi þegar kvatt (viðbótarsannleikur hér er að þetta fólk hefði
aldrei lifað svona lengi nema fyrir hið framúrskarandi sænska
velferðarkerfi – aldrei komist svona langt í lífinu, svo að segja, ef
það hefði búið í hinni reiðu og þunglyndu Evrópu). Það má vel vera satt
en það er samt skrítin afstaða/afsökun og eitthvað hlýtur nú trámað samt
að vera yfir þessu – einhver hlýtur reiðin að vera, heiftin og
þunglyndið sem umlykur aðstandendur 190 látinna. Ekki getur allt þetta
fólk bara yppt öxlum og sagt að amma hafi nú verið svo gott sem dauð
hvort eð var?
8. október
Fréttir frá Svíþjóð. Menningarkálfur.
Það er sagt að næst á eftir verðlaunahafanum sjálfum skipti
bókmenntaverðlaun nóbels mestu fyrir útgefendur hans á ensku og sænsku.
Það er líka sagt að það fyrsta sem gerist þegar tilkynnt hefur verið um
bókmenntaverðlaun nóbels sé að heimasíða sænska forlagsins hrynji. Það
best ég get séð stendur síða Rámus förlags, sem gefur út Louise Glück í
Svíþjóð, enn af sér storminn.
Því er þannig farið með bókmenntirnar einsog við vitum að það eru jafnan
lítil forlög sem gefa út besta efnið – sérstaklega þýðingar – og því
geta stór verðlaun af þessu tagi haft meira að segja fyrir lítt þekkta
og sístreðandi útgefendur en fyrir gíganta bókmenntanna, einsog þeir eru
nú annars ágætir.
Nú er svo komið að nóbelsverðlaunaforlag ársins gefur út þrjá íslenska
höfunda. Ég hef sjálfur verið hjá Rámus í 10 ár – Sjón færði sig þangað
fyrir fáeinum misserum og Ásta Fanney kemur þar út næsta vor, ef mér
skjátlast ekki, í þýðingu Johns Swedenmark. Þess utan er katalógurinn
þeirra trylltur – Goran Vojnovic, Valerie Luiselli, Paul Beatty, Petra
Hulova, Lise Tremblay, Gloria Gervits, Asli Erdogan, Koleka Putuma
o.s.frv. o.sfrv.
Á þessum tíma hafa útgefendurnir, Per Bergström og Thomas Alm, orðið
afar góðir vinir mínir – ekki síst sá fyrrnefndi, sem hefur margheimsótt
mig til Íslands og hvern ég heimsæki reglulega í Malmö. Ég er svo til
nýstaðinn upp af gestabeddanum hans frá því síðast – og enn með bragðið
af heimalagaða snappsinum hans í munninum. Thomas og Per eru báðir
óbilandi hugsjónamenn í bókmenntum sem gefa út tugi af lítt seljanlegum
titlum á ári hverju – og vinna þó báðir líka við annað til að eiga fyrir
salti í grautinn. Á þessu græða þeir skiljanlega lítið fé og dýrðinni
beina þeir allri að höfundum sínum.
Það sem ég vildi sagt hafa: Louise Glück er sannarlega mikill snillingur
og á allt gott skilið – en orð fá því varla lýst hvað mér finnst Per og
Thomas vera vel að þessu komnir. Þeirra skál!
ps. farið svo að gefa út Glück á Íslandi, lúðarnir ykkar!
10. október
Fréttir frá Svíþjóð.
Einhleypir útlenskir ómenntaðir blankir karlar eru líklegastir til að
deyja úr kórónaveirunni í Svíþjóð. Og á víst við jafnvel um
norðurlandakarla (en helst um fólk frá norður-afríku og
miðausturlöndum). Ef Nadja skilur við mig er ég sem sagt kominn í alla
áhættuflokka. Nema að ég bý ekki í Stokkhólmi (en óþægilega nálægt
samt!)
Annars er áhugavert að velta því fyrir sér hvað veldur. Sérfræðingar
segja að fólk í sambandi sé gjarnt á að senda hvert annað til læknis –
einhleypt fólk lifir á snakki og súkkulaði og vakir yfir Netflix fram á
nætur. Þá segja þeir ákveðið náttúruval eiga sér stað – heilsuhraustir
séu betri makar og giftist fyrr og frekar. Í fréttinni stendur þess utan
að útlendingar hafi hugsanlega stærra tengslanet og séu þar með líklegri
til þess að smitast. Þetta kemur mér á óvart og ég átta mig ekki alveg á
því við hvað er átt. Kannski Tinder? Kannski eiga einhleypir óreglulegri
tengslanet – fari frekar á milli hópa – á meðan fjölskyldur eru lokaðri
einingar?
Dánartölurnar á Íslandi eru sennilega of lágar til þess að maður geti
tekið svona saman. En mér finnst í sjálfu sér engin ástæða til að ætla
annað en að sama mynstur myndi endurtaka sig ef fólk færi að hrynja
niður.
30. október
Fréttir frá Svíþjóð.
Rithöfundurinn Jan Myrdal er látinn. Jan var einhvers konar óformlegur
talsmaður maóisku inteligensíunnar á sjöunda áratugnum – ímynd hins
vinstrisinnaða rithöfundar á umbrotatímum, alltaf tilbúinn til þess að
standa með sannleikanum og róttækum lífsskoðunum sínum. Á lífsleiðinni
tókst honum meðal annars að styðja Rauðu khmerana, vera á móti
hjónavígslum samkynhneigðra, fylgjandi aðgerðum kínverskra yfirvalda á
Torgi hins himneska friðar og fötwunni á hendur Salman Rushdie. Sem
segir okkur auðvitað að meira að segja óbilandi hugsjónamenn, hugsuðir
og skáld, geta verið úti að aka af og til. Ef ekki bara mjög oft. Hann
afrekaði líka að slíta öllu persónulegu sambandi við tvo
nóbelsverðlaunahafa um ævina – annars vegar móður sína, Ölvu Myrdal, sem
hlaut friðarverðlaun Nóbels 1982, og hins vegar föður sinn, Gunnar
Myrdal, sem hlaut Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1974. Sagði hann þau
hafa verið afleita foreldra.
Í Västerås var svaka lögregluaðgerð í gær – lagt hald á einhver ósköp af
eiturlyfjum og byssum. Það var ekki ég, þótt ég að vísu leiki lausum
hala í bænum – Nadja og börnin eyða haustfríinu hjá ættingjum – ég er
bara að skrifa. Eða aðallega að eyða (það eru núna 10 þúsund orð í
handritinu og 40 þúsund í ruslafötunni – ég veit ekki í hvaða iðnaði
þetta þættu ásættanleg afköst, en ég segi nú samt að það gangi „bara
mjög vel“ og þetta gæti verið miklu verra).
En kórónavírusinn, af hverju segir hann ekkert um kórónavírusinn,
spyrjið þið kannski? Og er það nema von. Ég opna varla blöðin án þess að
verða ringlaður sjálfur. Tegnell boðar harðari aðgerðir, vægari
aðgerðir, nýjari aðgerðir, en sömu gömlu festuna – það er ekki mælt með
því að maður fari í ræktina, það má aftur heimsækja gamlingja og tilmæli
um að fólk yfir sjötugu eigi að einangra sig, sem voru tekin upp í vor,
hafa verið felld úr gildi. Það er búið að hækka samkomubannið á
viðburðum upp í 300 manns, til að bjarga leikhúsum og tónlistarmönnum,
en mörg lén hafa ákveðið að hjá sér verði það áfram 50 manns – og annars
staðar hafna bara leikhúsin og tónlistarhúsin hækkuninni sjálf og skella
í lás. Samt er einsog ekkert breytist. Og þegar blöðin segja
nýjar/vægar/harðar reglur meina þau nær undantekningalaust ný „tilmæli“
– því hér eru í raun fáar reglur.
Vandamál tilmælanna sýnist mér augljóst – samanburðurinn kallar
undantekningalítið á lægsta samnefnara í hegðun. Ef að Svenssonarnir
handan við götuna fara í ræktina, halda jól með foreldrum sínum, sleppa
grímum o.s.frv. þá er ástæðulaust að við Janssonarnir, Norðdahlarnir,
Hultquistarnir og Widellarnir hérna megin við götuna eigum að beita
okkur harðari aðgerðum. Enda vitum við jafnvel og Svenssonarnir að
aðgerðirnar virka bara ef allir – eða því sem næst – taka þátt.
Einstakar fjölskyldur stöðva ekki samfélagssmit.
Á dögunum las ég frétt sem mér hefur ekki tekist að finna aftur. Þar var
(ef ég man þetta rétt) skrifað um tilraunir þingsins til þess að setja
ný lög sem auðveldi hinu opinbera að setja reglur í snarhasti í
neyðartilvikum af þessu tagi – t.d. um það hversu margir mega koma
saman. Nú þegar er hægt að takmarka mannfjölda á „viðburðum“ – t.d.
tónleikum – en ekki, að því er mér virðist, hversu margir koma saman á
veitingastað eða í verslunarmiðstöð, þótt reynt sé að stýra því með
loðnum tilmælum („ekki troðast“ – frekar en að gefin sé upp tala eða
fólk beðið að telja inn í búðir). Þegar ég las þetta hugsaði ég eitthvað
á borð við „mikið var!“ – ég er rosa hneykslaður alltaf, á öllu – og las
svo áfram og sá að vonir stæðu til að fyrstu umræðu yrði lokið fyrir jól
og hugsanlega væru þá lögin komin í gagnið um mitt næsta ár. Sem verður
auðvitað mjög hentugt í næstu farsótt.
Ég fór í 40 manna hrekkjavökuveislu á síðustu helgi. Ég biðst forláts,
ég er viðbjóðslegur, við erum öll viðbjóðsleg, en svona var þetta samt.
Ég heiti Eiríkur Örn Norðdahl og ég fór í veislu í miðri farsótt. Í
veislu þessari skeytti fólk takmarkað um fjarlægðir (einn var meira að
segja bitinn! en það var eftir að ég fór að sofa). Annars fór hún vel
fram og við Nadja unnum kvissið.
Það sem ég er að reyna að segja er að ég myndi sennilega ekki umgangast
mig ef ég væri í áhættuhópi. Ekki fyrren eftir svona viku
allavega.
Staðlað viðbragð þegar maður hittir einhvern í þessu landi þessa dagana
er að spyrja hvernig maður eigi að gera hlutina, „erum við að faðmast?“
spyr maður. „hvernig gerið þið? eruð þið að faðmast?“ og svo að loknum
þessum vandræðalega formála faðmast allir. Eða allir sem hefðu á annað
borð faðmast. Þetta er stór breyting frá þeirri Svíþjóð sem ég kynntist
fyrir rúmum áratug. Fyrstu jólin mín í Svíþjóð, 2008, lágum við Nadja
bæði í flensu á barnaherbergisgólfi hjá ættingjum. Þangað inn kom enginn
af sótthræðslu – fólk svona rétt svo opnaði rifu á dyrnar til þess að
spyrja hvort það væri í lagi með okkur eða láta vita að þau væru að fara
og nú sæjumst við ekki aftur næsta árið eða svo. Ég man hvað mér fannst
þetta framandi – og fullyrti að á Íslandi myndi fólk nú samt knúsa
bless, skítt með einhverja flensu. Mér finnst reyndar talsvert hérna um
ákveðna tröllatrú á að maður smiti engan nema maður fari út „með
einkenni“ – ég hef meira að segja heyrt heilbrigðisstarfsmann segja
þetta. Ég er auðvitað ekki heilbrigðismenntaður, er rétt svo með
stúdentspróf og les blöðin, og vil síður hrútskýra svonalagað fyrir
fólki sem er menntað, en ég held að þetta sé ekki rétt. Svona inni í mér
að minnsta kosti.
Daginn eftir hrekkjavökuveisluna tók ég síðan lestina heim. Þar var
nokkuð þétt setið þótt enginn sæti við hliðina á mér. Við keyrðum frá
Norrköping til Västerås – með stoppum í Katrineholm, Eskilstuna og
víðar. Allan tímann sá ég ekki eina einustu grímu – ef frá er talinn sú
sem ég hafði á nefinu á mér sjálfur. Ég hef ekki verið svona
sjálfsmeðvitaður frá því ég byrjaði að ganga með grímuna fyrir vestan í
vor. Ég geng vel að merkja ekki með grímu hér dags daglega – keypti bara
góða einnota grímu til að hafa í lestinni (sú sem ég notaði í vor var
bara umferðargríma frá Víetnam). Hér hangir Tegnell líka enn á því að
grímurnar geri takmarkað gagn – og fólk hefur það eftir honum – en í
næsta landi, Danmörku, er orðið ólöglegt að vera grímulaus á
almannafæri. En það er auðvitað til mikils mælst að sömu náttúrulögmálin
gildi í Danmörku sem gilda í Svíþjóð.
Þegar ég er ekki í hrekkjavökuveislum hitti ég nú líka fáa (engan, alla
þessa viku) – ég fer ekki í ræktina lengur, heldur hleyp úti, vinn ekki
á kaffihúsum heldur heima – en ég fer á veitingastaði til að borða.
Helst samt ekki nema það sé fámennt.
Á meðan fjölgar smitum og eru þau nú á pari við það sem gengur og gerist
á Íslandi. Mér sýnist andlátin ekki enn tekin að rjúka upp. Ég hef heyrt
þá lógík að margir þeirra viðkvæmustu séu þegar látnir og því verði
aldrei aftur sams konar bylgja og í vor – en ég fæ það ekki til að ganga
upp í hausnum á mér. Því jafnvel þótt fimmtungur þjóðarinnar væri búinn
að fá Covid ættu fjórir fimmtungar það enn eftir – og væntanlega mætti
reikna með því að hlutfallið væri lægra meðal þeirra viðkvæmustu, sem
hafa þó skermað sig af frá okkur slúbbertunum.
Fleira er ekki í fréttum að sinni.
13. nóvember
Fréttir frá Svíþjóð.
Allt er aðeins verra en það var síðast. Það er kaldara. Myrkara. Fleiri
smit. Minni samvera og meiri einvera. Verst er þó, a.m.k. fyrir okkur,
að tengdamóðir mín, Mervi Laajarinne, lést í síðustu viku. Það var í
sjálfu sér búið að vera lengi að gerast og langt síðan sést hafði til
þess sprúðlandi sprelligosa sem hún var bróðurpartinn af sínu lífi – en
það gerir missinn eiginlega engum léttari. Hennar verður sárt saknað –
ekki síst úr lífum barnanna, í faðmi hverra hún jafnan naut sín
best.
* * *
Leikarinn og kommúnistinn Sven Wollter er líka látinn en hann þekktum
við minna (aldrei hitt manninn – en hann var þjóðinni missir). Jan
Myrdal lést auðvitað um daginn og það fæðist víst minna af góðum og
gegnum kommúnistum þessa dagana, svo það fer að verða fámennt á fundum,
grunar mig. Ekki að það séu neinir fundir, auðvitað, hér er bara
farsótt, farsótt, farsótt alla daga jafnt.
Nú stendur til að loka börum eftir klukkan 22 á kvöldin og tekur bannið
gildi við lok næstu viku og stendur a.m.k. út febrúarmánuð. Og ég sem er
búinn að vera að segja við alla að það verði ábyggilega rólegt og næs
hjá okkur strax upp úr jólum. Annars halda blöðin áfram að segja manni
að nú séu tilmæli Tegnells öll að harðna, án þess að ég átti mig
beinlínis á því hvernig þau harðni, og svo sannarlega er ekki að sjá á
miðbænum að þau hafi neitt að segja – hvað sem fullyrt er um að Svíar
séu skynsamt fólk, einsog Akureyringar, sem fari að tilmælum og þvoi sér
um hendurnar og svona. Á dögunum opnaði ný deli-keðja við aðaltorgið og
þar er ekkert bil á milli borða og alltaf stappfullt út úr dyrum. En
tilmæli til fyrirtækja eru í sjálfu sér bara að tryggja að fólk „geti“
verið a.m.k. einn metra frá hvert öðru og það skapist ekki „þrengsli“ –
en þrengsli eru óskilgreind og einn metri er nú bara svona einsog
fjarlægðin rétt áður en maður dettur í sleik.
Við erum samt ekkert pípandi hneyksluð, svona frá degi til dags. Þetta
er bara einsog það er, hið nýja normal er ekki jafn normal eða nýtt alls
staðar, og við vinnum bara með það sem okkur er gefið. Sjálf erum við
hætt að sækja veitingahús nema til að ná í mat; ég skrifa bara heima og
sleppi ræktinni, Aram sleppir Pokemonklúbbnum og Aino fer ekki á
sundæfingar. Sem þýðir ekki að enginn geri neitt – krakkarnir eru enn í
skóla, Aino fer enn á sirkusæfingar, Aram á hljómsveitaræfingar og Nadja
fer á kajak. Ég hef líka tekið upp á því – upp úr einhverri djúpri
nevrósu sem þarf sennilega að taka einhverjum tökum – að fara í langa
göngutúra. Västerås er fremur strjálbýl 130 þúsund manna borg og það er
mikið af göngustígum og leiðum sem hægt er að flannera um út í bláinn.
Ég reyni að þræða götur og leiðir sem ég hef ekki gengið áður, bara
eitthvað út í buskann, og ef ég rata ekki heim er ég altaf með GPS í
símanum. (Það er oft sem ég rata ekki heim, enda með mjög vanþroskað
áttaskyn eftir að hafa lært allar göturnar á Ísafirði fyrir sex ára
aldur og aldrei síðan fyrren fullvaxta þurft að rata nokkurn skapaðan
hlut.)
Mér finnst líka undarlega erfið tilhugsun að mega kannski ekki kaupa í
matinn daglega – það er ritúal hjá mér að ganga í gegnum
nauðþurftagangana í Coop eða Hemköp og mikil huggun að vita af þessu í
nágrenninu (sem minnir mig á að það er að verða mjög lítið til af
klósettpappír). Ég ætti ekki að gera þetta, en ég geri það samt, og
hugsanlega verður þetta það síðasta sem ég hætti að leyfa mér – ég þarf
að fá mjög hörð tilmæli um að maður eigi alls ekki að fara í búðina nema
í mesta lagi á tveggja vikna fresti áður en ég gef mig.
Við erum annars heilsuhraust, það best við vitum, því auðvitað má maður
varla verða dálítið andstuttur án þess að súpa hveljur af dauðabeyg og
örorkuótta.
Fleira er ekki í fréttum að sinni.
20. nóvember
Fréttir frá Svíþjóð.
Mikil glundroði hefur ríkt í konungsríkinu frá því forsætisráðherra
Stefan Löfven ákvað – upp á eigin spýtur, hvorki meira né minna – að
herða á samkomubanni úr 50 manns í 8. Aðeins fáeinum vikum fyrr hafði
Löfven lofað að hækka það í 300 en svo kom í ljós að önnur bylgjan náði
líka landi í Svíþjóð, þetta hafði engan grunað, og því fór sem fór.
Fjölmiðlar heimsins, sem hafa haft mikinn áhuga á aðferðafræði Svía á
tímum kórónaveirunnar, fóru eðlilega mikinn: SÆNSKA LEIÐIN YFIRGEFIN!
var skrifað í stríðsfyrirsögnum víðs vegar um heimsbyggðina. SVÍAR
VIÐURKENNA AÐ HAFA HAFT RANGT FYRIR SÉR!
En auðvitað er þetta ekki alveg svo einfalt. Eftir því sem ég kemst næst
– sem ég held að sé alveg bærilega nálægt – þá býður sænsk löggjöf
einfaldlega ekki upp á sams konar þrengingar og löggjöf annarra
vestrænna landa. Einhverjir hafa að vísu haldið því fram í mín eyru að í
mörgum löndum sé einfaldlega brotið á stjórnarskrám og allra handa
reglum – af því að nauðsyn „brýtur lög“, einsog sagt er, en hvað sem því
líður er það allavega ekki gert í Svíþjóð.
Hér er einfaldlega ekki hægt að banna fólki að koma saman eða þvinga
veitingastaði eða sundhallir til þess að takmarka fjölda gesta (við
annan fjölda en það sem stendur á starfsleyfinu). „Lockdown“ er
fræðilega mögulegt en tæki marga mánuði að útfæra og koma til
leiðar.
En hvað er þá þetta samkomubann, spyrjið þið kannski? Jú, þetta þýðir að
það öll starfsemi sem er sérstaklega leyfisskyld – svo sem tónleikar,
mótmæli og þvíumlíkt – fær ekki sitt sérstaka leyfi. Ríkisstjórnin var
búin að boða svokallaða „trúbadoraundantekningu“ til þess að
tónlistarmenn gætu komið fram á veitingastöðum án þess að vertarnir
þyrftu að vísa bróðurparti sinna gesta á dyr – því við tónleikinn
breytist samkoman í leyfisskyldan atburð – en undantekning þessi var nú
felld niður.
Eftir sem áður mega 300 matargestir sitja saman á veitingastað (helst
ekki fleiri en átta per borð) og líkamsræktarstöðvar mega taka á móti
eins mörgum púlurum og streðurum og þær koma fyrir á tækjum sínum.
Fleiri fylgja tilmælum nú en fyrir þremur vikum en það er samt setið á
flestum veitingastöðum og lóðum er flestum lyft.
Stóru tíðindin í þessu eru fyrst og fremst þau að Löfven gerir þetta án
þess að ráðfæra sig við Anders Tegnell, stjörnusóttvarnalækni Svía –
„það voru engar meiriháttar umræður um þetta“, sagði Tegnell fremur fúll
(en hann er reyndar alltaf fúll!)
Þegar það kom að útfærslum fór fólk að spyrja sig að ýmsu og fljótlega
kom upp úr dúrnum að bíóin töldu sig þurfa að loka og sendu strax út
yfirlýsingu þess efnis að frá og með 24. nóvember (þegar nýju lögin taka
gildi) verði ekkert bíó. Þá maldaði Tegnell eitthvað í móinn og sagðist
nú ekki telja að þetta ætti við um bíóin. Sem sendu frá sér nýja
yfirlýsingu um að það yrði áfram opið. En þá ræskti hið opinbera sig og
sagði jú, Anders, auðvitað á þetta við um bíóin. Sem þá sendu frá sér
þriðju yfirlýsinguna um að þau myndu loka. Og við það situr, held
ég.
Nokkrum dögum áður en þessar breytingar komu til var líka ákveðið að
banna sölu á áfengi eftir klukkan 22 á kvöldin – þær reglur tóku gildi í
fyrrakvöld og bransinn bar sig einsog stunginn grís. Í Nacka og í Malmö
hafa sveitarstjórnir hins vegar ákveðið að leyfa heimsendingu á áfengi
með mat – það er sem sagt hægt að panta sér eitt pizzasalat í plastdollu
og 40 stóra og sterka bjóra og láta Foodorasendilinn hjóla með
herlegheitin á bakinu heim til manns. „Vafasamt að þetta standist lög“,
sagði lögreglustjóri – en mér fannst hljóma á honum að það yrði bara að
díla við þau kærumál síðar. Gardínubytturnar fá sitt, a.m.k. í Nacka og
Malmö.
En það eru líka í einhverjum skilningi raunveruleg tíðindi að Löfven
tali skýrt – manni finnst fleiri taka þessu alvarlega. Og þótt það sé
ekki allt bannað verður maður var við að ýmsu hefur verið aflýst (t.d.
Pokemonklúbbnum hans Arams – þar sem tugir nörda, aðallega fullorðnir,
hafa komið saman í leikfangaverslun til að spila).
Við höfum það að mestu fínt. Eftir mikinn, gráan og viðstöðulausan
dumbung síðustu fjögur þúsund vikurnar er loksins heiðskírt. Það var
búið að spá einhverjum æðislegum stormi en mér sýnist nú bara vera
blíða. Það er mikið að gera og ástandið hefur talsverð áhrif á
efnahaginn – Nadja er í skertu starfshlutfalli, ég hef svo gott sem
engar aukatekjur þegar ég get ekki ferðast, og íslenska krónan, sem við
fáum bæði greitt í, stendur umtalsvert verr gagnvart þeirri sænsku en
þegar við ákváðum að fara út. Það stefnir svo sem ekki í neitt óefni og
ástæðulaust að hafa áhyggjur af okkur, en við erum heldur ekki að fara
að spreða í neina vitleysu á næstunni og kannski er það bara
hollt.
Ég held áfram að fara í göngutúra. Eftir áskorun frá Steinunni
Jóhannesdóttur fór ég og leitaði uppi hverfið Klövern sem fyrsti
íslenski kvenarkitektinn, Halldóra Briem Ek, teiknaði og vann til
verðlauna fyrir í tvígang – fyrst 1950 og svo aftur um miðjan níunda
áratuginn. Hverfið heitir þetta ekki á kortum svo ég notaði myndir sem
ég fékk frá Steinunni til þess að oríentera mig með hjálp heimamanna.
Þetta eru allmörg hús og sennilega gengur hverfið nú undir heitinu
Siggesborg (myndirnar sem fylgja færslunni eru þaðan) og stendur í
stærra hverfi sem nefnist Gideonsberg. Smekkleg fjölbýlishús fyrir
verkamannafjölskyldur – leikvellir á milli – og mér heyrðist á
heimamönnum að húsin væru eignuð einhverjum karli (sem þeir gátu sér til
að væri nafnið á skrifstofunni þar sem Halldóra hefur unnið – minnir að
hann hafi heitið Henning eitthvað). Þetta var skemmtilegur leiðangur
(reyndar full stutt að fara – varla korters gangur) og ekki síður að
lesa aðeins um Halldóru, sem var ekki bara fyrsti íslenski
kvenarkitektinn heldur fyrsta „fröken klukka“ – og gaman að segja
börnunum mínum frá þessu. Þótt það reyndar sé að verða svolítið þreytt
að segja Aino Magneu frá öllum þessum konum sem voru fyrstar hitt og
þetta – hún er að lesa fyrir mig bókina um Vigdísi konuforseta – bæði af
því maður þarf þá stöðugt að biðjast afsökunar á þeim miðöldum sem við
erum vonandi að stíga út úr og af því það er bara mjög fátt eftir til að
vera fyrst í lengur, og það hlýtur á endanum að verða frústrerandi ef
maður er alinn upp við að allar manns fyrirmyndir séu fyrstar. Og hvað á
maður þá sjálf að vera? Önnur? Þriðja? Tuttugustaogfimmta?!
Annars er það að frétta í menningarmálum að Måns Wadensjö, 32 ára
verðlaunarithöfundur menntaður á Biskops-Arnö, skrifaði grein í Svenska
dagbladet í gær þar sem hann bar sig afar illa fyrir hönd síns
skjólstæðings, skáldsögunnar – því þótt í sjálfu sér mætti segja að hún
lifði einhvers konar lífi meðal „bókmenntafólks“ væri sá tíminn löngu
liðinn að hún skipti nokkru máli í lífum annarra en þeirra sem hefðu
beinlínis lífsviðurværi sitt af henni. Um 600 blaðsíðna skáldsögu sína
Människor i Solna, sem Måns sagði sína bestu, hann væri stoltur af
henni, sagði hann líka að hann hefði sennilega aldrei nennt að lesa
sjálfur nema einhver greiddi honum fyrir það. Flestar góðar skáldsögur
seldust í fleiri eintökum til bókasafna en einstaklinga og það væri
öllum drullusama um þetta – skáldsagan væri einfaldlega ekki merkileg í
lífum margra.
Þá er líka talsvert rifist á kúltúrsíðunum um dagbókarverk Katarinu
Frostenson – bækurnar K og F. Katarina er einsog margir kannski vita
gift Jean-Claude Arnault, svíðingnum sem skákaði í skjóli
nóbelsakademíunnar, og stendur með sínum manni. En hún er líka eitt af
virtustu skáldum þjóðarinnar og meira að segja margir þeirra sem hafa
mikinn ímugust á varnartilburðum hennar fyrir Jean-Claude dásama gáfur
hennar og ljóðræna hæfileika.
Svíar eru góðir í þessu – að ræða menninguna, búa til debat og átök –
það er alltaf svolítið stuð í partíinu, og alltaf einhver tilbúinn til
að vera á móti. Stundum segjast þeir sjálfir vera „konsensus kúltúr“ –
að þeir þurfi alltaf að vera sammála – en ég veit ekki hvað við ættum þá
að kalla íslenska menningarumræðu, þar sem er aldrei nema ein skoðun í
gangi og í mesta lagi skipt á 15 ára fresti.
Kannski er það líka þess vegna sem gengur illa í kórónamálunum – þeir
eru svo ræðnir. Vinur minn sem vann við hellulagnir í Stokkhólmi sagði
einhvern tíma að þeir þyrftu alltaf að ræða hverja hellulögn í nokkra
klukkutíma áður en þeir hæfust handa – það þyrfti að skipuleggja hvert
handtak (og fara í nokkra lögboðna kaffitíma). Ég ímynda mér að maður sé
ekki alltaf lengur að helluleggja svona – ef hvert handtak er vel
skipulagt – frekar en ef maður beitir íslensku aðferðinni, að einhenda
sér bara í þetta helvíti og laga svo það sem misferst jafn óðum. En það
skiptir Svía líka miklu máli að gera hlutina „rétt“ – og ekki síður að
það líti út fyrir að verið sé að gera hlutina samkvæmt bókinni. Hér er
enginn sekur um neitt nema verkferlarnir sem ævinlega er farið eftir. Ég
er hins vegar ekki viss um að þetta sé góð aðferðafræði til þess að díla
við farsótt – eða ýmislegt fleira, ef út í það er farið. Svíar eyddu til
dæmis seinni heimsstyrjöldinni í að ræða með hverjum væri best að halda,
og héldu heilagt hlutleysið þar til þeirri umræðu var lokið. Sem var
ekki fyrren eftir að stríðið sjálft var búið auðvitað.
Fleira er ekki í fréttum að sinni.
27. nóvember
Fréttir frá Svíþjóð.
Einu sinni fyrir löngu las ég ummæli frá mér ókunnugri konu á
internetinu, sem sagðist hafa gefist upp á Illsku (bókinni) á fyrstu
blaðsíðu vegna þess að þar stæði „í öllu falli“ sem væri ömurleg
sænskusletta. Síðan þá hefur þetta bara versnað. Í 13 ár hef ég lifað
lífi mínu á að lágmarki tveimur tungumálum – Nadja talar sænsku við mig
en ég svara á íslensku, hvað svo sem annars gerist í kringum okkur.
Börnin tala sænsku við hana en íslensku við mig. Áður en maður veit af
er maður farinn að segja „í öllu falli“ hvað eftir annað, einsog ekkert
sé eðlilegra, og lesendur hrynja af manni einsog flugur. Sjálft
atvinnutækið ónýtt. Í morgun sagðist ég til dæmis „við eitthvert
tilfelli í dag“ þurfa að gera svolítið. Annars hef ég bara óvenju gaman
af því að skrifa þessa dagana, þegar það er ekki viðstöðulaus nístandi
harmur, en þetta verður samt ólæsilegt. Sérstaklega fyrir þessa konu,
sem ég man ekki hvað heitir.
Annars er allt við hið sama. Kórónaveiran heldur áfram að sækja í sig
veðrið þótt Västerås sé ekki endilega í mjög slæmum málum –
smitstuðullinn var held ég 1,2 í gær – en hérna framhjá glugganum mínum
gekk samt afar skuggalegur maður áðan í sóttvarnargalla frá toppi til
táar, sem þýðir sennilega að einhver nágranna minna sé smitaður. Þá
gerðist það á síðustu helgi – þeirri fyrstu frá því að bann á sölu
áfengis eftir klukkan 22.00 tók gildi – að þrjár konur voru úti að
skemmta sér og komu við á skyndibitastað á leiðinni heim. Eitthvað þóttu
aðfarir þeirra við matinn sóðalegar og þegar starfsmaður fann að
subbuskapnum tók ein þeirra sig til og hrækti á starfsmanninn og sagðist
smituð af Covid. Þær voru handteknar síðar um kvöldið og þá kom í ljós
að þetta stóð allt heima – hún var smituð og hafði verið greind mörgum
dögum fyrr.
Skemmtanalífið lætur ekki að sér hæða víðar en hér, því í Stokkhólmi
fundu rekstrarstjórar smugu í lögum og opnuðu knæpur sínar aftur
hálftíma eftir lögbundna lokun, klukkan 22.30, en seldu þá bara
alþýðubjór – folköl – sem er 3,5%. Þá segir lögreglan að talsvert hafi
verið um þrengsli, þrátt fyrir að unga fólkið hópist á ólögleg reif í
útsveitum, sem aldrei fyrr.
Fjórði hver Svíi vill afþakka bóluefni við kórónaveirunni. Þetta gerist
ekki síst vegna þess að árið 2009 þegar bólusett var við svínaflensu
fengu margir – 440 manns – narkolepsíu (sem snara þýðir sem „skyndimök –
höfgi – einkum hjá flogaveikum“, en fyrsta orðið er rétt annars staðar
sem „skyndimók“, sem er vel að merkja allt annað en „skyndimök“). Við
bjuggum þá í Svíþjóð, þetta er haustið sem Aram Nói fæddist, og það var
lagt hart að fólki að bólusetja sig, það væri lítil sem engin hætta á
aukaverkunum, og 60% þjóðarinnar létu af því verða. Við ætluðum að gera
það og fussuðum mikið yfir efasemdarmönnum en munum hvorugt á því hverju
það strandaði (ég var ekki með lögheimili hérna, það hefur ábyggilega
haft eitthvað að segja – Nadja heldur að aukaverkanirnar hafi verið
byrjaðar að koma fram en mig minnti ekki – ég neita að slá því upp
fyrren ég er viss um að ég hafi rétt fyrir mér). En þetta veldur
auðvitað ákveðnum forsendubresti.
OECD gaf sænskum yfirvöldum lægstu einkunn fyrir viðbrögð sín við
kórónafaraldrinum. Einkunnin var gefin í mörgum flokkum og Svíþjóð koma
illa út í mörgum þeirra, einsog svo sem við var að búast. Hins vegar
kemur í ljós í dag að eitthvað af útreikningum OECD hafa hreinlega verið
rangir – og þau hafa ruglað saman tölum fyrir ólík lönd þannig að Svíar
mældust einsog þeir hefðu verið að testa einhver ósköp. Nú slær Tegnell
sér á brjóst, því hann var auðvitað alls ekki að testa mikið – sem lagar
heildarmyndina, en er auðvitað mjög fyndið því það er alls ekki til
fyrirmyndar að hafa testað lítið.
Á menningarsíðunum geisar heilmikill bardagi um „gestaltning“ í
skáldsagnaskrifum. Þetta er ekki auðþýðanlegasta hugtakið – lýsing,
hönnun, sýning, skynheild, o.s.frv. – og ekki heldur alltaf samræmi í
því hvernig fólk notar það – sem hefur orðið augljóst í debattinum. Ég
hélt fyrst að það væri bara ég sem skildi það ekki almennilega en hefur
síðar orðið ljóst að margir þeirra sem fara hvað fjálglegast með það
hafa bara sinn eigin skilning á inntaki þess, sem aðrir deila ekki
endilega.
Í grunninn snýst deilan samt mest um hvort maður eigi að „segja eða
sýna“, einsog það hefur verið kallað – hvort það sé alltílagi (eða
jafnvel betra) að segja „Siggi var leiður“ eða hvort maður eigi alltaf
að segja „Andlit Sigurðar var fölt og hann hafði ekki stigið upp úr
rúminu í tvær vikur, þótt ekkert væri að honum líkamlega“. Leyfa
lesandanum að sjá sjálfur að Siggi er leiður. Sagt er að hið síðarnefnda
dómíneri fullmikið á kostnað hins – sem hafi í það minnsta sína kosti –
og það sé of algengt að gagnrýnendur dæmi verk þannig að það gestalti
(sýni?) ekki nóg, einsog það sé galli í sjálfu sér.
Ég skiptist á að finnast frábært hvað fólk tekur sagnalistinni og
fagurfræðinni alvarlega, hvað margir virðast reiðubúnir til þess að ræða
hana „sem slíka“ – og þá finnst mér umræðan á Íslandi óskaplega naíf;
það má líka til sanns vegar að færa að hún fer oft ekki upp af „mér
fannst þessi bók nú bara mjög góð/léleg“-levelinu – og að vera ægilega
þreyttur á öllum þessum tilgerðarlega intellektúalisma.
Í sumum gestaltnings-greinunum hefur því verið haldið fram að skáldsagan
sem slík sé orðin að fylgihlut höfundarins, sem sé hin eiginlega
söluvara, hið eiginlega listaverk, það sem við empatíserum með, við
kaupum Arnald, kaupum Auði Ö og Auði J, kaupum Kalman (skítt með
sögupersónurnar á meðan rithöfundurinn sem við elskum nýtur velgengni!)
– og auðvitað er þar gestaltnings-umræðan einmitt farin að bíta sjálfa
sig í rassinn, því hún er sjálf líka eins konar söluræða fyrir
greinarhöfundinn (sem er líka rithöfundur) sem selur hugmyndina um
sjálfan sig sem intellektúal. Einsog allir séu að reyna að vinna sér inn
stig til þess að síðar verða valdir inn í nóbelsakademíuna.
Þá er sænsk krítík oft líka furðu fyrirsjáanleg í intellektúalisma
sínum. Sömu hugmyndafræðilegu tuggunum – einsog „gestaltning“, og nú er
„blicken“ líka mikið tekið, þ.e.a.s sjónarhorn höfundar á
sögupersónurnar, frekar en sjónarhorn þeirra sjálfra – er beitt á allt
þar til þær verða einsog margundnar skítugar borðtuskur. Og þá er hent í
einn svona debatt – 10-20 greinar í hinum ólíku dagblöðum, og raunar
ótrúlegt fyrir Íslending að sjá metnaðinn í menningarumræðunni – og
hugtakið svo tekið úr notkun í bili, meðan allir eru að jafna sig.
Fleira er ekki í fréttum.
6. desember
Fréttir frá Svíþjóð.
Í næstu götu við okkar er verslun sem selur hjálpartæki ástarlífsins.
Verslun þessi er í kjallara í fjölbýlishúsi, innst í húsasundi, og á
skiltinu sem auglýsir starfsemina stendur „Lustkällan“ („lostavakinn“)
og svo er mynd af tveimur galvöskum golþorskum. Þorskur – eða „torsk“ –
er á sænsku slangur fyrir viðskiptavin vændiskonu. Hinumegin í sama
húsasundi, í fjölbýlishúsinu handan við planið, er síðan tælensk
nuddstofa og þar fyrir neðan er boðið upp á brasilíska vaxmeðferð. Önnur
starfsemi er ekki á svæðinu, enda íbúðahverfi í bæ sem hefur orð á sér
fyrir að vera svefnbær.
Það fer svo ákveðið orð af tælensku nuddstofunum, sem er sennilega til
mikillar óþurftar á þeim nuddstofum þar sem engin innistæða er fyrir
orðsporinu. Í september las ég æsispennandi og langa frétt í einu
dagblaðanna þar sem lýst var margslunginni aðgerð lögreglunnar, sem
hafði það að markmiði að afhjúpa vændisstarfsemi á svona nuddstofu í
Stokkhólmi. Náði frásögnin hápunkti sínum þar sem lögreglan var búin að
elta grunsamlega tælenska konu í mínipilsi og háum hælum út um alla
borg, uppi í fimm strætóa og fjóra metróa, og inn í almenningsgarð í
úthverfi þar sem hún taldi sig örugga og losaði sig við sönnunargögn í
ruslafötu. Þegar konan var horfin læddist lögreglan að ruslafötunni og
tók upp og opnaði sigri hrósandi poka fullan af notuðum smokkum.
„Innilokaði maðurinn“ hefur verið í fréttum alla vikuna. Ég þarf
sennilega ekki mikið að tíunda það allt saman enda verið sagt frá því í
mogganum líka. Drengur á aldur við son minn hætti að mæta í skóla og fór
svo ekki úr húsi þar til hann var jafn gamall og ég – svona meira og
minna. Mamman segir að hann hafi alltaf getað farið út og hann
staðfestir það. Eldri systir hans tekur undir þetta líka en vill nú samt
meina að atferli móður þeirra sé glæpsamlegt, ef ég skil hana rétt – og
það var hún sem bjargaði bróður sínum úr „prísundinni“, fann hann hálf
mállausan, hálf tannlausan og bólgin, eitt svöðusár frá ökklum upp að
hnjám, matarlausan og á kafi í skít. Þá hafði mamma þeirra verið á
spítala vegna heilsunnar og skilið hann – sem er í raun enn bara
bjargarlaust barn – eftir einan með snakkpoka og makríldós. Hún var
handtekin fyrst en svo sleppt – þetta væri ekki glæpur heldur harmleikur
og la tí da. Í sjálfu sér þykir mér alveg ljóst að konan er mikið veik
en ég er ekki alveg sannfærður um að það þýði þar með að hún sé ekki
sakhæf – eða sek um einhvers konar sálfræðihernað, vanrækslu á barni,
eða álíka. Í öllu falli finnst manni skrítið að það sé bara afskrifað,
einsog virðist hafa verið gert.
Covid geisar sem aldrei fyrr. Og er varla frétt lengur. Þetta versnar
bara viku eftir viku. Á versta degi síðustu viku dóu fleiri úr Covid en
hafa dáið í umferðinni frá ársbyrjun. Tegnell þurfti að biðjast
afsökunar á að hafa sagt í sjónvarpinu að þetta væri vegna þess að í
Svíþjóð væri svo mikið af útlendingum – hann hefur sagt þetta áður og má
til sanns vegar færa að fólk með erlendan bakgrunn hefur mátt þola meira
smit. En það hefur að gera með störfin sem þetta fólk vinnur – sem eru
bæði síður þannig störf sem maður getur unnið heima og nógu illa launuð
til að fólk má í raun ekki missa úr. Þá er þetta láglaunaða fólk eðli
málsins samkvæmt líklegra til að búa fleiri saman á færri fermetrum. Það
sem Tegnell hins vegar missir af er að þótt það séu færri útlendingar í
vinnu á hinum norðurlöndunum þá eru öll þessi störf engu að síður innt
af hendi þar líka – þar eru líka lágvöruverslanir, umönnunarheimili
o.s.frv. – ekki skal ég segja hvort þau eru þá betur launuð eða hvað, en
það er alveg ljóst að hinum norðurlöndunum hefur tekist betur en Svíum
að standa vörð um lítilmagnann, hvort sem um fátækt, aldrað eða veikt
fólk er að ræða. Með því einfaldlega að gæta betur að hinu svonefnda
samfélagssmiti, á meðan Svíar hafa lagt áherslu á að „vernda þá
viðkvæmu“ – sem verndar þá viðkvæmu alls ekki jafn vel, eins merkilegt
og það nú er. Ef „fjöldi útlendinga“ væri ráðandi faktor í þessu væri
Þýskaland líka í miklu verri málum, svo dæmi sé tekið – maður þarf bara
ekki að rýna lengi í tölfræðina til að sjá að þessi kenning er þvæla og
það að halda henni fram í fúlustu alvöru á viðkvæmum tímum sem þessum er
eiginlega glæpsamlegt (jafnt þótt maður dragi í land þegar búið er að
skamma mann).
Framhaldsskólar skipta síðan yfir í fjarkennslu frá og með morgundeginum
og ákveðið hefur verið að börn sem búa með covid-veikum eigi ekki að
mæta í skóla (áður þurfti covid-veikt fólk jafnvel að koma þeim sjálft í
skólann – hvað sem líður þessu dæmi með innilokaða-manninn þá er
skólaskylda frekar hörð í Svíþjóð). Fólk er hvatt til þess að taka
jólaverslunina snemma og utan álagstíma – ég ætla að fara fyrir hádegi á
morgun og klára megnið af okkar innkaupum fram að jólum, bæði gjafir og
mat.
Mér brá annars heldur betur í brún þegar ég kom á pósthúsið í gær – sem
er reyndar alls ekkert pósthús heldur afgreiðsluborð í matvöruverslun.
Ég hef svo sem ekki verið neitt yfirdrifið ánægður með Postnord síðan
við komum og hef enn ekki átt nein vandræðalaus viðskipti við
fyrirtækið. En nú sem sagt mætti mér stórt skilti þar sem var tilkynnt
að vegna kerfisbilunar væri ekki lengur tekið á móti pósti, heldur væri
bara hægt að sækja póst, og gilti um öll útibú. Ég var ekki að fara að
sækja neitt heldur senda stóran bunka af jólakortum sem börnin skrifuðu
vinum sínum, og varð því bara frá að hverfa. Ætla að reyna aftur en ef
þetta hefst ekki þá verða sennilega engin jól.
Svo er gaman að segja frá því að Malmö var á dögunum fyrsta borgin í
Svíþjóð til að láta hanna fyrir sig svokallað „hljóðídentítet“.
Ídentítetið var búið til af almannatengslafyrirtæki og er samsett úr
alls konar hljóðum úr borginni – meðal annars þögninni af
borgarbókasafni borgarinnar. Annars hljómar það nú mest einsog frekar
andlaust teknólag. Ídentítetið var skapað í febrúar en hefur bara verið
notað einu sinni. Almannatengslafyrirtækið fékk greitt 485 þúsund
sænskar krónur fyrir viðvikið – eða rétt rúmar 7 milljónir. Það eru ekki
allir jafn svakalega ánægðir með þessa ráðstöfun almannafjárins – en
einsog gildir um póstinn, elliheimilin og aðrar stofnanir, hlýtur nú
samt að vera hægt að samfagna þeim framtakssömu einkaaðilum sem maka með
þessu krókinn.
Og talandi um tónlist. Hljómsveitin Sjökvist, sem gerði það gott í fyrri
bylgjunni með lagi sínu Klukkan er eitt, hefur ekki mikið getað æft enda
flutt úr samnefndu húsi (húsið á Ísafirði heitir Sjökvist) inn í
nafnlaust fjölbýlishús – og ekki með nema einn magnara í
æfingahúsnæðinu. Við tókum hins vegar upp nýtt lag í september, sem
heitir I am Corona Virus (Aino byrjaði að raula þetta upp úr þurru og
var send beint í útsetningar – en Aram samdi svo restina af textanum á
sænsku og íslensku) – spiluðum bara eitt í einu, alveg ósamæfð – en
höfum dregið úr hófi að taka upp myndband svo deila megi snilldinni. En
svo gerðist það nú í vikunni að Aram fékk stærðarinnar bongótrommu
lánaða hjá frænda sínum og við erum byrjuð að æfa jólalög – en bara lágt
svo nágrannarnir hringi ekki á lögregluna. Vonir standa svo til að
myndbandsupptökur hefjist í vikunni, en við erum líka búin að vera að
segja það síðan í september – svo það er sennilega ekkert að marka
okkur.
Fleira er ekki í fréttum.
17. desember
Fréttir frá Svíþjóð.
Maður á fimmtugsaldri var handtekinn í Vesturási í síðustu viku fyrir að
selja mistiltein. Um sölu á mistilteini gilda ströng lög, enda friðlýst
jurt. Talsverð eftirspurn er eftir mistilteininum jólamisserið vegna
þeirra töfraeiginleika hans að leyfa – eða jafnvel skuldbinda – ákveðna
kynferðislega áreitni. Komi tveir einstaklingar saman undir mistilteini
er þeim skylt að kyssast. Gildir þetta bara um jól og svo virðist sem
hvorki Covid og metoo hafi nein áhrif á þetta. Þá má geta þess að
mistilteinninn er héraðsblóm Vestmannalands, þar sem Vesturás er
höfuðstaður.
Hér eru allir að komast í jólagírinn. Við erum búin að baka þrisvar og
éta allt upp til agna þrisvar, og kaupa piparkökur tvisvar og éta þær
upp til agna tvisvar. Í gær kom sending frá Ísafirði með spesíum og
piparkökum úr Sundstrætinu og maltöli úr verksmiðjunni þar sem mamma og
pabbi kynntust forðum daga. Þessu verða gerð góð skil á næstu dögum. Á
sunnudaginn fórum við og lússuðum fyrir tengdapabba og frú annars vegar
og mága mína tvo hins vegar – við læddumst inn til þeirra og sungum
Sankta Luciu, Tänd ett ljus og fleiri góða smelli, en létum duga að
standa undir svölunum hjá tengdó (enda hitta þau engan innandyra og hafa
ekki gert síðan í mars held ég). Ég missti gítarinn minn á leiðinni og
laskaði á honum hausinn – það er kosmetískt en ég varð samt voða leiður
yfir þessu og hef enn ekki tekið hann upp úr töskunni til að gaumgæfa
sárið. Seinnipartinn komu svo mágarnir til okkar og hjálpuðu okkur að
skreyta tréð – sem að þessu sinni er sérlega glæsilegt og í stað
ljósaseríu erum við með kerti. Á trénu. Mér rennur kalt vatn milli
skinns og hörunds bara við að skrifa þetta, en þetta er mjög fallegt.
Við höfum bara kveikt á þeim einu sinni í svona korter og það gerist
áreiðanlega ekki nema einu sinni eða tvisvar enn.
Kóngurinn er mjög ósáttur við covid-stjórn landsins. Og þá held ég það
séu bara allir ósáttir, nema kannski Tegnell sjálfur, en ég held að hann
líti einfaldlega svo á að hann stjórni þessu ekki – sem hann gerir
auðvitað ekki en áherslan var svo sterk á að maður ætti að „treysta
vísindamönnunum“ að de facto réð hann nú sennilega mjög miklu hér í
upphafi (og nokkurn veginn allir hans vísindalegu spádómar reyndust
verri heldur en forsendulaust gisk leikmanna).
En þeir eru auðvitað að reyna allt sem þeir geta hjá
Folkhälsomyndigheten. Í vikunni sendu þeir til dæmis eitthvað ríflega
80% af landsmönnum SMS (það misfórst eitthvað með sendinguna til hinna).
Í SMS-i þessu voru Svíar vinsamlegast beðnir um að fara að tilmælum FHM.
Ef þeir vissu ekki hver tilmælin væru gætu þeir farið inn á heimasíðuna
„krisinformation“. Enginn hlekkur var í SMS-inu af ótta við að hann
mætti nota til að breiða út vírus. En fólk kann náttúrulega að gúgla hér
einsog annars staðar.
Í síðustu viku kærði Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið líka sjálft sig
vegna andláts 39 ára manns, sem dó úr Covid þegar hann var fluttur frá
bráðabirgðasjúkrahúsi á bráðadeild í vor. Bráðabirgðasjúkrahúsið, sem
var til húsa í braggatjöldum í Gautaborg, var mikið gagnrýnt af læknum
sem vildu heldur að bráðadeildin á sjúkrahúsinu sjálfu yrði stækkuð.
Þegar manni þessum tók að hraka átti að flytja hann aftur inn í hús –
þeir sem sendu hann af stað gerðu ráð fyrir að öndunarvélinni sem fylgdi
honum í flutningnum fylgdu slöngur en þeir sem sendu öndunarvélina gerðu
ráð fyrir að slöngurnar kæmu með sjúklingnum. Slöngur þessar höfðu verið
settar á lista yfir skortvöru – sem ætti að fara mjög varlega með svo
þær kláruðust ekki. Svo fór að það voru engar slöngur og maðurinn var
ítrekað öndunarvélarlaus meðan verið var að leysa þetta og olli það
dauða hans. Sjúkrahúsið kærir sig einsog áður segir sjálft, en hefur
líka verið talsvert gagnrýnt fyrir seinagang í þessu, enda hafi maðurinn
dáið í apríl og nú sé árið nánast á enda. Yfirmenn sjúkrahússins benda á
móti á að þeir séu að fást við farsótt og það sé í mörg horn að
líta.
Staðan er einsog hún er. Mér sýnist að það deyi um 100 manns á dag og
fer bráðum nærri lagi að tvö þúsund manns hafi látist í þessari seinni
umferð. Tegnell segir talsverðar líkur á því að dánartölur haldi áfram
að hækka næstu vikurnar. Til stendur að byrja að bólusetja 27. desember.
Ég hef ekki séð tölur um hversu margir fái bóluefni til að byrja með en
sýnist að fólk sé svona heldur bjartsýnt á að þetta gangi upp – en það
væri sosum ekki í fyrsta skipti sem jákvæðnin byrgði Svíum sýn í þessu
máli. Mér skilst samt að Íslendingar fái sitt bóluefni frá Svíum og um
það gildi fastir skilmálar um hlutfall, sem væntanlega þýðir að
Íslendingar og Svíar bólusetji svipað mikið af fólki hlutfallslega á
svipuðum tíma. Ég veit hins vegar ekkert hvað verður um litla mig í
þessu öllu saman, því ég er enn skráður á Íslandi – og verð – og hef því
væntanlega engan rétt hér. Og kemst ekki í neina bólusetningu sem ég
verð boðaður í á Íslandi. En kannski kemur heldur ekkert að því fyrren
við erum komin aftur heim.
Til að uppfylla ákveðnar jólaóskir í fjölskyldunni þurfti ég að renna
við í einni verslun í Stokkhólmi. Þangað er 90 mínútna akstur og ég var
líka alveg gersamlega að krepera yfir öllu í vinnunni og tók því satt að
segja fagnandi að fá að vera einn með hugsunum mínum í bíl í smástund.
Ég fór grímuklæddur í verslunina, sem er mjög lítil, en var einn þar með
grímu (reyndar voru samt seldar grímur í versluninni). Á eftir mér inn
komu fjórir strákar á menntaskólaaldri sem ráku mig óþolinmóðir á undan
sér eftir einbreiðum gangi þar til ég var kominn í fangið á öðrum álíka
hópi og lenti bara í samloku, olnboga í olnboga. Þetta er mjög spes – ég
hugsaði að svona hljóti samsæriskenninganötturum að líða. Einhvern
veginn fannst mér alveg ómögulegt að fara eitthvað að útskýra eitt eða
neitt fyrir neinum þarna – lauk bara mínum viðskiptum, í rólegheitum og
æðruleysi vel að merkja, og hvarf svo aftur út í veturinn og keyrði
heim.
Það fór furðu lítið fyrir því en Greta Thunberg tók við
ritstjórnartauminum á Dagens Nyheter í einn dag, sunnudag fyrir viku.
Þetta var í sjálfu sér nokkuð rætt fyrirfram – ritstjórn DN klappaði sér
mikið á bakið fyrir tiltækið, en önnur dagblöð spurðu hvort nú ætti að
varpa hlutleysinu fyrir róða, og sitt sýndist nú sumum álitsgjöfum. Ég
veit ekki hvort DN er „umhverfisvænasta“ blaðið í landinu heilt yfir en
ég hef séð fólk kvarta undan því að menningarkálfarnir séu meira og
minna viku eftir viku lagðir undir umhverfismál (sem boðar auðvitað mjög
gott fyrir vin minn Andra Snæ, sem er að gefa út Tímann og vatnið hér í
febrúar, held ég), svo lítið fari fyrir umræðu um menninguna „sem
slíka“. Þegar til kastanna kom vakti tiltækið síðan litla athygli – bæði
kom einhvern veginn fram að Greta hefði fyrst og fremst verið til
ráðgjafar frekar en ritstjórnar og eitt af því sem hún hefði sagt væri
að það gengi ekki upp að vera með auglýsingar óvinsamlegar loftslaginu
en allt annan boðskap í leiðurum. Í Gretu-tölublaðinu sjálfu var svo
auglýsing þar sem BMW klappaði sér á bakið fyrir að vera
umhverfisvænasti bílaframleiðandinn (og vísaði í einhverja rannsókn).
Síðan kom kannski bara voða fátt nýtt fram í þessum fréttum. Það er allt
á leiðinni til andskotans og allra síðasti séns að bregðast við (og það
verður ekki gert).
Hljómsveitin Sjökvist gaf frá sér sitt annað lag í vikunni. Það er hægt
að hlusta t.d. á YouTube (https://www.youtube.com/watch?v=JJPxHbDQZuM) –
lagið heitir I am Corona Virus og er á þremur tungumálum. Börnin sömdu
en ég fékk að leika ljósmóður (og gítarleikara). Mér finnst þetta mjög
gaman. Það er fremur grunnt á barninu í mér en ég er samt ekki góður í
eiginlegum barnaleikjum – en við leikum okkur við annað. Svo hafði líka
samband útvarpskona og ætlar að spila lagið í útvarpinu um jólin og við
erum ægilega grobbin.
Ég er búinn að bóka mér herbergi í rithöfundamiðstöðinni í Visby á
Gotlandi í þrjár vikur frá og með 20. janúar. Það er að vísu með þeim
fyrirvara, einsog allt, að það verði yfir höfuð opið. En hugmyndin er sú
að ég komist úr eldhúsinu og á einhvern stað í huganum þar sem ég get
áttað mig á því hvað það er sem ég er að skrifa. Það er merkilegt nokk
ekki alveg ljóst og ég þarf að greiða úr mörgu. Þegar ég kom fyrst
hingað síðsumars vann ég mest á kaffihúsum en eftir því sem farsóttin
fór að sækja aftur í sig veðrið hélt ég mig meira heima og hef ekkert
farið síðan fyrripart október, held ég. Það er ekki alls kostar frábært
að vinna í eldhúsinu, þar sem er traffík af fólki að sækja sér
nauðþurftir, eða hálfliggjandi í svefnherberginu. Ég læt mig dagdreyma
um skrifborð og netlausa borðtölvu í stofuna – ef ég finn einhverja
peninga læt ég kannski af því verða eftir jól. Þar er sosum ónæði líka
og kannski verð ég bara að sætta mig við „skerta starfsgetu“ þar til við
komum aftur til Ísafjarðar í ágúst. En ég hlakka líka til að komast til
Visby, ef af verður – það eru liðin tíu ár síðan ég fór þangað síðast.
Mér finnst ég mjög óskýr þessa dagana – auðvitað eilíflega þreyttur og
latur og oft frekar vonlaus og heilinn einhvern veginn út um allt. Þetta
er þannig ár og það er víst að ganga og ekkert við því að gera held ég
nema muna að taka lýsið sitt. Svo koma víst líka jól bráðum og það
hressir mann vonandi eitthvað við.
Fleira er ekki í fréttum að sinni.
2. janúar
Fréttir frá Svíþjóð.
Bóluefnisstjóri Svía segir að allir í landinu verði bólusettir fyrir
Jónsmessu. Ég verð að játa að ég skil hvorki upp né niður í neinu. Ég
hélt að Svíar fengju sitt frá Evrópusambandinu og Íslendingar sitt frá
Svíum og planið væri að allir fengju jafnt – a.m.k. innan þessa mengis –
og við værum að búast við að ná kannski að klára þetta í ár. En þetta
kemur væntanlega allt í ljós.
Ég er í sjálfu sér orðinn frekar sínískur í garð sænskra sérfræðinga.
Síník þessi náði hámarki þegar ég las nú á gamlársdag í uppskrift að
rækjusalati, svonefndri Skagenhræru, að maður ætti að hakka rækjurnar og
skilja eftir eina og eina „til skrauts“. Til hvers er maður þá að kaupa
rækjur? Ekki veit ég hvernig gólfin líta út í rækjuverksmiðjum nútímans
en þegar ég vann í Básafelli var oft þykkt lag af niðurtrampaðri rækju á
gólfinu í Pakki 1 – sem þótti varla tæk í dýrafóður. Mér finnst þetta
vægast sagt ólystugt og tilkynnti Nödju, sem hafði pantað Skagenhræruna,
að á meðan ég drægi andann yrðu ekki neinar rækjur „hakkaðar“ á þessu
heimili. En hún fékk nú engu að síður skagen – bara með heilum rækjum,
sem hún tuggði svo bara alveg sjálf.
Það voru líka grátbroslegar fréttir af fólki í lestunum fyrir jól. Hið
OHF-aða lestarfyrirtæki SJ boðaði að það yrðu engin þrengsli í
jólatraffíkinni, en fólk yrði að sýna ábyrgð og halda fjarlægð hvert frá
öðru. Fjölskyldur lentu svo í vandræðum þar sem búið var að bóka ólíka
hópa saman í kös og þegar fólk ætlaði að færa sig reyndust lestirnar
stappfullar á meðan röddin í hátalarakerfinu brýndi fyrir fólki „sýna
tillitssemi og halda fjarlægð“. Þetta kom í fréttunum einn morguninn og
nokkrum klukkutímum síðar svaraði fjölmiðlafulltrúi SJ og sagði að víst
hefði verið pláss í lestunum en bókunarkerfið virkaði bara þannig að það
raðaði fólki fyrst í þá vagna þar sem væri pláss – svo reikna mætti með
því að alveg í hinum enda lestarinnar væru vagnar, væntanlega alveg
galtómir. Allt tölvunni að kenna. En fólk yrði auðvitað að sýna ábyrgð
og samstöðu og tillitssemi og halda fjarlægð. Sjálft.
Við áttum annars ágætis jól, þótt ég væri illa haldinn af heimþrá. Mágar
mínir tveir komu í mat til okkar á aðfangadag og börnin fengu svo að
fara til þeirra á jóladagskvöld – reyndar við lítinn fögnuð minn, sem
hefði gjarna haldið þeim heima, en maður verður að gæta sín hvað maður
rífst við börn á jólunum – og á annan í jólum fórum við svo til mágkonu
minnar í smábænum Rejmyre, þar sem við eyddum tveimur nóttum í góðu
yfirlæti.
Nadja gaf mér meðal annars kvöld í lúxussánu úti í skóginum á Bjarnarey
og þangað héldum við þann 29. desember og var nokkur svaðilför. Við
byrjuðum á því að sækja lykla í útivistarbúð og fengum þar leiðbeiningar
um hvernig við ættum að keyra í gegnum skóginn til að finna sánahúsið.
Það reyndist svo hægara sagt en gert. Það var kolniðamyrkur og vegirnir
allir einbreiðir drulluslóðar. Okkur tókst meðal annars að villast upp á
göngustíg og niður í gegnum skóginn á hinn enda Bjarnareyjar, sem er
svona „gated community“ og maður á ekki að komast án leyfis. Þar gátum
við valið um að keyra aftur til baka yfir göngustíginn eða vekja einn af
ríkisbubbunum og fá hann til að opna fyrir okkur hliðið – sem við
gerðum. Það tók okkur samanlagt um 45 mínútur að finna kofann, sem var
kannski þrjár mínútur frá útivistarbúðinni. Þar var síðan mjög gott að
vera – útsýni út á Mälaren og borgina og risastór viðarsána (við hefðum
t.d. hæglega getað brotið samkomubann). Við höfðum hringt á undan okkur
á indverskan veitingastað þar sem við ætluðum að sækja okkur mat og fara
með heim – og verið lofað að þar yrði opið til 22. Þegar við komum
korter í var búið að loka og raunar allt lokað lika nema Subway – þar
sem var rekið hressilega á eftir okkur að panta og borga af því
kassakerfið myndi slökkva á sér eftir þrjár mínútur, þegar klukkan yrði
22. Með mínum ítalska BMT og Nödju Veggie Special höfðum við Cote du
Rhone - Alain Jaume, 2012 – sem við höfum bæði smekk fyrir. Sjá
meðfylgjandi mynd af borðhaldinu.
Það var talsverður kurr í pólitíkinni í desember eftir að í ljós kom að
Fredrick nokkur Federley, lykilmaður í sænska Miðflokknum og þingmaður á
Evrópuþinginu, reyndist eiga í ástarsambandi við dæmdan
kynferðisbrotamann. Sem var vel að merkja ekki heldur dæmdur fyrir neitt
smávegis káf heldur margfaldar barnanauðganir. Federley sagði af sér
eftir nokkra daga en tókst einhvern veginn að búa það þannig að hann
væri fyrst og fremst að segja af sér sjálfs sín vegna – þetta væri allt
svo rosalega erfitt. Sem ég trúi reyndar alveg en það var samt
undarlegur vinkill.
Stefan Löfven, forsætisráðherra, lagði hart að löndum sínum að forðast
verslunarmiðstöðvar, skíðasvæði og aðra slíka staði og skoraði á
verslanir að sleppa hinum hefðbundnu útsölum milli jóla og nýárs.
Nokkrum dögum síðar fór dómsmálaráðherra á einmitt slíka útsölu;
forsætisráðherra sjálfur brá sér í innkaupaleiðangur í verslunarmiðstöð
og fjármálaráðherra var tekinn í röð á skíðasvæði. Mikið hef ég heyrt
sænska kunningja mína stynja hvers vegna sænskir stjórnmálamenn þurfi
alltaf að vera svona óábyrgir – hvað það sé í sænska vatninu sem geri
það að verkum að kjörnir fulltrúar í þessu landi geti bara ekki axlað
ábyrgð. En þetta er víst ekki sænskt, frekar en það er íslenskt.
Það styttist í að nýju sóttvarnarlögin – „pandemilagen“ – taki gildi.
Fyrst áttu þau ekki að taka gildi fyrren í vor en því var flýtt með
einhverju átaki og frá og með 10. janúar munu sænsk yfirvöld eiga hægara
með að draga úr umferð í verslunarmiðstöðvum og loka fyrir starfsemi, ef
þau telja þörf á. Ég veit ekki hvort ég á að búast við því að það verði
gert eða hvort þetta er bara einhver sýndarleikur. Ef þeim gengur svona
vel að bólusetja ættu áhættuhópar fljótlega að vera úr hættu – reyndar
hefur Tegnell sætt gagnrýni vegna þeirrar stefnu að bólusetja alla
áhættuhópa á undan starfsfólki í framlínunni (sem eru þó líklegust til
að bera inn smit – eiginlega eina fólkið sem þarf að fara inn og út af
heimilum og stofnunum). En Tegnell er sérsinna með þetta einsog annað.
Það var sett nýtt met í dauðsföllum á sólarhring þann 28. desember – 243
– en mér sýnist að það sé ekki talið almennilega dagana á undan svo
sennilega er það uppsafnað. En jafnvel að teknu tilliti til þess sýnist
mér staðan álíka slæm og hún var í vor – og auðvitað hætt við að jól og
áramót og skólabyrjun geri nú illt verra.
Í íþróttafréttum er það helst að frétta að sænska kvennaliðið Göteborg
FC hefur verið lagt niður – bara púff, það er ekki til lengur. Þetta
væri kannski ekki jafn fréttnæmt ef Gautaborg FC væri áhugamannalið í
Flerohopp en Gautaborg er stórborg og Gautaborg FC nýkrýndir
Svíþjóðarmeistarar. Aðstandendur liðsins segja að tilgangur þess hafi
bara verið að blása lífi í kvennafótboltann og nú sé það frá – það séu
fjögur önnur kvennalið í Gautaborg og óþarfi að halda áfram. Það þykja
mörgum ansi kaldar kveðjur og ekki hefur þótt ástæða til að láta með
meistaralið karla einsog þau hafi verið átaksverkefni um kynjajafnrétti
– eða annað – en ekki fyrst og fremst fótboltalið.
Blaðamaðurinn Stephan Mendel-Enk skrifaði grein í Dagens Nyheter um að
sænska „svårmodet“ – sem er sennilega einhvers staðar mitt á milli þess
að vera þunglyndi og fálæti – væri horfið. Þegar hann hefði verið ungur
hefðu íþróttamenn ekki brosað í viðtölum – ekki einu sinni þegar Björn
Borg vann sína stærstu sigra, virtist hann vilja deila gleði sinni með
sjónvarpsmyndavélum – og jafnvel meinstrím popparar gerðu heldur ekkert
til þess að létta stemninguna þegar við þá var rætt. Þetta var hluti
hinnar sænsku sjálfsmyndar – svona Bergmann light, að sýna að tilvistin
væri náttúrulega hvað sem öðru leið óbærileg. Nú séu allir orðnir
hálf-amerískir í brossmjaðri sínu og gæti sín að láta aldrei annað sjást
á sér en gleði og ánægju. Mendel-Enk hnýtir því við að svo sé einsog
skorturinn á „svårmod“ brjótist út í beiskju og popúlískri reiði – þegar
jákvæðnin rofnar taki heiftin við.
Mér flaug það í hug á dögunum eftir kórónasamræðu við kunningja minn –
sem var á barmi þess að vera rifrildi – að í raun væri afstaða hans (að
það væri eitthvað „skrítið að baki“ – veiran væri ekki svona hættuleg og
afleiðingar lokana í raun hættulegri) einhvers konar jákvæðni. Enda
myndi tilhugsunin um að allt væri jafn hræðilegt og sumir segðu afsönnun
á sjálfu réttmæti léttlyndisins – og þar undir væri ekkert nema hyldýpi
af existensíalískum hryllingi. Kunningi minn klykkti svo út með því að
segja að hann hefði nú eiginlega sama og ekkert lesið fréttir síðan í
sumar.
Og að því sögðu er ekkert fleira í fréttum að sinni
2. janúar
Fréttir frá Svíþjóð: EXTRA
Forstjóri Almannavarna Svíþjóðar eyddi jólunum á Las Palmas. Aðspurður
segir hann ferðina hafa verið nauðsynlega enda þurfti hann að eyða
jólunum með dóttur sinni, sem á heima þar. Meira legg ég ekki á ykkur í
bili.
Yfir og út.
12. janúar
Fréttir frá Svíþjóð.
Lengsta jólafríi í manna minnum lauk í gær þegar Waldorfskólinn í
Västerås opnaði á ný. Hafi ég skilið rétt var ákveðið að gefa þessu
aukaviku til þess að hafa stuðara á veiruna – fólk hefði tíma til að
sýna einkenni eftir fjölskyldujólin. Ég ætlaði að vinna á nóttunni meðan
krakkarnir væru heima en það varð meira að því að ég sinnti skriffinnsku
eftir hádegi en „skapandi skrifum“ í (mismikilli) þögninni á kvöldin. Og
lá svo og las í rúminu til fjögur. Það gengur bærilega að vinna þótt mér
finnist ég stundum vera í einhvers konar geðrofi þegar ég er að þessu –
ég fékk listamannalaun út á handritið (sem var samt umtalsvert bilaðra í
september en það er núna). Brúin í Tangagötunni reyndist þriðja mest
selda kilja síðasta árs. Hún kemur út á sænsku um það leyti sem við
flytjum aftur heim.
Búið er að bólusetja áttatíu þúsund manns í Svíþjóð. Mér fannst það
ofsalega mikið en svo fór ég að reikna og það eru þá samt rúmlega tíu
milljón manns eftir. Hér deyja um 100 manns á dag, sem er að sama skapi
kannski ekki stórt hlutfall af þjóðinni, en samt með hæsta móti – og
ríflega tíu sinnum hærra dánarhlutfall en í Noregi eða Finnlandi. Þetta
eru auðvitað ekki fréttir fyrir neinum (ég er áreiðanlega búinn að
tyggja þetta ofan í ykkur tíu sinnum núna) en ég stend mig samt að því
að þurfa að minna sjálfan mig á þetta reglulega. Því þótt fólk passi
sig, fari ekki í vinnuna með nefrennsli og grímur séu jafnvel að verða
algengari og algengari sjón – þá er líka stundum einsog þetta sé alls
ekki að gerast. Þetta verður einhvern veginn ekki „alltumlykjandi“ – ég
nefndi það t.d. við mann á dögunum að ég væri búinn að setja upp
heimaskrifstofu, loksins (sjá mynd), laus úr eldhúsinu og kominn með
mitt eigið skrifborð í stofunni, og hann spurði bara mjög kasúalt hvort
ég hefði ekki haft nægt næði á kaffihúsunum (þar sem ég vann fram í
byrjun október). Og það bregst ekki að þá líður mér einsog pedantískum
fábjána að fara að nefna heimsfaraldurinn – svona einsog ég sé að tala
um 5G mengun.
Flest fólk er með svör á reiðum höndum um hvers vegna margir hafi látist
í vor. Veiran slapp inn á elliheimilin, þeir sem dóu voru fyrst og
fremst þeir sem voru á grafarbakkanum, við vissum ekki hvað við vorum að
díla við fyrren svo seint og svo framvegis. Mér fannst alltaf fólgið í
þessum svörum, sem urðu til í vor og í sumar, að haustið yrði léttara –
það væri búið að bregðast við lekanum og nú væri ljóst hvað hefði farið
úrskeiðis. Þá myndi ákveðið hjarðónæmi gera það að verkum að Svíar væru
ekki jafn útsettir fyrir vírusnum lengur og nágrannaþjóðirnar – búnir að
taka sitt.
Svo jesúsa þeir sig gjarnan yfir kórónaástandinu í Bandaríkjunum (sem
bætist auðvitað ofan á margt annað þessa dagana) en í raun er munurinn
alls ekki svo mikill. Að minnsta kosti ekki í uppsöfnuðum dauðsföllum
miðað við höfðatölu.
Hvað varðar almennt smit er eiginlega engin leið að bera það saman því
það var ekkert mælt í vor. Lokasvarið í allri samræðu er síðan
undantekningalítið: En svo er þetta auðvitað ekki keppni. Síðan ygglir
sig einhver framan í mann einsog maður hafi verið að reka við.
Fyrir nokkrum dögum byrjaði að snjóa. Í augnablikinu er sólbjart og
hvítt úti, draumi líkast. Haustið var vægast sagt dumbungslegt og myrkt,
meira að segja fyrir Ísfirðing, en nú er fallegt.
Veðurfréttirnar síðustu daga hafa verið fullar af stríðsfyrirsögnum um
ógurlega snjókomu víða í landinu en hér er bara svona passlega hvítt
yfir öllu – að vísu svolítið blautlegt en það á að kólna meira og
vonandi gengur það eftir. Annars er það áhugaverð tilbreyting að
veðurfréttirnar á forsíðu stóru miðlanna eru ekki alltaf bara af
höfuðborgarsvæðinu, einsog er gjarnan á Íslandi, heldur virðist lagt
einfalt fréttamat á það hvar í þessu langa landi sé fréttnæmasta veðrið
og sagt er frá því.
Ég hef síðan veitt því athygli á samfélagsmiðlunum mínum að Svíar
virðast mjög óvanir því að skokka í snjó eða hálku – þeir sem ekki
stunda vetrarsportið hafa miklar áhyggjur af því að geta ekki haldið sér
í formi í þessu ástandi – hált úti og maður á ekki að fara í ræktina.
Meiri sand! hrópa þeir. Meira salt! Mokið hraðar! Sjálfur fer ég út
annan hvern dag og tek stuttan hring, þrútinn af þreytu eftir
jólaofátið, og er ekki einu sinni byrjaður að íhuga að spá í því að sjá
eftir því að hafa skilið mannbroddana eftir heima. Þetta er bara
fínt.
Ég sagði frá því örstutt hér um daginn að formaður sænsku
almannavarnanna, Dan Eliasson – hinn sænski Víðir – hefði brugðið sér
til Kanarí yfir jólin. Þar býr dóttir hans og sagði hann aðspurður að
það hefði verið sitt mat að ferðin væri nauðsynleg. Enda vildi hann eyða
tíma með dóttur sinni. Eliasson neyddist síðan til að segja af sér – í
uppsagnarbréfinu fer hann fram á flutning í starfi og gárungar spurðu
hvort það væri ekki best að senda hann þá bara til Las Palmas. Svo kom í
ljós að þetta var ekki einu sinni fyrsta ferðin hans í einkaerindum til
Kanarí þetta haustið. Hann virðist heldur ekki hafa ráðfært sig við
neinn (ekki það fólk bjóði uppá þannig upplýsingar). Þegar hann kom
aftur heim úr jólafríinu voru fjölmiðlar komnir í málið og hann fékk að
læðast bakdyramegin út af Arlanda. Sem er í sjálfu sér áhugavert líka,
þótt ég hafi ekki séð neinn setja spurningamerki við það per se.
Annars var alls konar útstáelsi á stjórnmálamönnum í kringum hátíðirnar,
þótt þeir hefðu ekki allir farið úr landi. Einn af þingmönnum
Moderaterna – sem er Sjálfstæðisflokkur þeirra Svía – Cecilia Tenfjord
Toftby, var mjög harðorð í garð heimsóknar forsætisráðherra í
verslunarmiðstöð í símaviðtali á útvarpsstöðinni P4. Svo kom seinna í
ljós að Toftby var sjálf á Spáni þegar viðtalið fór fram. Maður á ekki
að hlæja að þessu en maður gerir það samt.
Skilnuðum í landinu fjölgaði ekki 2020, einsog óttast var. Þetta sýna
nýjar tölur sem ná yfir allt árið. Skilnuðum í Stokkhólmi, þar sem
veiran var skæðust í vor, fjölgaði að vísu um 14% en þeir virðast hafa
dregist nóg saman annars staðar til að landið sjálft komi út á núlli.
Kannski hrundu bara viðkvæmu hjónaböndin strax í fyrstu bylgjunni. Nú
rámar mig reyndar í að hafa lesið einhvers staðar að hvergi í heiminum
væru einmenningsheimili jafn algeng og í Stokkhólmi – þeim hefur þá
væntanlega fjölgað aðeins.
Mér er stundum hugleikið hversu mikið það er af Svíþjóð og sænskri
menningu á Íslandi og hversu lítið það er af Íslandi og íslenskri
menningu í Svíþjóð. Þetta er auðvitað skiljanlegt í ljósi stærðarmunar –
en hlutföllin eru jöfn í fjölskyldunni, og engu að síður stundum á
brattann að sækja fyrir smáþjóðina innanhúss.
Ég hef sennilega nefnt það áður að þegar gerður er samanburður á
norðurlöndunum heyrir til undantekninga hér að Ísland sé tekið með.
Norðurlöndin eru Danmörk, Noregur, Finnland og Svíþjóð. Kannski er
Ísland álíka oft með og Færeyjar eru með þegar gerður er álíka
samanburður í íslenskum fjölmiðlum? Ég kippist við ef ég heyri íslenskt
lag einhvers staðar – reglan hefur verið hingað til að það sé þá
Eurovision lag (annað hvort Daði eða Jóhanna Guðrún, sem var mjög
vinsæl). Stundum líður mér líka einsog spesímeni þegar ég hitti Svía –
sem spyrja gjarnan um Arnald, Ófærð eða íslenska hestinn (maður þarf
líklega að vera sérstakur áhugamaður um land og þjóð til að þekkja allt
þrennt).
Við höfum alltaf horft á sænska jóladagatalið á SVT. Og börnin hlusta á
annað í útvarpinu. Íslendingar hafa ekki framleitt sitt eigið
jóladagatal í hundrað ár. En í ár brá svo við að Borgarleikhúsið gerði
sitt eigið jóladagatal með margvíslegum skemmtiatriðum – sem var mjög
gaman. Þar var til dæmis lesið upp úr bókunum um Pettson och Findus,
Lína langsokkur var með atriði og það var mjög skemmtilegt
tónlistaratriði úr söngleiknum Mamma Mia. Svo var líka lesið upp úr
Múmínálfunum, en þeir eru auðvitað bara finnlandssænskir. Þá gerði Óli
Egils sænskt jólasinnep með áhorfendum – fékk meira að segja fræin frá
bróður sínum í Stokkhólmi.
Fleira er ekki í fréttum að sinni.
9. febrúar
Fréttir frá Svíþjóð.
Það hefur ekki verið jafn mikil gúrkutíð í konungsríkinu síðustu
vikurnar og ætla mætti af þögn fréttaritara. Ég er í Visby á Gotlandi,
sit undir kirkjuturni, og „kláraði“ bók á dögunum (maður klárar þessar
bækur víst a.m.k. tíu sinnum áður en þær eru klárklárar). Hún hefur
eðlilega átt hug minn allan – ég hef varla nema skotist út úr litla
herberginu mínu til að sækja mér fæðu í þrjár vikur. Á morgun sný ég svo
blessunarlega heim til Västerås úr útlegðinni, með þessa skrítnu bók
mína í farteskinu. Sem verður svo bara að koma í ljós hvað verður um,
hvað ég geri með. Tilfinningar mínar í hennar garð eru vægast sagt
sveiflukenndar í augnablikinu.
Það hefur margt gerst á þessum tíma og kannski best að byrja bara á að
stikla á stóru.
Lars Norén dó – þar fór eitt allra mikilvægasta skáld Svía síðustu 60
árin eða svo. Það var Covid sem kom og sótti hann.
Talsvert hefur verið tekist á um vetraríþróttir og iðkun þeirra. Fyrsta
og stærsta málið snerist um hóp fólks sem byrjaði óforvarendis og án
leyfis að stunda snjóþotuakstur í kirkjugarði í Stokkhólmi. Önnur hafa
snúist um aðgerðir ólíkra sveitarfélaga til þess að ýmist opna ný
útivistarsvæði – með því sem dæmi að búa til skautasvell þar sem fólk
getur leikið sér, svo fólk hafi eitthvað við að vera utandyra í covidinu
– eða loka þeim sem voru opin fyrir, svo fólk sé ekki að hittast að
óþörfu. Þar rekast víst á einhver lýðheilsusjónarmið og er lítið
stefnusamræmi milli svæða. Svo var víst hópur Svía sem fór til
Austurríkis – ásamt annarra þjóða kvikindum – leigði sér skíðahótel
undir þeim formerkjum að þeir væru að fara í mjög mikilvæga vinnuferð.
En svo voru auðvitað þeir bara fullir á skíðum að frussa hver framan í
annan allan liðlangan daginn.
Kvikmyndahátíðin í Gautaborg var með óvenjulegu sniði í ár. Það var hægt
að kaupa sér miða og horfa á netinu – Nadja gerði þetta í minni fjarveru
– en svo var hátíðin líka haldin í kjötheimum, með einum gesti,
hjúkrunarkonunni Lisu Enroth, sem valin var úr hópi 12.000 umsækjenda.
Var hún flutt til eyjunnar Pater Noster þar sem hún fékk að horfa á
allar þær myndir sem sig lysti.
Læknalínan í Stokkhólmi – númerið sem maður hringir í til þess að fá
ráðgjöf og vísa sér áfram – er löngu einkavædd, einsog svo margt annað í
þessu landi frjálshyggjunnar. Hins vegar gerðist það á dögunum að
sjúkraþjónustan KRY, sem rekur ótal klíníkur, keypti fyrirtækið sem
rekur læknalínuna. KRY er eðli málsins samkvæmt fyrirtæki í samkeppni
við aðrar klíníkur (og almenna heilsugæslu). Mun KRY standast
freistinguna að senda sjálfu sér alla „viðskiptavinina“? Læknasambandið
hefur ályktað gegn þessum viðskiptum.
Ungum manni, Ishmael Ibn Ibrahim, var brigslað um nauðgun tveggja
stúlkubarna í Kalmar. Nafn hans og kennitala voru birt á fjölda
heimasíðna þar sem barnaníðingar og nauðgarar eru afhjúpaðir. Það kom
hins vegar í ljós að maðurinn sem var handtekinn fyrir glæpinn var alls
ekki Ishmael þessi, heldur annar maður sem hafði komið höndum yfir
glötuð skilríki Ishmaels – fram kemur í fréttum að þeir eru alls ekki
líkir og það skilur enginn hvers vegna lögreglan samþykkti skilríki
Ishmaels sem skilríki þessa manns (*hóst* rasistar *hóst*). DNA mannsins
var þess utan tekið og skráð sem DNA Ishmaels – og þar með bættist við
ein nauðgun í viðbót á nafn Ishmaels. Fyrir utan ofsóknir á netinu (í
sinn garð og fjölskyldu sinnar) mátti Ishmael þola að vera fastur í
réttarkerfinu vikum saman áður en hann var loks lýstur saklaus. Ishmael
þessi var ekki í Svíþjóð þegar þessi ósköp gengu yfir, heldur á Íslandi
þar sem hann var að læra farþegaflug.
Það hefur verið talsvert bóluefnissvínarí meðal embættismannaskrílsins í
landinu. Meðal annars voru fjórir yfirmenn í sveitarfélaginu Eskilstuna,
sem er næsti bær við Västerås, gripnir við að útvega sér og sínum
nánustu bóluefni – og mörg dæmi eru um álíka hegðun annars staðar.
Sennilega er þetta afleiðing af sama kerfi og hefur gefið af sér kaosið
í heilbrigðiskerfinu þetta tæpa ár – það er að segja skortur á
miðstýringu, þar sem í stað einvalds ríkja þúsund smákóngar í hverjum
bæ, sem allir halda að þeir megi gera nokkurn veginn hvað sem þeim
sýnist. Alvörukóngurinn fékk svo auðvitað að fara fram fyrir röðina en
það voru ekki allir sáttir við það heldur.
Ég gæti haldið áfram í allan dag að þylja upp fréttir. Það sló mig á
dögunum að auðvitað er aldrei gúrkutíð – það gerast stórfréttir á
hverjum degi, jafnvel í minnstu bæjum. Og ef maður bíður með að segja
fréttir af 10 milljón manna þjóð í þrjár vikur er hætt við að manni
finnist maður vera að drukkna í mikilvægum fréttapunktum. En það er
auðvitað bara af því manni finnst maður þurfa að vera meðvitaður um alla
skapaða hluti. Sem er auðvitað ekki rétt. Sennilega er best að skipta
svolítið með sér verkum í þessu. Ef maður reynir að hafa áhyggjur af
öllu í einu er hætt við að maður hafi aldrei áhyggjur af neinu.
En nú ætla ég að segja þetta gott í dag.
