Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Ræða á Palestínumótmælum

Ræða á mótmælafundi á Ísafirði.
Ræða á mótmælafundi á Ísafirði.

Staðan er þessi. Nærri því 20 þúsund manns hafa látið lífið í árásum Ísraelsmanna á Gaza síðustu tvo mánuði. Þau sem lifa eru flest heimilislaus og á flótta – hús þeirra hafa verið jöfnuð við jörðu – og þau hafa lítinn aðgang að vatni, fæðu, læknisaðstoð eða húsaskjóli. Nærri því helmingur þessa fólks er börn.

Árásir Ísraelsmanna eru hefndarárásir – hreinar og klárar – vegna aðgerða Hamasliða þann 7. október síðastliðinn þar sem 1.200 manns létust. Það var stærsta fjöldamorð á gyðingum í tæplega áttatíu ár, eða frá því helförinni lauk.

Í sjötíuogfimm ár hafa Palestínumenn lifað undir járnhæl Ísraelska ríkisins – upp á náð og miskunn erlends stjórnvalds. Gaza hefur lengi verið kallað „stærsti fangelsisgarður heims“ en nú eru jafnvel stillilegustu skriffinnar farnir að líkja því við helvíti á jörðu.

Við fyllumst vonleysi. Við fyllumst máttleysi. Við fyllumst vonleysi og máttleysi.

Það er ekki hægt að tala um Palestínu án þess að tala um Ísrael og það er ekki hægt að tala um Ísrael án þess að tala um helförina og sennilega höfum við Evrópumenn alls engan rétt til þess að tala um helförina, sannarlega ættum við að varast að gera það í umvöndunartón, hún er okkar arfleið, okkar smánarblettur til þess að bera meðan enn er búið á jörðinni. En þetta eru ekki aðskilin umræðuefni heldur sami þráðurinn, sömu þræðirnir, og ástandið kallar á allt annað en þögn. Við þurfum að tala, höfum ekki efni á því en þurfum að tala samt.

Og þá fyllumst við vonleysi. Við fyllumst máttleysi. Við fyllumst máttleysi og vonleysi.

Ísraelsríki átti að vera skjól þess fólks sem við höfðum reynt að útrýma, og varð, hvað sem öðru líður, líka til þess að fullkomna þá vegferð: Þeir gyðingar sem lifðu af helförina fluttu flestir burt, flúðu okkur, sem höfðum reynt að útrýma þeim og settust margir að í landi sem við gáfum þeim af alræmdu samviskubiti, alræmdu skeytingarleysi gagnvart hagsmunum hörundsdökkra í heiminum, gamalli nýlendu sem hefði með réttu átt að fá sjálfstæði einsog svo margar aðrar evrópskar nýlendur en fékk í staðinn nýtt líf sem hið endurreista Ísrael, söguland Gyðinga, heilaga landið, skjól fyrir glæpum morðóðustu ættbálka mannkynssögunnar: ættbálkum Evrópu.

Maður fyllist vonleysi. Og maður fyllist máttleysi.

Frá fyrsta degi hefur ríkt stríðsástand. Ísraelsmenn hafa mætt því einsog þeir Evrópubúar sem þeir eru eða voru – með vel fjármögnuðu, tæknivæddu og faglegu ofbeldi. Og Palestínumenn hafa svarað með ofbeldi af því tagi sem okkur þykir jafnan ósiðmenntaðra og þar með óréttlætanlegra: ofbeldi sveðjunnar, sjálfsmorðsárásarinnar, hryðjuverkanna, ofbeldi hins yfirdrifna, myndræna, ævintýralega sjónarspils, ofbeldi þess sem vill valda sem mestri ógn en hefur ekki tæki og tól til þess að gera það með þeim hætti sem okkur finnst að siðað fólk eigi að fremja slíka glæpi; það er að segja með samstíga einkennisklæddum ofbeldismönnum í dýrum tækjum, menntuðum í mannsmorðum og pyntingum, sem fremja voðaverk sín með leisersigti og þiggja orður fyrir.

Þar sem við stöndum hér og fordæmum ofbeldi Ísraelsmanna skilyrðislaust skulum við líka gangast við því að þetta er ofbeldismenningin okkar, ofbeldi einsog við stundum það, hinar síviljugu og siðuðu þjóðir Evrópumanna beggja vegna Atlantsála – ofbeldi einsog við höfum beitt því frá nýlendunum í Afríku og leppríkjunum í Suður-Ameríku til Írak og Afganistan, frá Víetnam og Alsír til Hiroshima og Auschwitz. Þegar Ísraelsmenn segja okkur sek um gyðingafordóma þegar við gagnrýnum þá fyrir að gera það sem við leyfum okkur sjálf er það þetta sem þeir eiga við: Við – hinir sjálfskipuðu fánaberar siðmenningarinnar – höfum alltaf sjálf leyft okkur að leysa okkar vandamál með því að sprengja þau í loft upp, án þess að stoppa til þess að telja líkin, að því einu tilskildu, að líkin séu ekki hvít á hörund. Ísraelsmenn biðja ekki um annað en að fá að vera einsog við, þeir biðja um leyfi til þess að beita þeim meðulum sem okkur hefur fundist sjálfsagt að beita þegar okkar eigin hagsmunum hefur verið ógnað. Ef við megum sprengja Bagdad vegna árásanna 11. september, hvers vegna mega þeir ekki sprengja Gazaborg vegna árásanna 7. október?

Við fyllumst vonleysi, við fyllumst máttleysi og vonleysi og máttleysi og vonleysi og máttleysi. Þetta verður ekki útskýrt. Þetta verður ekki rætt. Við komumst aldrei til botns í þessu vegna þess að allt sem við þurfum að segja er á einhvern hátt ómögulegt.

Ísraelsk yfirvöld vita vel að þau geta ekki útrýmt Hamas, ekki þó þau dræpu hvern einasta Palestínumann á jarðríki, hvert einasta palestínska barn, því Hamas er hugmynd og það þýðir ekkert að henda sprengjum í hugmyndir. Höfum í huga að hugmyndin um ísraelska móðurjörð Gyðinga lifði af 2.500 ára útlegð og meiri hörmungar en orð fá lýst. Nei, þau geta ekki útrýmt Hamas – einsog aðrir sem treysta á ofbeldi til lausnar sinna vandamála vilja ísraelsk yfirvöld einfaldlega ráða einu augnabliki í einu – ofbeldið verður að vera viðvarandi, höggin verða að leiða hvert af öðru, annars hætta þau að virka og þegar þeim linnir vofa yfir þeim reiðin, heiftin og hefndaraðgerðirnar.

Við fyllumst vonleysi. Fyllumst máttleysi. Stundum til skiptis. Stundum bæði í senn. Stundum fyllumst við sorg, stundum reiði, stundum nærir sorgin reiðina, máttleysið, vonleysið og við gerum ekki annað en að fallast hendur og fyllast enn meira vonleysi.

Bandaríski rithöfundurinn Shalom Auslander sagði einhvern tíma að það skelfilegasta við þjóðernissósíalismann í Þýskalandi á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar hefði kannski ekki verið hatrið sem birtist í honum heldur hitt, að átta sig á því að nasistar teldu sig líka vera að berjast gegn óréttlæti heimsins. Þessu marki er illskan nær alltaf brennd – hún telur sig í rétti og ryðst þess vegna áfram án þess að leiða hugann að öðru en því að hún sé í rétti.

Þetta hugsa Ísraelsmenn þegar þeir varpa sprengjum á leikskóla og spítala á Gaza: Við erum í rétti.

Og þetta hugsa Hamasliðar þegar þeir bregða sveðjum á hálsa tónleikagesta í Ísrael. Við erum í rétti.

Við fyllumst vonleysi og máttleysi og vonleysi og rifjum upp að þjóðskáld Palestínumanna, Mahmoud Darwish, sagði að án vonar værum við glötuð. Og samt erum við vonlaus og þorum ekki öðru.

Þegar eftirlifendum var sleppt úr útrýmingarbúðunum í Buchenwald sögðu þeir: „Aldrei aftur.“ Aldrei aftur. Orðin fengu fræga vængi og hafa síðan verið dregin upp svo oft og af svo mörgu ólíku tilefni að merking þeirra ræðst orðið fyrst og fremst af því hver það er sem mælir. Aldrei aftur, segja þeir sem réttlæta árásirnar á Gaza – því hatur Palestínumanna á drottnurum sínum sé einhvern veginn sambærilegt við hatur nasista á Gyðingum, það verði að uppræta Palestínumenn enda ætli Palestínumenn að uppræta Gyðinga. Og aldrei aftur, segja þeir sem óttast að nú stefni í þjóðarmorð á Gaza, enda ætli ísraelsk yfirvöld að uppræta Palestínumenn.

Við fyllumst máttleysi og vonleysi, máttleysi og vonleysi, og neyðum okkur síðan til þess að vona – þrátt fyrir allt, þrátt fyrir yfirþyrmandi vonleysi og máttleysi. Því við viljum ekki vera vonlaus; ekkert í heiminum er hættulegra, ekkert skaðlegra, en vonlaus manneskja. Við neyðum okkur til þess að vona því án vonar eru engin orð og engar gjörðir, án vonar engin ást og án vonar gerum við engar kröfur – ekki um frið, ekki um reisn, ekki um vopnahlé, miskunn eða mannúð – án vonar eru valmöguleikarnir bara tveir, uppgjöf eða gereyðing. Án vonar stæðum við ekki hér. Þetta er það sem Darwish átti við. Án vonar erum við glötuð. Við verðum að magna ljósið hvert í öðru, því það er enginn kraftur annar en ljósið sem getur bundið endi á myrkrið.

Takk fyrir.

← Allt safnið