Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Af sparifatalitteratúr og öðrum bókmenntategundum

Af sparifatalitteratúr og öðrum bókmenntategundum

Við skulum leyfa okkur að skipta bókmenntum í fimm kategóríur, þvert á allar bókmenntagreinar frá ritgerðum til reyfara: Góðar, „góðar“, vondar, „vondar“ og lélegar. Við skulum leyfa okkur það vegna þess að stundum þarf maður einfaldlega að leyfa sér fullyrðingar í samræðu – ég á ekki við að allt sé nákvæmlega einsog ég segi, heldur að þetta sé innlegg, hugmynd, ræðið og takið afstöðu (einsog á samræmdu prófi) til eftirfarandi hugdettu: Bókmenntir skiptast í  a) góðar bókmenntir b) „góðar“ bókmenntir c) vondar bókmenntir d) „vondar“ bókmenntir og e) lélegar bókmenntir. Einn, tveir og byrja.

„Góðar“ bókmenntir eru bókmenntirnar einsog talað er um þær á tyllidögum; sparifatalitteratúr sem sýnir okkur fram á að við (yfirleitt við þjóðin) erum einsog við héldum að við værum. Kannski dálítið þrjósk, kannski dálítið harðbrjósta eftir slæma meðferð, en aldrei svo að góðmennska okkar hafi ekki vinninginn á endanum. Fyrst og fremst erum við samt fórnarlömb illra afla. Við erum öll Salka, en allir hinir eru Þríhross. Þessar bókmenntir eru yfirleitt skrifaðar af svokölluðu listfengi, en í því felst að skrifa lágt og rámt um stóra viðburði, svona einsog maður segir börnum draugasögur; í því felst gnægð náttúrumyndmáls og stöðugar vísanir í gott og illt, hyldjúpar vítisgjár og sólríka skýjabakka Drottins (en þó ekki svo að nokkrum detti í hug að höfundur sé trúaður á annað en „mátt skáldskaparins“). Þær gæla við hugmyndafræði fjöldans einsog illmenni í Bondmynd strýkur læðum.  

Vondar bókmenntir eru ekki endilega vondar við fyrstu sýn – líkt og „góðar“ bókmenntir geta þær hæglega virst auðga andann og veita oss blindum sýn – en við nánari athugun eru markmið þeirra ill. Því rétt einsog bókmenntir geta styrkt sýn okkar á heiminn geta þær veikt hana; rétt einsog þær geta kennt okkur skilning geta þær kennt okkur fyrirlitningu, geta búið til óvini úr saklausu fólki; rétt einsog þær geta stækkað heiminn getað þær smættað hann, einfaldað hann, geta staðið og híað einsog heimskur skólastrákur, sem flissandi hefur engan skilning á því að öðrum finnist hann ekki fyndinn. Vondar bókmenntir hafa í gegnum tíðina spilað stóra rullu í annars lítt skiljanlegum vinsældum illskunnar (því hver myndi vera vondur, sem gæti verið góður?).  

Lélegar bókmenntir eru líklega skömminni skárri en vondar, en bara sem nemur herslumuni, og mér er þvert um geð að játa það. Því á meðan vondar bókmenntir eru dálítið einsog arseniklegið lambalæri eru lélegar bókmenntir kannski meira einsog hamborgarabuff úr transfitum, útrunnum vellingi og MSG. Þetta eru bókmenntir til einnar nætur – og maður sér það meira að segja á frágangi útgefandans, frágangi höfundar, að þegar allt kemur til alls er öllum skítsama hvað stendur innan kápunnar á meðan í því felst einhver eilítil stundarfró og maður getur talið sér trú um að maður sé einhvern veginn lærðari og betri en þeir sem sitja yfir draslinu í sjónvarpinu. En draslið í bókunum er bara ekkert skárra en draslið í sjónvarpinu (raunar er draslið í sjónvarpinu oft töluvert metnaðarfyllra en draslið í bókunum). En lesendur sumsé troða í sig léttmetinu, liggja svo afvelta á meltunni, vannærðir með bjúg á sálinni og skilja ekkert hvers vegna þeim líður illa, hvers vegna þeir eiga svo bágt með að skilja veröldina, þykja vænt um veröldina, eða hvernig í ósköpunum þeir urðu svona heimskir.

Til „vondra“ bókmenntir teljast þær bækur sem skrifaðar eru í pörupiltapósum – já eða pörustúlknapósum. Slíkar bad boy bókmenntir eru raunar bæði heiðarlegt og mikilvægt viðbragð við heiminum og alveg áreiðanlega einhvers konar viðleitni til þess að brjótast út úr þeim óstjórnlega viðbjóði sem við köllum vanahugsun – en þær eru bara fyrsta skrefið og oft á tíðum (en alls ekki alltaf) styrkja þær stoðir föðurhúsanna sem þær reyna að flýja, byggja sér eigin hús í sömu mynd (án þess að átta sig einu sinni á því). Sem breytir því ekki að viðleitnin er, einsog ég segi, mikilvæg og kannski eru engar góðar bókmenntir til, sem ekki eru líka í aðra röndina „vondar“.

Góðar bókmenntir eru (svo að segja) allt annað. Mér er þvert um geð að tala um galdra – og orða með því lagi einungis þá tilfinningu að ég skil ekki hvernig það virkar og hef engan hitt sem getur útskýrt það fyrir mér svo vel sé. En sumsé, galdrar: Góðar bókmenntir gerast í einhverju göldróttri glufu milli hugsunar og veruleika og rjúfa stöðugt hvorutveggja svo manni finnst maður eilíflega standa í lausu lofti; fljúgandi eða fallandi. Þær flækja málin en gera okkur samtímis kleift að þreifa á þráðunum, rekja okkur eftir þeim, toga og teygja. Þeir stefna ekki að veruleikanum einsog við teljum að hann sé, heldur burt og út; þær sanna ekki það sem við þykjumst vita heldur sýna okkur fram á að við erum ekki hálft eins klár og við höldum okkur vera – þannig kenna þær okkur auðmýkt (og enga værðar auðmýkt, heldur miskunnarlausa auðmýkt) og hjálpa okkur við þá nauðsynlegu endurskilgreiningu sem veröldin verður stöðugt að vera undirorpin eigi hún að komast af.

Fæstar bækur eru hins vegar bara lélegar, bara vondar, bara „vondar“, bara „góðar“ eða góðar; þær eru þvert á móti lélegar/góðar, góðar/vondar, „góðar“/góðar eða allt í senn í hinum ýmsustu hlutföllum. Stundum fer það eftir því hver les þær. Stundum eftir því hvenær þær eru lesnar. Hvar þær eru lesnar og hvernig. Og svo er víst fleira hægt að segja um bækur en hvort þær séu „góðar“, góðar, lélegar, „vondar“ eða vondar. Hef ég frétt. Ekki að það fari mikið fyrir því.

← Allt safniðThe Art of Any Impact →