Kits, það er heimska viðtekinna hugmynda þýdd á tungumál fegurðar og tilfinningar.
Milan Kundera - List skáldsögunnar
Það sem stendur ekki í bókinni: Ríflega 30% íbúa Eistlands eru af rússnesku bergi brotnir. Þar af er um þriðjungur með rússneskt vegabréf, þriðjungur með eistneskt vegabréf og þriðjungur án vegabréfs – landlaus og er því ekki bara réttindalaus heima hjá sér heldur líka ómögulegt að fara burt. Rússneskumælandi Eistum er kerfisbundið mismunað í landinu. Þeim sem hefur tekist að fá ríkisborgararétt í landinu, eftir að hafa verið sviptir lýðréttindum við fall Sovétríkjanna, reynist umtalsvert erfiðara að fá vinnu, þeir fá ekki tungumál sitt viðurkennt nema að litlu leyti, þeir eru beittir ofbeldi af eistneskum þjóðernissinnum (og sjálfir oft handteknir af lögreglunni eftir átökin) og níðyrði á borð við „tibla“ (≈„rússamella“) og „homo sovieticus“ eru hluti af almennu málfari og birtast formálalaust í fjölmiðlum. Foreldrar þessa fólks, ömmur þeirra og afar og jafnvel langafar og langömmur voru flutt nauðungarflutningum til Eistlands. Líkt og í mörgum fyrrum Sovétlýðveldum er að finna djúpstæða fyrirlitningu á Rússum í Eistlandi, sem á sér sögulegar útskýringar en litla réttlætingu þegar Rússar eru sjálfir orðnir minnimáttar.
Og svo bókin: Hreinsun eftir Sofi Oksanen hefst á dálítilli táknsögu. Aliide nokkur, gömul kona, vaknar við flugu í svefnherberginu. Það er opið fram í eldhús þar sem finna má kjötstykki sem flugan má alls ekki verpa í og eyðileggja. Aliide stekkur á fætur og lokar dyrunum áður en flugan kemst fram. Ef maður sér Aliide sem tákngerving fyrir hina eistnesku móðurjörð (sem mér þykir ekki fráleit túlkun) þá er flugan Rússarnir – sem læddust inn án þess að nokkur vissi hvernig það gerðist (þetta var með sanni átakalítil innrás árið 1939; og rússneski minnihlutinn bara „birtist“ heimamönnum). Flugan ræðst síðan beint á lífæðina og hyggst þar fjölga sér og svelta þannig þá sem eiga réttmætt tilkall til heimilis á þessum stað. Þetta er hið svonefnda „demógrafíska þjóðarmorð“. Meindýrslíkingin er gömul og gróin í xenófóbískum áróðri – útlendingum er ýmist líkt við rottur, kakkalakka eða önnur nagdýr og pöddur, sagðir fjölga sér meira en nokkur getur skilið og mergsjúga velferðarkerfi (forðabúr) heimaþjóðanna.
Þessu er ekki beint að hugmyndum – þessi bók fæst einfaldlega ekki við hugmyndir – heldur að fólki. Og þótt það sé smekklegra sett í samhengi við innrás Rússa í byrjun seinni heimsstyrjaldarinnar þá er það strax ósmekklegra þegar horft er til Eistlands í dag, til þeirrar veraldar sem lesendur Hreinsunar tilheyra – og er heimskulegt hvort heldur sem er (einsog iðulega þegar fólki er líkt við meindýr).
Í Hreinsun eru Rússar aðskotadýr og eyðileggingarafl, nærvera þeirra boðar annars vegar ofbeldi og kúgun og hins vegar yfirgang í krafti fjöldans; þessa fólks sem fluttist til landsins: „Rússar sem komu hingað í leit að betra lífi, til að skemma, heimta og krefjast“ hugsar Aliide á síðu 296. Hvergi er nefnt að þeir hafi sjálfir verið fluttir nauðungarflutningum eða ýjað að því að þessi þriðjungur þjóðarinnar hafi verið landlaus og réttlaus árið 1992 – einu Rússarnir sem sjást það söguárið eru melludólgarnir frá Vladivostok. Í Hreinsun er bara pláss fyrir fórnarlömb af einu þjóðerni.
Zara er týnda dóttirin. Henni var rænt, hún svipt móðurjörðinni, flutt frá Eistlandi til Vladivostok, og villuráfandi endaði hún í fanginu á rússneskum melludólgum. Þegar henni tekst á endanum að flýja endar hún í garðinum hjá frænku sinni Aliide, lemstruð og særð, loksins komin aftur heim. Aliide er gömul og bitur, henni var sjálfri misþyrmt af Rússum og það gerði hana eigingjarna og grimma: Aliide er vond, en lesandinn fær að vita hvers vegna. Hún er manneskja. Melludólgarnir Pasha og Lavrenti, líkt og aðrir andlitslausari Rússar sögunnar, eru ekki manneskjur – þeir eru ekki vondir af neinni sérstakri ástæðu. Þeir bara eru það. Og þegar þeir birtast á dyraþrepinu spyrjandi eftir Zöru, með sín smeðjulegu bros og svikatal, lætur Aliide ekki lengur blekkjast. Áður en þeir komast leiðar sinnar hefur lemstraður fulltrúi hinnar eistnesku móðurjarðar, Aliide, hefnt fyrir glæpi Rússa – og hún hefnir ekki bara Zöru heldur einnig sjálfrar sín og þjóðarinnar, hefnir sín ekki bara á Pasha og Lavrenti, heldur öllum Rússum um alla tíð og öðlast þannig uppreisn æru fyrir eigin misgjörðir.
Sofi Oksanen hefur sjálf lýst Hreinsun sem pólitísku verkefni; talað um nauðsyn þess að segja sögu Eistlands í evrópsku samhengi frekar en rússnesku. Hreinsun er römmuð inn af höfundi sem sagnfræðilegt verkefni – þótt hún leggi áherslu á að hún sé ekki tæmandi úttekt – sem lýsing á veruleika sem við (hérna megin járntjaldsins) þekkjum ekki, en Sofi Oksanen þekkir, enda hafi hún verið ein af mjög fáum vesturlandabúum til að sækja heim og sjá hina raunverulegu og ófegruðu veröld kommúnismans, þegar hún fór til ömmu sinnar sem barn. Sofi Oksanen er finnsk í föðurætt en eistnesk í móðurætt, alin upp í Finnlandi og skrifar á finnsku. En Oksanen segir þó minnið brigðult, að hún hafi fyrst og fremst byggt á heimildum, og aðspurð hvort að Hreinsun sé saga fjölskyldu hennar, svaraði hún: „Alls ekki, þetta er saga allra eistneskra fjölskyldna.“ Hreinsun er þannig, samkvæmt ætlun höfundar, saga eistnesku þjóðarinnar (en einmitt ekki örlagasaga fáeinna einstaklinga í óvenjulegum aðstæðum).
Það er ekki bara túlkunarrammi höfundar sem kallar á að bókin fái þjóðernislestur – heldur er sagan sjálf afmörkuð af tveimur stórum þjóðernisviðburðum: Hún gerist annars vegar á árunum rétt eftir að Eistar hafa glatað (nýfengnu) sjálfstæði sínu með innlimun í Sovétríkin (á grundvelli Ribbentrop-Molotov-samkomulagsins; og með aðstoð heimamanna) fram til þess að tekið var að flytja Eista nauðungarflutningum til annarra Sovétlýðvelda; og hins vegar á nokkrum dögum í (vongóðu) kaosinu árið 1992, þegar Sovétríkin eru nýfallin og Eistland frjálst að nýju.
Þá er þjóðerni bakgrunnur allra viðburða – þegar Aalide byrjar með Martin fer hún að lykta einsog hann, „lykta eins og Rússi“ (s. 161) (en hvorugt þeirra er af rússnesku bergi brotið). Ingel segir Zöru að muna að hún sé ekki rússnesk heldur eistnesk (s. 100) og merkilegt nokk fer ekkert fyrir pabba Zöru – maður veit ekkert hver hann er – og hún ber eistneskt ættarnafn móður sinnar, Pekk – bókina þvera og endilanga drekka þau illmenni sem ekki eru Rússar vodka og anda í gegnum ermina „eins og Rússar voru vanir“ (s. 151) o.s.frv.
Sögur af hetjum og illmennum hafa fylgt okkur svo lengi sem talað hefur verið í heiminum. Þar sem að þær mæta veruleikanum og verða táknsögur, lykilsögur og/eða ádrepur kalla þær á pólitískan (siðferðilegan) lestur – það er ekki hægt að slíta þær úr því samhengi sem þær segja frá eða því samhengi sem þær eru gefnar út í. Hreinsun er ekki innlegg í baráttuna gegn Sovétríkjunum (henni er lokið), Hreinsun er innlegg í þann samtíma sem les hana.
Hreinsun segir söguna af kúgun Rússa á Eistum – bætir síðan um betur með því að gefa í skyn að þessari kúgun sé langt í frá lokið. Eitt sinn voru Rússar sovéskir sadistar sem drekktu konum í hlandfötum; síðan eru Rússar sadistar sem nauðga konum, lemja þær og selja þær í vændi. Það eina sem hefur breyst er að þeir slá ekki lengur um sig með fallegum boðskap, boða ekki lengur frelsi undan ánauð kapítalismans heldur koma til dyranna klæddir einsog grímulausu illmennin sem þeir eru.
Hreinsun gerist í landi sem fæstir vita mikið um, annað en að íbúar þess höfðu það skítt undir Sovétríkjunum (einsog íbúar annarra sovétlýðvelda, vel að merkja að Rússum meðtöldum), og nýtur því skjóls af blindum bletti, þar sem almennur lesandi – hvort heldur það er á Eskifirði eða París – þekkir ekki samhengið og veit fátt nema það sem honum er sagt. En Hreinsun gerist ekki í tómi, hún gerist í sögulegum veruleika.
Orðum þetta svona: Þegar við lesum Hringadróttinssögu gerum við það í ákveðnu tómi – við lesum hana sem ævintýri sem mælir fyrir bræðralagi og náttúruvernd, og sem harðvítuga ádeilu á græðgina. En ef okkur væri síðan sagt að hún byggði á raunverulegum atburðum; að Sauron væri „heimsgyðingurinn“ og bræðralag Hringsins væri tákn fyrir bandalag öxulveldanna o.s.frv. – ef við sem sagt fjarlægðum söguna úr því tómi sem hún er skrifuð í, þar sem algild siðferðislögmál gilda og ekkert er til utan þess sem sagt er frá í bókinni sjálfri, og heimfærðum hana á tiltekna sögulega viðburði, þá horfir þetta öðruvísi við. Hún verður innlegg í samtíma sinn og alla framtíð á meðan hún er lesin, rígbundin austur og vestur. Hún kemst ekki undan því og hún á ekki að komast undan því.
Með Hreinsun reynir Sofi Oksanen að fara bil beggja – annars vegar virðist hún vilja skrifa ævintýri um gott og illt sem er ósnert af þeim sögulega veruleika sem hún fjallar um og hins vegar virðist hún ætla sér að segja loksins sannleikann um lífið í Eistlandi á Sovéttímanum. Niðurstaðan verður fullkomin afskræming og bók sem beinlínis er óréttlát og röng, ill og heimsk og skilur við veröldina sem verri stað en hún kom að.
Hreinsun er hugarburður sem læst vera vitnisburður. Sannleikur Hreinsunar, veruleikinn sem hún býður upp á, er þess utan fullkomlega hefðbundinn. Sofi Oksanen skrifar ekki sögu Eista inn í sögu Evrópu – það er bara frasi fyrir viðtöl – hún skrifar sögu Eistlands inn í aldargamla hefð sovésks hamfarakláms (og er langt í frá sú fyrsta til þess, ég hef fyrir satt að della hafi verið fyrir svona bókum í Eistlandi upp úr aldamótum). Eistneska ljóðskáldið og andófsmaðurinn Jaan Kaplinski hefur líkt bókinni við verðlaunakitsið sem hlaut Stalínsverðlaunin á sinni tíð og hann las sem barn:
[Þetta var] ruglingslegur haugur af hálfgoðsagnakenndum sögum þar sem þýskir sadistar og samstarfsmenn þeirra voru andhetjur og hugrakkir, þjóðræknir skæruliðar voru hetjurnar. Hvað sem því leið höfðu þessar bækur ákveðið aðdráttarafl, þær uppfylltu sumar dýpstu sálrænu þarfir okkar, uppfylltu þarfir okkar fyrir ævintýri, fyrir sögur um hetjur og þorpara. Bók Oksanen fellur í sama flokk og stalínísku bækur bernsku minnar, nema hvað hetjurnar og andhetjurnar hafa skipt um hlutverk.
Kaplinski, sem sjálfur var í fararbroddi gegn Sovétstjórninni á sínum tíma, hefur auk þess sagt að bókin sé afar langt frá því að lýsa raunveruleika fólks undir Sovétríkjunum – það líf hafi ekki verið viðstöðulaus harmur, hvað sem leið tilfallandi ömurðum og óréttlæti á borð við það þegar faðir hans var sendur í gúlagið. „Við lifðum ekki við djöfullegt regluverk á síðari hluta 20. aldarinnar í þessu landi, undir vökulu auga kölska og undirsáta hans. Ég vil ekki að lífi mínu verði rænt og það afmyndað og selt grunlausu fólki í útlöndum.“
Sem innlegg í finnskar bókmenntir ýtir Hreinsun undir aldagamlan ótta við (og fordóma í garð) Rússa. Sem innlegg í vestrænan debatt er hún eiginlega nostalgísk öðrun Rússa, endurlífguð gömul fyrirlitning, einsog kaldastríðsbíómynd – „ostalgía“ á röngunni en alveg jafn kitsuð. Sem innlegg í eistneskan samtíma styrkir Hreinsun í sessi þjóðernishugmyndir sem þar ríkja yfir umræðunni: Eistland er og verður fórnarlamb og allt skal í dag afsakast með þeim rökum, þótt ríflega tveir áratugir séu liðnir frá falli Sovétríkjanna og löngu kominn tími til að horfast í augu við þá staðreynd að í landinu býr rússneskumælandi fólk og hefur gert í fleiri kynslóðir, þjóðin verður ekki ein og þjóðtungan ekki ein fyrir það að maður loki augunum og eyrunum og láti sem maður sé einn í húsinu.
Eistneski bókmenntafræðingurinn Eneken Laanes – sem vinnur að doktorsritgerð í frásögn, huglægni og fortíð í eistneskum samtímaskáldsögum; er altso sérfræðingur í öllu því sem Oksanen ætlar sér – hefur kallað Hreinsun melódrama sem gangist upp í því að ögra ekki hugmyndafræði lesandans heldur styrki viðtekna hugsun. Þetta skrifaði hún í ritdómi í menningartímaritið Sirp í Eistlandi og bætti því við að bókin væri einsog Hollywood-útgáfan af sögu Eista, nefndi Schindler's List til sögunnar (og það er rétt, þetta er frábær bók fyrir þá sem fíluðu Schindler's List). Það sem ég á við er eitthvað í ætt við það sem ég tel Milan Kundera meina þegar hann segir að kits sé „hin algera afneitun skítsins“.
Sofi Oksanen hefur markaðssett sig sem Solsjenitsín einsog Solsjenitsín hafi aldrei verið til, einsog hamfarirnar í Sovétríkjunum hafi ekki verið dokumenteraðar af skáldum, sagnfræðingum og endurminningahöfundum frá fyrsta degi, einsog Ishmail Kadare hafi aldrei verið til, eða Milan Kundera, Hertha Müller, Leonid Borodin, Jósef Brodskí, Boris Pasternak, Jaan Kaplinski, Osip Mandelstam og ótal aðrir andófshöfundar. Það sem skilur Sofi Oksanen frá fyrirrennurum sínum í þessum menningarkima er ekki umfjöllunarefnið, heldur fyrst og fremst klámfengin nálgunin. Hreinsun leggur ekki upp með að spyrja spurninga heldur svara þeim. Og að því leytinu til er hún einmitt ekki evrópsk skáldsaga – í þeim skilningi sem Kundera leggur í orðið – heldur propaganda. Hreinsun er samsafn áfellisdóma, ómenguð af allri spurn eða forvitni, kannar ekki afkima sálarlífsins heldur fullyrðir bara: ferfætlingar vondir, tvífætlingar góðir (eða öfugt, eftir því hvernig á það er litið). Einsog paródía af sjálfri sér, fullkomið sagnfræðiklám, tilfinningaklám, vond bók í öllum hugsanlegum skilningi, klæmist á hörmungum á þann hátt sem sá einn getur klæmst sem hefur á þeim svo gott sem engan skilning, sem sér þær einungis úr fjarlægð, skrifuð í „fagurbókmenntastíl“ sem er tilgerðarlegur í úthugsaðri afslöppun sinni, kaldri tækni, nóbelsverðlaunastíl fyrir dummies, stíl sem er einhvern veginn fullkomlega ómeðvitaður um sjálfan sig, fullkomlega efalaus um sjálfan sig, straumlínulagaður, hnökralaus, glansfágaður – fullkominn einsog paint-by-numbers, hellt-í-mót og prêt-à-porter. Hreinsun er agað kits framkvæmt af sláandi öryggi en kiknar stöðugt undan eigin harmþrungna fyrirsjáanleik og einfeldni.
Neðanmál: Auk þess að lesa bókina í íslenskri þýðingu Sigurðar Karlsson (og skoða finnska textann og enska þýðingu lítillega) er hér að ofan vísað til fréttablaðsviðtals Bergsteins Sigurðssonar við höfundinn frá 3. nóvember, 2010, bloggsíðu Jaans Kaplinskis (jaankaplinski.blogspot.com), skýrslna Amnesty International og fleiri mannréttindasamtaka, eistneska menningartímaritsins Sirp og ritgerðasafnsins List skáldsögunnar eftir Milan Kundera í þýðingu Friðriks Rafnssonar. Hugtakið bókmenntalíki er fengið frá Hermanni Stefánssyni.
