Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Almennum: Fimm kröfur mótmælenda hvar og hvenær sem er

Mótmæli í Finnlandi.
Mótmæli í Finnlandi.

Virkar ekki. Breytir engu. Heimskulegt. Skrílslæti. Af hverju fá atvinnumótmælendur sér ekki vinnu? Svo fær maður bara 200 þúsund kall fyrir að klifra upp í byggingarkrana – 200 þúsund per handtöku! Og þau eru í fríu fæði í staðinn fyrir sprengjur. Búa öll í sama sófanum og eðla sig loðin eins og hippar. Eiga svo mikið að borða að þau neyðast til að gefa með sér og fleygja restinni í Alþingishúsið. Síðan koma mæður og etja börnum sínum upp á hús með fána og fram í piparúða lögreglunnar – og kvarta við blaðamenn! Skilur þetta fólk virkilega ekki neitt?

Undirritaður blaðamaður Nei. á ekki svo gott að vera á Íslandi á umbrotatímum og fær því sína þjóðarsál í gegnum bloggaugað, en líkt og frægt er má þar finna ótrúlegri vitleysu en víðast hvar annars staðar (og ýmislegt gott og gilt og líka). Blaðamanni fjarverunnar virðist nokkuð skorta á skilning – víða, en langt í frá alls staðar – á því hvers vegna fólk mótmælir yfir höfuð. Til hvers ætlast það fólk sem fer út á götu, hvort heldur það er á Austurvelli eða á Hlemmi, í Washington eða Prag, Torgi hins himneska friðar eða Silfurtorgi á Ísafirði?

Þetta er tilraun til greiningar á fimm einföldustu grundvallarkröfum allra mótmælenda. Ég biðst velvirðingar á mögulegum einföldunum – þetta er ekki einfalt mál, en blaðamaðurinn er að gera sitt besta.

Krafa eitt! Krafa eitt!

Fyrsta krafa mótmælenda er einföld: að fá að láta í sér heyra. Að fá að demonstrera – sýna sig og sjá aðra, heitir það á móðurmálinu, og hefur ekki þótt flókin krafa. Engu að síður hefur yfirvöldum ekki alltaf þótt ástæða til leyfa þá ósvinnu og víða er mótmælendum iðulega smalað í afmarkaða bása þar sem þeim er raunar frjálst að tjá sig, en ekki þannig að nokkur heyri í þeim. Þeim er markaður reitur fjarri glaumi og glysi alþjóðakapítalismans, svo ekki truflist skálaglamrið.

Og kemur þá að annarri kröfu mótmælenda: Hlustið! Hlustið!

Önnur krafa mótmælenda er að á þá sé hlýtt. Að handan við múrinn sé auga sem lætur af sér vita: Ég sé þig, ég sé að þú ert ósátt(ur). Síðastliðinn laugardag máttu mótmælendur við lögreglustöðina á Hlemmi lifa án nærveru þessa auga, þessa eyra. Þeir voru einfaldlega hundsaðir, vel og lengi. Lögreglan lést einfaldlega ekki vera heima og þegar knúið var dyra (eða dyrnar knúnar upp á gátt) var eignatjóni mætt með ofbeldi.

Við höldum áfram: Hér er þriðja krafa mótmælenda

Þriðja krafa mótmælenda er að sá sem hlustar veiti þeim eftirtekt. Að því leytinu hafa ungir repúblikanar Íslands á réttu að standa: Mótmælendur krefjast athygli, þrá hana jafnvel. Hún er enda grunnforsenda þess að demonstresjónin komist á framfæri. Sá sem ekki þráir athygli gæti allt eins mótmælt við spegilinn heima hjá sér.

Þegar engin eftirtekt fæst, þegar valdið lætur ekki svo lítið að viðurkenna tilvist þess sem kveðst óréttlæti beittur, skapast hættuástand – ég kann ekki að lýsa því á annan hátt. Það er sárt að finnast maður órétti beittur, það svíður inn í merg og bein. Réttlætiskenndin er ekki þægilegasta tól líkamans, þó það sé sennilega eitt þeirra mikilvægari. Enda virðist mér augljóst að því meira ranglæti sem manni er gert að horfa upp á, því voldugri vörð setur maður við réttlætiskenndina og því minna leyfir maður sér að finna til. Það er ekki tilviljun að sextán ára stúlka var í fremstu víglínu á laugardaginn var, og ég hef litla trú á að það hafi verið vegna vanþroska. Vantrúin fer vaxandi með árunum og eftir því sem við búumst síður við réttlæti kemur ranglætið okkur minna í opna skjöldu, og þar með svíður ekki eins undan því.

Þarnæst: kröfunum linnir ekki; númer fjögur!

Fjórða krafa mótmælenda er viðurkenning á réttmæti viðveru þeirra. Hér erum við því við getum ekki annað. Hér erum við því annað er ekki hægt. Enn er ekki svo komið að valdið þurfi að samþykkja kröfur mótmælenda. Utanríkisráðherra sagðist myndu mótmæla sjálf ef hún væri ekki í ríkisstjórn. Þingmenn stjórnarflokka segjast skilja reiðina og viðurkenna þar með réttmæti mótmælanna, þó þeir séu ekki sammála kröfunum. Margir þeirra virðast raunar vera sammála háværustu kröfunum – að boða þurfi til kosninga og víkja helstu fjárglæframönnum og bitlingapólitíkusum úr stjórnunarstöðum – en hafa ekki andlegt þrek til að standa upp í hárinu á foreldrum sínum í flokksforystunni.

Áfram! Áfram! Áfram! (fimmta krafa)

Fimmta krafa mótmælenda er að valdhafar sýni að þeir taki mótmælin alvarlega. Í því er ekki nóg að segjast „hafa samúð með málstaðnum“ eða „skilja reiðina“. Hér þarf aðgerðir. Á kaffistofum um land allt sitja karlar og konur og krefjast þess að hausar fjúki. Maður þyrfti sjálfsagt að ganga á þau til að fá þau til að viðurkenna að þau meini það ekki bókstaflega, heldur sé nóg að nokkrir tugir manna elti Guðna Ágústsson í útlegðina á Klörubar – bankastjórn, fjármálaeftirlit, forystufólk stjórnmálaflokka, gömlu bankamennirnir sem nú eru nýju bankamennirnir, og ekki væri verra að geta sent nokkra úr einkageiranum á eftirlaun sömuleiðis, fréttastjóra og kaupsýslumenn.

Fimmta krafa mótmælenda er sú að valdhafar sýni viðbrögð, sýni að þeir skilji að þeir hafa ekki staðið undir þeirri ábyrgð sem þeim var veitt í síðustu kosningum. Að þeir, ásamt öðrum sem ekki stóðu sig, þurfi að víkja. Hér er ekki aðalatriði hvort fólkið í landinu hefur rétt fyrir sér eður ei – við þurfum ekki að rífast um hvort bæði Geir og Ingibjörg séu sek um vanrækslu, eða hvort nóg sé að Geir víki. Þetta snýst um að sýna fólkinu í landinu tilhlýðilega virðingu, að ekki sé minnst á virðinguna við þau embætti sem téð fólk gegnir. Sem að svo stöddu virðist lítil sem engin.

Væru helstu ráðamenn þjóðarinnar rekstrarstjórar í sjoppum sem skyndilega stæðu frammi fyrir stærsta gjaldþroti sjoppusögunnar – án þess að eigendum sjoppunnar hefði verið gert viðvart fyrren eftir á – væru þeir reknir á staðnum, á stundinni. Og þó það kostaði að auglýsa þyrfti eftir nýjum rekstrarstjóra. Hið sama gildir um helstu kaupsýslumenn þjóðarinnar.

Helstu ráðamenn og kaupsýslumenn á Íslandi telja sig ekki starfa undir neinum. Telja sig standa efst í fæðukeðjunni. Hafa ekki orðið varir við yfirmann á svæðinu. En yfirmaðurinn er á svæðinu. Hann má meðal annars finna á Austurvelli hvern einasta laugardag klukkan þrjú.

Kröfulisti – hipp hipp húrra!

Aðrar kröfur eru sértækari og ekki sameiginlegar öllum mótmælendum. Sumum sárnar að efnahagsstjórnin skuli hafa verið seld Friedmanískri tilraunastofu, með vægast sagt slæman orðstír (IMF). Aðrir telja að nú þurfi undanbragðalaust og strax að sækja um aðild að ESB og taka upp evru – sumir þeirra vilja bara evruna og ekki sambandið. Enn aðrir vilja að kvótinn verði þjóðnýttur hið snarasta. Einhverja dreymir um byltingu og ráðstjórn. Þeir finnast sem vilja enn frjálsari markað og þá má einnig finna sem dreymir um upplýstara samfélag og ofurlýðræði.

Þær fimm kröfur sem taldar eru upp hér að ofan eru sameiginlegar nær öllum mótmælendum alls staðar, þetta eru almennar kröfur, ástæður þess að fólk safnast saman, sýnir sig og sér aðra til að krefjast einhvers og láta í ljós vonbrigði sín. Það er öllum ljóst sem dvalist hafa erlendis að nokkru marki að stjórnmálamenn í lýðræðisríkjum eru ofurmeðvitaðir um þá stöðu sem getur komið upp hlýði þeir ekki á fólkið, leyfi þeir óánægju fólksins að vaxa og dafna. Ef stærsta þjóðargjaldþrot mannkynssögunnar hefði átt sér stað í Frakklandi, eða bara Danmörku, án þess að nokkur tæki á sig ábyrgð, væri ekki spurt um egg, tómata og hurðir, heldur fjölda látinna. Það er mótmælendum á Íslandi til hróss að hafa ekki beitt neinn ofbeldi, og lögreglunni til lasts að hafa gert það.

En íslenskir valdhafar ættu að hafa í huga að því miður er það ekki sjálfsagt að fólk slasist ekki – já, eða tapi lífinu – þegar stjórnvöld skirrast undan ábyrgð í uppspuna norskra fréttastjórnenda.

Skrílnum þykir nefnilega vænt um lýðræðið og lætur ekki svara sér með þögn, ráðaleysi og ypptum öxlum.

← Allt safnið