Borgin Reykjavík er eins og allir vita rokrassgat þar sem aldrei styttir upp, skipulagshroðbjóður fullur af hrokafullum litlum vitleysingum sem elska allt sem er stærra en þeir (Berlín, New York) en hata allt sem er minna (Stöðvarfjörður, Selfoss). Hvers vegna hinir indælu smábæjarpiltungar í hljómsveitinni Reykjavík! ákváðu að nefna sveitina í höfuðið á borginni er mér með öllu óskiljanlegt.
Ég lýg því reyndar. Ég hef einhverjar hugmyndir um það.
Þegar drengir í smábæjum vestur á fjörðum voru litlir var það að fara til Reykjavíkur ekki endilega minna merkilegt en að fara til Benidorm. Í Reykjavík gekk maður niður Laugaveginn með foreldrum sínum og sá Ladda og Eirík Hauksson innan um almúgann bara eins og þeir væru ekkert sérstakari en annað fólk. Þannig menn sáust ekki á götum Ísafjarðar. Hér sá maður í besta falli Sighvati Björgvinssyni bregða fyrir annað veifið. Í Reykjavík fór maður í keilu, maður fór í búðir með foreldrum sínum sem gáfu manni gjafir, föt og leikföng, maður fór í bíó, rúntaði um ókunnug hverfi eða svæði sem maður hafði bara séð í sjónvarpinu og heimsótti fólk (vini og ættingja) sem var stórkostlega glatt að sjá mann. Maður borðaði ekkert nema kökur, nammi, skyndibita og jólamat.
Á táningsaldri þegar piltar frá smábæjum fóru að ferðast einir til höfuðborgarinnar – og engir voru lengur foreldrarnir með í för, og þar af leiðandi engar gjafir, og heimsóknum til ættingja fækkaði – urðu ferðir til Reykjavíkur að einhverju nýju, einhverju öðru. Þegar skemmtistaðirnir lokuðu allir klukkan þrjú var Reykjavík eins og dýragarður, samansafn apakatta, páfugla og klaufalegra buffala; hver dansaði eftir sínu höfði. Og dýrin voru öll með hundaæði. Ælandi á götunum, vælandi í húsasundum, mígandi utan í veggi og syngjandi í tíu kílómetra löngum leigubílabiðröðum.
Reykjavík var landsbyggðardrengjum eins rokktónlist upp á sitt allra besta. Hún var stór, dónaleg, falleg, fjarlæg, hrokafull, þokkafull, full, hégómleg, brjálæðisleg – og það setur mark sitt á þá sem kynntust henni, þá sem upplifðu hæpið um Reykjavík – athugið, ekki hæpið í Reykjavík, það er ennþá í gangi. Hæpið um Reykjavík átti sér stað utan Reykjavíkur grunar mig, á þeim árum sem allir voru sammála um að Reykjavík væri skítapleis og ekki síst Reykvíkingarnir sjálfir. Á þeim árum unnu landsbyggðarkrakkar í frystihúsum og rækjuverksmiðjum á sumrin og áttu sand af seðlum þegar þau létu sjá sig í borginni. Og Reykjavík er gjöful borg þeim sem eiga pening, og sjálfsagt eru það allar borgir þeim sem borða á veitingastöðum, gista á hótelum og eyða morðfjár á börum.
Leiðin lá til Reykjavíkur eins og leið heimskra hálfklæddra stelpna í smábæjum í bandarískum vegabíómyndum liggur alltaf til „borgarinnar“, liggur alltaf burt úr krummaskuðinu þar sem viðkvæðið er sífellt „það gerist aldrei neitt“. Leiðin lá á Grand Rokk og Sirkus, í Háskóla Íslands og Keiluhöllina. Burt frá Sjallanum, menntaskólanum og poolborðunum á Gosa.
Þegar börn hættu að vera vinnuafl tók guð rifbein úr brjósti mannsins og skapaði táninginn. Táningurinn upplifði eirðarleysið hömlulaust og gat ekki þolað það. Og þegar ungt fólk hefur ekkert að gera annað en að bora í nefið, þegar þau þurfa ekki að sinna neinum skyldum, þurfa ekki hafa neinar áhyggjur, þá gerist eitthvað stórkostlegt. Það fyrsta sem táningurinn tók sér fyrir hendur var að búa til rokktónlist. Orkan er gríðarleg. Og hún leitar sér að farvegum, einhverju til að fást við, einhverju til að breyta heiminum úr óspennandi hringekju hins sama í nýjabrumsmaskínu þar sem allt iðar af njálgi, greddu og hamingju. Orkan leitast við að breyta heiminum úr Reykjavík í Reykjavík!
Tónlist Reykjavíkur! er uppnámsmúsík, þú hlustar ekki á hana sitjandi, standandi og varla dansandi – þú hlustar á hana eins og hljómsveitin spilar hana, en meðlimirnir hafa gert fullkomnað listina að detta, hanga og hoppa í einu. Avant-klassísk þreskivélarokkmúsík Reykjavíkur er spiluð með gríðargleði sálarmúsíkur, af heift og alvarleika mótmælendasöngvara og í kynferðislegri leiðslu frumrokksins. Á stundum finnst manni eitthvað ólíkindalegt við að þessi hljómsveit gangi upp, þegar Gummi er kominn í hátóna leiðslu og starir á hálsinn á gítarnum með einhverjar óeðlilegar hvatir í augunum, Haukur liggur í gólfinu og flækir sig hring eftir hring í snúrur, froðufellandi með algleymissólheimabros, Valdi er katatónískur af einbeitingu, Kriss geiflar sig í breikunum og skyndilega tekur hljómsveitin eftir því að Bóas er týndur. Hann er ekki uppi í rjáfri, ekki upp á hátalarastæðunum, ekki meðal áhorfenda – en samt er einhver að syngja. Er það nokkur furða þó maður efist stundum um að þetta geti gengið? En það gerir það samt, af einhverjum orsökum, og úr verður gríðarlega impónerandi rokkmúsík.
Reykjavík! er líkamsrækt hugans.
Virkjum Reykjavík!
Eiríkur Örn Norðdahl
