i
Það þarf kannski ekki sérstaka ritgerð til þess að koma því á framfæri að hljóðfæri sem njóta þess alla sína tilvist að láta blása í sig mannsandanum – í bókstaflegri merkingu – frá nýsmíði fram á ryðguð lokadægur, hljóta á endanum að fyllast mennskunni sem þeim er veitt – svo yfir flæðir – og mennirnir sem deila með þeim öndunarfærum fyrir rest að verða hálfgerðir lúðrar líka. Maðurinn er jú ekki annað en það sem hann blæs þar til hann hefur loks öllu blásið – gefið upp það sem eftir er af öndinni, það sem ekki hefur þegar þrætt sér leið í gegnum látúnshólk fyrir kraft fjögurra strokka vélar úr holdi og blóði (Tu Ha? Tu Bjö!). Þegar allt svo þagnar um síðir, lúðrar og lófaklapp, hefur andi mannsins – másandi, blásandi – víða farið, fokið yfir hæðir, holt og heiðar, og á leið sinni deilt höfgi sinni, fegurð og tilfinningalegum resonans, deilt með sálunum sálinni og andanum öndinni.
ii
Tu Ha? Tu! Bjö! hvín vélin fyrst í spurn og svo í svari ¬ „hraðara en jazz / bjartara en trompet“ orti Sigurður Pálsson en líka hægara en jazz og kynferðislegra en saxófónn, svo gripið sé niður í erlendan kveðskap („árið var 1842 og maður fær það á tilfinninguna / að klukkan hljóti að hafa verið margt. // Það er eitthvað af nóttinni í tóninum / eitthvað bókstaflega horný“ – úr Uppfinningu saxófónsins eftir Billy Collins) – og það er einmitt þessi spurn – Tu Ha? – sem vekur hið náttúrulega svar – Tu Bjö! – en líkt og öll raunveruleg svör kallar Tu Bjö! líka á viðbótarspurningu um eigið eðli – Tu Bjö? (með leyfi) verður í fyrstu varla svarað með öðru en speglun sinni – Tu Ha! – sem kallar eðli málsins undireins á bæði Tu Tu? og Bjö Ha? sem aftur kallar á allra handa og æ kostulegri afbrigði – Bjö Bjö? Ha Ha! – og þannig koll af kolli – sífellt kynferðislegra, bjartara, hraðara og hægara – þar til mannsandinn er blásinn í veg og við sem hlustuðum í senn orðinn alls og jafnvel líka einskis vísari.
