Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Svartur köttur saumar hey

Úr sýningunni Í gegn um og til í Gallerí Úthverfu.
Úr sýningunni Í gegn um og til í Gallerí Úthverfu. Heimild: Starafugl

Í gegn um og til í Gallerí Úthverfu

Seint á laugardagskvöldið eftir opnun sýningarinnar Í gegn um og til þann 3. mars síðastliðinn sagði ég við listamanninn, Ástu Fanneyju Sigurðardóttur, sem var á heimleið eftir langa vakt á Ísafjarðargaleiðunni, að ég hefði tekið Gallerí Úthverfu í fóstur og ætlaði að skrifa um allt sem þar væri sýnt – ef ég missti ekki af sýningunni, af einhverjum sökum – og það ætti líka við um hennar verk, þótt við værum vinir.

Þetta er auðvitað ekki leyfilegt. Í fyrsta lagi þá er Ásta vinkona mín og ég hafði tekið að mér að sjá um hið hefðbundna „kvöldverðarboð fyrir myndlistarmanninn“ og er þannig strax nátengdur sýningunni – vanhæfur sökum þátttöku og vinskapar. Í öðru lagi þá segir maður auðvitað ekki neinum að maður sé að fara að skrifa um verk þeirra ef maður kemst hjá því – það kemur þeim einfaldlega ekki við. Gagnrýnandi er milliliður verks og heims án viðkomu hjá listamanni.

Í þriðja lagi hafði þetta auðvitað þær afleiðingar að Ásta Fanney staldraði við á Tjörubar og tók að útskýra sig, skelfingu lostin, enda veit hún vel að ég er vitleysingur í myndlistarheiminum og skrifa um hann með fáviskuna eina mér til varnar – en hrokann að vopni. Ég mun misskilja allt sem ég sé og það sem ég misskil ekki mun mig bresta orð um.

Þá eru myndlistarmenn, sérstaklega á Íslandi held ég, því vanir núorðið, síðustu tvo áratugina hið minnsta, að eiga eins konar sjálfdæmi um túlkun verka sinna. Íslensk myndlistarumfjöllun er bara „segðu mér frá verkinu þínu“ og einhver myndlistarmaður að láta dæluna ganga. Venjulegir sýningargestir sem standa utan myndlistarheimsins þora ekki að skilja verkin vegna þess að skilaboð verkanna eru of óskýr – þeir snúa sér því bara til myndlistarmannanna sem plúsa þetta allt saman og benda á tengslin, annað hvort einsog í hverri annarri rebusgátu eða með hjálp einhvers innsæisorðaforðans. En kannski þarf maður ekki að láta óskýrleikann hræða sig – kannski er bara alltílagi að skilja hlutina nema ekki að litlu leyti, geta í eyðurnar og skálda í rest.

Guði sé lof, þá man ég ekkert hvað Ásta sagði. Því er bara alveg gersamlega stolið úr mér.

Heybaggaöngull og sæhestagárur

Miðpunktur, eða miðlína, sýningar Ástu Fanneyjar er samansaumaður plastpoki í laginu einsog ör sem er fullur af heyi – sem súrnar og súrnar eftir því sem líður á sýningartímann – og liggur eftir sýningargólfinu endilöngu og bendir frá galleríglugganum og Eyrarfjalli, húsinu á móti, bænum --> að veggnum, innst í rýminu, gegnt glugganum, þar sem búið er að teikna fjarðarmynni Skutulsfjarðar og Snæfjallaströndina með krít og blýanti (held ég). Inn á teikninguna hafa verið skrifaðar setningar, stundum á íslensku og stundum á ensku.

„Eftirbaðvatn“

„Soy sauce“

„Hár (gömul kona)“

Ljósmynd.

Þá er á gólfinu gólfmotta og á henni eitt svart vinnustígvél – fjósalegt frekar en t.d. frystihúsalegt (hvítt), togaralegt (með stáltá) eða bæjarvinnu (grænt) – og stóll myndaður úr pappír (sem hrynur meira og meira eftir því sem líður á sýningartímann).

Á veggnum beint á móti dyrunum er myndband af gárandi hafi – nærmyndir, fjærmyndir, en alltaf svolítið sjóveikivekjandi, svolítið einsog maður sé að stara fram af lunningunni á bát. Í horninu hægra megin þegar maður kemur inn liggja nokkrar stikur með rauðmáluðum enda. Á veggnum við hliðina á glugganum eru svo sex myndir sem búið er að stinga nálum í til að mynda form sem minna mig á gárur í hafi en samferðamann minn á sæhesta.

Ljósmynd.

Post-sjávarbyggðin og hin getulausi veiðimaður

Það sem slær mann fyrst er einhver hugmynd um mörk mannlegs samfélags (pappírsstóls, stígvéls, heys í plastbagga) og náttúru – fjalls, hafs sem drottna yfir veggjunum. Mottan afmarkar tilvist mannsins en annars ríkir náttúran – miklu stærri og sterkari – og stikurnar, sem tilheyra manninum, liggja einsog hráviði og geta ekki skilið þetta tvennt í sundur, eða gera það í öllu falli ekki. Það sem slær mann næst er forgengileikinn. Stóllinn fellur hægt og bítandi saman og heyið súrnar. Síðan eitthvað um rýmið – Gallerí Úthverfu – sem heiminn utan við dyrnar úthverfðan, fjörðinn inni í húsinu sem úthverfðan fjörðinn utan við gluggann. Stofnunina sem býður til sín utanbæjarmönnum til að sprikla á sviði – þessum glugga sem allir fara framhjá. Þarnæst eitthvað um sjónarhorn – ungur listamaður kemur frá Reykjavík, sér bæ og málar hann fyrir heimamenn – eitthvað um augnablikið, eitthvað um auga utanbæjarmannsins, eitthvað um óþægilega exótíseringu, eitthvað um að missa sjónar á sjálfum sér, eitthvað um „landsbyggðina“, eitthvað um mannlegt samfélag sem aukreitis á náttúrunni (og líka aukreitis á úthverfðu náttúrunni inni í mannlega-samfélags-galleríinu).

Örin sem liggur á gólfinu er ekki bara ör. Á henni er hringur sem gefur til kynna að hán sé öngull. En öngullinn bendir ekki „á sína eigin byrjun“ líkt og segir í sýningarskrá því hann sveigist ekki – hann er beinn og þar með illa til veiða fallinn. Kannski er þetta þar með post-sjávarbyggðaöngullinn, öngullinn sem þarf ekki lengur að veiða fisk heldur elur hann í kvíum? Kannski er þetta öngullinn sem krækir í sýn myndlistarmannsins – krókurinn væri þeim megin, ef öngullinn væri sveigður – og kannski vill hann gera það, kannski vill hann ná taki á „siðmenningu“ listaverksins og færa hann galleríinu en getur það ekki því þetta er ekki þannig öngull og heyið í honum er að súrna?

Eftir með nál og tvinna

Titill sýningarinnar – Í gegn um og til – vísar frá firðinum við gluggann, gegnum galleríið, til fjarðarins á fjærveggnum. Eða í átt að honum (enskun tilsins í titlinum er „towards“, ekki „to“ – hér er áfangastað ekki náð að fullu). Galleríisrýmið er þar með orðið að nokkurs konar göngum sem leiða í átt að töfraveröld, eða listgerðri veröld – á sænsku er það sem er „gervi“ kallað „konstgjort“, listgert – þar sem tungumálið fer krókaleiðir að sjálfu sér, einsog í róttæku málstoli – liggur beinast við að ímynda sér að orðin á veggverkinu vísi til litbrigða: Brúnt gil (?) verður „kaffibollabotn“, hafið verður „old or new sweater“ og fjallagrámi verður „bílaviðgerðargalli“ – og í litadýrð orðanna er allt svarthvítt, eða í besta falli sepia – brúnleitt – ekki bara á veggnum heldur líka úti í raunveruleikanum og í orðaveruleikanum.

Svartur köttur í köldum kjallara saumar hey í og til endurgerðar á morgunfirði. Áhorfandinn heldur áfram en heimsækir það sem er léttilega tekið með. Í gegn um og til er eins og ör, bæði í formi og líkama. Til staðar en samt eitthvað sem er liðið og er ekki lengur.

Svo stendur ritað í sýningarskrá. Textinn, einsog margt í sýningunni, leitast við að komast undan skilgreiningum manns – það er erfitt að festa hönd á honum án þess að festa sig í einhverju öðru líka. Landsbyggðaviðkvæmi maðurinn sem ég er ygglir svolítið brúnina yfir setningum einsog „liðið og er ekki lengur“ – og þykist sjá þar klisjuna um landsbyggðina sem staðinn sem allir bíða bara eftir að deyi, þorpið úr ljóðum Bubba (sem ég elska og fyrirgef, einsog ég elska og fyrirgef Ástu).

Unga fólkið er fyrir sunnan að vinna

Gamla fólkið varð eftir með nál og tvinna

Útá firði er enga drauma að finna

Þorpið er að þurrkast út

En það er líka einföldun. Hugsanlega er staðurinn sem er ekki til lengur sá á myndinni – hin rómantíseraða ljóðum bundna náttúra – og undirstrikar þannig traustan veruleika þess sem þó er til staðar. Að þrátt fyrir öll „Þorpin“ þá láti þorpin sér ekki segjast. En hver er þessi svarti köttur? Eru þetta sæhestar eða gárur á vegnum? Hvers vegna var stóllinn ekki úr traustara efni? Og af hverju les maður allt sem maður sér með augum sjálfs sín, fordómum sínum og viðkvæmni? Hvers vegna er hey í örinni/önglinum – er landbúnaðurinn runninn saman við sjávarútveginn? Er þessi öngull kannski hvorki öngull né ör heldur ílangt karltáknið? Og er það fullt af ... taði? Maður spyr sig.

***

Hugarheimur sýningarinnar er jafn dásamlegur og heillandi og hann er afvegaleiðandi. Ég er ekki miklu nær um hvað hún er, en ég naut þess að sjá hana, mér þótti gaman að henni og gaman að hugsa um hana. Og ég lofa að það er ekki bara vegna þess að Ásta er vinkona mín.

← Allt safnið