Í byrjun nóvember 2008 – við upphaf Búsáhaldabyltingarinnar – birtist frétt þess efnis í íslenskum fjölmiðlum að ungur maður hefði klifrað upp á Alþingishúsið í Reykjavík, í miðjum mótmælum, og dregið að húni fána verslunarkeðjunnar Bónuss: Bleikan grís á gulum grunni. Ekkert held ég að hafi á þessum tíma fangað jafn vel ímyndunarafl þjóðarinnar og tilfinningar í garð ríkisvalds og svonefndra útrásarvíkinga. Tveimur vikum síðar var maðurinn handtekinn fyrir gjörninginn. Í kjölfarið hófust ein stærstu mótmæli þessa stóra mótmælahausts, fyrir utan lögreglustöðina, og stóðu þau yfir þar til manninum var sleppt.
***
Ég hef vanist því að vígamenn sem falla í stríðum – blóðugum átökum í Langtburtístan – séu ókunnugt fólk. Á eina höndina fátækir öfgatrúarmenn með ódýr vopn í höndunum en djúpa sannfæringu í hjartanu – oft íslamistar, núorðið, en líka marxistar, anarkistar – fólk sem býr við afleiðingar nýlendustefnunnar og ringulreiðina og ofbeldið sem henni og eftirköstum hennar fylgir. Og á hina höndina fátækir öfgatrúarmenn með dýr vopn í höndunum og að því er virðist heldur grunna sannfæringu – oft Bandaríkjamenn sem berjast fyrir eigin velgengni – þeir sem flúðu ofríki okkar hérna í hjarta alheimsins fyrir hartnær 500 árum síðan og hafa lifað út hugmynd sína um frelsi handan hafsins alla tíð síðan.
Og ég hér úti í miðju hafi ypptandi öxlum – einsog ólætin fari framhjá mér, komi mér ekki við. Myndin er auðvitað margbrotnari. Hún er sennilega þúsund sinnum, milljón sinnum flóknari. Mölbrotin. Og ég er kominn langt út fyrir efnið. Það sem ég vildi segja er þetta: Ég á því ekki að venjast, frekar en aðrir hvítir millistéttarevrópubúar að fólkið sem deyr í stríðum sé kunningjar mínir.
***
Í Vinstrimannafélaginu mínu í menntaskóla, svo ég fari nú enn lengra út fyrir efnið, rifumst við stundum um herþjónustu. Flestum okkar þótti hún vonlaus hugmynd. Við tengdum herþjónustu, eðlilegt nokk, við manndráp og meiðingar og áttum gott með að taka einfalda prinsippafstöðu gegn henni. Það er ljótt að drepa, ljótt að meiða. Hvað höfðu Frakkar grætt á hermennsku sinni annað en meira ofbeldi? Hvað höfðu Þjóðverjar grætt sinni annað en eigin smán? Hvað einkenndi hernað Svía og Norðmanna annað en hræsni? Til hvers var herinn handan járntjaldsins ef ekki til að halda niðri alþýðu manna? Á Íslandi var engin herskylda og við vorum sannfærð um að við værum betur komin án bandaríska hersins í Keflavík – utan NATO. Ofbeldi leiddi af sér meira ofbeldi.
Þeir sem mótmæltu þessu og kölluðu barnaskap gerðu það á forsendum agans. Íslenskir unglingar voru óagaðir, ókurteisir og ósjálfbjarga – við vorum að miklu leyti að tala um okkur sjálf, auðvitað, haugadrukkinn og taugaveikluð sem við vorum á helgum, vælandi á trúnó, ríðandi smokklaus, í áflogum á planinu fyrir utan ball – og loforð hermennskunnar gekk út á að sníða af okkur þessa agnúa, gera úr okkur hnarreistar manneskjur sem væru færar um að takast á við jafnvel óþægilegasta veruleika. Íslendingum stóð og stendur til boða að ganga í norska herinn – upp á gamalt og gott – við gætum alltaf farið þangað og látið manna okkur upp. Það var annað hvort það, barneignir eða meðferð.
En ekkert okkar fór í norska herinn eða nokkurn annan her. Það næsta sem við komumst því var þegar einn okkar fór til Svíþjóðar í læknanám.
***
Afstaða okkar var hins vegar ekki hrein og þegar kom að því að ræða vopnaða baráttu byltingarmanna vorum við ekkert nema eldmóðurinn. Við studdum Zapatistana í Mexíkó og brenndum kerti þegar meðlimir MRTA féllu í japanska sendiráðinu í Lima. En það var, í einhverjum skilningi, alltaf barátta úr fjarlægum sólkerfum og þetta prinsippspurningar sem við höfðum aldrei hugsað okkur að svara nema úr heimspekilegri fjarlægð. Mátti drepa til að rétta óréttlæti? Mátti drepa hvern sem er, við hvaða aðstæður sem er? Hversu mikil þurfti kúgunin að vera til þess að maður mætti drepa kúgarann og handbendi hans? Hvernig mældi maður kúgun? Þurfti maður þá að vera kúgaður sjálfur eða mátti maður drepa til þess að leysa aðra úr ánauð? Og svo framvegis.
Við sátum þungbrýnd yfir þessum spurningum kvöld eftir kvöld og tókum þeim mjög alvarlega. En við ræddum þetta ekki vegna þess að við ætluðum að fara og drepa neinn sjálf. Við vorum handan við blóðug spor mannkynssögunnar, komin út á enda, og þess utan á þessum kletti hérna – ekki bara á klettinum heldur fjarlægasta odda klettsins, norðvestur í rassgati (en samt bara korters akstur frá ratsjárstöð NATO, því heimurinn er alls staðar handan við hornið).
***
Það var í byrjun mars að einhver sendi mér hlekk og sagði: Varstu búinn að sjá þetta? Tvítið var sennilega ekki nema klukkustundargamalt og þar kom fram að Haukur Hilmarsson – sonur vinkonu minnar, fyrrverandi tengdasonur systur minnar og kærasti frænku minnar, sjálfur bónusfánamaðurinn úr Búsáhaldabyltingunni – væri látinn. Og ekki bara látinn heldur fallinn – í einu dagblaðanna stóð meira að segja daginn eftir að hann hefði verið myrtur og er það sennilega í fyrsta og eina sinn sem íslensk dagblöð nota það orð um mann sem féll í stríði.
Haukur, sem enginn vissi betur en að væri í Grikklandi að vinna með flóttamönnum, hafði þá um hálfs árs skeið barist með sveitum YPG í Sýrlandi og var sagður hafa látist í loftárásum Erdogans í Afrin. Hann hafði í tvígang ferðast yfir Evrópu þvera og endilanga – í fyrra skiptið var honum snúið til baka á írösku landamærunum – til þess að leggja sitt af mörkum við að fella ISIS. Hann var klárlega í réttu liði. Samkvæmt tilkynningu hafði hann unnið sér inn virðingu félaga sinna í baráttunni um Raqqa og verið gerður að liðþjálfa. Og nú var Erdogan búinn að drepa hann. Það var og er jafn óskiljanlegt og það sagði sig sjálft.
Ég segi stundum við börnin mín, þegar við keyrum yfir brú eina sem bróðir minn átti þátt í að byggja, að þessa brú hafi frændi þeirra byggt. Einsog hann hafi gert það einn. Ef við förum einhvern tíma til Raqqa mun ég með sömu rökum segja að þessa borg hafi Haukur frelsað.
***
Sennilega er mannkynssagan alltaf nær manni en maður heldur; nokkurn veginn sama dag og tilkynnt var um fall Hauks komu til Ísafjarðar, heimabæjar míns sem telur 2700 sálir, á hjara veraldar, hópur sýrlenskra flóttamanna sem voru að flýja nokkurn veginn sömu helvítiselda og Haukur hafði leitað uppi. Þau þveruðu Evrópu til þess að koma sér og börnum sínum í öryggi en hann þveraði Evrópu til að kasta sér fyrir byssukjafta fasista.
En jafn nærri og hún er, þessi blóðuga mannkynssaga sem eilíflega hefur okkur undir, er sennilega engin leið að gera sér fullkomlega í hugarlund hversu brútal allur þessi dauði, allt þetta ofbeldi, er, þegar maður hefur ekki séð það. Alveg sama hvað maður hefur setið marga fundi hjá Vinstrimannafélaginu og velt þessu fyrir sér, alveg sama hvað maður hefur horft í augun á mörgum flóttamönnum. Hugrekki manna á borð við Hauk – eða þeirra sem flýja stríðin – er ekki ókeypis og heimurinn þarf sennilega ekki á fleiri píslarvættum að halda. Það er ekkert sem maður getur sagt sem nær utan um þetta hvort eð er. En það er ágætt að minna sig á það annað veifið að harmur heimsins, grimmd hans og grátur, er ekki bara þarna. Hann er líka hérna og hann var hérna allan tímann.