Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Vei, þér fallna borgun!

Vei, þér fallna borgun!
STARA, nr. 6, 1. tbl. 2016. Forsíðuverk: Kristinn Már Pálmason, Bling & black bile (2014).

Þráttað: 1. lota

Gæti ég skrifað fimm til átta hundruð orð um mikilvægi þess að píparar fái greitt fyrir vinnu sína án þess að hljóma einsog fífl? Ef ég færi nú að rekja sögur þess efnis að pípari sem ég þekkti væri alltaf að tékka á lögnum fyrir fólk sem ætlaði alls ekki að greiða honum fyrir vinnu sína í öðru en aðdáun á handbragði og kannski fríu kaffi. Og þessi pípari nyti þess vel að merkja að láta dást verkum sínum – eiginlega væri samt stærsta borgunin oft verkið sjálft – og hann léti því iðulega tilleiðast að pípa frítt fyrir fólk. Annars fengi hann kannski aldrei tækifæri til að nýta hæfileika sína, stunda iðn sína – þá fengju bara hinir pípararnir allt píperíið. Hvað mynduð þið segja þá?

Mynduð þið ekki segja að vinur minn píparinn væri meðvirkur aumingi að láta fara svona með sig? Maður spyr sig hvaða undirliggjandi geðveilur geti legið þarna að baki? Er píparinn svona átakafælinn? Er þetta eintómur hégómi sem drífur hann áfram? Hver heldur þessum iðjuleysingja á floti? Mikið hlýtur píparinn að vera vel giftur.

Hvernig hefur píparinn efni á því að fara í leikhús ef hann fær sjálfur ekki borgað nema í kannski þriðjungi tilvika og þá yfirleitt langt undir taxta – og hrósar happi. Þeir hafa það ekki svona gott pípararnir í Súðavík; þeir mega heita góðir ef þeir ná að pípa svolítið í frístundum á kvöldin. Víðast hvar er pípun náttúrulega bara hobbí.

Þráttað: 2. lota

Mér hefur verið boðið að koma keyrandi til Akureyrar (frá Stykkishólmi) á eigin kostnað til þess að lesa upp í hádeginu fyrir fría súpu (af batteríi sem er styrkt af öllum helstu stórfyrirtækjum landsins, auk ráðuneyta og bæjaryfirvalda). Mér er mjög reglulega boðið að fara í aðra eins leiðangra frá Ísafirði (þar sem ég á alla jafna heima) til Reykjavíkur. Útgefandinn minn borgar mér ekki krónu fyrir að lesa upp á þeim viðburðum sem hann skipuleggur (frekar en margar aðrar stofnanir, opinberar og einkareknar). Tryggingin sem hann borgar mér – fyrirframgreiðslan fyrir útgáfu bókar – er ekki upp í nös á ketti. Meira að segja stéttarfélagið mitt greiðir mér ekki nema sirka helming af sínum eigin taxta fyrir að koma fram á vegum þess. Stundum er ég spurður hvað ég vilji fá greitt og ég svara: nei nei, hafðu engar áhyggjur af því, við erum öll í þessu ölduróti saman, geymdu bara peningana þína. Ég veit ekki hver tekur mark á því að ég eigi ekki fyrir reikningum eða hverjum það kemur við að í gær fékk ég synjun á bæði kortin mín í Samkaup og fór heim matarlaus.

Þráttað: 3. lota

Dæmið er þekkt – þessi viðsnúningur – píparinn er listamaður og listamaðurinn pípari. En það fellur líka um sjálft sig. Því það að vera pípari er ekki að vera rithöfundur. Það er ekki heldur að vera myndlistarmaður. Það er ekki einu sinni að vera trúbador. Listin hefur ekki einvörðungu praktískt gildi, hún er ekki fyrst og fremst iðn. Hún er helg, hún er ritúal, hún er í þjónustu fegurðar og sannleika, gleði og sársauka. Og henni er ætlað að gæða lífið sem við lifum – og viðhöldum með praktískum aðferðum einsog fiskveiðum og pípulögnum – einhverri merkingu og höfgi. Listin á að umbreyta tilgangslausu sýsifosarhjakki mannsins í eitthvað stærra.

Sá sem stundar list sem hobbí fæst við að gæða sitt eigið líf tilgangi og skuldar engum neitt; en sá sem hefur helgað listinni líf sitt skuldar öllum allt og heiminum sjálfan sig. Og hann skuldar ekki vegna þess að hann hafi tekið heldur vegna þess að hann hefur gefið – hann á sig ekki lengur og getur einskis krafist.

Þráttað: 4. lota

Það fremur enginn list til þess að fá greitt fyrir það. Og það neitar enginn – sem á annað borð hefur nokkra tilfinningu fyrir merkingu listarinnar – neinum um aðgengi að listum á þeirri forsendu að viðkomandi geti ekki greitt. Þess vegna erum við með bókasöfn. Þess vegna rekum við ríkissjónvarp og ríkisútvarp. Þess vegna bloggum við, youtubum, krotum á veggi og lesum ljóð á börum á síðkvöldum. Til þess að gæða lífið merkingu og sú merking á hafa sem minnst með krónur og aura að gera.

Þráttað: 5. lota

En. Listamenn þurfa að borga leigu. Listamenn þurfa að kaupa í matinn. Þeir þurfa að borga sömu reikninga og píparar. Þeir lifa ekki á hugsjónum sínum og eiga ekkert frekar en aðrir skilið að liggja hungraðir í götunni (les: vera á vanskilaskrá). Það er sagt að það sé ekkert líf án listar, en þá er aðallega verið að meina að heldur tilgangslaust sé að vera til án hennar. En það er bókstaflega ekkert líf ef maður étur ekki. Þá bara deyr maður.

Það sem ég er að reyna að segja er þetta: á borðinu fyrir framan mig er reikningur frá pípara upp á tvöföld mánaðarleg listamannalaun mín og kortin mín eru bæði lokuð.

Og þetta er sem sagt ákveðið vandamál.

← Allt safnið