Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Að lesa Ljósmóður

Að lesa Ljósmóður
Tímarit Máls og menningar, 3. hefti 2015. Heimild.

Jafnvel nú þegar ég ligg hér í Dauðs manns firði ein og yfirgefin, nú þegar leggöng mín eru börkuð af limunum sem herjuðu í þeim, nú þegar ég hef verið flæmd frá heimaslóðunum og krakkar hlaupa á eftir mér og húsbændurnir siga á mig hundum, jafnvel nú spyr ég hvers vegna. Hvers vegna sá Guð í vísdómi sínum ekki breyskleika minn?

Ljósmóðirin – Bls. 158

Að lesa Ljósmóðurina eftir Kötju Kettu er að þreifa á hinu mannlega í hinu dýrslega og hinu dýrslega í hinu mannlega, þreifa á kynfærum og troða höndunum upp í gapandi sár, teygja húðir annarra yfir bein sín og spila frummenn, spila norræna alnasíska náttúrurómantík, spila hið óskiljanlega einsog það sé manni skiljanlegt, af sannfærandi öryggi sem hlýtur samt alltaf að vera látaleikur og gráta fjarlægðina, látalætin, gráta að maður komist aldrei nær sannleikanum. Að lesa Ljósmóðurina eftir Kötju Kettu (í brjálæðislegri þýðingu Sigurðar Karlssonar) er að standa sveittur í forinni upp að öxlum, svamla í andnauð af eymdinni ósofinn, lúinn og drifinn áfram af lífslöngun, greddu, ást og mannhatri. Að lesa Ljósmóðurina eftir Kötju Kettu er að finna fyrir hverri taug einsog hún væri trjárætur, að þrá hömlulaust alla heimsins fullnægju og finna ekki til þess að nokkuð skilji mann að frá kaldri moldinni undir fótum sér, lynginu eða grjótinu, nema í besta falli veikur viljinn. Að lesa Ljósmóðurina eftir Kötju Kettu er að óttast eymdina bakvið gluggatjöld nágrannans, óttast harminn í augum náungans, óttast orkuna sem hleypir lífi í mannfólkið, óttast mannbótasinna, óttast einræði skipulagsins, hinn marserandi þankagang beturvitanna, óttast hugsanir sem eru í laginu einsog skriðdrekar. Að lesa Ljósmóðurina eftir Kötju Kettu er að óttast náttúruna. Óttast eðlið. Óttast að geta ekki strammað sig af. Að lesa Ljósmóðurina er að óttast sjálfan sig. Sjá sjálfan sig annars staðar og óttast. Að lesa Ljósmóðurina eftir Kötju Kettu er að vera þakklátur fyrir friðinn, fyrir þögnina, hugarróna, þakklátur fyrir hrein rúmfötin og sjampóið, fyrir kvið fullan af vellystingum, þakklátur fyrir börnin sín og allt þetta viðkvæma öryggi. Að lesa Ljósmóðurina er að vera þakklátur fyrir fjarlægðina í tíma, fjarlægðina í rúmi, þakklátur að aðrir staðir skuli enn norðar en okkar staðir, þakklátur fyrir hafið sem ver, fjöllin sem verja, blekkingarnar sem verja (aldrei myndi ég gera flugu mein). Að lesa Ljósmóðurina eftir Kötju Kettu er að taka afstöðu til siðmenningarinnar, afmennskunar, til barbarísins og eðlisins; að lesa Ljósmóðurina er að neyðast til að taka afstöðu þarna einhvers staðar í óbeisluðu kaosinu á meðan maður veit að öll afstaða er að jöfnum hlutum lygi og sannleikur, að jöfnum hlutum óumflýjanleg nauðsyn og ómögulegur tilbúningur sem verður aldrei almennilega þröngvað upp á heiminn. Að lesa Ljósmóðurina eftir Kötju Kettu er að sökkva sér í textaheim þar sem norræni exótisminn hefur afklæðst kitsinu með því að magna það frekar en hafna því, færa það fjær norðurljósunum og nær drullunni, þar til það loksins verður nógu yfirdrifið, loksins nógu blóðugt, loksins aftur áhugavert, loksins, loksins aftur bærilegt og loksins aftur dásamlegt, ógeðslegt og fullkomlega óskiljanlegt. Einsog það er en ekki einsog við vildum að það væri.

← Allt safnið