Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Staðir · Íslenska

Stutt en brotakennt ágrip af rithöfundalífi á Ísafirði

Stutt en brotakennt ágrip af rithöfundalífi á Ísafirði
List á Vestfjörðum.

Ég hef gætt næturinnar utan um Kristínu Steinsdóttur, sem svaf þá rótt á Hótel Ísafirði. Er ekki Finnbogi Hermannsson eini (starfandi) rithöfundurinn sem býr á Ísafirði? Og býr hann ekki í Hnífsdal? Ég söng Tom Waits með Eiríki Guðmundssyni á Kúabúinu – Chocolate Jesus, minnir mig – nokkrum árum eftir að hann tók við mig símaviðtal í baði. Einu sinni datt ég í það með Hermanni Stefánssyni í Öldunni og hann húðskammaði mig fyrir að hafa líkt bók við kvenmannsbrjóst í ritdómi. Ég hef aldrei séð Njörð P. Njarðvík á Ísafirði. En hann er víst Ísfirðingur og hann kenndi mér ritlist í Reykjavík fyrir langalöngu (ég skrópaði mig út úr náminu). Ég drakk Jón Kalman undir borðið í Öldunni meðan hann skrifaði Vestfjarðaþríleikinn – það var boðið upp á pasta, absintu og Ray Charles. Ég rakst einu sinni á Elísabetu Jökuls í Bónus – mörgum árum eftir að ég bauð henni, Eyvindi Pétri og Guðbergi á bókmenntakvöld sem ég skipulagði í menntaskólanum. Líklega var það 1996 eða 1997. Hún hringdi í mig daglega vikuna á undan og sagðist vera svo flughrædd, hún væri ekki viss hvort hún kæmist, og hvort ég vildi ekki frekar bara fá son hennar, Kristjón Kormák, sem væri nýbúinn að gefa út sína fyrstu bók. Ég fékk Guðberg til að halda í höndina á henni og þá var alltílagi. Hvað er Huldar Breiðfjörð annars að bauka í Önundarfirði? What's he building in there? Er hann kannski farinn? Einu sinni sá ég hann með snúð og kókómjólk fyrir utan Gamla bakaríið. Ég skrifaði megnið af fyrstu skáldsögunni minni inni á Sjallanum en tortímdi henni inni á Langa Manga. Hellti heilum café latté yfir tölvuna. Nú sit ég á kaffihúsi í Kaupmannahöfn með café latté á borðinu en hef hann í hæfilegri fjarlægð. Einu sinni sá ég Rúnar Helga á Ísafirði. Sama gildir um Einar „þið eruð nú meira landsbyggðarhyskið“ Kárason. Kannski ég hafi séð hann tvisvar lesa – gott ef hann sagðist ekki einhvern tíma hafa búið fyrir ofan Bókhlöðuna. Eyvindur Pétur kenndi mér íslensku í menntaskóla. Ég held ég hafi sett einhvers konar skrópmet þann vetur – sat á Café Castro, kaffistofu vinstrimannafélagsins, og las Marx og Dostó. En Eyvind þekki ég – hann er áreiðanlega sá höfundur sem oftast sést á Ísafirði. Ég hlustaði á Diddu lesa Bukowski-þýðingar fyrsta árið í menntó. Það var eitthvað og verður ekki aftur tekið. Andri Snær gisti einu sinni heima hjá mér á leiðinni á Hornstrandir. Svo tók hann mig með sér á fyllerí með Alexander Skarsgård (og fáeinum öðrum), sem varð til þess að sænski útgefandinn minn reiddist mér fyrir að hafa ekki fattað að gefa Skarsgård eintak af Eitur fyrir byrjendur á sænsku. „Nú kvikmyndar hann bara Draumalandið í staðinn“, sagði Per. Einu sinni rakst ég á Sigurbjörgu Þrastar í Bókhlöðunni. Hún var á eigin vegum. Ég er maðurinn sem tók við Tindabikkjunni fyrir Óttar Martin og sendi mömmu hans hana með pósti. Ég hlustaði á Þórdísi Björnsdóttur hvísla ljóð í Edinborgarhúsinu. Ég kynnti Hauk Ingvarsson fyrir Kolbeini Einarssyni á Langa Manga – Kolbeinn var í essinu sínu og Haukur mun aldrei ná sér að fullu. Það sem gerðist í Engidal eftir Nýhilkvöldið á Sjallanum 2003 er í þagnargildi og verður þar til afkomendur okkar eru allir dauðir. Ári síðar spilaði ég Scrabble við Steinar Braga (og Hildi Lilliendahl, sem þá var bara ljóðskáld) í kjallara við Fjarðarstræti. Tapio Koivukari – kannski ísfirskastur allra rithöfunda – kenndi mér kristinfræði og smíðar í grunnskóla. Ég rakst á Kristínu Svövu Tómasdóttur á bílastæðinu aftan við Stjórnsýsluhúsið. Það er ekki svo langt síðan. Ég man samt ekki í hvaða erindum hún var. Davíð Stefánsson – sá yngri – var eina alvöru ljóðskáldið sem ég kannaðist við þegar ég var 19 ára og ég var með stjörnur í augunum yfir því að þekkja ljóðskáld. Ég er með lögheimili heima hjá mér, í Öldunni, í fjörunni, við hafið, brimið, með útsýni yfir eyrina á aðra hönd en Snæfjallaströndina á hina – Ísafjörður er eini staðurinn sem ég get kallað „heima“, eini staðurinn sem mér finnst ég klæmast á þegar ég skrifa um hann – en ég er aldrei heima hjá mér, ég er kannski ekki annar en að minnsta kosti annars staðar. Danski rithöfundurinn Jens Christian Grøndahl sagði við mig á dögunum að allir rithöfundar væru í einhverjum skilningi heimilislausir, en ég held það hafi ekki verið þetta sem hann átti við. Húsið eftir Hörpu Jónsdóttur fjallar um Hrannargötu 1 – eitt af ættaróðölum mínum, ég hef aldrei búið þar en fór þangað sem barn til að borða rjómatertur hjá Dísu og Burra frænda. Ég hef ekki lesið bókina – eiginlega held ég að eigi næstum jafn erfitt með að lesa bækur um Ísafjörð og ég á erfitt með að skrifa um Ísafjörð. Ég hef heldur aldrei enst í gegnum heila bók eftir Hagalín. Ég skammast mín fyrir það, sem Ísfirðingur, en sem lesandi finnst mér lífið of stutt fyrir nema allra nauðsynlegustu bækur. En stundum finnst mér einsog ég sé eini maðurinn í heiminum sem skilur Þormóð kolbrúnarskáld.

← Allt safnið