Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Túnfíflavönd strax og vorar

Túnfíflavönd strax og vorar
SemSé eftir Ragnhildi Jóhanns. Mynd af vef höfundar bókarinnar. Heimild.

Þegar þú opnar bók sekkurðu ekki bara ofan í ranghala hugsunar annarrar manneskju heldur þarftu að þreifa þér þar leið eftir strikum bogum punktum og kommum frá A til B til C einsog þrjár blindar mýs og enginn bókstafur er sjálfsagður enginn bókstafur þarf að vera einsog hann er C gæti verið einsog G eða O eða D eða U (bókstafir eru allir í aðalatriðum eins; við skiljum þá í sundur til þess að lifa af) og þannig stikarðu í gegnum völundarhús hugsunarinnar með hjálp runa af smámyndum á hækju gamals lærdóms eitt skref af öðru (hefurðu tekið eftir því að sum börn læra að lesa einn og einn bókstaf í senn (og lesa hægt LLLLLLLEEEEEEESSSSSSSTTTTTTUUUUU-UUURRRRR án þess að átta sig á því hvaða orð þetta er fyrren þau eru búin að lesa það ef þá nokkurn tíma) en önnur börn læra að lesa heilu orðin í einu (og lesa óðamála LLLJÓN? LLLABRADOR? LLLYKTARSKYN? LLLAKAGÍGAR? LLLESTUR!)) og veröldin er veggfóðruð þessum fáránlegum táknum sem við teljum sjálfsögð og höfum fyrir löngu síðan hætt að vera þakklát fyrir (einsog við erum nú þakklát fyrir Facebook Gogoyoko og Torrent) og heyrðu ef þú lítur upp og litast um hversu mörg orð eru innan sjónsviðs þíns (án þess að þú hreyfir höfuðið) hversu mörg þeirra eru teiknaðir hlutar vörumerkja í hversu mörgum ólíkum leturtegundum og hversu langt má teygja bókstafi leturtegunda áður en þú hættir að skilja hvaða smámynd þetta er og lest ýtur í staðinn fyrir otur götur í staðinn fyrir getur hatur í staðinn fyrir ást já er ekki kominn tími til þess að þú sýnir smá ást þú elskir dálítið þessi litlu tákn og hvað er þá svona fáránlegt við að sakna Zetunnar úr íslenzku misstum við ekki sambandið við útlönd var ekki Zetan sæstrengur hugsunar út til Þýzkalands að minnsta kosti þar sem veröldin var að gerast og er kannski enn að gerast (halló halló halló heyrir einhver í mér er þetta Berlín gæti ég fengið samband við Wolfgang Müller ég er með mikilvæg skilaboð) en við felldum niður Zetuna af því við vorum of löt til að lesa hana skrifa hana horfa á hana en sjáið bara hvað hún er falleg Z og tökum hana upp aftur og líka C (gætum notað það til að skrifa fock) og å og ä og ø og ß og â og ü (mamma mín heitir Hübner að eftirnafni þetta kæmi sér vel fyrir okkur) og okkar bíður heilt arabískt stafróf og kyrílískt (rauða hættan og bræðralag múhameðs) og asísk myndletur (einsog letur séu ekki öll myndletur) og ég veit ekki hvað og hvað en hvað um bókina sjálfar umbúðirnar utan um síðurnar sem halda utan um bókstafina (ég þrái að mega að segja umbúð í eintölu getur einhver orðið mér úti um vottorð) þurfum við ekki að læra að sjá bókina síðuna og bókstafina sem þá framandi hluti sem þeir eru til þess að læra að elska þá upp á nýtt afvenjast þeim og hætta að taka því sem sjálfsögðum hlut að þessi leið að hugsun annarrar manneskju eftir stígum úr strikum bogum punktum og kommum sé eilíflega greið áður en okkar eigin þreytta vanahugsun leggur Þránd í Götu (þegar ég var lítill hélt ég að „þrándur“ væri tegund af vegatálma en ekki færeyskur byltingarsinni) og hvað stendur nær hugsun okkar en hjartað okkar og verðum við ekki að reyna að gera þetta allt saman skemmtilegt aftur að við nefnum ekki gáfulegt frjálst og nakið því hversu margar leiðir eru færar í gegnum eitt einasta orð í gegnum eitt einasta roð og orðroð og roðorð það fer eftir því hversu dugleg(ur) þú ert að rýna í alla þessa strúktúra því þegar allt kemur til alls eru þær óteljandi leiðirnar en það er ekki lengur bannað að segja svart hvítt yes já non og nein eða punktur punktur komma strik hér eru bara punktar kommur og strik og tígulegir fleygbogar parabólusetningar og út úr bókverkinu ljóðinu skríða tígulegir fleygbogar einsog hortugir iðandi ánamaðkar sem ulla á heimsendastemninguna utan við bókarglugga ulla tælandi sleiktu mig sleiktu mig sleiktu mig upp til skýja því að lesa er einsog að taka þátt í kynsvalli nema mamma þín mun ekki skammast sín fyrir þig og þú færð ekki sárasótt og þarft ekki að fara í sturtu fyrst en það er því miður enginn að fara að borga þér fyrir að gera það í beinni útsendingu á internetinu (á meðan þú gleymir því ekki að hvert einasta tákn er lítil mynd og myndin er hluti af hugsun sem þú átt með þeim sem skrifaði hana verður nafn þitt sett í pott og sigurvegarinn fær túnfíflavönd strax og vorar).

← Allt safnið