Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Að gera Ísland einfaldara

Að gera Ísland einfaldara
Spássían, haust 2010.

I

Í upphafi ljóðaannálsins Ljóðveldið Ísland vitnar Sindri Freysson í aðgerðaáætlun viðskiptaráðs 2006-2015. Eitt markmiðið er: „[Að l]eggjast á eitt að gera Ísland einfaldara.“ Annars vegar er þetta göfugt markmið, og líklega það sem Sindri hefur ætlað sér með bók sinni: að útskýra Ísland, finna á því (tilfinningalega) skiljanlega útskýringu og bera hana á borð fyrir lesendur í móttækilegu formi. En hins vegar finnur maður líka fyrir dystópískri sýn viðskiptaráðs: Ísland fyrir einfeldninga. Ísland einfaldað. Engar flækjur. Ekki hugsa.

II

Gengismunur Jóns Arnar er unnin upp úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um orsakir og aðdraganda falls íslensku bankanna 2008 – heil níu bindi, tvö þúsund blaðsíður, soðin niður í 65 blaðsíðna ljóðabálk með örfáum línum á hverri síðu. Bálkinn sjálfan skrifaði Jón Örn ekki sjálfur – hann er ekki afrakstur sköpunargáfu Jóns, einsog það hugtak er jafnan skilið. Þetta eru ekki „skapandi skrif“, bókin byggir ekki á orðsnilld, myndlíkingum eða orðaleikjum sem eiga uppruna sinn í uppáfinndingarsemi Jóns.

Jón Örn skrifaði forrit. Forritið skrifaði Gengismun. Jón Örn ritstýrði bók forritsins.

III

Sindri Freysson hefur ríflega 200 blaðsíðna ljóðaannál sinn (sem byggir svo sannarlega á orðsnilld og orðaleikjum) við lýðveldisstofnun – eða ljóðveldisstofnun. Frekar en landnám, kristnitöku, upphaf sögualdar, Gamla sáttmála, siðaskipti, Kópavogssamninginn, fyrsta manntalið, móðuharðindin, endurreisn alþingis, heimastjórn, hernám, fullveldi, NATO-aðild, þorskastríðin, fæðingu höfundar, valdatíð Davíðs Oddssonar, EES-samninginn, einkavæðingu bankanna, upphaf útrásar. Hvað þýðir það?

Fyrstu hundrað blaðsíðurnar, sem ná fram á tíunda áratuginn, eru dálítið einsog að lesa stílfærða Öldina okkar, með skemmtilega barnalegum húmor og flissandi fíflagangi um fjarlæga atburði. En þegar höfundur (en ekki ljóðmælandi) er kominn á fullorðinsaldur sækir hún á dýptina, setur í skriðþungann. Erindin verða lengri, viðburðirnir fleiri – þeir hrúgast hver ofan á annan og í stað þess að virka einsog þaulsmurður (og hálfbanal) áratugaannáll fyrri hlutans verður kaosið algert, minnið tekur völdin, mann verkjar í ryðgaðar tilfinningar. Við eigum öll einhvern harmleik þarna (snjóflóðin fyrir vestan – ég er kannski ómarktækt hrak, en ég grét) og þegar vaðið er úr einu í annað missum við stjórn á vörnum okkar. Maður saknar þess næstum að sakna ekki fyrri hlutans. 100 blaðsíðum of löng? Er það ekki það sem gagnrýnendur eiga að segja?

IV

Síðasti fjórðungur Ljóðveldisins er síðan einsog skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis, skrifuð í nýjum stíl. Hann er endursýning á einkavæðingu, útrás, siðleysi, græðgi, hruni og loks reiði. Ljóðmælandi sem á hippatímanum yrkir: „Verst að byltingar / eru oftast bara hausaskipti / á styttunum“ segir árið 2008: „Þeir sem mótmæltu mótmælum sögðu:/ „Þeir sem kalla á hausafok hugsa ekki lengra en / að hálshögginu“ / Skildu ekki að / hvarf hausanna / losar hugsunina / undan fargi sínu / Að á meðan gamlir hausar / hvíla á gömlum hálsum / geta nýir hausar / á nýjum hálsum / ekki hugsað frjálsir“. Heimurinn er nýr. Byltingin er ekki bara möguleg, heldur raunveruleg og nauðsynleg.

V

Gengismunur er bók um tungumál. „Undir árshlutareikningi / tekur eignarhaldsfélagið skuldbindingu / á nauðungaruppboði um miðja vikuna / með skuldsetningu í árinu“. Lestur Gengismunar er áreiðanlega dálítið einsog að vera staddur í martröðum Eiðs Svans Guðnasonar, eða annars álíka málverndara – allir þessir sálarlausu orðaleppar, vitlaust beygðir, hnýttir saman í merkingarleysur. Hér eru engir brandarar, þessi texti er ekki fyndinn (grunar mig) nema maður hafi pervertískan málahúmor. Líkt og ameríska skáldið Kenny Goldsmith er Jón Örn ekki á höttunum eftir lesendum („readership“) heldur hugsendum („thinkership“). Gengismunur er konseptverk sem ástæðulaust er að lesa.

VI

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er meðal annars fræg fyrir það hversu fáir hafa lesið hana. Hún er 2000 blaðsíður af þunglyndi, spegill ónýtrar þjóðar, og á köflum kannski ekki læsileg öðrum en fræðimönnum og masókistum. Gengismunur gerir lestur hennar óþarfan, en Ljóðveldið býr sama efni í hressilegan búning – tilfinningalega rússíbanareið. Ljóðveldið leggur sig fram um að skemmta – Ljóðveldið er hirðfíflið sem reynir að segja þér sannleikann í þolanlegum búningi. Gengismunur þjónustar engan, fróar engum, er ekki skrifuð fyrir mannfólk (frekar en hún er skrifuð af mannfólki).

VII

Ég grét ekki yfir Gengismun. Ég hló ekki einu sinni (oft). En ég undraðist meira en yfir mörgum bókum. Annars vegar býður hún manni að glíma við annars konar sköpun en maður fæst við alla jafna, hún verkar á mann í öðrum ferlum, sækir inn í aðra hugsun, aðrar tilfinningar. Hún er zenísk, horfin yfir í fáráðsskapinn „hinumegin“ – hún sviptir frá tjöldum tungumáls og hugsunar svo við fáum séð í gegn: „En það er ekkert þarna?“ segjum við, spyrjum við, forviða. Allt verður hjákátlegt. Líklega er Gengismunur bitrasta bók ársins. En það er líka auðskilið hvers vegna hún er bitur. Ef Ljóðveldið Ísland veitir manni tilfinningalega útrás (no pun intended) þá býður Gengismunur ekki upp á neinar útleiðir. Hér ertu bara fastur. Þú þarft ekki einu sinni að lesa bókina til að vera fastur.

VIII

Aftan á Ljóðveldinu stendur: „Íslensk sögusýn verður aldrei söm.“ Kannski eru þetta óþörfustu orð bókarinnar. Því styrkur Ljóðveldisins Íslands liggur svo sannarlega ekki því að bjóða upp á „nýja“ söguskoðun. Þetta er sýn vinstrimanns árið 2009 – klassísk sýn. Virkjanir eru vondar, ál er vont, stríð er vont, bissniss er vondur, fátækt er vond. Náttúran er góð, menning er góð, alþýðan er góð – það er gott að vera indæll og hress. Þetta segi ég ekki til þess að setja út á bókina – ég er fullkomlega sammála. En þarna, í þessum auglýsingatexta á bakkápu (sem er allt eins víst að skáldið beri enga ábyrgð á), er lesanda einfaldlega lögð blekking til hugar – og hluti þeirrar blekkingar er sú að ekkert sé fullkomlega þess vert nema það sé nýtt. En hér vantar ekkert nýtt. Við vitum öll að útrásin einkenndist af taumlausri græðgi, að innrásin í Írak var röng. Við vitum jafnvel að stofnun lýðveldisins var í sjálfu sér hlálegur atburður í samhengi við heiminn – sem er áreiðanlega transgressífasta „skoðun“ ljóðmælanda. Við segjum þetta oft á dag. En við kunnum samt ekki að breytast.

IX

Í eftirmála Gengismunar ræðir Jón Örn um slys og skapandi villur – þetta að „sjá hvað gerist þegar gula málningin í sólinni blandast bláu málningunni í himninum. Fá yfir myndina sína slettur frá penslum annarra, matvæli, kaffibletti.“ Jón bendir á hvernig það sé töluvert erfiðara að búa til kringumstæður fyrir slys af þessu tagi í tölvum, sem er skipað að starfa samkvæmt fyrirfram skilgreindum (nákvæmum) ferlum. „Þess vegna getur það orðið að leik að leita uppi kringumstæður þar sem tölvan bregst óvænt við. Segja henni að myndir séu hljóðskrár og heyra hvort suðið sé ekki áhugavert.“

Í eftirmála veraldar sem virkaði (og virkar) samkvæmt ferlum, samkvæmt lögmáli framboðs og eftirspurnar, siðferði frjálsra viðskipta, benda hugmyndir Jóns á tvennt. Annars vegar sér maður þær sem tákn fyrir svindlið og svínaríið sem tíundað er í skýrslunni – hvernig kaupsýslumenn brutu lög og nýttu sér gloppur til þess að skara eld að eigin köku. Hins vegar hugsar maður um hið kerfisbundna fall – hvernig hrunið og kreppan eru eðlislæg frjálsu hagkerfi. Að þótt allir „færu að reglunum“ myndi þetta samt fara svona, það færi samt allt til andskotans. Og hin framleiddu slys eru þá sandkornið sem eyðileggur vélina, tortímir hinu kerfisbundna óréttlæti. Sem afsakar ekki svindlið og svínaríið – en kannski eru þau líka náttúrulegur hluti af samkeppnissamfélagi: sá sem svindlar best vinnur.

X

Ljóðveldið Ísland er skreytt nokkrum ljósmyndum úr Íslandssögunni og hruninu, mótmælunum, kreppunni. Síðasta ljósmyndin er af skáldinu Jóni Erni Loðmfjörð, höfundi Gengismunar, í miðri búsáhaldabyltingu. Í forgrunni er hópur óeirðalögreglumanna með kylfur á lofti en í bakgrunni mannfjöldinn – mótmælendur. Fyrir miðri mynd stendur Loðmfjörð með svörtu krullurnar sínar, hávaxinn með höfuðið upp úr þvögunni, og starir inn í nakið lögregluofbeldið. Fyrir aftan blaðsíðuna stendur Sindri Freysson, með ljósu lokkana sína, og starir á ofbeldið hinumegin frá – starir á Jón sem starir til baka.

← Allt safnið