Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Staðir · Íslenska

Með öndum í olíulömpum

Með öndum í olíulömpum
Olíuhreinsistöð í Yokohama í Japan. Ljósmynd: Kaz Ish · CC BY-SA 3.0. Heimild. CC BY-SA 3.0.

Ég fæ það stundum sterklega á tilfinninguna að sveitarsystkinum mínum á Ísafirði þyki orðið fátt eðlilegra en að vola, og er þá af sem áður var – lítið eftir af hinu merkilega goðsagnasjálfi Vestfirðingins, sem aldrei bugast og siglir í mót storminum með hvítnandi hnúa og frostsprungið nef, gerist þess þörf. Hann fleygir sér í öllu falli ekki í koju þegar harðnar í sjóinn og orgar á Landhelgisgæsluna að bjarga sér – Ísfirðingar eru engir skræðunjólar eða utanveltubesefar, svo ég vitni í tvo frækna bræður innan úr Djúpi. En það er tilgangslaust að bíta í sig þjóðernislegar staðalmyndir – því veröldin breytist og mennirnir með. Það er hins vegar ágætis húkkari að ásaka fólk um aumingjaskap og fátt er jafn líklegt til að kveikja athygli manna og kvenna sem eru allt annað en einmitt þetta: aumingjar. Ég biðst velvirðingar og meina ekki nema annað hvert orð.

Að velja sér húsbónda

Það er orðið tæpt ár síðan ég flutti burt, í fjórða eða fimmta skiptið. Ég gerði það ekki fyrir þær sakir að mér þætti svo drepleiðinlegt að búa á Ísafirði, heldur voru alls kyns persónulegar ástæður þar að baki, sem er óþarfi að tíunda hér. Þeir eru ekki margir staðirnir í heiminum þar sem mér líður betur en á eyrinni í Skutulsfirði. Ég áttaði mig einhvern tíma á því að ég er langtum fremur Ísfirðingur en Íslendingur – og í þokkabót miðbæjar-Ísfirðingur sem finnst hann kominn á hjara veraldar ef hann álpast upp fyrir kirkjugarð.

Það hefur verið sagt áður og það er ástæða til að endurtaka það: sá sem ekki er búsettur fyrir vestan, en fylgist með fréttum þaðan, fær það fljótlega á tilfinninguna að það sé allt bókstaflega á leiðinni til andskotans – Vestfirðir séu hurðarlaus munni að helvíti og ofan í gapið hrynji fólk í þúsundatali, atvinnulaust og hungrað, örvilnað og úttaugað. Af einhverju stafar þetta – ekki er það raunveruleikanum að kenna – og ég held það sé skammgóður vermir að kenna blaðamönnum einum um, enda gera þeir sjaldan annað en að hafa eftir fólki úti í bæ.

Vonleysið er vondur húsbóndi, og afleiðingar þess eru keðjuverkandi. Sá sem missir vinnuna á Vestfjörðum virðist einfaldlega gefa upp vonina um að lifandi sé á staðnum lengur og byrjar á því að panta sér gám og setja húsið á sölu – þó hvergi á landinu sé minna atvinnuleysi. Þetta þykir mér undarlegt, og lái mér hver sem vill.

Reykspúandi olíumellur í ástandinu

Það er líklega óþarfi að tyggja það ofan í vel gefið fólk að vonleysi læknar maður ekki með olíuhreinsunarstöðvum – hvað sem líður öllum rökum með eða á móti slíkri byggingu, sem áreiðanlega er hægt að byggja í hverjum einasta firði um víða veröld án þess að jarðkringlan velti sér örenda á hliðina. Ég leyfi mér að taka það fram að ég hef fulla trú á því að þetta verði hundljót bygging og minnisvarði um örvilnun hinna vonlitlu – gjörsamlega tilgangslaus óskapnaður – þó vera megi að hún geti þjónað táknrænu gildi og loksins grafið allt volið og vælið sem er farið að þreyta hlustir mínar. Hún yrði þannig eins konar legsteinn vonleysisins. En það er auðvitað bara mín skoðun, ég vona að ég sé ekki að troða henni upp á neinn þó ég segi ykkur frá henni.

Eitt vinsælli sporta þessa dagana er að slökkva á allri gagnrýni á olíuskrímslið með því að segja málið einfaldlega vera „til skoðunar“, eða „í athugun“ – eða innilokað í einhverju öðru bjúrókratísku hugtaki. Kannski í nefnd – og því sé „óþarfi að slá hugmyndina út af borðinu“. Svona eins og maður hafi gerst sekur um að gubba í tertubotninn áður en húsfreyjan var einu sinni byrjuð að þeyta rjómann – og það er augljóslega engin tenging á milli þess að hugsa um að þeyta rjóma og að drepast úr hjartasjúkdómum.

Hugmyndin virðist vera sú að þegar hlutir eru í athugun megi ekki velta upp neikvæðum hliðum þeirra. Sem er auðvitað reginfirra, og má velta því fyrir sér hvað fólki gengur til með þannig þvælu.

Ég vil koma því að, að mér finnst sá punktur fullkomlega réttlætanlegur að stórar verksmiðjur séu ljótar, og það sé bölvað hórarí að hlaupa á eftir glóbalískum stórfyrirtækjum – sem öll eru meira og minna blóðug, uppúr og niðrúr (og þegar ég segi blóðug er ég ekki að tala í myndlíkingum, ég er að meina að þau hafi valdið dauða fjölda manns) og biðja þau að redda okkur, eins og við séum ósjálfbjarga vesalingar. Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar að sá sem alltaf bíður björgunar – hvort heldur hún á að koma frá bæ, ríki eða stórfyrirtækjum – sé dæmdur til þess að verða aldrei sjálfbjarga. Þeim sem síðan finnst á sér brotið mættu síðan bæta smá eldi í stoltið á sér og kynna sér hugmyndir um borgaralega óhlýðni – en slíkt er ekki bara á færi lopahúfuhippa og kuflklæddra Indverja. Þeir fiska nefnilega ekki sem eiga kvóta, þeir fiska sem róa. Og það er ekkert eðlilegt við að leyfa einhverjum að vaða yfir sig.

Stjórnmálamenn og kaupsýslumenn hafa löngum haft mestan áhuga á sínu eigin rassgati. Komi einhvern tíma eitthvað gott úr þeirri átt geri ég ráð fyrir að það verði fyrir algera tilviljun.

Helvítis liðið í Reykjavík!

Ef að af olíuhreinsunarstöð verður, og „háskólaliðið“ og „pakkið í 101“ – eða hvað sem þessi lúðalýður kallast á orðljótustu kaffistofunum – fer í kröfugöngu niður Laugaveginn, þá vil ég að Ísfirðingar hafi það í huga að þessi lýður er nákvæmlega fólkið sem flutti burt. Liðið í 101 er nefnilega bara þverskurður af Íslendingum – þetta eru bara Haukur Magg og Kristján Freyr úr hljómsveitinni Reykjavík!, trúbadorinn Skúli Þórðar og börn tannlæknisins – fólk sem fór suður að afla sér menntunar, eða til að verða sér úti um vinnu við eitthvað annað býðst fyrir vestan, og er þar enn. Ég held það sé afskaplega hæpið að olíuhreinsunarstöð í Dýrafirði hefði fengið þetta fólk til að staldra við eða snúa aftur. Ekki hefði hún haldið í mig. Því síður, þá þætti mér hún bölvuð skömm – og bygging hennar myndi ræna mig dálitlu af þeim fögru hugsunum sem ég annars á um Vestfirði. Ekki miklu, en þó nægu til að ég tæki eftir því.

En ef þetta er eitthvað plott til þess að auka rýra tekjustofna bæjarfélagsins, held ég að við séum á villigötum – þau vandamál verður að leysa annars staðar og öðruvísi.

Þegar allt kemur til alls ættum við svo að fá að kjósa. Þá getur fólk einfaldlega gert það upp við sig hvort risavaxin iðnaðarverksmiðja í Ísafjarðarbæ sé réttlætanleg lækning við 0,6% atvinnuleysi á Vestfjörðum, og hvort að þau störf sem þar skapist haldi virkilega í það fólk sem flytur burt. Það má vel vera að bygging olíuhreinsunarstöðvar hafi í för með sér að annað hvort flytji færri burt, eða fleiri flytjist vestur – bæði til að vinna í stöðinni og til að þjónusta hana. Efnahagsleg áhrif munu verða jákvæð, að svo miklu leyti sem þensla er jákvæð. Fólk getur síðan deilt um hvort það sé þess virði, og hvort afleiðingar stóriðju á Vestfjörðum verði yfirhöfuð einhver himnasæla – hvort við séum einhverju bættari með því að Ísafjarðarbær verði stóriðjubæli. Mér finnst tilhugsunin ekki sjarmerandi.

Ég held ennfremur að það sé mikilvægt að allir geri sér grein fyrir því að hvort sem skrípaleikurinn verður settur á svið eður ei – þá er það enginn heimsendir að gera sig að fífli, og enginn er mikið betur settur fyrir að sleppa því. Lífið heldur áfram. Og þeir sem hafa þannig taugar til fjallanna munu enn sem fyrr hvergi líða betur.

← Allt safnið