Nýhil er afleiðing þess að troða fjörutíu sardínudósum í eina. Nýhilismi er svo það sem gerist þegar téð sardínudós skreppur saman inn í Svarthol (hvaða svarthol sem er) og líkamnast aftur annars staðar, fjörutíuföld.
Nýhil er sósíalískt alþýðulýðveldi, reist á brunarústum markaðstorgs guðanna. Innan Nýhil er hver kjaftur sinn eigin paranojaði einræðisherra, sem og einræðisherra allra annarra.
Nýhil er ekki í andstöðu, eða öðrum stellingum, ýmist kenndum við móðurlíf eða hegra.
Nýhil lyktar af kynlausri brundstybbu/píkufýlu, og það er römm svitalykt af Nýhil. Nýhil sér enga ástæðu til að skammast sín fyrir líkamslykt sína, en drekkir henni þó í ilmvötnum og rakspírum og skrúbbar hana burt með sturtu og baðferðum, oft á dag. Við skulum ekki rugla saman almennu hreinlæti og skömm.
Kæri lesandi, kjósir þú að sækja um aðild að Nýhil (c) skaltu hafa í huga nokkrar grundvallarreglur:
Umsóknin skal skrifuð í Windows Word, í 10 punkta Arial letri. Efri og neðri spássíur eiga að vera 2,54 cm og hliðarspássíur 3,17 cm. Sérnöfn ber að skrifa með stórum staf. Huga skal sérstaklega að vönduðu málfari við frágang umsóknar, tilþrif í stíl eru ekki vel séð. Í umsókn eiga að koma fram ástæður þess að þú telur þig eiga skilið að ganga í Nýhil (c), ekki færri en 200.000 orð og ekki fleiri en 800.000. Ekki skal geta heimilda. Umsókn skal loks prentuð út í vönduðum geislaprentara, helst af þekktu vörumerki, á A4 pappírsörk, sem er nógu þykk til að ekki sé hægt að sjá í gegnum hana. Dagsetning og undirskrift skulu skrifuð með Hybrid Gel Grip penna. Andlitsmynd í stærðinni 30cmx40cm á að fylgja með umsókninni, gjarnan í prófíl, en það er þó ekki skilyrði. Auk þess skal fylgja með ítarleg ferilskrá, eyðulaus!
Ljósmynd skal fest við ferilskrá með bréfaklemmu, og hún svo tvígötuð og sett í svarta plastmöppu. Umsókn skal binda inn í harðkápu. Umsókn og ferilskrá á svo að setja í vatterað brúnt umslag, merkt Nýhil/Sundstræti 19/400 Ísafjörður/ Ísland, í stórum blokkstöfum. Loks skaltu kuðla umslaginu saman, troða því upp í rassgatið á þér og við munum hafa samband við fyrsta tækifæri.
Innvirðulegast, f.h. Nýhil,
Eiríkur Örn Norðdahl
