Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Lúter, Búdda og áramót

Glas og hvíld.
Glas og hvíld.

Að skríða inn í nýtt ár hefur löngum verið mér erfitt. Ekki svo að skilja að ég sé latari en aðrir við að horfa björtum augum til framtíðar, berja mér á brjóst, blása í herlúðra og sverja í bak og fyrir að afrek nýja ársins verði tvöfalt stórkostlegri en þau sem ég vann á árinu sem var að líða. Ég er enginn pessimisti, ég sé ekkert nema dýrðir fyrir handan hvert einasta horn. Nægar eru jú átyllurnar: Útrás íslenskra fyrirtækja mun skila okkur svo miklum peningum á komandi ári að ef við drukknum ekki í aur þá megum við heita heppin; árinu eldri erum við lærðari í lífsins leikum og getum betur vikið okkur undan hallærislegum uppákomum og öllum þeim leiðinda aðstæðum sem manískur kjafturinn á okkur tekst að kjafta okkur inn í; og síðast en ekki síst eru 365 dagar þar til við þurfum næst að líta um öxl á brenndar brýrnar og sviðna jörðina að baki okkur.

En eftir alla naflaskoðun áramótanna líður mér yfirleitt eins og ég sé holur að innan. Lúterskur veruleiki byggir nefnilega á því að maður upplifi líf sitt syndum þrungið, að við engjumst um með innyflin sviðin af samviskubiti. Þegar árið hefur verið gert upp, hver einasti dagur talinn, skráður og þegar 12 spora kerfi mánaðanna hefur verið þrammað á enda – og við sem þjóð erum hætt að eyða um efni fram, reykja, drekka, hætt að vera leiðinleg við vini okkar, hætt að borða og farin að hreyfa okkur, er nákvæmlega ekki neitt eftir af þessari uppistöðu hinnar íslensku tilvistar – eftir sitjum við með sáran skallann og tómt syndaregistur. Ekkert kemur í stað þeirra synda sem við höfum gert upp við. Ekkert nema janúar. Kolniðamyrkur allan sólarhringinn og það snjóar fyrir alla glugga á kjallaraíbúðinni minni svo ég get hvergi opnað rifu til að hleypa út partíólyktinni sem settist í allt yfir áramótin. Og ég finn húsið mitt svigna fram og aftur í vindhviðunum, og þó það svigni pent og rólega er eitthvað svo óeðlilegt við að stórt timburhús hreinlega beygi sig fyrir veðurguðunum að mér verður ómótt. Mér finnst eins og Drottinn hljóti að vera eitthvað ósáttur. Með sand í píkunni.

Á þessum vanda er þó lausn. Það er nefnilega eðlileg siðferðisleg ástæða fyrir því að við hellum okkur dauðadrukkin í desember, eyðum langt um efni fram, dönsum upp á jólahlaðborðum og breyttum popppunktsspilinu í einhverskonar semíerótískan strippleik. Skríðum út úr partíum á hádegi til þess eins að senda einhverjum stelpum dónaleg sms og hringjum í þjónustufulltrúann til að hækka yfirdráttinn um hundrað þúsund í viðbót. Hin norræna skepna sem neyðist til að lifa með öllum þeim mótsögnum sem lúterskt uppeldi hefur innrætt henni, þarf nefnilega á allri sinni synd að halda í janúar – hún lifir í þeirri veiku von að eitthvað af desemberfylleríinu rifjist ekki upp fyrr en á fyrstu dögum nýs árs, svo við eigum eitthvað til að engjast yfir. Lítinn vetrarforða af ljósgefandi syndum til að lýsa upp bænir okkar í myrkasta skammdeginu.

Þetta er þó hægara sagt en gert. Eftir því sem aldurinn færist yfir okkur eigum við nefnilega erfiðara og erfiðara með að vera full allan sólarhringinn vikum saman, og þjónustufulltrúarnir verða smám saman tregari eftir því sem yfirdrátturinn hækkar – og að lokum byrja bankarnir að koma með siðferðislegar vandlætingar: “Eiríkur minn, er ekki kominn tími til að þú farir að hugsa þitt ráð. Við þurfum að fara að semja um niðurgreiðslu á þessum ósköpum.” Og blankur maður sem á ekki félagslega innistæðu í bankanum eyðir víst ekki miklu, hvorki í jólagjafir né áfengi. Það er erfitt að taka dónaleg sms frá ódrukknum jólagjafalausum manni í desember alvarlega, og flest erum við hin einhleypu jú að reyna að ganga út.

Þetta hefur komið svo illa við mig í ár að ég er farinn að hugsa alvarlega um að gerast trúvillingur. Ráfa burt eins og villuráfandi sauður úr örmum Lúters, lifa í búddískri sátt við dýr og menn – taka mér heilagt ár til að vinna inn fyrir syndum framtíðarinnar. Herða beltið og bindishnútinn, láta af öllu sukki og vitleysu, fara að stunda viðskipti við heiðarlega aðila, synda kílómeter daglega, vaska alltaf upp eftir kvöldmatinn og búa um rúmið mitt þegar ég fer á fætur. Sitja við færiband lífsins og hamast af lífi og sál til þess að hópbónus þjóðarinnar lækki ekki, að íslenska útrásin megi halda áfram ótrauð niður aurrennur aldanna.

En svo er allt eins víst að í febrúar hafi mér aftur safnast í sarpinn, ég á von á peningum sem gætu dugað eitthvað í yfirdráttinn, og sjálfsagt mun mér aftur takast að gera í mínar siðferðislegu brækur. Það er aldrei að vita nema að fyrsta hugsun mín í febrúar verði að hringja í þjónustufulltrúann úr heimasímanum og senda dónaleg sms úr farsímanum á meðan ég fylli glasið barmafullt og ríf kjaft við vini sem aldrei áttu það skilið. Landsmenn, upp! Það er ár!

← Allt safnið