Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Kjötbærinn

Kjötbærinn eftir Kristínu Eiríksdóttur.
Kjötbærinn eftir Kristínu Eiríksdóttur.

Ein af mögnuðustu minningum mínum frá ljóðapartítúr Nýhils um Ísland sumarið 2003, er þegar Kristín Eiríksdóttir, Stína, brast í söng í einu ljóðanna. Hún söng Komu engin skip í dag eftir Magnús Eiríksson, í orðastað Kötu í Kjötbænum. Senan er einhvernveginn þannig að Kata er að hella upp á kaffi, „og svo líður heil mannsævi þartil það er tilbúið, heil ævi manns sem kann ekkert nema að þjást og eftir erfiða banalegu og skelfilegan dauðdaga sest ég á móti þér með kaffibollann Kalvin og önnur mannsævi hefst“. Svona hefjast og enda ævir í ljóðinu, Kata upplifir dauðann aftur og aftur, og brestur svo ósjálfrátt í sönginn um sjómannskonuna sem missti mann sinn í hafið – og í lok hvers erindis kveinar hún af undrun yfir því að engin skip skuli hafa komið. Sjómannskonan er að því leytinu til ólík Kötu að í miðjum dauðanum trúir hún ekki á dauðann, á meðan Kata trúir ekki á lífið og finnst sem lífinu sé sífellt að ljúka og það hefjast á nýju – og færist þannig áfram á meðan sjómannskonan situr föst í eigin tragedíu.

Það sem gerir þessa minningu ekki síst eftirminnilega er hvernig það gerðist alltíeinu að þessi smámælta stúlka, Stína - sem er með hálfviðkvæma rödd, eða litla - brast í söng, og það alveg ofsalega fallegan, og röddin stækkaði eins mikið og herbergið leyfði. Ég upptöku af þessu sem Gunnar Þorri Pétursson gerði fyrir Víðsjá, en hann fjallaði um ferðina austur, og ef einhver getur kennt mér að færa upptöku af kassettu yfir á tölvu skal ég glaður deila þessu með honum/henni.

Fyrsta tilfinningin sem ég fékk fyrir Kjötbænum, eða réttara sagt fyrsta hugdettan, var að tengja hana við Ljúgðu Gosi, Ljúgðu (1) – þetta eru lýsandi myndríkir prósar sem flýja klisjur af töluverðri færni, og meginþemu Kjötbæjarins eru hversdagurinn, kjötið og dauðinn – líkt og í Gosa. Sjálfum kjötbænum blæðir út, og er að deyja, er dauði jafnvel, og „auglýsir eftir eldsálum“ og Kata er sannfærð um að þar sé átt við hana.

En það er þó fleira ólíkt en líkt með þessum tveimur bókum. Gosi byggist fyrst og síðast á myndum, upphrönnuðum og tengdum með þema, frekar en karakterum eða narratífu, eins og Kjötbærinn. Gosi er líka miskunnarlausari gagnvart lífinu, á meðan Kjötbærinn er beinlínis dapur, sorglegur, þar sem Gosi er grimmur og hæðinn.

Sjálf er hún lítið gefin fyrir að fara úr húsi (2) „Hljóðvillt skolhærð móða. Fer sjaldnast út, er oftast ein.“ og það er sterklega gefið í skyn að a) raunveruleikaskyn hennar sé ekki endilega í fullu lagi „ímyndunarveikur boðberi sannleikans“ b) þessi flótti hennar frá raunveruleikanum valdi sterku ímyndunarafli sem svo aftur gerir hana geðveika „hauskúpan á mér veggfóðruð að innan, milljón mismunandi munstur“ og c) að henni sé allavega að nokkru leyti annt um að fólk (Kalvin) skilji samt á milli ímyndaðs og raunveruleika „Kalvin er hættur að skilja hvenær ég tala um drauma og hvenær ég tala um það sem gerist á meðan hann er ekki heima, segir að ég tali í flækjubendu“.

Kata og Kalvin eru afskaplega ólík – allavega í augum Kötu – Kalvin getur ekki ímyndað sér jakuxa, á meðan Kata ímyndar sér þá með gífurlegum tilþrifum, Kalvin byrjar að sjá í röntgen um miðja bók, og sér innviði Kötu á meðan Kata botnar ekki í honum því það liggur svo djúpt á draumunum hans að hún greinir þá ekki almennilega. Kalvin fer í vinnuna á hverjum degi, og kemur sjaldnar og sjaldnar heim, á meðan Kata fer helst ekki út úr herberginu. Þegar Kötu langar að Kalvin komi heim með fiskflak og kartöflur reynir hann að fá hana með sér út að borða, en Kalvin fer að lokum út að kaupa mcdonaldsmat handa þeim, og Kata neyðist til að breyta fiskborgara og frönskum í fiskflak og kartöflur.

Þetta breytir þó litlu um að þau séu ástfangin – í öllu falli segist Kata ástfangin, og Kalvin virðist vera góður við hana – tekur niður þungarokksplakötin svo henni líði betur, fer út og kaupir í matinn – vinnur fyrir þeim(?)

Og bókin er þannig, í einhverskonar sjarmerandi flækjubendu – því hún er narratífa, en í stað söguþráðar, er hún samsett af söguþráðum, sem eru misslitnir og misflæktir utan um þessa þrjá karaktera, Kötu, Kalvin og Kjötbæinn, og harmónera þannig mjög vel við það hvernig Kata lýsir hugarfari sínu og hjartalagi. Í þráðunum myndast svo einhverslags mynd af „flækjubendu“ sem vissulega liggur einhverstaðan eitthvert, en sökum þess að þræðirnir eru slitnir og flæktir er erfitt að sjá nákvæmlega hvert – það er að segja, hvert þeir liggja er túlkunaratriði hvers og eins, eða jafnvel frekar ímyndunaratriði, heldur en túlkunar.

Þó bókin sé narratífa er ekki laust við að hér og þar megi líka finna snilldarsetningar sem gætu sómt sér vel í hvaða langpo (3) ljóði sem er. Eins og „frönskurnar munu koma í staðinn fyrir kartöflur en ég hef samt heyrt að þær séu búnar til úr kartöflumjöli“ (a rose is a rose is a rose is a...); „Innra eyrað urrar.“; „nálgast mig á ljóshraða hljóðhraða“ - og hefðu mér að meinalausu mátt vera fleiri, en það hefur meira með mín fetish að gera heldur en það hvort það hefði gert bókina betri – þó sjálfsagt hefði hún ekki heldur orðið verri við það.

Teikningarnar í bókinni eru einfaldar blýantsteikningar af heimilislegum hlutum, snúrum, tómum stígvélum, brauðhnífum, dýnu (með hauslausri stelpu), plötuspilara, sígarettu milli kvenmannsfingra – og allar gefa þær til kynna að eitthvað sé brotið á heimilinu; stígvél liggja á hliðina, brauðhnífur sker perlufesti, snúrur eru flæktar, filter sígarettunnar brennur o.s.frv. Allt ýtir þetta undir þessa dapurlegu tilfinningu sem einkennir bókina, hálfgert vonleysi sem í bestu tilfellum leysist upp í draumveröld, sem minnti mig helst á einskonar eftirlífsheim, von sem er of abstrakt-góð til að ná fótfestu, of loftkennd og virkar þannig hverful. Lok bókarinnar orkuðu beinlínis þannig á mig að Kata væri dáin: Í fjórða síðasta ljóðinu: „Ég missi höfuðið í kjöltuna, hrekk við og lít upp. Kalvin er horfinn.“ Þriðja síðasta (á bílastæði): „Maður gengur út í sólskinið og stillir sér við dyrnar, heilsar öllum með handabandi og býður þá velkomna.“ Í næstsíðasta: „Kjötbærinn er kominn að sækja eldsálina logandi, er að missa takið á ofninum og sogast brátt inn í ormagöngin.“ Og svo í því síðasta: „Jakuxinn nálgast mig á ljóshraða hljóðhraða. Áður en ég veit af sit ég á baki hans dæmd til að æða með honum um óendanleikann að eilífu.“

1. Ég viðurkenni að ég hef óþarflega mikinn tendens til að gera þá bók að viðmiðunarpunkti.

2. Ef ég man rétt fór hún einu sinni út til að fara í Kjötbæinn, datt einu sinni út um gluggann í bakgarðinn, og var einu sinni stödd á bílastæði, en hélt sig annars í herberginu sem hún leigir með Kalvin.

3. Language poetry. Tungumálaljóðlist.

← Allt safnið