Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Kallfæri 4. þáttur

Myndræn forsíða: Kallfæri 4
Myndræn forsíða gerð fyrir vefútgáfuna.

Kæru hlustendur. Sú hljóðaljóðlist sem byggir á samspili raddar við undirspil er líklega það form listarinnar sem þekktast er - enda hafa frægari höfundar af einhverjum orsökum haft meiri áhuga á framleiðslu slíkra verka, og má meðal þeirra nefna bíthöfundana William S. Burroughs, sem starfaði bæði með Disposable heroes of hiphoprisy, og Kurt Cobain, Allen Ginsberg, sem vann með Bob Dylan og The Clash, og Jack Kerouac, en lestrar hans við djasspíanóleik Steve Allen hafa lengi notið vinsælda. Ljóðahljómsveitin The Last Poets, Síðustu skáldin, sem hóf þáttinn í dag með ljóði sínu The Lone Ranger, var stofnuð þann 19. maí árið 1968, sama dag og blökkumannaleiðtoginn Malcolm X hefði orðið 43 ára, hefði hann ekki verið myrtur þremur árum fyrr. Sveitin var mynduð á ritsmíðanámskeiði í Harlem, og markar sá atburður að miklu leyti upphafið að því sem í dag kallast hipp hopp tónlist. Sveitin var gríðarlega pólitísk og tók virkan þátt í pólitískri baráttu blökkumanna í Bandaríkjunum. Að öllu jöfnu var spilað á afrískt slagverk undir lestri ljóðanna, sem félagarnir fluttu í sameiningu, auk þess sem öðrum hljóðfærum var stundum bætt í blönduna. Meðlimaskipti voru tíð í sveitinni, og raunar voru fleiri en ein útgáfa af henni starfandi á sama tíma - en jafnan hafa verið tvö til þrjú skáld í hverri líkamningu gjörningsins, einn slagverksleikari, og leigumúsíkantar eftir þörfum. Fyrsta plata sveitarinnar, sem nefndist einfaldlega The Last Poets, er líklega sú sem náði hvað mestum vinsældum, en næstu tvær á eftir, This is Madness, Þetta er brjálæði, og Chastisement, Hegning, náðu einnig eyrum margra. Við skulum heyra hér næst eitt ljóð af síðastnefndu plötunni. Ljóðið ber latínu titilinn E Pluribus Unum, sem á íslensku útleggst, Úr mörgum einn, en það er kjörorð Bandaríkjanna og ritað á peningaseðla þar í landi.

Það er ætlun mín í dag að staðnæmast stutta stund við pólitíska hljóðaljóðlist, enda hefur hljóðaljóðið í gegnum tíðina ekki síst verið notað til áróðurs, undirróðursstarfsemi, andspyrnu og frelsisbaráttu. Í bókinni How to read an oral poem, eða Hvernig les maður munnljóð, eftir bandaríska fræðimanninn John Miles Foley, er fjallað stuttlega um pólitískt hlutverk suður afrísku lofskáldanna, eða Imbongi, eins og skáldin kallast á frummálinu, en ljóðlist þeirra heitir Izibongi. Í bókinni segir meðal annars: "Í Suður Afríku samtímans hefur hlutverk Imbongianna breyst. Í stað þess að flytja æviágrip manna fjalla þeir nú um félagsleg málefni og þjóna hefðarhlutverki [...] Ljóðlist þeirra var orðin að farartæki fyrir gagnrýni á yfirvöld löngu áður en apartheid stefnunni lauk. Á meðan árásirnar fóru einungis fram munnlega, og voru ekki skrifaðar niður, töldust þær ekki til landráða; á meðan tilvist þeirra markaðist við gjörninginn, og var ekki skjalfest, gátu "höfundar" þeirra lifað frjálsir undan ritskoðun." Litlu síðar segir: "Izibongi varð smám saman að rás fyrir hömlulausar pólitískar skýringar, og imbongi-inn - sem ávallt hafði verið pólitískur - fann nýjar leiðir til þess að nýta sérstaka kosti listgreinar sinnar. Munnleg ljóð hans urðu oft að farartæki fyrir mótmæli, ekki ólíkt því sem gerist í bandarískri slam-ljóðlist." En hvernig skrifar maður pólitískt ljóð? Svarið við þeirri spurningu er að finna í slam-ljóði eftir bandaríska ljóðskáldið Taylor Mali, sem heitir titli sem minnir óneitanlega á áðurnefnda bók John Miles Foley, eða How to Write a Political Poem: Hvernig maður skrifar pólitískt ljóð.

Bandarísku slamskáldin beita ýmsum retórískum brellum við flutning sinn, eins og heyra mátti hér á undan í ljóði Taylors Mali. Endurtekningar, orðskviðaflutningur, rím, stuðlar, kaldhæðni, hik, mótsagnir, rytmískur talandi og leikræn tilþrif - í bland við söng og bítbox eða taktkjaft - og fór Mali einungis í gegnum lítið brot af þeim retóríska dótakassa sem bandarísk slamskáld hafa komið sér upp. Tungumál réttlætisins er hins vegar ekki alltaf svo ólíkt tungumáli ranglætisins, og sá sem hugsar í ræðulistarfrösum nær kannski aldrei háum hæðum, auk þess sem retóríkinni er sem slíkri alveg sama hvaða málstaði hún þjónar og snýr stundum aftur til að stinga menn í bakið. Tónlistarmaðurinn Gill Scott Heron - sem ásamt The Last Poets, sem við heyrðum í hér í upphafi þáttarins, var einn helsti upphafsmaður hipp hoppsins - upplýsti heimsbyggðina um það á áttunda áratugnum að byltingunni yrði ekki sjónvarpað, og ljóðaði svo "The revolution will not be televised/the revolution will be live". Byltingin verður ekki í sjónvarpinu, hún verður lifandi - en svo nefnist bein útsending á ensku. Árið 1995 sneri "róttæki" rapparinn KRS One svo upp á textann í auglýsingu fyrir Nike skó, og hljómuðu lokalínurnar þá svo: "The revolution is basketball/and basketball is the truth" - byltingin er körfubolti, og körfubolti er sannleikur. Útúrsnúningur hugmyndanna getur orðið alger, og ræðulistinni er í sjálfu sér alveg sama. Kapítalið, markaðurinn, hirðir upp allar góðar hugmyndir og notar þær til þess að selja misþarflegan varning sinn. Eitt viðbragðanna við þessu er hin kaldhæðnislega flarf-ljóðlist, sem í stað þess að setja fram klassískt póetískar hugmyndir, klassískt góðar hugmyndir, stundar eins konar andljóðlist og brúkar fyrst og síðast vondar og ósmekklegar hugmyndir - enda eru það kannski síðustu hugmyndirnar sem markaðurinn kemur til með að hafa áhuga á. Þær fáum við að eiga, enn um stund. Afstaða flarfsins er sú að tungumálið hafi gert árás á manninn, og það sé kominn tími til að svara fyrir sig. Við skulum hlýða á bandaríska flarfistann K. Silem Mohammad, flytja ljóðið Words Mean Things (Blee Bloo Blar Blog) eða: Orð þýða hluti (blí blú blar blogg). Ljóðið er samansett úr eins konar rytmísku viðkvæði, sem blandast niðurstöðum úr internetleitarvélinni Google

Önnur leið út úr retórík ræðulistarinnar, sem vinsæl er í pólitísku hljóðaljóðlistinni, er þjófnaður og klippilist - að beina þessu ofbeldisfulla tæki sem tungumálið er aftur að upprunanum, að hinum pólitíska þrætubókarbjúrókrat og leyfa honum engjast um í eigin þvælu. Dæmi um þessa aðferð eru fjölmörg - og má jafnvel taka ekkifréttaskáldið Hauk Hauksson, sem lengi var vinsæll hér á landi, sem einn iðkenda þessa forms þegar hann skeytti saman fréttabútum í kómískum tilgangi. Þá er þessi orðaþjófnaður að sjálfsögðu einnig iðkaður á pappír, eða tölvuskjá, og er skemmst að minnast tilrauna blaðamannsins Hart Seely með að línuskipta bútum úr ræðum bandaríska stjórnmálamannsins Donald Rumsfeld - þótti kveðskapur Rumsfelds, eða Seelys, minna á hversdagslýrík landa þeirra William Carlos Williams. Á fjölljóðahátíðina Orðið Tónlist sem haldin var síðast í fyrra voru tveir listamenn á svæðinu sem nokkuð hafa fengist við þessa klippilist, ljóðskáldin og reyndar góðvinirnir, Rod Summers og Tom Winter - sumarskáldið og vetrarskáldið. Ætlum við að heyra verk frá þeim báðum, en fyrst þó frá vetrarskáldinu Tom Winter. Í verkinu, sem nefnist Peace 2002, eða Friður árið 2002, hefur ræðubútum bandaríkjaforseta, George W. Bush, verið skeytt saman svo að Bush segir nú það beint út sem margir telja að liggi milli línanna, við þrumandi lófaklapp áheyrenda. Hér lýsir forsetinn því yfir hvernig stríðið gegn hryðjuverkum sé dýrt, og hvernig óvinir Bandaríkjanna geta ekki flúið peningamáttinn - Bush segir Bandaríkin alvarlega ógn, ógnarstjórnin búi yfir kraftmiklum og nákvæmum vopnum og það séu forréttindi að fá að berjast, til standi að þróa bóluefni við gáfnafari, demókratar og repúblikanar muni ekki líða að fátæklingar læri að lesa og ógni bandarískum lífsháttum, treyst verði á eyru og augu leynilögreglunnar og svo framvegis.

Klippiverk breska ljóðskáldsins Rod Summers, Sad News, eða Sorgarfréttir, frá árinu 1979 hefur loksins náð nokkurri frægð á síðustu árum, þó ekki hafi það farið víða fyrstu áratugina. Verkið er samansett úr bútum úr þremur útsendingum frá breska ríkisútvarpinu, BBC4, á árabilinu 1973 til 1979. Hvert erindi samanstendur af bút úr frétt, sem lokið er með orðunum "sad, very sad" - eða "sorglegt, mjög sorglegt". Verkið undirstrikar hversu sú mynd af veröldinni sem við fáum úr fjölmiðlum er sorgleg - fréttabútarnir eru lesnir og svo kemur inngripið, áminningin um að þetta er ekki grín heldur harmleikur - sem í sjálfu sér er stórfyndið. Inngripið setur fréttirnar úr skorðum, minnir okkur á að við erum manneskjur í ómanneskjulegu umhverfi, og bólusetur mann að nokkru leyti við fréttaónæminu: skyndilega sjáum við aftur fátæktina, pólitísku hneykslin, stríðin, og gervallan heimsósómann:

Að sjálfsögðu finnast margar ólíkar leiðir til að hantera annarra manna texta, og eins og komið hefur verið inn á áður í þessum þáttum er ekki óalgengt að verk eins og eldri ljóð og sönglagatextar verði hljóðaljóðskáldum að bráð - og þá sérílagi þau sem njóta skilyrðislausrar hyllingar, enda er skinhelgi eitur í beinum róttækra tilraunaskálda. Aktívistinn Abbie Hoffman var að vísu ekki ljóðskáld, þótt pólitískir gjörningar hans hafi oft á snertipunkta við þá listgrein eins og svo margar aðrar. Meðal verkanna á plötu hans, Wake Up, America!, er að finna útgáfu hans á þjóðsöng Bandaríkjamanna, Stjörnum prýdda fánanum eftir lögfræðinginn og ljóðskáldið Francis Scott Key. Útgáfa Hoffmans er í hæsta falli brjálæðisleg, hálfæpt og stóran hluta textans vantar, aukaskilaboð eins og "drepið alla gyðingana" eru æpt inn á milli, á meðan alls kyns sirkuslúðrar og trumbur veita hysteríunni hæfilega viðeigandi undirspil.

Eins og kunnugt er var upplestrarform ljóðsins fjarska vinsælt á hippatímabilinu, í kjölfar þeirrar mýtólógiu sem myndaðist um hin svonefndu bítskáld og upplestra þeirra á fimmta og sjötta áratugnum. Bítskáldin héldu mörg hver að sjálfsögðu uppteknum hætti og fylgdu ljóðlist sinni upp í öldugang poppúlarismans. Meðal þeirra sem mest voru áberandi var hinn spámannlegi Allen Ginsberg - gyðingabúddistinn sem náði heimsfrægð með ljóði sínu Howl, eða Ýlfri, og linnti ekki látum í baráttu sinni við kerfið, bæði sósíalískt og kapitalískt, fyrr en hann lést árið 1997. Sem dæmi um það má nefna næsta ljóð, sem er söngur gegn ofsóknum Bandaríkjamanna í garð Íraka, og stríðsmaskínu Íraka sjálfra. Ljóðið sem við ætlum að hlusta á heitir Hum Bom, sem mætti útleggja sem Hver bombar. Þar prjónar skáldið í kringum hljóðrænu orðsins bomb, og bombarderar áheyrendur með boðskapi sínum um þá kumpána George Bush eldri, og Saddam Hussein heitinn.

Eins og fram kom í upphafi þáttar er eitt vinsælasta form hljóðaljóðsins upplestur með tónlist, og er þá ekki óalgengt að ljóðskáldið fái til samstarfs við sig tónlistarmann eða jafnvel heila hljómsveit. Anne Waldman er líklega yngst þeirra sem ganga undir heitinu bítskáld, fædd árið 1945, og er enn í fullu fjöri. Hún starfaði á sínum tíma mikið með Allen Ginsberg, sem við heyrðum í hér áðan, og stofnaði á sínum tíma með honum skólann The Jack Kerouac School of Disembodied Poetics, sem með tíð og tíma hefur orðið einn virtasti skáldaskóli Bandaríkjanna. Í dæminu sem við ætlum að heyra frá Waldman, sem er af disknum Eye of the Falcon, Auga fálkans, sem kom út á síðasta ári, vinnur hún með syni sínum, Ambrose Bye. Ljóðið What the policeman told me, eða Það sem lögreglumaðurinn sagði mér, er háðuleg gagnrýni á lögregluríkið - en sú stofnun hefur nokkuð verið til umræðu í bandarískum gáfumannahópum á síðustu árum, og þá sérílagi eftir árásirnar þann 11. september 2001, eins og gefur að skilja.

Við höfum ekki alveg yfirgefið bítskáldin, því þó þau séu ekki flytjendur í síðasta ljóði þáttarins í dag þá er verkið eftir Ginsberg, og nefnist Hadda be playin' on the jukebox, eða Hlaut að ver'í gang'í glymskrattanum. Flytjendur eru hipp-hopp-fönk-rokkararnir í Rage Against the Machine, en þeir þóttu gefnir fyrir hið rammpólitíska bragð meðan sveitin starfaði, frá árinu 1991 til aldamóta. Vókalisti sveitarinnar, Zach de la Rocha, þótti sjálfur eitt öflugasta skáld hipp-hoppsins á tíunda áratugnum; hann er gríðarlega öflugur flytjandi, líkt og Ginsberg, og reiðin sem bundin er í texta bítskáldsins skilar sér afskaplega vel í meðförum de la Rocha, við möntrukenndan fönkundirleik félaga hans í sveitinni. Ljóðið var tekið upp á Milan Dragway tónleikastaðnum í Detroit, þann 9. júlí árið 1993.

← Allt safnið