Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Kallfæri 3. þáttur

Myndræn forsíða: Kallfæri 3
Myndræn forsíða gerð fyrir vefútgáfuna.

Kæru hlustendur. Fyrsta hljóðaljóð þáttarins í dag var frá kanadísku myndlistarkonunni Laurel Woodcock. Ljóðið, sem nefnist One minute apology, eða einnar mínútu afsökunarbeiðni, er til-búið með því að leika lagið I'm Sorry, með bandarísku poppsöngkonunni Brendu Lee, rispað. Á heimasíðu myndlistarkonunnar segir meðal annars um tiltækið: "Textabrot úr laginu Brendu Lee hefur verið klippt til í tölvu til þess að leggja áherslu á hið efnislega í laginu. Rispurnar og hoppin gera það að verkum að endurtekin afsökunarbeiðnin hljómar óeinlæg, og af henni má heyra bergmál klisjunnar um yfirdrifna sjálfsskoðun." Titill ljóðsins vísar þá einnig í samnefnda sjálfshjálparbók eftir þau Ken Blanchard og Margret McBride, þar sem kaupsýslumönnum er kennt á hið máttuga viðskiptatól, fyrirgefninguna, og sýnt er fram á að hún geti orðið mönnum til auðssköpunar. Hér hefur ljóðið farið hringinn. Fyrst var settur niður ljóðtexti við lag, sem skyldi sunginn. Þegar hann var sunginn af Brendu Lee, og náði fyrsta sæti bandaríska vinsældalistans árið 1960, þegar söngkonan var aðeins 16 ára gömul, var ljóðið stigið upp af blaðsíðunni og taldist frekar til söngs en ljóðs. Líklega er meira að segja óhætt að fullyrða að textinn hafi verið álitinn vella, jafnvel af þeim sem dáðu lagið, enn ein innihaldsrýra poppþvælan. Í meðförum Woodcock er lagið aftur orðið að ljóði, tungumál þess er komið í forgrunn verks sem bendir án hiks á þetta innihaldsleysi, bendir á tungumálið eins og því er beitt og undirstrikar hversu banalt tungumálið getur verið þegar því er beitt án umhugsunar, þegar því er beitt til þess að uppfylla eyðublaðið um tungumálið, eyðublaðið um lagatextann, í stað þess að það sé notað til þess að tjá eitthvað raunverulegt um veröldina, eitthvað sem í raun og veru hefur verið hugsað, hugmynd sem er eitthvað meira en froða, meira en ljósrit hugmyndar.

Bandaríska tónskáldið Beth Anderson er þekktust fyrir tónlistarformið "swales", sem er klippilist þar sem nýlegri tónlist er skeytt saman, í stað þess að ný tónlist sé samin frá grunni. Hljóðaljóð hennar, Ocean Motion Mildew Mind, eða Haf hreyfing saggi hugur, kom út á geisladisknum Peachy Keen-o árið 2003, en var samið einum þrjátíu árum fyrr, árið 1973. Um verkið hefur listakonan sagt að það sé eins konar pönk-útgáfa af hinu darmíska Ohm hljóði, sem er kyrjað af tilbeiðendum til að ná eins konar uppljómun. Í hindúíska trúarritinu Bagavad gita segir að mæli maður á dánarstundu sinni þetta atkvæði, sem felur í sér alla veröld brahma, alls sem er, hefur verið og getur verið, nái maður hinu himneska takmarki. Beth Anderson er aðdáandi fegurðarinnar, og hefur um hana sagt: "Mér var fegurðin byltingarkennd uppljómun. Ég uppgötvaði hlut í heila mér sem getur ekki afkóðað nokkurn skapaðan hlut, getur ekki lagt saman, getur ekki unnið úr orðuðum hugmyndum, en sem býr til melódíur úr tónhæðum og töktum ... fegurðin dugar mér." Ljóðið er lesið taktfast við einfalt trommuspil, það eltir skottið á sjálfu sér inn í eins konar hugleiðsluástand, sem á sama tíma er villt og brjálað, og slúttar svo skyndilega og án viðvörunar. Við skulum hlusta á Ocean Motion Mildew Mind.

Kanadíska hljóðaljóðskáldið og konsept-listamaðurinn W. Mark Sutherland heimsótti á síðasta ári fjölljóðahátíðina Orðið tónlist, sem Smekkleysa lagði upp með árið 2000, og var haldin sem hluti af Listahátíð í Reykjavík í fyrra. Hljóðaljóð Sutherlands, I've nothing to say and I'm saying it, eða Ég hef ekkert að segja og ég segi það, er tileinkað framúrstefnutónskáldinu John Cage, sem eins og kunnugt er, er höfundur tónverksins 4,33, sem er ekkert nema þögnin í 4 mínútur og 33 sekúndur - píanóleikarinn situr kyrr við flygilinn, hefur ekkert að spila og spilar það ekki:

Vestfirska ljóðskáldið og blaðamaðurinn Hlynur Þór Magnússon samdi eitt sinn ljóð, sem hann vann í svo lengi að ekkert varð eftir af því. Hlynur meitlaði og meitlaði, tók burt allan óþarfa, ljóðið styttist í sífellu, smíðin varð nákvæmari og hnitmiðaðri þar til loks stóð ekki eftir eitt einasta orð. Á upplestri í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, þegar ljóðið hafði loks verið fullskapað, stóð Hlynur á sviði og starði framan í áhorfendur þar til honum þótti nóg komið. Þar lék hann aftur gjörning Cage, eða endurútsetti svo að segja píanóverkið fyrir rödd ljóðskálds. Í I've nothing to say... endurtekur Sutherland sömu setninguna ítrekað, en þegar líða tekur á byrjar hann að fjarlægja stök atkvæði úr setningunni, rífur holdið utan af beinagrindinni svo eftir standa fáeinir beinleggir á víð og dreif, óskiljanlegir án samhengisins, og þannig í fullkomnu samhengi við það sem hann segir: Hann er ekki að segja neitt, en á sama tíma er hann ekki að herma Cage - hvers píanóleikari spilaði einfaldlega ekki neitt - Sutherland er að reyna að segja ekki neitt og segja það á sama tíma, reyna að búa til þögn án þess að gera ekki neitt, án þess að horfa út í loftið. En á sama tíma má sjá verk Sutherlands sem útleggingu á vinnuaðferð Hlyns Þórs Magnússonar - þó þeir ágætu menn hafi sjálfsagt aldrei heyrt hvor annars getið - á meðan endastoppið var það eina sem við fengum að heyra af verki Hlyns fáum við að hlýða á Sutherland tæta kvæði sitt í sundur, atkvæði fyrir atkvæði - og reyndar setja það svo saman aftur í lokin.

Japanski taktkjafturinn Dokaka hefur lagt það í vana sinn að syngja hljóðfæraleik, sem og reyndar söng, og þá textalaust. Í stað þess að syngja textann, raular hann orðaleysur, óskiljanleg "la-la-la" fónem sem mynda sönglínur þekktra laga, bassalínur þeirra úr búmmum, trommulínur með alls lags taktkjaftabrellum, og aðrar hljóðfæraraddir, hverja með sínum hættinum. Tekur hann þá upp á mörgum rásum og blandar saman svo heilu lögin skríða fram úr einum saman munninum á honum. Meðal þeirra tónlistarmanna sem hann hefur framið gjörning af þessu tagi gagnvart eru King Crimson, Miles Davis, The Rolling Stones og dauðarokkssveitin Slayer, auk þess sem hann hefur samið sitt eigið efni í þessum stíl. Verk Dokakas hafa fyrst og síðast verið til dreifingar í gegnum netið, af heimasíðu hans, www.dokaka.com, en í honum hefur einnig mátt heyra víðar, og þá oft sem hluta af öðrum orkestrum - sem dæmi má nefna að hann er ein þeirra ótal radda sem fram koma á plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Medúlla. Dokaka hermir ekki bara nótur og hljóð, heldur er sömuleiðis leikræn dýpt í því hvernig hann tjáir hljóðin, harm hljóðfæranna eða glaðværð - og er þá oft sérstaklega áhugavert að velta því fyrir sér hvernig hann tjáir rödd söngvarans. Hvers lags ítónun og áherslum beitir hann til þess að herma upp rödd söngvara sem við kannski þekkjum öll mæta vel, í lögum sem við höfum kannski heyrt ótal sinnum, eins og til dæmis gruggrokksmellnum Smells like Teen Spirit, með Nirvana?

Kanadíska ljóðskáldið Angela Rawlings, eða a.rawlings, eins og hún kallast jafnan, var gestur ljóðahátíðar Nýhils nú fyrir skemmstu. Hún stundar rannsóknir á hljóði, texta og hreyfingu, með sérstaka áherslu á spuna raddar og snertingar. Rawlings hefur mikið fengist við ljóðaleikhús, og var fyrsta ljóðabók hennar, Wide Slumber for Lepidopterists, eða Víður lúr fyrir fiðrildafræðinga, nýlega sett upp í Toronto, en bókin, sem kom út hjá Coach House Books var útnefnd ein af 100 bestu bókum ársins hjá The Globe and Mail árið 2006. Ljóðaleikritið við bókina byggðist að stórum hluta á hljóðflutningi á ljóði hennar, ásamt því sem dans og önnur áhrifsáreiti komu við sögu. Í Ottawa Xpress sagði bókmenntagagnrýnandinn Wanda O'Connor um ljóðlist hennar að hún væri af öðru tagi en fólk ætti að venjast. "Nautnum hlaðin frumraun hennar, Víður lúr fyrir fiðrildafræðinga, örvar ekki bara umfjöllunarefni sitt heldur og sjálfan textann, vekur hann - hristir hann á stundum - upp úr geispandi syfjunni. Orðin rísa og hníga, ganga í svefni og hneppa í dá á meðan samspil þagnar og hljóms heldur lesandanum naglföstum við efnið." Víður lúr fyrir fiðrildafræðinga er vísindaljóðlist - hún er draumkenndur vefnaður úr líffræði, menningarfræði, mannfræði, og nautnum - en annar gagnrýnandi sagði um ljóðlist rawlings, að hún væri "unabashedly horny", eða "fumlaust gröð." Þetta má glögglega heyra í því broti sem við ætlum að hlusta á, en það er úr inngangi bókarinnar, og samanstendur af orðunum, stununum, upphrópunum "a hoosh a ha". Hér má heyra alls kyns frumtjáningu, og heyrir líklega hver sitt, en augljósasta túlkunin er líklega sú sem innifelur bæði getnaðarathafnir, fæðingu og dauða.

Áður hefur verið vikið stuttlega að kanadísku hljóðaljóðsveitinni The Four Horsemen, reiðmönnunum fjórum, en hana skipuðu þeir Steve McCaffery, Paul Dutton, bpNichol og Rafael Barreto-Rivera. Áhrif sveitarinnar, sem starfaði á áttunda áratugnum, voru gríðarleg, bæði í Kanada og víðar, og á allt frá ljóðlist til myndlistar til tónlistar. Eitt verka þeirra fjórmenningana fjallar um rússneska ljóðskáldið Vladimír Majakovskí, sem þekktastur er hér á landi fyrir ljóðabálk sinn Ský í buxum, sem kom út árið 1915. En áður en sú bók kom út var Majakovskí í röðum rússneskra fútúrista, sem, eins og komið hefur fram í þessum þáttum, voru meðal helstu frumkvöðla hljóðaljóðlistarinnar. Ljóðið sem þeir félagar nefndu í höfuðið á rússneska stórskáldinu er ekki síður fullt af andnauðandi stunum en inngangur Angelu Rawlings, sem við heyrðum hér áðan, og á tímabili heyrast ekkert nema stunur í bland við þetta ákallandi hróp á fortíðina: Majakovskí!

Eitthvert færasta og frægasta hljóðaljóðskáld samtímans er landi þeirra reiðmannabræðra, ólíkindatólið Christian Bök. Síðastliðin ár hefur Bök unnið í hljóðaljóðverki sem nefnist The Cyborg Opera, eða Ópera Sæborgsins. Titillinn vísar ekki til formsins óperu, heldur til "operation", eða framkvæmdaháttar verksins. Ljóðabálkurinn er eins konar teknópóesía, sem nýtir sér þó ekki aðstoð tækninnar heldur kemur öll úr talfærum skáldsins, og er honum ætlað að hljóma eins og Bök ímyndar sér að ljóð myndu hljóma væru þau samin af tölvum, eða vélum. Ljóðin eru af margvíslegu tagi, en flest þeirra samanstanda þó af orðum sem er raðað saman fyrir hljóðræna eiginleika sína, frekar en fyrir merkingu sína. Eins og þeir sem hlustuðu á fyrsta þáttinn í þessari seríu muna eftir, lék Hugo Ball sér að því að búa til ljóð á svipaðan hátt, nema úr fónemunum frekar en orðunum heilum. Við ætlum að hlusta á þrjú verk í röð, sem öll tilheyra þessari óperu Böks. Fyrsta verkið í röðinni er Synth Loops, eða Hljóðgervilslykkjur. Það ljóð samanstendur einvörðungu af svokölluðu bítboxi, eða kjafttakti, rytmum sem gerðir eru með munninum og herma hljóðin úr tölvuheilatöktum þeim sem voru hvað hæst nýmóðins í byrjun 9. áratugarins, þó rytminn sjálfur sé bæði hraðari og flóknari, og minni kannski meir á það sem var að gerast í teknótónlist áratuginn á eftir.

Næsta verk í röðinni úr Sæborg-óperunni, er Motorized Razors, eða vélvæddar rakvélar. Þar hermir Bök, með orðum sem öll eru fullgild og finna má í orðabókum, sargið og suðið í rafmagnsrakvélum. Ljóðið hefst á nokkrum skrollandi r- um, og rýkur svo á flug með miklum látum og orðafylleríi sem veður svo áfram og yfir hlustir manns að áheyrandinn er alltaf að minnsta kosti nokkrum orðum á eftir mótorkjaftinum Christian Bök.

Motorized Razors 1.12

Síðasta dæmið sem við tökum úr óperu Böks er Mushroom Clouds, eða Sveppaskýin. Ljóðið mun ort undir áhrifum frá tölvuleiknum Super Mario Bros frá Nintendo. Í grein í MIT Press Journal, segir Bök meðal annars um verkið: "Á meðan Japan er eina landið til þess að hafa mátt þola kjarnorkuárás, hefur þjóðin, undarlegt nokk, valið að svara árásinni ekki með sínum eigin gereyðingarvopnum, heldur með sætum og krúttlegum menningartáknum eins og Hello Kitty og anime stelpum. Ljóðið tekst á við þetta samtímaumhverfi hnattrænnar ógnar með því að hnýta saman, fyrir sakir hljóða sinna, kjánaleg orð hinnar alþjóðlegu kapítalísku poppmenningu, og gerir það til þess að gefa í skyn að á bak við kjarnorkuvána hafi sjálft lífið öðlast andrúmsloft sem við þekkjum best úr teiknimyndum. Ég ímynda mér að þessi aría ljóðabálksins sé eins konar tölvuleikur, sem ég leik með því að tala upphátt."

En hljóðaljóðlist er ekki bara stunduð erlendis, þó hingað til hafi bara verið staldrað við erlend dæmi um hana. Það var gert einvörðungu fyrir þær sakir að líklega þekkjast hin innlendu dæmi betur en þau erlendu, þó vart sé hægt að segja nein dæmi hljóðaljóðlistar hafi notið mikillar lýðhylli. Þekktustu dæmin á Íslandi eru líklega kassetturnar tvær sem grammið gaf út á níunda áratugnum, Lystisnekkjan Gloría og Fellibylurinn Gloría, en á þeim má heyra verk frá listamönnum eins og Sjón, Jóhamar, Björk og Antoni Helga Jónssyni. Nokkuð hefur svo færst í aukana á síðustu árum að skáld gefi út diska, eða vinni stök ljóð í samstarfi við tónlistarmenn, og þá helst tónlistarmenn af elektró- tegundinni. Eitt slíkra samkrulla var á ábyrgð ljóðskáldsins Kristínar Ómarsdóttur og tónlistarmannsins Gímaldin. Í ljóðinu Ljóð um góðar stelpur er unnið með lestur skáldsins á atómstiginu, hik og bergmál og lágvær bakgrunnshljóð sem stíga smám saman lengra inn í sviðsljóðið.

Fyrir fáeinum misserum starfaði á Íslandi ljóðagrúppa, en eftir því sem næst verður komist starfar hún ekki lengur - en líkt og þegar um hljómsveitir ræðir má geta sér þess til að listrænn ágreiningur hafi komið upp í samstarfinu, eða kannski öllu heldur ljóðrænn ágreiningur. Sveit þessi nefndist Músífölsk og gaf út tvö lög á diski sem fylgdi katalóg fjölljóðahátíðarinnar Orðið tónlist árið 2006. Í öðru laginu, Bréfi til Höllu, var sveitin skipuð þeim Gunnari Marel Hinrikssyni, Sölva Úlfssyni og Jóni Erni Loðmfjörð, en strax í hinu laginu, sem nefnist Til ungdómsins, höfðu orðið mannabreytingar, með því að þeim tveim fyrstnefndu var skipt út fyrir Emil Hjörvar Petersen. Auk þess að gefa út þessi tvö lög bar Músífölsk einnig ábyrgð á ljóðaforritinu Dadda, sem sundurskar og hakkaði texta, og raðaði þeim svo aftur upp á nýtt. Í því ljóði sem beint er til ungdómsins, og við hlýðum á hér á eftir, lesa þeir kumpánar Emil og Jón Örn á víxl úr bókum sem valdar voru af handahófi, en á meðal þeirra sem fundust í faðmi heimspekingsins Sörens Kierkegaard eru vígorð ljóðsins: "Víst er Abraham andstæða mikilfengleika frumspekinga." Tónlistin var samin upp úr eldra lagi, sem orðið mun hafa til af tilefni skemmtikvölds hjá Ungum vinstri grænum, en úr því var stolið laglínum og hljóðgervlum. Þá var slagverkið tekið upp yfir grunninn, en það var víst með frumstæðasta tagi, þar sem hlutum var barið saman, maltdósum skellt í borð og annað eins. Við skulum hlýða á herlegheitin.

Síðasta ljóðið sem spilað verður hér í þessum síðasta þætti um hljóðaljóðlistina, í bili hið minnsta, er úr smiðju meistara Dags Sigurðarsonar, en Þór Eldon semur músík og útsetur. Ljóðahljóðið nefnist Íslenska mellan, og er unnið upp úr ljóði Dags, Kvíabryggjukantötunni. Ljóðið kom út á diski fyrir skemmstu, sem nefndist Dauðaskammtur. Í fylgiefni með disknum skrifar Þór Eldon m.a.: "Haustið 1985 hafði ég umsjón með upptökum á ljóðasnældunni Fellibylurinn Gloría sem Grammið gaf út. Þar lásu nokkur skáld eigin ljóð með frjálsri aðferð. Sum með undirleik, önnur ekki. Eitt af skáldunum sem las inn á Fellibylinn var Dagur Sigurðarson. Hann þurfti engan undirleik, það var músík í ljóðunum hans. Dagur las ljóðin sín upp eins og rokkstjarna á stóru sviði, jafnvel þó upptökusalurinn væri kjallarahola við Klapparstíginn. Dagur var kóngurinn og höllin það rými sem hann var staddur í hverju sinni." Segir Þór svo frá því að hann hafi nokkru síðar tekið eftir því að Dagur væri ekki frábitinn því að starfa með undirleikara, og lagt var á ráðin um frekara samstarf, sem varð þó ekki úr enda lést Dagur nokkrum misserum síðar, langt fyrir aldur fram. Lýkur Þór texta sínum á því að ávarpa Dag, þakka honum fyrir samstarf og samveru, og segir svo: "Eins og við vitum báðir þá deyja bæði skáld og konungar, ríkisstjórnir falla og heimsveldi hrynja. En ljóðið lifir að eilífu sé það sprottið úr hreinu hjarta og mennskri sál." Þetta eru orð sem hæfa endalokum þáttar. Um leið og ég kynni þetta síðasta ljóð til leiks, vil ég þakka hlustendum samfylgdina.

← Allt safnið