Kallfæri - listin að hljóða ljóðum - Réttur framburður
Kæru hlustendur. Það sem þið heyrðuð rétt í þessu var brot úr hljóðaljóðinu Dikt för Vocoder, eða Ljóð fyrir Vocoder, raddkótara, eins og fyrirbærið hefur heldur klaufalega verið nefnt á íslensku, með sænsku elektrósveitinni Mono Mono. Vocoder er eins konar hljóðgervilsgræja sem upphaflega var smíðuð til þess að hægt væri að kóða mælt mál, setja það í merkjakerfi, sem svo væri hægt að þýða. Í seinni tíð hefur tækið aðallega verið notað í tónlist, og þá helst elektrótónlist, og hefur þessi "mállýska", ef mér leyfist að kalla hana svo, öðlast þegnrétt að svo miklu leyti að auðveld er að greina hvaðan sá sem mælir kemur - hann kemur úr tölvunni. Vocoderinn er ein nokkura tölvumállýskna sem orðið hafa til á undanförnum 20-30 árum. Í þættinum í dag er einmitt ætlunin að kanna notkun framburðar í hljóðaljóðlist, hvernig röddin er notuð til flutnings, og hvernig tilfærsla hljóðaljóða milli miðla og forma á sér stað - eða öllu heldur, hvað gerist þegar upplesið ljóð eignast nýja umgjörð, hvernig hljómar sungið ljóð, hvernig hljómar það á fornri mállýsku, eða últra- nútímalegri, eins og við heyrðum hér áðan hjá Mono Mono.
Ljóðið Please be seated eftir sænska ljóðskáldið Leif Holmstrand, sem var gestur ljóðahátíðar Nýhils fyrir skemmstu, er sungið án undirleiks af mikilli sál og tilfinningu, næstum því líkt og um trúarsálm væri að ræða, líkt og sjálfur drottinn væri ávarpaður. "Fáið ykkur sæti / hagræðið fötum ykkar, horfið beint fram / Festið sætisbeltin / Talið við nágranna ykkar, segið þeim þið séuð ofmett." Í ljóðinu er flakkað á milli hins fíngerða og himneska - "sumarhitaðar, með þungum blómum, rauðlituðum" og hins algerlega hversdagslega "kunnugleg klæði má finna undir rúminu", og fær þessi söngur - þetta hljóðaljóð - á sig furðulegan keim, bæði fyrir sakir innihalds og þess forms sem skáldið hefur valið textanum í hljóðverkinu.
Holmstrand syngur ljóðið sjálfur, en það ku upphaflega hafa verið tekið upp með undirspili, trommum, gítar og bassa, sem var síðar fjarlægt. Holmstrand hefur tjáð þættinum að við lifandi flutning klæðist hann blöndu af kvenmanns- og karlmannsklæðum, og gangi um með barnavagn sem er skreyttur ótal blöðrum. Í vagninum er svo 200 metra þvottasnúra sem hann dregur út og vefur um sig og barnavagninn. Þegar kemur að "viðlaginu" - "verið varkár og verið falleg" - byrjar hann svo að taka ljósmyndir af áhorfendum. Annar listamaður sem unnið hefur með söng í ljóðum á ekki ósvipaðan hátt og Holmstrand gerir í kvæðinu hér á undan - þó ekki fylgi söngnum nokkur gjörningur í þetta skiptið, svo vitað sé - er bandaríkjamaðurinn Will Oldham. Upp úr aldamótum gaf Oldham út plötuna Get on Jolly, undir listamannsheitinu Bonnie Prince Billy, en platan inniheldur söngva úr ljóðum indverska nóbelsverðlaunaskáldsins Rabindranath Tagore. Á plötunni hefur Oldham gert grófar þýðingar á ljóðum Tagore, og syngur þær með litlu undirspili. Við skulum hlýða á upptöku á ljóðhluta sem Oldham kallar 2/15, og er úr kvæðinu Gitanjali, eða "Söngfórnir". Ljóðið var tekið upp 11. desember, 1999, í hollenska menningarútvarpinu VPRO.
Það er að sjálfsögðu ekki bara svo að skáldin geri hljóðútgáfur af ljóðum annarra - það er vinsæl iðja meðal skálda að gera hljóðaljóð úr eigin ljóðum, sem áður hafa birst á prenti, og mörg hljóðaljóð fá einnig einhvers konar textabúning, svo þau megi líka lifa á síðunni. Þessum tilfærslum á framsetningu listaverka er ekki síst ætlað að segja eitthvað um sjálfa framsetninguna, um formið, um tungumálið eins og það er talað, skrifað, teiknað, prentað, krotað, æpt, kyrjað og sungið. En líkt og Oldham hér á undan gera mörg skáld sér hljóðaljóðmat úr eldri hefðbundnum verkum. Meðal þeirra má nefna bandaríska ljóðskáldið Kenneth Goldsmith, sem leikur sér iðulega að því að lesa upp á tungumálum sem hann ekki skilur. Jafnan hefur hann upplestra sína á því að kynna þessa hugmynd sína á tungumálinu sem hann hvorki er fær um að tala né skilja. Á ljóðahátíð Nýhils 2006 flutti Goldsmith slíkt erindi, en því miður er ekki til upptaka af þeim gjörningi. Hins vegar finnst textinn sem hann las á íslensku ennþá, og sagði hann þar m.a.: "Að öllum líkindum skiljið þið ekki orð af því sem ég segi, þó þetta sé móðurmál ykkar. Við stöndum því jafnfætis: Ekkert okkar skilur neitt af því sem fram fer. Það eina sem við getum gert er að hlusta eftir því hvernig orðin hljóma í stað þess að leita að merkingu þeirra. Og þegar við gerum það setjum við tungumálið í nýtt samhengi sem leyfir okkur að innramma hið hversdaglega í hversdagsmálinu upp á nýtt. Árum saman hef ég unnið að því að skapa ástand líkt þessu: þar sem tungumálið er algerlega formbundið og konkret; eins og tungumálið sjálft er þessi ræða mín bæði merkingarbær og merkingarlaus á sama tíma. Loftið er nú fullt af hljóðum sem þykjast vera tungumál." Við skulum hlýða á Kenneth Goldsmith flytja fyrstu tvö erindin í þjóðsöng frænda vorra Svía, Du gamla, du fria.
Undanfarin ár hefur Goldsmith fengist við tungumálið sem konkret fyrirbæri, hefur m.a. skrifað upp allt sem hann sagði á einni viku, skrifað upp veðurfréttirnar í útvarpinu og fleira. Að lesa upp á tungumálum sem hann ekki kann er augljóslega angi af þessu - hann getur reynt að sjá í gegnum tungumálið, hvað þar er að finna sem er eins og, eða svipað og, í enskunni, og áhorfendur geta reynt að sjá í gegnum tungumálið, hvaða orð eru það sem hann reynir að bera fram - en þegar allt kemur til alls er stærstur hluti þess sem hann les óskiljanlegur, og það þrátt fyrir að hann lesi upp á tungumáli heimamanna.
Ljóð sem ort eru í því sem nefnt er "hefðbundnir bragarhættir" gegna oft ströngum taktreglum, bragliðir eru látnir skipta miklu svo myndist hrynjandi í hið skrifaða orð, eins konar söngl í skrifuðu formi. Það skýtur hins vegar skökku við að jafnan þegar þessi ljóð eru lesin upp, eru þessi formeinkenni falin, og skáldin leggja sig jafnvel frekar fram um að lesa þau án þess að bragliðir heyrist - í róttækustu dæmum hverfur jafnvel rím og stuðlasetning sömuleiðis, og eftir situr upplestur sem næstum því hljómar eins og hver annar prósi eða fríljóð. Ástæður þessa eru margar - oft á tíðum passar t.d. tungumálið einfaldlega illa við bragarháttinn, sem var jafnvel saminn í öðru landi fyrir annað tungumál. Svo er meðal annars farið um ljóðið Sykkö, eftir finnska þjóðskáldið Eino Leino, frá árinu 1904. Sykkö er innflytjandi í Finnlandi frá austur Karelíu og ljóðið er einræða hans og dánarsöngur. Í því ræðir Sykkö erfiðleikana sem hann hefur upplifað í Finnlandi, hvernig hann hefur misst hús sitt og eiginkonu, og svo framvegis. Eins og gildir um aðra dramatíska mónólóga er rík hefð fyrir því að lesa ljóðið næstum því eins og leikhústexta, þ.e. eins og einhver væri að tala, en ekki eins og um rígbundið ljóð væri að ráða. Ráðandi rytmi ljóðsins er í réttum tvíliðum, og hefur finnska tilraunaskáldið Leevi Lehto gert sér mat úr því að lesa ljóðið með áherslu á rytma formsins, frekar en að taka talmálspólinn í hæðina. Í samræðu við þáttinn sagðist Lehto jafnan grínast með það að hann hafi verið fyrstur til að lesa ljóðið "eins og það var skrifað." Fyrir þá sem ekki eru vel að sér í bragfræðum, er rétt að geta þess að í réttum tvíliðum koma áherslulaus atkvæði á eftir áhersluatkvæðum, og er hlustendum - í öllu falli þeim sem ekki skilja finnsku - bent á að telja einfaldlega einn, tveir með ljóðinu, vilji þeir efla tilfinningu sína fyrir forminu.
Norsk-franska ljóðskáldið Caroline Bergvall notast við Kantaraborgarsögur Geoffrey Chaucers í einu af hljóðaljóðum sínum. Ljóð Bergvall er samansett úr textum sem koma úr ýmsum áttum, að stærstum hluta úr áðurnefndum Kantaraborgarsögum, og lifir og þrífst á alls kyns undarlegum orðum og orðasamsetningum, evrópskum hrognamálsbræðingi úr samtímaensku, frönsku, miðaldaensku, latínu og einhverju sem engin leið er að rekja. Í miðaldaenskunni má gjarnan heyra Bergvall bregða fyrir sig eins konar skandinavísku, enda er miðaldaenskan töluvert skyldari norrænunni en enska samtímans. Við skulum hlýða á einn af upplestrum Bergvall, Summer Tale, Sumarsögunnar.
Aðspurð um framburð á verkinu segist Bergvall hafa ráðfært sig við Chaucer fræðimanninn David Wallace, sem sagði að ekki væri til neinn einn framburður sem hægt væri að reiða sig á, þó víst þætti að R-in ættu að vera skrolluð og að endingar enskra orða hefðu ekki verið horfnar að sama marki og þær eru í dag, auk þess sem sérhljóðarnir hefðu líklega verið sterkari - "a" borið fram sem a, líkt og á íslensku, en ekki sem "ei", eins og á ensku. Þá hefur Bergvall tjáð þættinum að hún hafi nýtt sér hrynjandi norskunnar við upplesturinn, og veitt fáeinum orðum franskan blæ. Bergvall notar mismunandi aðferðir við hvern og einn kafla í þessu verkefni, en auk The Summer Tale - sumarsögunnar - eru kaflarnir The Host's Tale, The Franker Tale og The Not Tale, eða Gestgjafasagan, Frankasagan og Ekkisagan. Í sumarsögunni er notast við frétt af heimasíðu breska ríkisútvarpsins, BBC News. Fréttin er fyrst klippt dálítið niður, og síðan þýddi Bergvall fréttina á Chauceríska miðaldaensku, með hjálp orðskýringa við Kantaraborgarsögur.
Mörg hljóðaljóðskáld hafa unnið með mállýskur og hreima, og meðal þeirra má nefna fyrsta lárviðarskáld Glasgow borgar í Skotlandi, Edwin Morgan. Í hljóðaljóðinu "Interview", eða viðtal, ræðir Edwin við mann sem hljómar eins og hann komi úr skoskri fornöld - raddbrigðin eru þung, og óskiljanleg óinnvígðum í skoskar mállýskur. Ljóðið er sett upp eins og staðlað 20. aldar viðtal, kurteis spyrjandi leitar eftir svörum við spurningum eins og: "Hvenær byrjaðir þú að skrifa hljóðaljóð?", "Hvöttu foreldrar þínir þig áfram", og "Áttu þér eftirlætishljóð?" Verkið setur kaldhæðnislegt spurningarmerki við hljóðaljóðlistina - eru þeir hljóðaljóðskáld sem tala með slíkum hætti að erfitt er að skilja þá, tala þannig að tungumál þeirra verður nærri því aðalatriði, en svo má segja um allar þungar mállýskur sem berast inn um eyru þeirra sem ekki þekkja þær vel. En það er líka ákveðin syngjandi í frummanninum, og það er jafnvel hægt að geta sér þess til á stundum að hann sé í raun og veru að hljóðaljóða á sinni eigin mállýsku - að mállýskan hljómi kannski ekki beinlínis svona.
Í viðtali við bandaríska ljóðskáldið Charles Bernstein í netúvarpsþættinum LineBreak, ræddi kanadíska ljóðskáldið Steve McCaffery um áhuga sinn á þýðingum, og sagði þar meðal annars: "Innan þess tungumáls sem er manns eigin, enduróma önnur. Þetta má t.d. sjá í Finnegansvöku Joyce, sem er fjöltyngdur texti. Auk þess að vera enskur, opinberar bókin stöðugt annarleika sinn." McCaffery bendir á furður ýmissa þýðinga, og nefnir sérstaklega Kommúnistaávarpið, sem í enskri þýðingu er skrifað á líflausri ensku frá viktoríutímanum. Þar er um að ræða lítinn bækling sem er ætlað að komast í hendur allra verkamanna. Segir McCaffery að honum hafi þótt rökréttast, í því ljósi, að ávarpið, sem lykiltexti í allri verkalýðsbaráttu, yrði ekki bara þýtt á öll tungumál heimsins heldur á allar mállýskur heimsins. McCaffery ákvað í framhaldinu, og eftir samræður við franska rithöfundinn Robert Filiou, að þýða ávarpið á sína eigin mállýsku. McCaffery er fæddur í Sheffield á Englandi, og ólst upp þar í landi, þó hann hafi frá unglingsárum búið í Kanada. Hann þýðir ávarpið á vestur-ridingsku, eins og mállýskan kallast. Áður en við heyrum McCaffery flytja mállýskuþýðingu sína, skulum við rifja upp hvernig upphafsorðin hljóma í íslenskri þýðingu Sverris Kristjánssonar, til að auðvelda samanburð: "Vofa gengur nú ljósum logum um Evrópu - vofa kommúnismans. Öll máttarvöld gömlu Evrópu hafa tekið höndum saman um heilaga ofsókn gegn vofu þessari. Páfann og Rússakeisara er þar að finna í sama flokki, Metternich og Guizot, franska vinstri menn og þýzka lögreglunjósnara. Hvar er sá stjórnarandstöðuflokkur, að fjandmenn hans í ríkisstjórn hafi ekki æpt kommúnistaheitið að honum? Hvar er sá stjórnarandstöðuflokkur, að hann hafi ekki varpað aftur skeytinu og brugðið fjandmönnum sínum, róttækum sem afturhaldssömum, um þrælsmark kommúnismans?" Og þá skulum við heyra kommúnistaávarpið á vestur-ridingsku, Kummunist Manifesto - or wot we wukkers want, eins og það nefnist í þýðingunni.
Sú vídd sem augljóslega hefur mest áhrif á muninn á skrifuðu ljóði og upplesnu er framburðurinn - í öllu falli þegar ekki er um að ræða önnur element á borð við bakgrunnshljóð - hvernig fá stök fónem að hljóma, hvernig eru ólíkir bókstafir frambornir, tónaðir, sungnir, teygðir og klipptir. Að síðustu skulum við hlusta á sænska ljóðskáldið Jörgen Gassilewski flytja ljóð sitt Jag leser det jag skriver. Í ljóðinu leikur Gassilewski sér að því að gera litlar breytingar á fónemunum, svo að orðin morfast í eitthvað annað, sem stundum hefur ákveðna merkingu, stundum ekki, og stundum óljósa merkingu.
